Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Page 30
Það hefur ekki lítið gengið á með- al æðstu manna í enska knatt- spymusambandinu eftir að Glenn Hoddle, landsliðsþjálfari þess, lét þau orð falla í The Times að fatlað- ir gætu sjálfum sér um kennt; þeir hefðu í fyrri lífum gert eitthvað hræðilegt sem væri orsök fötlunar þeirra núna. Glenn hefur verið mjög sérstakur í háttum i gegnum tíðina og þá sérstaklega í þjálfun sinni upp á síðkastið en hann hefur meðal annars haft til taks sérstakan heilara fyrir liðsmenn sína. Glæstur ferill Glenn Hoddle er fæddur árið 1957 í Hayes í Englandi. Hann byrjaði mjög snemma í knattspyrnu og strax árið 1974 var hann kominn til Tottenham Hotspur. Ári síðar gerð- ist hann atvinnumaður með liðinu. Hjá Tottenham var hann þar til seint á níunda áratugnum þegar hann fór til Monaco þar sem hann varð Frakklandsmeistari og afsann- aði með góðu gengi sínu að enskir leikmenn gætu ekki leikið með er- lendum liðum. Árið 1991 sneri hann aftur til Englands og tók við liði Swindon Town sem framkvæmdastjóri og leikmaður og kom þeim upp í efstu deild á tveimur árum. Hann fór síð- an til Chelsea og kom þeim í úrslit bikarkeppninnar árið 1994. Þegar Terry Venables hætti sem landsliðsþjálfari árið 1996 kom Glenn í stað hans. Landsliðið byrj- aði vel í undankeppni heimsmeist- aramótsins i knattspymu árið 1998 og náði jafntefli gegn ítaliu í Róm. Liðið féll hins vegar úr keppni í annarri umferð úrslitakeppninnar eftir vandræðagang hjá Paul Gascoigne og misheppnaða víta- spyrnu Davids Batty i leik gegn Argentínu. Þá kom í ljós að liðið hafði ekki æft vítaskot. Skildi eftir 18 ár Glenn Hoddle var giftur í 18 ár og eignaðist með konu sinni, Anne, þrjú böm: Zoe, 16 ára, Zöm, 13 ára, og Jamie sem er sjö ára. Glenn skildi við konu sína árið 1997 og vegna þess sendi enska knatt- Glenn Hoddle hefur ekki ástæðu til að brosa þessa dag- ana. Tengsl hans við andaheiminn og trú á endurholdg- un og refsingar mannsins urðu til þess að hann var rek- inn úr starfi þjáifara enska landsliðsins í knattspyrnu. „Þú uppskerð eins og þú sáir,“ sagði Glenn í Times. Hann telur ástæðu fötlunar vera þá að manneskjan hafi gert eitthvað af sér í fyrra lífi. spyrnusambandið frá sér tilkynn- ingu þess efnis að skilnaðurinn hefði orðið vegna persónulegra vandamála og hefði ekki áhrif á skyldur hans sem þjálfara. Einnig var undirstrikað að enginn annar en þau hjónin hefðu komið við sögu. Trúartilfinning Glenns Sagt hefur verið um Glenn Hoddle að hann sé endurborinn kristinn maður. Enskar kirkjur hafa þó ekki viljað viðurkenna hann sem sannkristinn mann þegar gengið er á forsvarsmenn þeirra. Sjálfur hefur Hoddle sagt: „Trú mín á guð, sem er mjög sterk, hefur ekkert með kirkjur að gera. Trú min er meira á sviði and- ans. Mér finnst ég ekki tilheyra Reykjavíkiirborg Borgarverkfrœðingur ÞROTTARSVÆÐI VIÐ HOLTAVEG Tilboð óskast í byggingarrétt á Þróttarsvæði við Holtaveg. Um er að ræða tvö aðskilin útboð. A-hluti: Um er að ræða byggingarrétt á 4 einbýlishúsum og 10 íbúðum í parhúsum. B-hluti: Um er að ræða byggingarrétt á tveggja hæða fjölbýlishúsi með 18 íbúðum. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu borgarverk- fræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð frá og með mánudeginum 8. febrúar. Tilboðum í A-hluta skal skila í síðasta lagi miðvikudaginn 17. febrúar 1999 kl. 11.00 á skrifstofu borgarverkfræðings og verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Tilboðum í B-hluta skal skila í síðasta lagi miðvikudaginn 10. mars 1999 kl. 11.00 á skrifstofu borgarverkfræðings og verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. neinum sérstökum hópi. Trúar- brögð snúa fólki frá guði.