Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.1999, Qupperneq 40
LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999
nærmynd
Magnús Gylfi Thorstenn. nýr forstjúri Atlanta:
*
- bjargaði sex ára dreng frá drukknun árið 1975
Hinn nýi forstjóri Atlanta er sagöur góður vinur vina sinna og traustur í alla staði. Hann var lengi viðriðinn skátastarf
og heldur enn tryggð við Landnemana. Myndin er tekin á málflutningsskrifstofu hans og konu hans í New York.
DV-mynd ELA
Félagi Magnúsar í skátunum
minnist fréttar í Vísi árið 1975.
Um er að ræða forsíðufrétt. Þar er
því lýst að Magnús Gylfi Þor-
steinsson, 17 ára skátafomingi,
hafi bjargað sex ára dreng frá
drukkmm. Magnús hafði skömmu
áður verið að æfa blástursaðferð-
ina ásamt félögum sínum í skátun-
um og kom það að góðum notum. í
fréttinni lýsir hann atburðinum á
þessa leið:
„í lauginni sá ég svo dreng liggj-
andi á botninum, en ég hélt fyrst
að hann væri bara að kafa eftir
lyklinum að búningsskápnum sín-
um eða einhveiju. Ég pikkaði í
hann en hann hreyfði sig ekki.
Hann var orðinn blár þegar ég tók
hann upp og hættur að anda. Hann
hafði verið spölkom frá bakkan-
um og ég fór með hann að bakkan-
um. Ég botnaði og hélt honum upp
úr og blés í hann á meðan. Það var
farið að korra í honum þegar ég
rétti verðinum hann. Eftir að
vörðurinn tók hann, heyrði ég að
hann fór að gráta.“
Starfsferillinn
Magnús Gylfi Þorsteinsson er
fæddur í Reykjavík 23. júní 1957 og
er sonur hjónanna Þorsteins Bald-
urssonar og Katrínar Guðrúnar
Magnúsdóttur. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í Reykja-
vík árið 1977 og embættisprófi í lög-
fræði við Háskóla Islands í júní árið
1983. Hann stundaði framhaldsnám
við háskólann í Salzburg veturinn
1983-4 og við McGeorge School of
Bjargvætturinn
Magnús Gylfi var lengi skáti og
segja þeir sem kynntust honum á
þeim árrnn að hann sé til fyrir-
myndar sem skáti. Hann er sagður
vinur vina sinna og einkar traust-
ur. Magnús var í skátunmn fram á
háskólaár sin og hefúr haldið sam-
bandi við félaga sína síðan og þeg-
ar hann hefúr verið hér heima hef-
ur hann mætt á skátamót þar sem
gamlir Landnemar hittast. Þá hef-
ur hann gjaman verið með konu
sína með sér.
Það ráku margir upp stór augu
þegar tilkynnt var að Amgrímur
Jóhannsson, forstjóri og eigandi
flugfélagsins Atlanta, hefði hætt
sem forstjóri og annar verið ráðinn.
Nýi forstjórinn heitir Magnús Gylfi
Thorstenn og hefur um nokkurt
skeið starfað sem lögfræðingur í
Bandaríkjunum. Ekki var mikið
meira vitað um manninn þannig að
DV ákvað að kanna málið nánar og
draga upp nærmynd af Magnúsi
Gylfa.
Law í Austurríki. Hann lauk
meistaragráðu í lögum við New
York University School of Law árið
1989. Hann hlaut málflutningsrétt-
indi fyrir alríkisdómstólum í
Bandaríkjunum 1985, fyrir fylkis-
dómstólum 1985 og fyrir Hæstarétti
Bandaríkjanna 1989.
Magnús starfaði sem fulltrúi hjá
bæjarfógetanum í Kópavogi 1983 og
fulltrúi hjá Kromann & Munter í
Kaupmannahöfú 1984. Árið 1986
stofnsetti hann málflutningsskrif-
stofú í New York ásamt konu sinni
og hefúr starfað sem lögmaður í
Bandaríkjunum fram að þessu.
Magnús og Susan.
Fjölskyldan
Magnús Gylfi er tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Anna Elísabet
Ragnarsdóttir Borg og voru þau gift
í sjö ár. Árið 1986 giftist Magnús
Susan Esposito, bandariskum lög-
manni sem hann kynntist er hann
var við nám í Evrópu. I Bandaríkj-
unum tók Magnús upp nafnið
Thorstenn og ber kona hans það
nafn einnig. Þau eiga tvö böm,
Júlíönu Margréti, fædda 9. október
1987, og Philip Keili sem fæddur er
árið 1993.
Skjár 1 er öllum
opinn án endurgjalds.
Stöðin er eingöngu
rekin á auglýsingum.
Útbreiðslusvteði Skjás L
Faxafló as vte ðið
Suðurnes
Suðurland
Akranes
Til að stilla inn á
myndlykil veljið fyrst
CP takka, stimplið
síðan inn 63 eða 99,
mismunandi eftir
endurvarpL
Þegar mynd er komin
ýtið þá á opin tígul,
sláið inn minnisnúmer
og síðan á lokaðan
tígul. Endið aðgerð
með aðýta aftur á CP
takkann. Stöðin er nú
jost iminni á lyklinum.
mm
BREIÐVAJRPIÐ
VALGERÐUR MATÍÍASDOTTÍR
MKi) HAliSVERK LAl HELGAR
DAVID LETTERMAN
KAPALVÆDINGxHif
BakliBsgttu 14
Keílavík
Símú 421 -1432
ÖKEYFI* <léRV«MITðl 4UVE OFIN
Skjár 1 er sendur út á örbylgju og á Breiðvarpi Eandssímans.
~Ef þú þarft aðstoÖ við að stilla á Skjá 1 hringdu í 544-4242
og starfsmenn stöðvarinnar munu leiðbema þér.