Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.1999, Side 45
LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999
Nafn frumkvöðuls: Jón Ásgeir Jóhannesson.
Aldur: 31 árs.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Menntun: Nokkur ár í Versló.
Fyrirtæki: Baugur og Gaumur og fjöldi hluta í mörgum öðrum fyrirtækjum.
Áætlað markaðsvirði: 10 miUjarðar kr.
Eignarhlutur: Baugur 12,5% og Gaumur 50%.
Áætlað virði: Baugur 1,3 milljarðar en enginn veit hvers virði Gaumur er að öðru
leyti.
Nú er komið að mér, pabbi
Jón Ásgeir Jóhannesson hefur sennilega varið
lengri tíma af lífi sínu í verslun en nokkur ann-
ar íslendingur. Enda verða menn að byrja
snemma ætli þeir sér að bylta verslunarháttum
þjóðarinnar.
Jón Ásgeir er sannkallaður frumherji þótt
hann hafi staðið í skugganum af fóður sínum, Jó-
hannesi, þangað til hann varð forstjóri Baugs.
Tími til kominn, segja sumir því Jón Ásgeir er
sagður kaupmaður fram í fingurgóma og eigi
jafnvel enn stærri hlut í velgengninni en pabbi
gamli.
Bónusævintýrið hófst í Skútuvogi og sér ekki
fyrir endann á því enn þá. Sagan um milljónina
sem Jón Ásgeir fékk að láni og Óli í Olís var
ábyrgðarmaður að og varð að hátt í tveggja millj-
arða eign er efni í næstu Disney-teiknimynd.
Vondu kallamir voru margir á leið
feðganna en þeir sigruðu þá alla og
standa nú með pálmann í höndunum.
Hagkaupsmenn héldu að þetta væri
einhver bóla sem myndi springa og
engan óraði fyrir því að einn daginn
yrði stórveldið Hagkaup orðið að
tveimur deildum undir stjórn Bónus-
feðga.
Þeir eiga nú sjálfir 25% í Baugi sem fór nýlega
á almennan markað. Kvartað var undan háu
verði hlutabréfanna en það eru kveinstafir sem
Bónusfeðgar eru óvanir að heyra frá viðskipta-
vinum. Allir hluthnir runnu þó ljúflega út og
fengu færri en vildu og sýnir það trúna sem fjár-
festar hafa á feðgunum en þó aðallega hinum
unga Jóni Ásgehi sem stendur í brúnni. Nú er
Bónus bara hluti af Stór-Baugi. Feðgarnir fjár-
festa til hægri og vinstri og lága verðið ekki leng-
ur aðalmarkmiðið eins og sést á verðskrá Rex en
þar eiga þeh 50%. Þeh feðgar reka eignarhaldsfé-
lagið Gaum sem fer með misstóran eignarhlut
þehra í öðrum fyrirtækjum eins og Hard Rock,
Pizza Hut, Kringlunni, Smáralind og mörgum
fleiri samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins.
Það voru þrh íslenskir læknar sem stofnuðu
fyrirtækið DeCode Genetics til að stunda erfða-
fræðirannsóknir á íslandi; Kári Stefánsson, Krist-
leifur Kristjánsson og Ernh Snorrason. Kári varð
fljótlega aðallega í forsvari fyrir fyrirtækið á
sinni „norðurmýraríslensku". í maí 1996 var fyr-
irtækið formlega kynpt og að þeir félagar hefðu
fengið 735 milljóna kr. fiármagn frá bandarískum
fiárfestum til mannerfða- rannsókna. Kári taldi
ísland henta vel til erfðafræðhannsókna vegna
fámennis, lítillar blöndunar og gnægð ættfræði-
upplýsinga sem lægju fyrh allt frá landnámi. í
þessu taldi Kári fólgin mikil verðmæti. í þessu
umhverfi tæki mun skemmri tima að finna orsök
ýmissa sjúkdóma sem stöfuðu af stökkbreytingu
erfðavísa eins og geðklofa, þunglyndi sykursýki,
MS-sjúkdóma. Með því að koma hér upp öflugri
og nýtisku rannsóknaraðstöðu og greiða góð laun
væri hægt að skapa atvinnutækifæri fyrir fiölda
hámenntaðra íslendinga sem ella væru í nokkurs
konar útlegð erlendis.
Það gekk efth sem Kári hafði spáð. Fjöldi
sprenglærðra sérfræðinga streymdi til vinnu hjá
íslenskri erfðagreiningu, ekki bara frá útlöndum
heldur einnig úr ríkisreknu vísindastarfi hér-
lendis. Þá tók breskur nóbelsverðlaunahafi i
læknisfræði sæti í stjóm fyrirtækisins. Hámarki
hins hraða uppgangs þessa fyrsta stóra íslenska
líftæknifyrirtækis var svo náð í október 1998. Þá
var tilkynnt um risasamning við lyfiatröllið Hoff-
mann La Roche upp á 15 milijarða
króna á næstu fimm árum. Þjóðin var
agndofa. Þetta átti sér enga hliðstæðu í
sögunni. Talað var um að samningur-
inn væri á við nokkrar loðnuvertíðh
og sjálfur forsætisráðherrann var við-
staddur undhskrift. Samningurinn
þýddi að tvöfalda varð starfsmanna-
fiöldann, þrefalda húsnæðið og marg-
falda tækjakost fyrirtækisins. íslensk
erfðagreining var orðin óskabam þjóð-
arinnar. TröUasögur gengu um laun
starfsmanna og að Kári vUdi ekki ráða
fólk sem fór fram á of lág laun. Innleiddh voru
nýh siðh frá USA, m.a kaupréttur á hlutabréfum
(stock option) sem hluti af heildarkjörum.
