Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.1999, Qupperneq 52
LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999 TIV
*« veiðivon
„Staöan er bara góð viö Elliða-
vatn núna, nánast enginn is á vatn-
inu og veðurfarið er gott. Við eigum
von á mörgum hérna við vatnið
fyrstu dagana og veiðin gæti orðið
góð,“ sagði Vignir Sigurðsson eftir-
litsmaður á bænum Elliðavatni í
vikunni. Veiðin hófst í Elliðavatni í
>- morgun og veiðimenn voru komnir
til veiða klukkan sjö.
„Fuglinn var kominn snemma á
vatnið núna og það boðar gott fyrir
framhaldið. Fiskurinn hefur aðeins
verið að vaka en ekki mikið. Dags-
leyfið kostar 800 en svo er hægt að
kaupa kort sem gildir í 135 daga og
það kostar 9000. Þegar líður á verð-
ur Guðmundur Guömundsson svo
með flugukennslu héma við vatnið
en hana hefur hann verið með í tvö
ár. Þeim fjölgar sem læra þessa
list,“ sagði Vignir enn fremur.
Það verða örugglega margir sem
> bfídge
Veiðivon
Gunnar Bender
leggja leið sina upp að Elliðavatni
um helgina, bæði til að renna og
kíkja hvort menn séu að fá fisk.
Veiðieyrað:
Biðin eftir því að laxveiðitíminn
byrji styttist með hverjum deginum
en í dag em ekki nema 30 dagar
þangað til fyrstu ámar verða opnað-
ar, Norðurá og Þverá í Borgarfirði
og Laxá á Ásum. Og klukkutímarn-
ir em ekki nema 330 og það er ekki
löng bið eftir þeim silfraða.
í þokkabót er spáð góðu lax-
veiðisumri og hver getur ekki beðið
smástund?
Stangaveiðifélagið bætir við sig
Stangaveiðifélagiö heldur áfram
bæta við veiðisvæðum fyrir félags-
menn og aðra veiðimenn. Grenlæk-
ur er kominn í hendur þeirra
Stangaveiðifélagsmanna en þetta er
svæði fimm, svokallað Seglbúða-
land. Þetta er mjög fallegt svæði,
eins og reyndar næstum allur læk-
urinn. Fjórar stangir eru leyföar á
svæðinu og mun félagið hafa til um-
ráða 280 stangardaga í sumar. Ódýr-
asti dagurinn kostar 6400 stöngin en
dýrasti 10.900.
Síðasta opna húsið
Næsta föstudag verður síðasta
opna húsið á þessum vetri hjá
Stangaveiðifélagi Reykjavíkur. Fjöl-
margir hafa lagt leið sína á opnu
húsin í vetur enda margt skemmti-
legt verið í boði fyrir veiðimenn.
Þráðurinn verður síðan tekinn upp
Frá Elliðavatni.
\
\
aftur næsta haust, þegar veiðiánum
verður lokað, en þangað til em
margar tökur og bardagar við þann
silfraða. Og Stangaveiðiskólinn er
enn þá starfræktur og þar hafa karl-
ar og konur víst lært réttu handtök-
in í vetur. Skyldu veiðast fleiri lax-
ar í sumar?
Prokom Software Evmpumót í tvímenningi:
Chemla og Levy bættu fjöður í hattinn
Frakkamir Paul Chemla og Ala-
'in Levy nældu sér fyrir stuttu í Evr-
■■^ ópumeistaratitilinn í tvimennings-
keppni en fyrir em þeir ólympíu- og
Bermudaskálarmeistarar. Chemla
er að auki heimsmeistari í ein-
menningskeppni. Glæsilegur árang-
ur það!
Mótið var að þessu sinni haldið í
Póllandi og eðli málsins samkvæmt
vom pólskir spilarar í miklum
meirihluta. Eitt islenskt par var
í HELGARBLAÐI DAGS...
Síða
verkalýðshetjan
- Guðmundur Gunnarsson í helgarblaðsviðtali
Fyrsti fslendingur-
inn f úrslitakeppni
HM
Imynd ag stíll
stjórnmibmanna
Sadómasókistar
á Islandi
Fluguv$itJi.
maUrgatið. bókahilian. bíó. o.m.fL
f .trtO jrivnúu/. •. r /Mt.
meðal keppenda en hafði ekki er-
indi sem erfiði.
Þótt árangur Frakkanna væri
glæsilegur var það pólskur spilari
að nafni Robert Glowacki sem vakti
mesta athygli fyrir afburða varnar-
spilamennsku og var hann reyndar
útnefndur til verðlauna fyrir besta
vamarspilið 1999.
Við skulum skoða snilldina.
V/A-V * K86
v/a v „ Q32
* 1098
* D873
* ÁG
* D1076
* G53
* 9542
* D5
V ÁK4
* ÁD42
* ÁKG6
Sagnimar vom nokkuð eftir bókinni :
Vestur Norður Austur Suður
Pass pass pass 2 lauf
Pass 2 pass 2 *
Pass 3 grönd Allir pass
Glowacki sat í vestur og útspil
hans fékk engin verðlaun. Hann
spilaði nefnilega út hjartasexi.
Sagnhafi flýtti sér að láta gosann úr
blindum og þegar hann átti slaginn
þá svinaði hann tígultíu.
Glowacki drap á gosann og fór
yfir stöðuna. Suður var yfirlýstur
með 23-24 HP og því gat austur í
mesta lagi átt einn kóng eða eina
drottningu. Spilamennska sagnhafa
þýddi líka að mannspil austurs
hlaut að vera í tígli. Það var því
ljóst að sagnhafi átti auðvelda ellefu
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
slagi með því að svína tígli afhu-. En
hvað var til ráða? Var nokkuð að
gera í stöðunni? Eftir nokkra um-
hugsun sá Glowacki leið til þess að
fá sagnhafa ofan af tigulsvíning-
unni. Hann spilaði spaðagosa!
Setjið ykkur í spor sagnhafa. Eft-
ir að hafa hleypt heim á drottning-
una setur sagnhafi spilið i hættu
með því að svína tígli aftur því
hann gerir náttúrlega ráö fyrir að
spaðaásinn sé í austur. Og hann
hafði þar að auki fengið hagstætt út-
spil.
Hann tók því laufslagina, tvo
hæstu í hjarta og spilaði síðan
tígulás og meiri tígli. Austur drap
feginn á kónginn, spilaði spaða á ás
vesturs og hjartadrottningin varð
fjórði slagur varnarinnar. Það voru
400 til n-s en öll stigin fóru hins veg-
ar til a-v.
u P Plt jsin g ’ • ■ ‘
á við bædi um menn og dýr. PKini if iKi LINU U|\ JÍLll' y / 1 ÉUMFERÐAR \ |RÁÐ