Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1999, Qupperneq 43
Þröng á þingl á náttstað.
Okkur leist nú ekki á blikuna þeg-
ar við keyrðum inn í Öræfasveitina.
10-11 vindstiga hliðarvindur hnykkti
bílnum til og frá á veginum og við
lögðumst á bæn og báðum fyrir því
að bíllinn héldist heill alla leiðina.
Sú von okkar gekk eftir og vindurinn
var dottinn niður þegar við tjölduð-
um við eyðibýlið Sandfell en þaðan
er oft lagt á Öræfajökul. Venjan er sú
að leggja mjög snemma af stað en við
byrjuðum á því að sofa yfir okkur og
komumst ekki af stað fýrr en um há-
degi. Venjulega tekur ganga á
Hvannadalshnúk 12-13 tíma og því
þarf aö leggja snemma af stað. Jök-
ullinn hefur tilhneigingu til að draga
til sín ský seinnipart dags og þvi
skemmtilegra að vera snemma uppi.
Leið okkar félaganna lá upp Sand-
fellið sem er nokkuð bratt og göngu-
færi leiðinlegt þegar byrðar eru
þungar. Þegar um 1000 metra hæð er
náð tekur snjór og jökull við og hægt
er að spenna á sig gönguskíðin. Þá
léttist gangan til muna, auk þess sem
minni hætta er á að falla í sprungur
þegar gengið er á skíðum. Jökul-
brekkan sem tekur við þama er ein
sú lengsta sem við þekkjum en hún
er ekki brött. Veðrið var nokkuð gott
og þegar viö gengum upp úr skýjun-
um í um 1500 metra hæð blasti við
einstakt útsýni og samspil skýja og
fjallstinda.
Sofið og skitið úti
Þegar jökulbrúninni var náð í um
1800 metra hæð var stefnan tekin á
Rótarfjallshnúk (1848 m). Rótarfjalls-
hnúkur stendur beint suður úr Ör-
æfajökli og útsýni þaðan er einstakt
niður í Öræfasveit.
Frá Rótarfjallshnúk héldum við á
Hnappana eystri (1851 m) og vestari
(1750 m). Þegar sá áfangi var að baki
var liðið á kvöld og við þurftum að
finna okkur náttstað. Venjulega
gröfum við okkur sjóhús og oft er
vist í þeim ágæt. Nú stóðum við aft-
ur á móti frammi fyrir þeim vanda
að mikið harðfenni var á jöklinum
og við áttum enga möguleika á að
búa til snjóhús. Nú voru góð ráð dýr.
Við vorum svo heppnir að sjá hóp
manna á ferð nokkra kílómetra frá
okkur. Við gengum til þeirra og okk-
ur til óvæntrar ánægju voru þama á
ferð félagar okkar sem voru að slá
upp tjaldbúðum. Þeir voru svo vin-
samlegir að leyfa okkur að sofa úti
undir skjólvegg hjá þeim en ekki var
pláss í tjöldunum. Við hlökkuðum
ekki til næturinnar því það er margt
þægilegra en að sofa úti i 1900 metra
hæð. Þær áhyggjur voru óþarfar því
við sváfum enn yfir okkur. Eftir 9
tíma svefn skriðum við úr pokunum
og hófumst handa við að ljúka verk-
efni okkar, eftir að hafa fullnægt
þörfum náttúrunnar á köldum
ískamri. Maður er ótrúlega fljótur
að ganga frá þegar sofið er úti því
ekki er um það að ræða að halda
lengi kyrru fyrir á ísköldum jöklin-
um.
Atli Þór glaðbeittur. Dyrhamar í baksýn.
