Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Síða 59
gT3r opor HAITRRM B TTTTOAGHAOIIAJ
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999
Mars Attacks (1997).
geimveranna og Rússa. í The Flying
Saucer (1950) vilja Rússamir kom-
ast yfír geimskip nokkurt og í Red
Planet Mars (1952) reyna þeir að
kollvarpa kapítalismanum með út-
varpssendingum frá Mars. Það væri
þó mikil einfoldun að leggja allar
myndir að jöfhu hvað þetta varðar.
Invasion of the Body Snatchers
(1956) er t.d. oft talin til mynda er
ráðast gegn kommúnisma en hún er
ekki síður að gagnrýna ofsakennda
bandaríska réttsýni. Það má því
vera með öllu ljóst að þótt þessar
myndir virki viö fyrstu sýn fjar-
stæðukenndar eru þær nátengdar
því samfélagi er þær spretta upp úr.
Þróun
Þær breytingar sem átt hafa sér
stað síðustu áratugi er kannski
auðveldast að greina með því að
bera saman eftirgerð Invasion of
the Body Snatchers (1978) við
frumgerðina. Uppbygging myndar-
innar helst nánast óbreytt en stór-
kostleg umskipti hafa orðið á allri
tæknivinnu. Svipað er upp á ten-
ingnum í The Puppet Masters
(1994) sem fjallar einnig um mann-
eskjur er lúta annarlegum öflum.
Þar yfirtaka vel útfærðar geimver-
in- manneskjur og stjóma þeim
sem brúðum. Eftir gerð þeirrar
myndar hefur útfærsla geimver-
anna orðið æ flóknari og þær
runnið saman við skrímsli hryll-
ingsmynda, sbr. Independence Day
og Starship Troopers sem sækja
báðar einnig mikið í brunn mynda
6. áratugarins. Það gerir Mars
Attacks! (1997) lika þótt hún geri
nú grín að öllu saman. Þörf
áminning því áhorfendur fara á
mis við mikið ef þeir hafa ekki
húmorinn með er þeir hverfa aftur
til oft vonlausra handrita, fárán-
legra geimskrímsla og ótrúverðug-
ustu atburðarása kvikmyndasög-
unnar.
-bæn
í 1
Sígi Idar innrásarr nynr lir
The Day Earth Stood Still.
The Flying Saucer (1950)
★ Bandarísk yfirvöld senda njósn-
ara til Alaska í von um að hann
hafi upp á fljúgandi furðuhlut sem
sést hefur geysast um himininn á
miklum hraða. Hann kemst að því
að ekki er um geimverur að ræða
heldur uppfinningu mennsks vís-
indamanns. Höfuðóvinurinn, Sov-
étríkin, er aftur á móti einnig á
höttunum eftir þessari merku
smíð. Óneitanlega forvitnilegur
söguþráður en frekar leiðinleg
mynd.
TheThing (1951)
★★★ Geimskip hrapar á norður-
pólnum og bandaríski herinn send-
ir út flokk manna til að hafa upp á
því. Tekst þeim ekki betur upp en
svo að þeir sprengja skipiö í tætlur
áðm- en áhorfendur fá að berja það
augum! Ein geimveran kemst þó af
og þegar hún byrjar að þiðna mega
menn fara að vara sig.
The Day the Earth Stood Still (1951)
★★★★ Geimskip lendir í miöri
Washingtonborg með mikilvægan
boðskap í farteskinu sem fulltrúar
þess krefjast að fá að flyfja öllum
þjóðum heimsins samtímis. Slíkt
geta þær aftur á móti ekki komið
sér saman um og stofnar sú við-
leitni jarðarbúum í mikla hættu.
Robert Wise (Sound of Music, West
Side Story) leikstýrir.
The War of the Worlds (1953)
★★★★ Gerð eftir frægri sögu
H.G.Wells. Innrásarliðið fer um
alla jörðina og sprengir upp allt
sem á vegi þess verður. Baráttan
virðist vonlaus þegar öflugasta
vopn mannsins, kjamorkusprengj-
an, vinnur ekki á því. Hlaut ósk-
arsverðlaun fyrir bestu tæknibrell-
ur.
It Came from Outer Space (1953)
★★ Áhugamaður um stjömuskoð-
un sér loftstein hrapa til jaröar.
Hann er fyrstur á vettvang og verð-
ur vitni að annarlegri veru. Þegar
aðrir koma á árekstrarstaðinn eru
öll ummerki um hana horfin, og
verður hann að athlægi er hann
segist hafa séð geimveru. Myndin
ber þess merki að hafa veriö gerð
fyrir þrívíddarsýningar.
Eaith Vs. the Flying Saucers (1956)
★★★ Tilraunir til að senda
bandariskar flaugar út í geiminn
mistakast af ókunnum ástæðum.
Brátt kemur í ljós að „fljúgandi
undirskálar" hafa skotið þær nið-
ur. Verra er þó að áhöfn þeirra
girnist jörðina fyrir ný híbýli.
Tæknibrellur Ray Harryhausens
vekja aðdáun enn í dag.
