Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Page 40
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999
*
48
'1
Aurskriða og jarðvegshrun
hafa lokað einu landleiðinni að
Machu Picchu í Perú. Machu
f Picchu eru án efa frægustu minj-
ar um Inka í Perú og staöurinn
jafnframt sá vinsælasti af ferða-
mönnum. Það er talið að Machu
Picchu hafi verið einn helgasti
staður Inka á 15. og 16. öld.
Ferðamenn eiga þess þó kost að
heimsækja rústimar, sem eru
hátt í Andesfjöllum, en slík ferð
| kostar um þrisvar sinnum meira
Ien lestarferð. Jafnan er farið frá
borginni Cusco, sem er í 200 kíló-
metra íjarlægð frá höfuðborginni
Líma, en þaðan hefur lestarferð-
um verið aflýst í að minnsta
kosti 20 daga. Þetta er talsvert
áfaU fyrir ferðaþjónustu á svæð-
inu því um þúsund ferðamenn
leggja að jafnaði leið sína að
Machu Picchu á degi hverjum.
Vilja fimm ár í viðbót
írar hyggjast nú hvetja Evr-
ópusambandið tU þess að fresta
fyrirhuguðu afnámi tollfrjálsra
verslana um fimm ár. í mars
munu ráðherrar ES-landanna
fimmtán hittast tU þess að ræða
| afnámið og hugsanleg áhrif þess
á atvinnulíf aðildarlandanna.
Samkvæmt ákvörðun Evrópu-
sambandsins verður fríhafnar-
verslun með öllu aflögð þann 30.
júní næstkomandi. Ekki mun
auðsótt að fá frekari frest því
ráðherramir aUir verða að sam-
þykkja slíka ákvörðun.
Landleiðin lokuð
Nepalir banna glerflöskur
Frá því á ágúst hefur sala
bjórs og gosdrykkja í glerflösk-
um verið bönnuð í Nepal. Bann-
ið var sett til þess að spoma við
flöskubrot-
um sem
lágu eins og
hráviði um
fjallshlíð-
amar. Það
mun segin
saga að
þótt fjall-
göngu-
menn
séu dug-
legir að bera
drykkjarföng upp Himalayjafjöll-
in em þeir ekki jafnáfiáðir í að
bera tóm ílátin aftur niður. Á
hverju ári heimsækja um 30 þús-
und manns Himalayafiöllin og
var talið að ekki færri en 200
þúsund flöskur lægju eftir þessa
ferðalanga. Glerbrotin sköpuöu
bæði innfæddum og ferðamönn-
um hættu en með nýja banninu
segjast stjómvöld vonast til að
halda landi sínu hreinu í fram-
í tíðinni.
Kínverjar á faraldsfæti
Ár kanínunnar rennur brátt
upp í Kína og þá leggja hundrað
manna land undir fót og fara til
síns heima til þess að fagna nýju
ári með fiölskyldunni. Hvergi
munu meiri fólksflutningar eiga
sér stað á sama tíma en í Kina
þegar nýja árið nálgast. Hátíðar-
höldin í Kína munu standa frá
14. til 22. febrúar næstkomandi.
Vegakerfi landsins verður undir
miklu álagi enda eiga æ fleiri
Kínverjar nú bíla. Þá er talið að
tæpar tvö hundrað milljónir
manna muni ferðast með lest og
sex milljónir með flugi. Lestar-
ferðum verður fiölgað til muna
og í fyrsta sinn geta Kínverjar
: sér farmiða á Netinu.
Vetrarferðir innanlands era vax-
andi þáttur ferðaþjónustunnar.
Þessar ferðir hafa þó helst höfðað til
erlendra ferðamanna undanfarin ár.
Það er i raun synd því þegar betur
er að gáð eru margar spennandi
vetrarferðir i boði. Ferðasíða DV
heimsótti ferðaþjónustufyrirtækið
íslandsflakkara á dögunum og kann-
aði vetrarvertíðina sem er að hefiast
um þessar mundir.
„Meginstarfsemi íslandsflakkara
hefur undanfarin ár falist í ýmis-
legri afþreyingu fyrir erlenda hvata-
ferðahópa. Við viljum gjarna fá
fleiri íslendinga í ferðirnar en þeim
fari smám saman fiölgandi. Við sér-
sníðum ferðirnar að þörfum hvers
hóps þannig að engar tvær ferðir
eru alveg eins,“ segir Sigríður Jón-
asdóttir hjá íslandsflökkurum.
íslandsflakkarar leggja mikla
áherslu á ferðalög að vetri og gera
til dæmis út sex Land Rover bíla
sem era sérstaklega úbúnir til fialla-
ferða við erfiðustu aðstæður. Snjó-
sleðar eru einnig vinsæll farkostur
þegar komið er á fiöll og farnar eru
hefðbundnar snjósleðaferðir.
Óþarfi að fá hroll
Þeir eru vafalaust ekki margir
Hjá Islandsf lökkurum er hægt að fara í margs konar snjóaf þreyingu, alit frá þvf að ganga á skíðum og upp í að renna
sér á dekkjaslöngu niður snævi þakta fjallshlíð.
