Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1999, Qupperneq 39
DV LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
nmm
51
Fram undan...
Maí:
29. Hafnaríjaröarmaraþon (**)
Afmælishlaup Sveins K. Bald-
urssonar hefst klukkan 9.30.
Skráningarfrestur til flmmtu-
dagsins 27. maí. Skráningar
hjá Sveini í síma 565 2024, eöa
tölvupóstfang sveinnk@isholf.is.
Öllum þátttakendum er boðið
frítt í Suöurbæjarlaug og allir
fá verðlaunapening að loknu
hlaupi. Merkingar, drykkjar-
stöðvar og brautarverðir.
29. Neshlaup TKS (**)
(Ath. breytta tímasetnlngu).
Hefst kl. 11.00 við sundlaug
Seltjarnarness. Vegalengdir:
3,25 km án tímatöku og flokka-
skiptingar, 7 km og 14 km með
tímatöku. Flokkaskipting
bæði kyn: 16 ára og yngri (7
km), 17-34 ára, 35-49 ára, 50
ára og eldri. Verðlaun fyrir
þrjá fyrstu í öllum flokkum.
Upplýsingar gefa Kristján Jó-
hannsson í síma 561 1594 og
Svala Guðjónsdóttir í síma 561
1208.
30. Hólmadrangshlaup (**)
Hefst kl. 14.00 við hafnarvog-
ina á Hólmavík. Vegalengdir:
3 km án tímatöku og flokka-
skiptingar, 10 km með tíma-
töku. Flokkaskipting bæði
kyn: 16 ára og yngri, 17-39 ára,
40 ára og eldri. Verðlaun fyrir
þrjá fyrstu í hverjum flokki og
allir sem ljúka keppni fá verð-
launapening. Upplýsingar gef-
ur Matthías
Lýðsson í síma 451 3393.
Júní
3. Heilsuhlaup Krabbameins-
félagsins (***)
Hefst kl. 19.00 við hús Krabba-
meinsfélagsins, Skógarhlíð 8.
Vegalengdir: 2 km án tíma-
töku, 5 km og 10 km með tíma-
töku. Hlaupið fer jafnframt
fram á fleiri stöðum. Upplýs-
ingar á skrifstofu Krabba-
meinsfélagsins í síma 562 1414.
3. Bændadagshlaup UMSE (**)
Upplýsingar á skrifstofu
UMSE í síma 462 4477.
6. Grindavíkurhlaup (**)
Hefst kl. 10.00 við Sundmið-
stööina. Vegalengdir: 3,5 km
án tímatöku og flokkaskipting-
ar og 10 km víðavangshlaup
með tímatöku. Flokkaskipting
bæði kyn: 18 ára og yngri,
19-29 ára, 30-39ára, 40-49 ára,
50 ára og eldri konur, 50-59
ára, 60 ára og eldri. Allir sem
ljúka keppni fá verðlaunapen-
ing. Farandbikar fyrir fyrsta
einstakling í karla- og kvenna-
flokki og verðlaun fyrir þrjá
fyrstu í hverjum flokki. Frítt i
sund fyrir þá sem greiða þátt-
tökugjald. Upplýsingar gefur
Ágústa Gísladóttir í síma 426
8206.
8. Mini-maraþon ÍR (**)
Hefst kl. 19.00 við ÍR-heimilið
við Skógarsel. Vegalengd:
4,2195 km (1/10 maraþon) með
tímatöku. Flokkaskipting
ákveðin síðar. Upplýsingar
gefa Kjartan Ámason í síma
587 2361 og Gunnar Páll
Jóakimsson í síma 565 6228.
9. Víðavangshlaup HSÞ (*)
Upplýsingar á skrifstofu HSÞ í
síma 464 3107.
12. Akraneshlaup USK (***)
Keppni í hálfmaraþoni með
tímatöku hefst kl. 11.30 á
Akratorgi. 3,5 km án tímatöku
og 10 km með tímatöku hefst á
sama stað kl. 12.00. Flokka-
skipting bæði kyn: 14 ára og
yngri, 15-39 ára (10 km), 16-39
ára (hálfmaraþon), 40-49 ára,
50-59 ára, konur 50 ára og
eldri (hálfmaraþon), 60 ára og
eldri. Allir sem ljúka keppni fá
verðlaunapening. Útdráttar-
verðlaun. Upplýsingar gefur
Ragnheiður Guðjónsdóttir í
sima 431 4104.
13. Esjuhlaup (**)
Hefst kl. 13.00 og skráning frá
kl. 11.00. Upplýsingar hjá
Hjálparsveit skáta í Reykjavík
í síma 892 3305.
wmgammsm
Tólfta Heilsuhlaup Krabbameinsfálagsins:
Meðal fjölmennustu
hlaupa landsins
Á undanförnum árum hafa margir af snjöllustu hlaupurum landsins verið með í hlaupi Krabbameinsfélagsins.
