Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1999, Blaðsíða 4
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999 U"V
Friðrik R. Jónsson, fyrrverandi eigandi Silfurtúns:
Yfirtekur Silfurtún
- neitar að borga launaskuldir. Norðmenn og Nýsköpunarsjóður yfirgefa skútuna
fé Silfurtúns á tæpum þremur árum
og er það fé allt tapað auk þess sem
hlutur Friðriks sjálfs, sem metinn
var til jafns við upphaflegan 260
milljóna króna hlut Norðmann-
anna, er tapaður. Rekstrarafkoma
fyrirtækisins hefur verið afar
slök og töpuöust ríflega 290
milljónir króna frá því í árs-
byrjun 1997 fram til miðs árs í
ár og staðan hefur örugglega
enn versnað á síðari hluta
ársins.
Til viðbótar má nefna
að um það leyti sem hin-
ir norsku fjárfestar
komu að Silfutúni fór
fyrirtækið í gegn-
um nauðasamninga
við þáverandi lán-
ardrottna sína og
þá voru um 230
milljóna króna
skuldir afskrifaðar
og lánardrottnum
Silfurtúns þar með
tapaðar. Saga Siif-
urtúns hefur þann-
ig verið þymum
stráð og hefur ná-
lega milljarður
króna tapast á
fáum árum.
Starfsemi er í al-
gjöm lágmarki í Silfurtúni í augna-
blikinu, engin framleiðsla er í
gangi en aðeins nokkrir starfsmenn
á skrifstofu. Flestir hafa þegar ráð-
ið sig í vinnu annars staðar.
-GAR
Borgar ef vel
gengur
„Það er róinn lífróður til bjargar
Silfurtúni,“ segir Friðrik R. Jóns-
son, sem hefur yfirtekið öll hluta-
bréf fyrirtækisins og þar með tekið
yfir skuldir félagsins.
Á fundi sem Friðrik hélt í vik-
unni með starfsmönnum Silfurtúns
lýsti hann því yfir að hann mundi
ekki greiða þeim laun sem þeir eiga
inn hjá fyrirtækinu en starfsmenn
hafa ekki fengið greidd laun fyrir
októbermánuð.
„Menn bara göptu. Það er bara
eitt ráð og það er að innheimta
launin með öllum ráðum. Okkur líst
ekki vel á þróunina,“ segir einn
starfsmanna Silfurtúns, sem ekki
vildi koma fram undir nafni
vegna málsins fremur en aðrir
starfsmenn fyrirtækisins
sem leitað var til.
Húsnæði Silfurtúns í Garðabæ. Starfsmenn á flótta.
Friðrik, sem nú er að
reyna afla fjár til áfram-
haldandi rekstrar Silfur-
túns, neitar að tjá sig
frekar um málið þar sem
það sé á „viðkvæmu
stigi“. Hann segist þó
hafa trú á Silfurtúni og
starfsmönnum þess sem
hafl unnið frábært starf.
Eins og komið hefur fram í DV
hafa stórsölur Silfurtúns upp á um
800 milljónir króna á vélum til
Mexíkó og Kína farið út um þúfur
og staðan í sölumálunum er sögð
vera afar slæm.
eigu en DV er ekki kunnugt um
hvort verksmiðjan er seld.
Botnlaust tap
Friðrik var aðaleigandi Silfur-
túns þar til fyrir rúmlega tveimur
sem Nýsköpunarsjóður og norskur
fjárfestir bættust í hópinn í 130
milljóna króna hlutafjáraukningu
síðastliðið haust.
Samtals hefur því nærri hálfum
milljarði króna verið bætt við hluta-
Samkvæmt samningi Friðriks við
meðeigendur sínar í Silverton ASA,
móðurfélagi Silfurtúns, ber þeim að
fá greiðslu frá Silfurtúni í framtíð-
inni fyrir hlutabréf sín, fari svo að
Friðriki takist að snúa rekstri
eggjabakkavélaverksmiðjunnar á
betri veg.