J Nýstárlegar vetrarferðir með íslandsflökkurum:
Ogleymanleg nætur-
dvöl í snjóhúsi
- skíðaferðir utan alfaraleiða, snjó"rafting", slöngubrun og margt fleira
A- ■
-*
H
Samstilltur hópur á leið í ævintýraferð á Hengilssvæðinu.
sem hafa prófað að sofa í snjóhúsi
hérlendis. Sumir fá væntanlega
hroll við tilhugsunina en að sögn
Sigríðar er það algjör óþarfi. „Snjó-
húsagistingin hefur vakið mikla
hrifningu hjá okkur. Við bjóðum
þessa gistingu aðeins fyrir hópa
enda er mikil vinna að búa snjóhús-
in til. Það tekur til dæmis þrjá
starfsmenn tólf tíma að búa til tvö
hús og kamar fyrir fimmtán manna
hóp. Ferðatilhögunin er oftast
þannig að farþegamir verja degin-
um í ýmis konar snjóafþreyingu og
koma svo í snjóhúsin að kvöldi. Þá
eram við búin að moka þau og gera
allt tilbúið. Við höldum gjarnan
grillveislu og síðan leggjast menn
saddir og sælir til svefns í jökla-
svefnpokum sem þola 40 gráða frost.
Það á engum að verða kalt en nauð-
synlegt er að sofa með húfu á höfð-
inu. Að öðru leyti dugar að vera
klæddur góðum ullarnærfötum.
Næturdvöl í snjóhúsi er flestum
ógleymanleg," segir Sigríður.
Rafbátar á fjöllum
Snjóafþreying er samheiti hjá ís-
landsflökkurum yfir ýmsa skemmt-
un sem farþegum býðst að njóta að
vetri til. Snjóleysi háði fyrirtækinu
talsvert síðasta vetur en Sigríður
segist vongóð um að veturinn nú
verði snjóþyngri.
„í snjóafþreyingu bjóðum við til
dæmis snjóbrettaiðkun. Við kenn-
um undirstöðuatriðin en kosturinn
við snjóbrettin er sá hversu fljótt
flestir eru að ná tökum á þessu.
Snjó“rafting“ og slöngubrun er líka
vinsælt en þá eru stórar dekkja-
slöngur eða rafbátar notaðir til þess
að renna sér niður snævilagðar
brekkur. Þá má ekki gleyma göngu-
skíðunum sem eiga vaxandi fylgi að
fagna,“ segir Sigríður.
Snjóbílaskíðamennska er annað
fyrirbæri sem íslandsflakkarar
standa fyrir. Farþegum gefst kostur
á að ferðast með snjótroðara upp á
fiallstoppa og renna sér niður á skíð-
um eða snjóbrettum. „Þetta getur
verið óskaplega skemmtilegt og
kjörið fyrir þá sem vilja prófa skíða-
mennsku utan alfaraleiða. Þessi teg-
und skíðamennsku er fremur ný af
nálinni hérlendis en þetta hefur
lengi verið vinsælt sport í Kanada.
Við höfum meðal annars farið á
Tindfiallajökul, Heklu, Botnsúlur og
Geitlandsjökul í þessum ferðum."
Bjórinn falinn
Meðal annarra vetrarferða má svo
nefna skriðjöklaferðir þar sem
ferðalangar ganga um völundarhús
jökla vopnaðir mannbroddum og
ísöxum. Þessar ferðir eru ekki ein-
skorðaðar við vana fiallamenn held-
Margir farþega íslandsflakkara prófa
snjóbrettin. Hægt er að fá kennslu í
undirstöðuatriðunum en flestir eru
fljótir að ná tökum á brettunum.
ur eiga allflestir að ráða við göng-
una. Þeir sem hafa svo gaman af
annars konar útivist geta reynt sig
við ísklifur og fengið kennslu í und-
irstöðuatriðum áður en lagt er upp
ísveggina.
„Vetrarferðirnar era jafnt ætlaðar
einstaklingum sem hópum. Það er
algengt að stcirfsmannafélög og við-
skiptavinir fyrirtækja komi í þessar
ferðir en við bjóðum eins og fyrr
segir hvataferðir eða ferðir sem eiga
að hrista ákveðinn hóp saman. Þá
era gjarnan lagðar ýmsar þrautir
fyrir fólk. Að vetrinum felum við
'nluti í snjónum, bjór eða annað sem
hópurinn óskar eftir, og síðan leita
menn að þessu með snjóflóðaýlum
og GPS staðsetningartækjum. Þetta
hefur mælst vel fyrir og er ávallt
vinsælt," segir Sigríður Jónasdóttir
hjá íslandsflökkurum. -aþ
Þyrla með skíðamenn innanborðs býr sig undir að lenda á Botnssúlum. Þyrl-
ur eru talsvert notaðar í dag til þess að ferja skíðamenn upp á fjallstoppa.