Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1999, Side 37
Qslgarviðtal
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999 DV
JjH' LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999
Qalgarviðtal
Foreldrar pilts sem hefur verið hótað lífláti vegna „skuldar" við fíkniefnasala:
Viltu að sonur ykkar verði drepinn?
- sagði handrukkarinn þegar hann stóð á hlaðinu fyrir utan sveitabæ þeirra í síðustu viku
DV, Sauðárkróki:__________________
„Þetta hefur verið skelfilegur tími -
alveg frá því í ágúst. Líf okkar hefur
verið þaulskipulagt og allir á varð-
bergi. Hér í sveitinni var allt ólæst
áður. Nú er allt lokað og harðlæst,"
segir Björn Hansen, bóndi í Skaga-
firði, skammt sunnan Sauðárkróks -
faðir 18 ára pilts sem handrukkari frá
höfuðborgarsvæðinu hótaði lífláti í
siðustu viku.
Björn og kona hans, Edda Haralds-
dóttir, hafa failist á að segja sögu sína
- hvemig það er að eiga bam sem er
rukkað og hótað lífláti vegna fikni-
efnainnheimtu, hvernig það er að
vera hótað því að vera ekki ömggur
með híbýli sín og bíl - að þurfa að lifa
í eilífum ótta. Þau era bara ein af
ótrúlega mörgum foreldrum sem lent
hafa í handrukkuram og hótunum
þeirra.
Björn og Edda eru í nánu samstarfi
við lögregluna á Sauðárkróki sem er i
viðbragðsstöðu allan sólarhringinn.
Hringingar hófust
í sumar
Þetta byrjaði allt um verslunar-
mannahelgina þegar sonur hjón-
anna tók að sér aö flytja 200 grömm
af hassi frá höfuðborgarsvæðinu til
Akureyrar. Lögreglan stöðvaði pilt í
Varmahlíð og fékk hann úrskurðað-
an í gæsluvarðhald.
Áður en langt um leið viður-
kenndi pilturinn og mál hans var
sent sina leið. En málið var ekki svo
einfalt:
Edda hafði litla rifu á bílglugganum
þegar handrukkarinn sagði að mað-
ur yrði fenginn til að drepa son
hennar.
„Nokkru síðar var hringt í systur
hans og sagt að sonur okkar skuld-
aði hundruð þúsunda króna - fyrir
efnið sem hann var tekinn með.
Þetta kom frá eiganda efnisins,“
segir Edda. „Síðan kom önnur rukk-
un í gegnum síma en í þriðja skipt-
ið var sagt að „maður kæmi norður
um helgina". Við gerðum allt í sam-
ráði við lögregluna sem vaktaði svo
bíl viðkomandi manns þegar hann
kom,“ segir Bjöm. „Við vöktuðum
strákinn okkar og okkar nánustu
voru látnir vita hvað væri að ger-
ast.“
Viltu þá að...
„Eftir þetta komu hótanir í gegn-
um síma. Ef hann borgaði ekki
kæmi einhver og rukkaði hann. í
síðustu viku fékk hann SMS-skila-
boð um að maður væri á leiðinni
norður," segir Edda.
„Ég var í vinnunni og hraðaði
mér heim með stráknum. Þegar við
vorum að aka heimreiðina blikkaði
bUl ljósunum. Við héldum áfram.
Þegar við stöðvuðum, töluðum við
við mann og settum litla rifu á
gluggann en læstum bílnum. Ég
sagði manninum að við ættum eng-
an pening og myndum ekkert
borga," segir móöirin.
„Viltu þá að sonur þinn verði
drepinn?" spurði maðurinn. „Ætlar
þú að gera það,“ spurði ég. „Nei, en
ég hef mann til þess,“ sagði hann þá
og sagði að við fengjum frest til
klukkan íjögur daginn eftir.
Sagðist vinna
við rukkanir
Þegar Bjöm kom akandi heim á
jeppa sínum vissi hann hvað var á
seyði, ók bíl sínum alveg að stuðara
„rukkarabílsins", fór út og opnaöi
dymar á bílnum þar sem rukkarinn
Vcir sestur inn:
„Ég spurði hvem fjandann þeir
væru að gera þama. Hann sagðist
vera að mkka - innheimta 600 þús-
und króna skuld. Reyndar sagðist
hann ekki vita fyrir hvað - það væri
ekki sitt vandamál. Maðurinn sagð-
ist vera í atvinnurekstri, þetta væri
vinnan hans og hann greiddi af
henni skatta. Ég sagði að það kæmi
ekki til greina að við borguðum
nokkum skapaðan hlut. Hann sagði
þá að eigur mínar væru ekkert
óhultar," segir Bjöm.
