Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Síða 31
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999
Þið getið hætt að strita,
hamingjan er ekki til sölu
„Can’t Buy Me Love,“ sungu Bítl-
amir forðum. Svo virðist vera að
þeir hafi tekið réttan pól í hæðina
með þessum orðum því amerískir
vísindamenn hafa eftir margar og
ítrekaðar rannsóknir komist að því
að hamingjan sé ekki til sölu. Frá
Michael Jackson er svakalega ríkur
og ekki sérlega hamingjusamur. Þó
hefur hann efni á því að sofa í súr-
efnisgeymi.
þessu er greint í Intemational Her-
ald Tribune fyrr í vikunni.
í nútímaþjóðfélagi, hvað þá í nú-
tíma íslensku þjóðfélagi, er þó auð-
velt að gleyma því að veraldleg gæði
séu ekki allt. En það er sama hve
miklu maður safnar inn á bók og
hve mörg rafmagnstæki maður
kaupir, niðurstaðan er alltaf sú
sama: hamingjan er ekki til sölu.
Sparið sparnaðinn
Ekki er það einungis svo að pen-
ingar geti ekki veitt manni ham-
ingju heldur virðast þeir heldur
koma í veg fyrir það en hitt. Fólk
sem gengst upp í því að sanka að sér
fé virðist samkvæmt rannsóknum
þjást af mikilli streitu, kvíða og
þunglyndi, auk þess að líða yfirleitt
frekar illa. Ef fólk er upptekið af því
að græða sem mest og spara sem
mest þá getur farið svo að það glati
hamingjunni.
Þeim sem þrá frægð og frama
farnast heldur ekki eins vel andlega
og þeim sem láta sér duga að mynda
sterk tilfinningatengsl, eru meðvit-
aðri um sjálfa sig eða gefa sig alla í
störf fyrir samfélagið.
Fegurð, frægð, fé - og
fýla
Þessi voru búin að safna lengi fyrir almennilegu höfuðfati þegar þau upp-
götvuðu að hamingjan fælist ekki í því. Þess í stað auka þau sitt yndi með
ferðum á söfn.
Skyldi Beta vera hamingjusöm? Hún virðist ekki vera það, blessunin, þrátt
fyrir að þurfa ekki að hafa áhyggjur af peningum. Kannski hún hafi bara
áhyggjur af öðru i staðinn.
Eldri rannsóknir hafa sýnt að
engin fylgni sé milli fegurðar og
vellíðunar. Nýrri rannsóknir sýna
meira en það. Það er óæskilegt að
vera fagur, frægur og ijáður. Fólk
sem er mjög upptekið af því að vera
fagurt, frægt og fjáð er ekki einung-
is þunglyndara en annað fólk held-
ur á það frekar við hegðunarvanda
og líkamlega kvilla að stríða en þeir
sem lausir eru við f-in þrjú.
Samkvæmt rannsóknunum gildir
þetta um alla þjóðflokka og hvaða
aldur sem er. Einnig virtist litlu
máli skipta hve mikið fólk fékk í
laun. Auðæfi, sem slík, hafa ekki
mannskemmandi áhrif heldur það
að vera alltaf að hugsa um þessi
sömu auðæfi.
Þessi er upptekinn af peningum og kann það ekki góðri lukku að stýra: Hamingjan hverfur.
Heilræði dagsins eru því að hætta
að hugsa um peningana. Kannski er
þó betra að klára að telja fram svo
skatturinn verði ekki reiður en eft-
ir það er móttóið: ekki hugsa um
peningana, jafnvel þótt maður þurfi
kæruleysissprautu um mánaðamót-
in.
-sm
Bubbi Morthens hélt hljómleika á Fógetanum á miðvikudagskvöldið. Áhorfendur fengu að heyra ýmsar perlur af
hans fjölmörgu plötum en af nógu er að taka. Bubbi hyggur á ferðalög um landið á næstunni og mun meðal annars
heimsækja Vestmannaeyjar, Akureyri, ísafjörð, Dalvík og Sauðárkrók. Auk þess ætlar Bubbi að halda tónleika í fjöl-
mörgum skólum landsins. DV-myndir Teitur
Bubbi stingur á fjölmörgum kýlum í þjóðfélaginu. Þá er ekki við hæfi að vera
að brosa mikið.
Stúlkan sem starir á hafið? Nei, hún er bara að hlusta á Bubba.