Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Page 41

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Page 41
49 V LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 Drukkið í félagsskap hákarla Umsvifamenn í Las Vegas verða seint vændir um hógværð þegar kemur að hönnun hótel og spilavíta þar í borg. í byrjun mars verður opnað enn eitt spilavítið sem að sjálf- sögðu er ætlað að slá öllu öðru við. Vítiö er engin smásmíði, 130 þúsund fermetrar, þannig að ekki ætti aö þrengja að gest- um. Á aðalbarnum hefur verið komið fyrir risafiskabúri sem umlykur salinn og þar munu hákarlar synda mnhverfis gest- ina á meðan þeir gæða sér á veigum hússins. Finni menn hins vegar til svengdar verða þeir að ganga í gegnum það sem virðist vera gríðarstór eldvegg- ur og mun sjálfsagt fara um suma gestina við það. Að loknum málsverði geta menn svo kastað sér til sunds í stöðuvatni sem hefur veriö búið til fyrir utan spilavítið. Þar er að finna vélbúnað sem sér tO þess að ölduhæðin sé ekki lægri en tveir metrar fyrir þá sem hafa hug á að skella sér á brim- bretti. Mikil aðsókn í Uffizi Uffizi-safnið í Flórens nýtur j nú meiri vinsælda en nokkru í sinni áður. Unnið hefur verið hörðum höndum að því að þre- É falda rými sýningargesta og á þegar hafa þrjátíu herbergi ver- í iö opnuö almenningi í fyrsta sinn. Þar af eru herbergi sem j urðu Ola úti í sprengjutOræði l mafíunnar árið 1993. í viðbótarrýminu er að finna listmuni sem hafa verið í { geymslu um áratugaskeið, þar á ? meðal málverk eftir Cimabue, : Giovanni BeOini og Andrea del S Castagno. ? Kólumbus á stall Kristófer Kólumbus er í þann | mund að taka land í Puerto Rico, en tO stendur aö reisa á 1 næstunni risavaxna styttu af j kappanum. Styttan verður reist á strönd- í inni í borginni San Juan en tO j þess að rýma fyrir henni þarf að rífa fjölda íbúðarhúsa, við j litla hrifningu þeirra sem þar ” búa. Menn eru hins vegar stór- l huga í Puerto Rico og strax var i ákveðið að styttan skyldi ekki minni en sjálf frelsisstyttan. Þá j skarst Loftferðaeftirlit landsins ; í leikinn og krafðist þess að hún yrði lækkuð úr 107 metrum j niður í 90. Það kemur ekki að j sök - hún verður samt stærri 1 en frelsisstyttan og innfæddir ! eru vissir um að hún muni laða j að mikinn fjölda ferðamanna í j framtíðinni. hð pfi Vetrarhátíðin í St. Paul í Minnesota: Fagna kaldasta tíma ársins Tvíburaborgim- ar á bökkum Miss- issippi, Minneapol- is og Saint Paul, eru mörgum ís- lendingum góö- kunnar. Þeir sem eru á leið tO Minneapol- is á næstunni ættu að bregða sér yfir á austurbakkann tO St. Paul þar sem borgarbúar fagna því að nú er kald- asti tími ársins. Vetrarhátíðin er nú haldin í 115. sinn en tildrög fyrstu hátíðarinnar voru þau að blaða- Fallegir ísskúlptúrar setja sterkan svip á St. Paul á þess- um árstíma. ar. í lok hátíðarinnar fjölmenna borgarbú- ar í blysgöngu og kveðja norðanvind- inn formlega. íshallirnar of dýrar Eins og hæfir vetrar- rikinu St. Paul setja ísskúlptúrar mikinn svip á borgina á þess- um tíma. Þá er venja að búa tO einn skúlp- túr úr alvöruís, þ.e. ís sem hægt er að borða. í ár verður sá skúlp- túr eftirlíking af hin- um fræga Rushmore- maður New York Times móðgaði borgarbúa í grein um borgina. Hann líkti St. Paul við Síberíu