Hin mikla hrifning átti efth að minnka. fs-
lensk erfðagreining taldi nauðsynlegt fyrh árang-
ur í vísindastarfi sínu að komið yrði á fót mið-
lægum gagnagranni þar sem safnað væri saman
á einn stað heilbrigðisupplýsingum um alla ís-
lendinga. Ríkisstjórnin tók vel í þetta og í heU-
brigðisráðuneytinu sömdu menn frumvarp í
hveUi um miðlægan gagnagrunn. Hörð mótmæli
komu fram frá hagsmunaaðilum og miklar rimm-
ur urðu á Alþingi. Margir efuðust um að hægt
væri að tryggja persónuvernd sjúklinganna og
sögðu að hægt væri að misnota þær í vafasömum
tilgangi. Og hver átti eiginlega upplýsingarnar?
Læknastéttin mótmælti hvað ákafast en var þó
ekki einhuga og samtökin Mannvemd vora stofn-
uð sem börðust ákaft gegn fyrhætlan stjórnvalda.
Stjórnarandstaðan mótmælti því harðlega að svo
umfangsmiklu frumvarpi ætti að þrýsta í gegnum
þingið á vordögum án nægilegrar umræðu.
Frumvarpið var dregið til baka, breytingar gerð-
ar og loks samþykkt á haustþingi.
Enn sér ekki fyrir endann á deilum um mið-
lægan gagnagrunn og þúsundir íslendinga hafa
sagt sig úr honum. Víst er að seint munu gróa
þau sár sem mynduðust í umræðunni. Ekkert lát
virðist hins vegar vera á hækkun hlutabréfa í ís-
lenskri erfðagreiningu, eða DeCode Genetics,
enda fyrirtækið tilkynnt tímamótaárangur í
rannsókn á orsökum ýmissa alvarlegra sjúkdóma
og slíkar fréttir kynda undir gengi hlutabréfa.
Nafn frumkvöðuls: Kári Stefánsson.
Aldur: 50 ára.
Stjömumerki: Hrútur.
Menntun: Læknir frá HÍ. Doktor í taugameinafræði.
Fyrirtæki: íslensk erfðagreining/DeCode Genetics.
Áætlað virði: 35-45 milljarðar króna.
Eignarhlutur: Trúnaðarmál, en að margra mati 25%.
Áætlað virði: 8,8-11,3 milljarðar.
Brautryðjandi í ólgusjó
Er óhætt að fjár-
Ifesta í þessum
fyrirtækjum?
Vegna hinna geysimiklu
hækkana sem orðið hafa á
verði nokkurra óskráðra há-
tæknifyrirtækja fékk Viðskipta-
blaðið, sem kom út á miðviku-
daginn, 12 verðbréfamiðlara frá
jafnmörgum verðbréfafyrir-
tækjum til að raða þeim niður
| efth gæðum þeirra sem fiárfest-
,i ingarkosts. Mest gat fyrirtæki
fengið 48 stig en minnst 12 stig
og miðað við að einstaklingur
væri að fiárfesta fyrir 500 þús-
| und kr. (þaö skal tekið fram,
6 vegna þess að við erum meö
| Baug í þessari umfiöllun, að
| ekki var lagt mat á gæði fiár-
| festingar í því fyrirtæki enda er
það nú skráð á Verðbréfaþingi)
Niðurstaðan varð þessi:
Sæti fyrirtæki stig
i 1. DeCode 43
2. Netverk 30
? 3- Flaga 29
4. OZ 18
Hvað segja ráðgjaf-
arnir? <
- auk þess að gefa einkunn
voru eftirfarandi ummæli
höfð eftir sérfræðingunum.
„Ég myndi nú ekki ráð-
leggja neinum að fiárfesta í
þessum fyrirtækjum miðað
við það gengi sem boðið er
upp á.“
(„DeCode er einfaldlega eina
fyrhtækið sem augljóslega
hefur mikla framtíðarmögu-
j leika."
„Verð fyrhtækjanna hækk- 4 '
ar og lækkar efth því hvernig
1 fiallað er um þau í fiölmiðlum
og þjóðfélaginu. Það fer voða-
Ilega lítil gagnrýnin umræða
fram um framtíðarmöguleika
fyrhtækjanna."
„Hvernig stendur á því að
fyrhtæki sem enginn hafði
heyrt talað um fyrir hálfu ári,
eins og Flaga og Netverk, eru
allt í einu milljarða króna
vhði?“
„Ég myndi ekki ráðleggja
1 neinum að verja öllu spari-
fénu i að kaupa bréf i þessum
i félögum en eitt eða fleiri þess-
| ara fyrhtækja gætu vel átt eft-
h að „meika það“. Þeh sem
: hafa peninga til umráða ættu *
I hins vegar hiklaust að kaupa í
einu eða flehi þessara fyrh-
tækja.“
Utsala - PELSINN - Utsala
Verðdæmi:
Minkapels
Þvottabjarnarpels
Fenjabjórpels
Pelsfóóurskópur
kr. 695 DÚS. verð nú kr. 399 >ús
kr. 385 DÚS. verð nú kr. 199 5ÚS
kr. 225 DÚS. verð nú kr. 157 5ÚS
kr. 95 DÚS. verð nú kr. 59 3ÚS
50% afslóttur af öllum fatnaði
Opið í dag,
laugardag,
10-17
VISA
mm
|E ) RaSgreiSslur í 36 mánuSi
Ath.
Opið sunnudag,
14-17
PELSINN
Kirkjuhvoli,
Kirkjutorgi 4,
sími 552 0160