-bæn
Myndband vikunnar
Girls' Night
★★
SÆTI FYRRI 1 VIKA J VIKUR Á LISTAi TITILL { ÚTGEF. TEG.
1 j í j 3 j Six Days Seven Nights - Sam Myndbönd J Gaman
2 4 2 Senseless Skrfan Gaman
3 í 3 i 2 i Wrongfully Accused Sam Myndbönd Gaman
4 j 2 j J J J 3 J Godzilla Skffan Spenna
5 J 5 | 4 í Sliding Doors j Myndform j Gaman
6 6 j 7 j V ) i 5 j Mercuiy Rising CIC Myndbönd Spenna
7 j 7 Red Comer J Wamer Myndir Spenna
8 8 6 Lethal Weapon 4 Wamer Myndir Spenna
9 NÝ í 1 1 HopeFloats Skrfan . - J f 1 Drama J
10 J 10 5 i Tlie Object Of My Affection Skrfan j Gaman
11 j 9 j 4 ‘t HeGotGame Bergvík Drama
12 11 4 Phantoms Skrfan Spenna
13 1 12 i 7 1 TheBigHit Skrfan j Spenna
14 j 14 i * i i - ; ) { 1 j City Of Angels Wamer Myndir Drama
15 NÝ Substitute 2 ) Háskólabíó J Gaman
16 NÝ J "J- \ 1 i j.. .... i Vild Spor Háskólabíó Spenna
17 i 15 ; 8 j Hush Sktfan Spenna
18 13 i 9 i j i The Man Who Knew Too Little Wamer Myndir Gaman
19 1 19 i 10 j Wild Things j Skrfan Spenna
20 NÝ J J ! 1 J PauSe CIC Myndbönd 1 Gaman
Lífshamingjan í Las Vegas?
Brenda Blethyn leikur Dawn, verkakonu sem bregður sér til Las Vegas.
Miðað viö hvernig myndin er
auglýst fannst mér að halda mætti
að um væri að ræða mynd í léttum
dúr um ferð tveggja miðaldra en
hressra, breskra kvenna úr verka-
kvennastétt til Las Vegas. Þær fara
þangað en dvölin þar tekur ekki
nema lítinn hluta myndarinnar sem
gerist næstum öll heima í Bretlandi
og er alls ekki í léttum dúr. Hún
fjallar um það hvemig önnur þeirra
tekst á við ólæknandi krabbamein
sitt og ákveður að lifa lífinu aðeins
áður en hún deyr og hvemig vin-
kona hennar reynir að sætta sig við
missinn. Þetta er afar hefðbundin
saga og lítt frumleg en leikstjórinn
lyftir henni upp með því að fá tvær
af bestu leikkonum Bretlands í þess-
um aldursflokki í aðalhlutverkin,
Brendu Blethyn (Secrets and Lies)
og Julie Walters (Educating Rita,
Intimate Relations).
Mágkonumar og bestu vinkon-
urnar Dawn (Blethyn) og Jackie
(Walters) vinna færibandavinnu í
verksmiðju. Á fostudagskvöldum
fara þær og spila bingó með hinum
konunum í verksmiðjunni. Eitt
kvöldið vinnur Dawn 100.000 pund
og ákveður að deila vinningnum
með Jackie en stuttu seinna kemst
hún að því að hún er með ólækn-
andi krabbamein. Jackie, sem á
stuttum tíma hefur misst vinnuna,
eiginmanninn og viðhaldið sitt,
kaupir þá tvo flugmiða til Las Veg-
as en það hefur alltaf verið draum-
ur þeirra að heimsækja höfuðborg
spilavítanna. Þær fara svo heim þar
sem Dawn liggur banalegima í
faðmi fjölskyldunnar.
Eins og áður sagði er myndin llt-
ið framleg og svipar þó nokkuð til
bandarískra sjónvarpsmynda um
svipuð efni. Að setja hana í þennan
breska lágstéttabúning (þar sem
frakkt og Ijótt fólk klæmist og segir
brandara í gríð og erg) breytir litlu.
Þeim búning klæðist önnur hver
mynd sem frá Bretlandi hefur kom-
ið síðustu ár, og er hann því orðinn
nokkuð slitinn. Hins vegar nær
myndin að hreyfa svolítið við
manni, sérstaklega í lokin þar sem
mikið táraflóð tekur við. Konur
þurfa þá nokkra vasaklúta og karl-
menn góða stjóm á tárakirtlunum.
Það sorglegasta fannst mér þó að til
þess að kreista síðustu dropana úr
lífinu skyldu konumar velja að fara
til Las Vegas en ég hefði haldið að
veröldin hefði upp á meiri og betri
undur að bjóða en flott spilavíti.
Julie Walters og Brenda Blethyn
sýna frábæran samleik, og aðrir
leikarar era af hinum breska gæða-
staðli í flestum tilvikum. Kris
Kristofferson er ágætm- i
kúrekarullunni sinni en fær í raun-
inni lítið að láta ljós sitt skína.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri:
Nick Hurran. Aðalhlutverk: Brenda
Blethyn og Julie Walters. Bresk,
1997. Lengd: 98 mín. Öllum leyfð
Pétur Jónasson