og sagði hana gjörsamlega óbyggOega sökum kulda. Borgarbúar firrtust við og ákváðu að sanna fyrir um- heiminum að borgin væri lífleg og skemmtOeg, líka yfir köldustu mán- uðina. Vetrarhátíðin í St. Paul er bæði sú elsta og stærsta sem haldin er í Bandarikjunum. Hápunktar hátíð- arinnar eru tveir: annars vegar dansleikur þar sem Boreas, konung- ur norðanvindsins, er krýndur með viðhöfn en hann er tákn hátíðarinn- fjalli og mun vega rúm tvö tonn. A árum áður tíðkaðist að byggja risa- vaxnar íshaUir en undanfarin ár hefur ekki fengist fjármagn tO þess. Síðasta íshöU var búin tO árið 1992. Hún var fimmtán hæða og var skráð í heimsmetabók Guinness. Hún kostaði skOdinginn, eða um eina miUjón doUara og um tvær og hálf miUjón manna gerðu sér ferð tO að skoða hana i þá tólf daga sem hún stóð uppi. Sjón er sögu rikari i St. Paul á þessum árstíma og vert að geta þess að mörg veitingahús brydda upp á ýmsu skemmtOegu í tOefni hátíðarinnar. Holl og bragdgód jurtakœfa prjár tiúffenqar bragðtegundir! Fæst í flestum matvöruverslunum Dreifing: Heilsa ehf. S:5B3 3232 1500 cc vél, 9o hestöfl 5o7o afsláttur af sjálfsfeiptingu Hvíldjj 'i-ríldjKmi. wcest jja áfrn, ijúfífeiptur: Í.IÖÖ.OÖO 40.000 « I.I59.OOO HYUnHHI Ármúla 13 Sími 575 1200 Sðludeild 575 1220 www.bl.il Þrjátíu ár liðin frá Woodstock: Hátíðin endurvakin í Austurríki - reiknað með 250 þúsund gestum Þrjátíu ára afmælis Woodstock- hátiðarinnar verður fagnað á þessu ári. Austurríkismenn ætla að ríða á vaðiö og efna tO þriggja daga tón- listarhátiðar í borginni Wiener Neustadt, sem er 40 kOómetra suð- ur af Vínarborg. Woodstock 1999 verður haldin dagana 16. tO 18. júli og ef að líkum lætur verður þetta stærsti tónlistar- viðburður Evrópu í sumar. Austur- rikismenn eru bjartsýnir á að hátíð- in muni laða i kringum 250 þúsund gesti til landsins og að Wiener Neustadt verði næststærsta borg landsins í þrjá daga. Að sögn skipuleggjenda var Aust- urríki valið vegna þess að það er í hjarta Evrópu, mitt á mOli austurs og vesturs. Meðal hljómsveita sem þegar hafa boðað komu sína eru MetaO- ica, Iggy Pop, Zucchero, Skunk An- ansie, Faithless auk þess sem nokkrir tónlistarmenn frá uppruna- legu Woodstock hátíðinni munu láta sjá sig. í aOt verða hljómsveit- irnar um eitt hundrað og munu tón- leikamir standa í 70 klukkustundir. Stjórnandi tónleikanna er Mark nokkur Fisher en hann stjómaði meðal annars tónleikafor Pink Floyd, „The WaO“, auk nokkurra tónleikaferöalaga RoOing Stones. Tónleikarnir verða síðan endur- teknir í heOd sinni í Bandaríkjun- um viku síðar. Á hátíðinni í sumar verða fimm þúsund starfsmenn, þrjú þúsund salemi, eldaðar verða 750 þúsund máltíðir á dag, þar af 96 kOómetrar af pylsum, yfir miOjón hamborgar- ar og ein og hálf miOjón lítra öls verður kneyfuð ef spár tónleika- haldara ganga eftir. Reuter Heillaskeyti Símans eru skemmtileg leið til að gleðja vini eða skyldmenni á afmælisdögum eða öðrum merkisdögum. Nú getur þú pantað sendingu heillaskeyta á Intemetinu. Þú ferð einfaldlega inn á heimasíðu Símans, á slóðina www.simi.is/ritsiminn, skrifar viðeigandi texta og velur mynd sem þú vilt hafa á heillaskeytinu. Síðan sér Síminn um að koma skeytinu til viðtakanda. H •r -v «:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.