Krabbameinsfélagið efnir nú í
tólfta sinn til Heilsuhlaups. Það fer
nú fram á fleiri stöðum en nokkru
sinni áður, eða á 12 stöðum um land
allt. Meðal annars verður hlaupið á
Akureyri, 1 Keflavík og víðar. í
Reykjavik verður hlaupið frá húsi
Krabbameinsfélagsins að Skógar-
hlíð 8 og ræst verður í hlaupið
klukkan 19.00. Hægt er að velja um
tvær vegalengdir, þriggja km skokk
frá Skógarhlíð að Hótel Loftleiðum
og til baka eða 10 km hlaup um-
hverfis Reykjavíkurflugvöll (sjá
meðfylgjandi leiðarkort sem sýnir
hlaupaleiðina i 10 km). Það er breyt-
ing frá fyrri hlaupum en áður voru
vegalengdir þrjár (2 km, 5 km og 10
km). Ætla má að fjölmennasta
Umsjón
fsak Orn Sigurðsson
hlaupið verði í Reykjavík og þar
muni þátttakendur skipta hundruð-
um.
Tími verður mældur hjá öllum
hlaupurum og úrslit birt eftir ald-
ursflokkum en þeir verða sex tals-
ins. Yngsti flokkurinn er 14 ára og
yngri en síðan koma 15-18 ára,
19-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára og 60
ára og eldri. Fyrstu þrír karlar og
fyrstu þrjár konur í báðum vega-
lengdum fá verðlaunagripi og fyrsti
karl og fyrsta kona í hverjum ald-
urshópi fá verðlaunapening. Jafn-
framt verða vegleg útdráttarverð-
laun. Boðið verður upp á sport-
drykki.
Á undanfömum árum hafa marg-
ir af snjöllustu hlaupumm landsins
verið með í hlaupi Krabbameinsfé-
lagsins. Á síðasta ári var það Ingólf-
ur Geir Gissurarson sem kom fyrst-
ur í mark í 10 km á tímanum 36.02
mínútum. Daníel Smári Guðmunds-
son náði þá frábærum tíma í 5 km
(sem þá var keppt í) þegar hann
hljóp á tímanum 13.14 mínútum.
Búnaðarbankinn er aðalstyrktar-
aðili hlaupsins. Skráning er hjá
Krabbameinsfélaginu frá þriðjudegi
1. júní til hlaupadagsins 3. júní en
skráningu lýkur klukkan 18.00 á
hlaupadaginn. Þátttökugjald er 400
krónur fyrir 14 ára og yngri en 600
krónur fyrir 15 ára og eldri, bolur
innifalinn í verði.
Ágúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Reykjavíkur maraþons, skrifaði nýverið undir samning við Friðjón A. Ólason
fyrir hönd Sól-Víkings og þeir félagarnir tóku létta hlaupaæfingu á eftir.
Samstarfssamningur
RM og Gatorade
um í tengslum við hlaupin. Frið-
jón A. Ólason fyrir hönd Sól-Vík-
ings og Ágúst Þorsteinsson frá
Reykjavíkur maraþoni undirrit-
uðu samninginn á dögunum.
-ÍS |
Reykjavíkur maraþon og Sól-
Víking hf. (Gatorade) hafa gert
með sér samstarfssamning til
þriggja ára fyrir árin 1999, 2000 og
2001. Samningurinn er mikils
virði fýrir Reykjavíkur maraþon
og mun koma að góðum notum í
nokkrum af fjölmennari almenn-
ingshlaupum landsins. Sól Víking
mun sjá Reykjavíkur maraþoni,
Miðnæturhlaupi á Jónsmessu og
„Laugaveginum" (milli Land-
mannalauga og Þórsmerkur) fyrir
Gatorade-drykkjum og öðrum vör-
Afmælis-
hlaup Sveins
K. Baldurs-
sonar í dag
í dag laugardaginn 29 maí
verður haldið Hafnarfjarð-
armaraþon og ræst verður í
hlaupið klukkan 9.30 um
morguninn. Þetta er fyrsta
löglega maraþonið sem fram
fer í Hafnarfirði. Hinn kunni
hlaupagarpur Sighvatur Dýri
mældi leiðina og það tryggir
nákvæma mælingu. Merk-
ingar, drykkjarstöðvar og
brautarverðir verða á sínum
stöðum. Lögreglan hefur lof-
að að mæta á varasöm gatna-
mót og mikil vinna hefur ver-
ið lögð í að gera hlaupið gott.
Tilvalið er fyrir Mývatns-
fara að nota þetta sem síðasta
langa hlaupið fyrir norður-
ferðina.
Skráningarfrestur í Hafn-
arfj arðarmaraþon er til og
með fimmtudeginum 27. maí.
Skráningum skal skila til
Sveins, sími 565 2024,
sveinnk@isholf.is Öllum
þátttakendum verður boðið
frítt í Suöurbæjarlaug og
að loknu hlaupi fá allir
verðlaunapening. Hlaupa- og
gönguklúbburinn Bláa
kannan stendur fyrir þessu
maraþonhlaupi sem er í
tilefni 50 ára aftnælis Sveins
K. Baldurssonar.
-ÍS