“ Trú Glenns kristaflast í þeirri trúarreynslu sem hann varð fyrir árið 1986 þegar hann, ásamt félög- um sínum í enska landsliðinu, heimsótti fæðingarstað Jesú í ísra- el. „Ég hefði getað gengið þaðan út eins og hinir piltarnir og fundist þetta hafa verið frábær reynsla en það var eitthvað meira, einhver sterk trúarleg tilfinning innra með mér. Það var mjög spennandi. Þegar ég kom aftur heim leitaði ég virki- lega að sjálfum mér og þaulskoðaði Biblíuna, austræn trúarbrögð og allt.“ Eileen og Kristur Talið er að Eileen Drewery, hús- móðir í Berkshire og andaheilari hans og lærimeistari í 24 ár, hafi haft mikil áhrif á sjálfsskoðun Glenns. Hún er nokkru eldri en hann, eða 58 ára, og hefur samband þeirra verið mjög sérstakt. Þegar Glenn skildi við konu sína fór hann til Eileen og bjó hjá henni. Samband þeirra er þó einungis talið á andleg- um nótum lærlings og lærimeistara, ólíkt því sem gerðist í Hvíta húsinu. Glenn sagði ævisögu sinni, og vakti það mikla hneykslan, að Jesús hafi verið venjulegur maður sem hefði ekta náðargáfu - „alveg eins og Eileen“. Lokaðurhugur Fyrir heimsmeistarakeppnina í knattspymu í fyrra réð Glenn Eileen sem einn af hjálparkokkum sínum við þjálfun enska landsliðs- ins og hjálpaði hún honum meðal annars að velja í liðið með handayf- irlagningu. í fyrirsögnum margra enskra blaða var geðheilsa þjálfar- ans vefengd en Hoddle svaraði fyrir sig og sagði að enginn væri neyddur til að leita til hennar. Meirihluti leikmannanna hafði óneyddur leit- að til hennar síðasta árið fyrir keppnina, þar á meðal Paul Gascoigne, Ian Wright, Paul Ince og Robbie Fowler. Glenn sagði enn fremur: „Hvað gerist fjórum til fimm dög- um eftir að maður sker sig? Sárið grær. Það er vegna þess að líkam- inn getur læknað sjálfan sig. Hún getur komið þesu ferli af stað, svo einfalt er það nú.“ Glenn sagði að aðferðir Eileen hefðu bjargað ferli tveggja knatt- spyrnumanna hjá Swindon og að þeir sem gerðu gys að henni og ef- uðust um hæfni hennar væru með lokaðan huga og einstrengingslegir. Hann ráðlagði þeim hinum sömu að leita til hennar eftir aðstoð. Orð Glenns Hoddle um fatlaða var kornið sem fyllti mælinn. Tony Blair forsætisráðherra gekk fram fyrir skjöldu og fordæmdi orð Glenns og það var ekki síst það sem varð til þess að enska knattspyrnu- forystan varð að láta hann taka pok- ann sinn. Sumir vilja þó halda því fram að ekki hefði átt að taka svo hart á Glenn og að það hafi verið þrýstingur frá nýjum styrktaraðila landsliðsins sem varð til þess, ásamt orðum forsætisráðherrans, að hemn var látinn fara. Eileen Drewery stendur þó með sínum lærlingi í gegnum þykkt og þunnt og segir að hann hafi rétt fyr- ir sér með fatlaða. „Þú uppskerð eins og þú sáir,“ segir Eileen. „Segjum sem svo að maður lendi í átökum og hrygg- brjóti annan. Maðurinn mun vænt- anlega gjalda þess í næsta lífi. Ég trúi á endurholdgun og hún er Glenn einnig mjög hugleikin." -sm Byggt á The Times, Daily Telegraph og Glenn leikur fimlega á leikmann Coventry þegar hann var upp á sitt besta. Glenn Hoddle hlýtur, samkvæmt kenningum sínum, að hafa verið engill í fyrra lífi, svo lipur er limaburður hans í þessu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.