Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1999, Qupperneq 34
>
46
LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999 I>V
mðtal
Judith Ingólfsson segist eigin-
lega alveg vera búin að fá nóg
af fjölmiölaumfjöllun sem hin
fræga Stradivariusarfiðla hefur
^fengið. Fiðlan sem hún hefur að
láni er metin á u.þ.b. 144 milljón-
ir íslenskra króna. Þegar hún er
spurð hvort hún sé ekki hrædd
um að missa þennan dýrgrip eða
skadda hann með einum eða öðr-
um hætti þá segir hún að það eina
sem hún óttast sé að einhver steli
fiðlunni vegna þess hvers virði
hún er og jafnvel skaði hana
sjálfa til þess að hremma fiðluna.
„Ef umfjöllunin verður mikið
meiri er eins víst að ég verði að fá
mér lífvörð," segir hún hlæjandi.
Ég hitti Judith á fimmtudegi.
. J'iðlan er geymd í tösku sem hef-
ur hitamæla innanstokks og
ábreiðu fyrir hljóðfærið til þess
að allt sé þetta nú með réttum
hætti og verðmætur þrjú hundruð
ára gamall viðurinn bíði ekki
skaða. Hljómurinn er að sögn
þeirra sem hafa vit á alveg ólýs-
anlega dýrðlegur og það má ekki
breytast.
Verk þrungið tilfinningu
Judith byrjaði að læra á fiðlu
þegar hún var þriggja ára gömul.
Það var vegna tónlistaráhuga for-
eldra hennar, Ketils Ingólfssonar
eðlisfræðings og Úrsúlu Ingólfs-
son píanóleikara. Judith fluttist
siðan með foreldrum sinum til
Bandaríkjanna þar sem hún býr
enn. Hún tók ástfóstri við fiðluna
þegar í upphafi og hefur haldið
sig við hana síðan. Hingað til föð-
urlandsins kom hún á mánudag
og hefur varið tima sínum í að
heimsækja ættingja sem hún hef-
Judith Ingólfsson konsertfiðlari átti heima á Islandi fyrstu sjö ár ævinnar. Nú heimsækir hún gamia landið sitt til þess að spila með Sinfóníuhijómsveitinni.
Meðferðis hefur hún sérdeilis merkilega fiðlu. DV-myndir ÞÖK
ur ekki séð langalengi. Og auðvit- ana i Sinfóníunni á fimmtudags-
að til þess að æfa sig fyrir tónleik- kvöldið þar sem hún spilaði
íslenski fiðluleikarinn Judith Ingólfsson:
Gleðilegt
sumar í orlofshúsum
og tjaldvögnum VR
VR auglýsir eftir umsóknum um dvöl í orlofshúsum og tjaldvögnum félagsins sumarið
1999. VR hefur tekið á ieigu nokkur hús yfir hásumarið og hefur nú yfir að ráða 46 húsum
auk þess sem 28 tjaldvagnar eru til útleigu.
Orlofshúsin eru á eftirtöldum stöðum:
* Einarsstöðum á Völlum, S-Múlasýslu • Flúðum, Hrunamannahreppi • Akureyri • Bakka í Vatnsdal
Húsafelli í Borgarfirði • Ölfusborgum við Hveragerði • lllugastöðum í Fnjóskadal • Miðhúsaskógi
í Biskupstungum • Stykkishólmi • Kirkjubæjarklaustri • Snorrastöðum í Kolbeinsstaðahreppi
Tjaldvagnar
Einnig geta félagsmenn leigt tjaldvagna til 6 eða 13 daga. Tjaldvagnarnir eru leigðir frá miðvikudegi
til þriðjudags.
Leigugjald
Vikan í Miðhúsaskógi og á Flúðum kr. 11.000,-
Vikan annars staóar kr. 9.500,-
Tjaldvagn 6 dagar kr. 7.500,-
Tjaldvagn 13 dagar kr. 15.000,-
> Úthlutunarreglur
Réttur til úthlutunar fer eftir félagsaldri í VR að frádregnum fyrri úthlutunum orlofshúsa.
Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur eru á skrifstofu VR, í VR blaðinu og á vefnum, www.vr.is.