Friðrik hefur að undanfomu
þreifað fyrir sér um sölu á
Þakpappaverksmiðj-
unni ehf., sem er
fyrirtæki í
hans
og hálfu ári en þá komu norskir
fjárfestar að fyrirtækinu með nýtt
hlutafé, alls 360 miUjónir í tveimur
hlutum, og eignuðust meirihluta fé-
lagsins auk
þess
Karlmaður á fertugsaldri og 17 ára stúlka:
Fangelsi fyrir að
brjóta gegn
blygðunarsemi
DV, Akureyri:
Karlmaður á fertugsaldri hefur í
Héraðsdómi Norðurlands eystra
verið dæmdur í skilorðsbundið
fangelsi og til sektargreiðslu fyrir
að hafa brotið gegn blygðunarsemi
ungrar stúlku sl. sumar, en stúlkan
var þá 17 ára.
Maðurinn og stúlkan þekktust og
var maðurinn einnig ákærður fyrir
að hafa í nokkrum tilfellum keypt
áfengan bjór fyrir stúlkuna. Þegar
sá atburður varð er dæmt var fyrir
kom stúlkan á heimili mannsins,
sem þá hafði keypt fyrir hana bjór.
Stúlkan kallaði einnig aö heimili
mannsins tvo unga menn. Húsbónd-
inn fór á skemmtistað um nóttina
en þegar hann kom heim svaf stúlk-
an alklædd í rúmi á heimili hans og
var ein í húsinu. Maðurinn færði
föt hennar frá brjóstum hennar og
saug nakið brjóst hennar.
Maðurinn bar ekki af sér sakir en
kvaðst ekki muna sökum ölvunar
hvað gerst hafði. Hann var dæmdur
í þriggja mánaða fangelsi en refs-
ingu var frestað um þrjú ár haldi
maðurinn almennt skilorð. Þá var
maðurinn dæmdur til að greiða
stúlkunni 125 þúsund króna miska-
bætur og til greiðslu alls sakar-
kostnaðar. -gk
Slysagildra í Vík í Mýrdal:
Sveitarstjóri þvær
hendur sínar
af sundlaug
- segir hreppinn eiga hana en ekki sjá um rekstur
DV, Vík:
Á tjaldstæðinu í Vík í Mýrdal
stendur sundlaug sem var sett upp
síðastliðið sumar til að koma tU
móts við sundlaugarleysi Mýrdæl-
inga. Upphaflega var áætlað að hún
yrði aðeins uppsett á meðan hún
yrði í notkun og að henni lokinni
yrði laugin tekin niður og fjarlægð
af staðnum. Laugin stendur þó enn
á tjaldstæðinu full af vatni og 1
kringum hana er ekkert sem vamar
því að í hana komist böm eða aðrir
óboðnir gestir.
Hafsteirin Jóhannsson, sveitar-
stjóri í Vik, sagði málið hafa verið
rætt fyrir nokkm og hann þurfi að
komast á tjaldsvæðiö til að kanna
hvort laugin sé þar enn. Samkvæmt
heimildum DV var hún þar enn í
gærdag.
„Það er líka spuming hvort það
sé hreppsins að fjarlægja hana eða
leigutaka tjaldstæðisins. Við kom-
um ekki nálægt rekstri laugarinnar.
Við eigum sundlaugina og aðstoðuð-
um við að koma henni upp,“ sagði
Hafsteinn. Þegar hann var spurður
hvort ekki væri á ábyrgð eiganda
laugarinnar að taka hana niður
kvaðst hann ekki vita það en hins
vegar sé laugin enn uppi og það eigi
ekki að vera, það sé alveg klárt og
vonandi verði hún tekin niður sem
fyrst. -NH
Fíkniefnum er víða smyglað og margar leiðir notaðar. Síðastliðinn þriðjudag
fannst kíló af hassi við Sundahöfn en myndin er tekin þaðan. DV-myndGVA
Sundahöfn:
Kíló af hassi á
glámbekk
Lagt var hald á kíló af hassi við
Sundahöfn síðastliðinn þriðjudag-
inn. Starfsmaður við Sundahöfn
fann hassið en talið er að það hafi
dottið undan gafli á gámi á höfn-
inni. Málið er í rannsókn en rann-
sóknardeiid lögreglunnar gat ekki
tjáð sig frekar um málið að svo
stöddu. -hól
Frá tjaldsvæðinu í Vík, þar er þessi sundlaug óvarin fyrir mönnum og skepn-
um.