Viö skildum við félaga okkar og
héldum nú á Sveinsgnípu (1950 m)
og þaðan á Sveinstind (2044 m) sem
lengi var talinn hæsti tindur lands-
ins. Hann er á austanverðum ör-
æfgjökli og þaðan er skemmtilegt út-
sýni yfir Esjufjöll. í góðu skyggni
má líka sjá allan Vatnajökul og
Austfirði þaöan. Frá Sveinstindi
gengum við á Snæbreið (2041 m)
sem er bunga norðan við Hvanna-
dalshnúk. Þar brast á mikill vindur
og skafrenningur og þurftum við að
grípa til staðsetningartækja til að
áÉ
Bjarni Már á Hvannadalshnúk.
fullvissa okkur um að við værum á
tindinum því að ekki sást neitt. Eins
og hendi væri veifað birti þó til yfir
jöklinum og lokatakmarkið var í
augsýn. Við renndum okkur að
Hvannadalshnúk (2119 m), gengum
upp á hann og hittum þar félaga
okkar aftur. Við fórum frá Hvanna-
dalshnúk með þeim yfir á Dyrham-
ar (1920 m), sem er þar skammt frá,
og þegar þangað var komið höfðum
við á tveimur dögum gengið upp Ör-
æfajökul og lagt að baki sjö af 10
hæstu tindum landsins.
Ánægðir með okkur gengum við
aftur í átt að brekkunni sem við
komum upp og hlökkuðum til að
renna okkur niður þessa frábæru
skíðabrekku. Hins vegar er ekkert
gamanmál að fara niður harðfrosna
skíðabrekku á gönguskíðum með 20
kg á bakinu. Þar að auki var ekkert
skyggni lengur og himinn og jörð
runnu saman. Skíðaferðin þarna
niður var því æði skrautleg og bylt-
umar voru óteljandi. Á niðurleið
mættum við hópi manna á uppleiö
og skemmtum þeim með einstökum
skíðatilþrifum og byltum.
Við losuðum skíðin af okkur með
ánægju og tilhugsunin um kalt kók
og hrein fot flýtti for okkar. Það
voru því sveittir og skítugir félagar
sem komu niður í bíl eftir einstak-
lega vel heppnaða ferð. Viö höfðum
lagt sjö af hæstu tindum landsins að
fótum okkar. -BMG
Með leiðsögn á
Það er ekki nema fyrir vana
fjallamenn að ganga án leiðsagnar
á hæsta tind landsins, Hvannadals-
hnúk.
Fyrir þá sem vilja ganga með
leiðsögn eru tvær ferðaskrifstofur
sem bjóða ferðir á Hvannadals-
hnúk.
Það eru Öræfaferðir, sem gerðar
eru út frá Hofsnesi í Öræfasveit, og
Hvannadalshnúk
íslenskir fj allaleiðsögumenn, Stór-
höföa 20. Þá hafa bæði Feröafélag
íslands og Útivist efnt til hvíta-
sunnuferða á hnúkinn. Þeir sem
vilja kynna sér nánar þessar
gönguferðir geta litiö á slóð Öræfa-
ferða, www.simnet.is/coast-
mountains, og íslenskra fjallaleið-
sögumanna, www.solver.is/guide á
Netinu.
Stærðir 3B-H6 Litir: Hvítur
1 Verðkr 13.900-
CELLORRTOR GCI
“ Litir: Hvítur
Verðkr. 13.900.
PHRNTOM TOP
Stærðir 3B-90 Verðkr. 3,690.
Stærðlr3846 Verðkr. 3.390,-
PHRNTOM TOP JR.
7«* Verð kr. 8.990. ■
Maraþon, Kringlunni
Útilíf, Glaesibse • Sparta,
Laugavegi • Markið, Ármúla
• Ozone, Akranesi
Akraaport, Akranesi
Kaupfél. Borgfirðinga,
Borgarnesi • PJótur, (safirði
Kaupfél. V-Húnvetninga
Hvammstanga • Kaupfél.
Skagfirðinga, Sauðérkróki
Siglosport, Siglufirði
Sportver, Akureyri • Tékn,
Húsavík • Austfiraku
alparnir, Egilsstöðum
SÚMbúðin, Neskaupstað
Skóbúð SelfoBB, Selfossi
Axel Ó, Vestm.eyjum
Sportvörur Flúðum
Skóbúð Óskars, Keflavík
CELLORRTOR pro
mmmmmmmm