Umsóknareyðublöð
Hægt er að sækja um á þar til gerðum eyóublöðum sem fást á skrifstofu félagsins í Húsi
verslunarinnar, 1. hæð eða senda umsókn úr VR blaðinu bréfleiðis eóa í myndrita, 510 17 27.
Einnig er hægt að sækja um á vefnum, www.vr.is. Ekki er tekið á móti umsóknum símleiðis.
Fiðlukonsert númer eitt eftir
Sergei Prokoflev.
Judith segist þekkja Sinfóníu-
hljómsveitina mjög vel þar sem
hún hafi tvisvar áður troðið upp
með henni og að auki lék móðir
hennar með hljómsveitinni þegar
hún bjó á íslandi. En hvernig
verk er Fiðlukonsert númer eitt?
„Það er fremur stutt af fiðlu-
konsert að vera og mun styttra en
annar fiðlukonsert Prokofievs, að-
eins 22 mínútur að lengd. En ann-
ars er verkið mjög lýrískt og
óvenjulegt og myndar andstæðu
við húmorísk og lýsandi verk
hans líkt og Pétur og úifinn. And-
rúmsloftið í verkinu er þrungið
tilfinningu og í því eru mjög ólik-
ir efnisþættir en það er einmitt
það sem mér líkar best,“ segir
Judith. Hún segir jafnframt að
verkið sé mikil áskorun þótt hún
hafi leikið erfiðari verk og séð
það mun svartara. Hún hafi haft
dágóðan tima til þess að undirbúa
sig og það geri gæfumuninn.
Þarf að þekkia rátta
fólkið
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 23. apríl. nk.
*. Svör verða send umsækjendum bréfleiöis 4. maí.
Starf okkar
eflir
þitt starf
£
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Judith hefur unnið til margra
verðlauna fyrir fiðluleik. Dæmi af
því má nefna að árið 1997 vann
hún þriðju verðlaun í Paganini-
keppninni í Genúa og í fyrra vann
hún verðlaun í The Concert Art-
ist Guild Competition í Bandaríkj-
unum. Fýrst skaut henni þó ræki-
lega upp á stjörnuhimininn þegar
hún sigraði á siðasta ári í einni
virtustu keppni fiðluleikara í
heimi, Alþjóðlegu fiðlukeppninni
í Indianapolis. En hvers vegna er
keppni í hljóðfæraleik eins og
iþróttum?
Judith segist eiga erfitt með að
útskýra það. Þeir sem langi að
skapa sér nafn sem einleikarar
taki þátt í keppnum vegna þess að
það sé erfitt að koma sér á fram-
færi með öðrum hætti. Það þarf
að eiga mikið undir sér, þekkja
rétta fólkið og koma sér upp eins
konar öryggisneti sem síðan styð-
ur við bakið á manni. „Að vinna
keppni er ein leiðin til þess að
öðlast þetta þvi í gegnum keppn-
irnar kynnist maður fullt af fólki
og verðlaunaféð kemur sér vel
fyrir fiðluleikara eins og mig sem
ekki eiga mikla peninga," segir
Judith. „í bransanum þarf nefni-
lega að gera margt sem ekkert
kemur fiðluleik við. Það þarf að
borga morð fjár fyrir kynningar,
kjóla og ýmislegt annað sem er
markaðssetning á listamannin-
um. Þetta er langt ferli og pening-
arnir nauðsynlegt tæki til þess að
koma sér fyrir og öðlast öryggi."
Judith gengur vel 1 glímunni
við listheiminn. Eftir keppnina í
Indianapolis varð hún þess heið-
urs aðnjótandi að fá Stradivarius-
arfiðluna umtöluðu að láni en
hana átti m.a. fiðlusnillingurinn
Josef Gingold. Hún hlaut einnig
verðlaunafé sem nam 30.000 döl-
um og rétt til þess að halda tón-
leika í glæsihöllinni Carnegie
Hall i Lundúnum. Hún hefur öðl-
ast þau sambönd sem hvern fiðlu-
leikara dreymir um og nú er hún
bókuð á tónleika víðs vegar um
heiminn. Framtíðin er sannarlega
björt.