KÁERR
Tökur á áramótaskaupi Sjón-
varpsins eru hafiiar. Af nógu er að
taka fyrir umsjónarmenn þess, þá
Egil Eðvarösson og Öm Ámason
þar sem kosningar, virkjunarmál,
dópmál, ástamál, vín-
veitingaleyfamál og
fleiri átakamál hafa
mjög sett svip sinn á
árið sem er að líða.
Sandkorn hefur
fregnað aö KR-ing-
ar verði teknir fyr-
ir í skaupinu í ár
enda langþráður
íslandsmeistara-
titill í höfn eftir áratuga biö og um-
deild sigurhátíð haldin á Eiðistorgi
í kjölfarið. Voru skaupsmenn staðn-
ir að verki við Eiðistorg í bítið einn
morguninn 1 vikunni og fóru mik-
inn.
VG í Háskólann
Nú, þegar Vinstri-grænir eru
1 orðnir stærri en Samfylkingin, hef-
ur Steingrímur J. Sigfússon
áhyggjur af því að eiga ekki ung-
liðahreyfingu. Horfa Vinstri-grænir
til Háskólans í því
sambandi en þar
hefur Röskva ráðið
ríkjum undanfarin
misseri. Röskva er
uppeldisstöð Sam-
fylkingarinnar og
hafa Vinstri-
grænir áhyggjur
af að þeir séu að
verða út undan.
Hafa þeir hug á því að bjóða fram
lista vinstrimanna í vor til þess að
komast í oddastöðu en Vaka og
Röskva hafa barist um völdin i
gegnum tíðina. Er málið mun
lengra komið heldur en stríðandi
fylkingar, Vaka og Röskva, halda.
Ekki hafa nein nöfn á nýja vinstri-
hreyfingu í Háskólanum enn verið
nefhd.
Langeygir
Kjúklingabændur hafa átt í vök að
verjast vegna campylobacter-sýk-
inga og þrýstingur frá stjómvöldum
í þá veru að hlutum verði komið í
viðunandi horf hefur
vaxið. Bíður
kjúklingabænda því
mikið og vandasamt
verkefni. Forsvars-
menn þeirra ættu
að vera orönir mál-
kunnugir í meira
lagi og því varla í
vandræðum með
að finna lausnir vand-
ans. Sama stjóm, með Bjama Ás-
geir Jónsson Reykjagarðsmann í
forsæti, hefur setið í félaginu í fjög-
ur ár. Eftir því sem Sandkorn kemst
næst hefur ekki verið haldinn aðal-
fundur í félaginu síðastliðin þrjú ár
og þvi sjálfgefið að óbreytt stjóm
sæti áfram. Hins vegar munu nokkr-
ir félagsmenn vera orðnir langeygir
eftir aðalfundarboði.
Ekkert mál
Fíkniefnamál hafa mjög sett svip
sinn á fréttir síðustu mánuða.
Frétta- og blaðamenn hafa haft í
nógu að snúast og keppst við að ná
í sem bestar og ítar-
legastar upplýsing-
ar um þessi mál,
ekki síst frá lög-
reglu. Eitthvað
virðist það þó hafa
gengið misjafri-
lega því Eggert
Skúlason, vaskur
fréttamaður á Stöð 2, skaut undir
rós á lögregluna í fréttum á fimmtu-
dag. 1 frétt um nýjasta hassmálið,
sem teygir anga sína til Spánar, lét
hann þess getið, þar sem hann stóð
framan við lögreglustöðina í
Reykjavík, að það hafi ekki verið
neinum vandkvæðum bundið að fá
allar upplýsingar um málið hjá
spænsku lögreglunni.
Umsjón Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn @£F. is
......