Stuttu síðar kom lögreglan á
Sauðárkróki og handtók rukkarann.
200 þúsund
í handrukkaralaun?
Að sögn Björns Mikaelssonar, yf-
irlögregluþjóns á Sauðárkróki, er
talið að „skuld“ piltsins fyrir efnin
sem hann glataði fyrir öðrum með
því að vera tekinn - þannig séu
reglur flkniefnaheimsins gjaman -
hafi verið um 400 þúsund krónur í
sumar. Nú sé hún orðin 600 þúsund
krónur.
En í hverju felst þá þessi 200 þús-
und króna hækkun?
Jú - lögreglan telur að hún felist
i launum handrukkarans.
Rukkarinn viðurkenndi við yfír-
heyrslur hjá lögreglu um helgina
að hafa hótað Eddu, Bimi og syni
þeirra. Mál hans telst í raun upp-
lýst og verður bráðlega sent ákæru-
valdi og það tekið til dómsmeðferð-
ar. Hver hins vegar eigandi efn-
anna var, og sá sem sendi rukkar-
ann af stað, er i rannsókn.
Lögreglan í Reykjavík segir ljóst
að málum af þessu tagi fari fjölg-
andi og leggur áherslu á að þau séu
kærð eins Bjöm og Edda gerðu -
einungis þannig að hægt sé aö ná
lausn með því að koma höndum
yfir þá sem beita ofbeldi og hótun-
um um slíkt eða skemmdarverk.
Bjöm og Edda hvetja þá sem
standa í hliðstæðum sporum og
þau að kæra til lögreglunnar og
vera i samstarfi við hana frekar en
að taka upp veskið og þegja þunnu
hljóði.
-Ótt
Hjónin Björn Hansen og Edda Haraldsdóttir eru ein af ótrúlega mörgum for-
eldrum hér á landi sem hafa lent í því að menn tengdir fíkniefnaheiminum
rjúfi heimilisfrið þeirra með hótunum um ofbeldi, líflát barns þeirra og
skemmdarverk. DV-mynd GVA
Björn ók jeppanum upp að stuðara handrukkarans, svipti hurðinni upp hjá honum og spurði hver fjandinn væri á seyði.
Björn og kona hans, Edda Haraldsdóttir, hafa fallist á að segja
sögu sína - hvernig það er að eiga barn sem er rukkað og hótað
lífláti vegna fíkniefnainnheimtu, hvernig það er að vera hótað því
að vera ekki öruggur með híbýli sín og bíl - að þurfa að lifa í eilíf-
um ótta. Þau eru bara ein af ótrúlega mörgum foreldrum sem lent
hafa í handrukkurum og hótunum þeirra.
Ýmis dæmi liggja fyrir um að fórnarlömb handrukkara hafi verið sett í skott á bfl, því lokað og ekið af stað með þau á tiltekna staði þar sem hótanir
og ofbeldi heldur áfram.
Stöðugt fleiri fjölskyldur verða fyrir barðinu á handrukkurum:
Sjúklingum SÁÁ ekki vært
- koma sumir í meðferð með mikla áverka
mm
„Fólki í meðferð hjá okkur er oft
hótað. Hótanimar koma oft mjög illa
við sjúklingana. Handrakkararnir
era þá ekki aö hóta sjúklingunum
sjálfum heldur fjölskyldum þeirra -
börnum, foreldrum eða mökum og
kærastum. Fólk sem er að reyna að
vera hér í meðferð eirir ekki lengi
inni þegar svona hótanir berast.
Mörg dæmi era um að fólk hlaupi út
úr meðferð vegna þessa,“ segir Einar
Axelsson, læknir i sjúkrastöð SÁÁ á
Vogi.
Einar segir að ástand sumra sem
koma í meðferð sé skelfilegt:
„Stundum koma sjúklingar okkar
beint frá Borgarspítalanum - eftir að
hafa lent í handrukkurum. Þeir
koma þá illa leiknir eftir ofbeldis-
menn og era oftar en ekki með mikla
líkamlega áverka. Yfirleitt hafa þeir
ekki sagt lögreglunni frá árásunum.
Síðan berst þessu fólki hótanir
hingað og sumir hlaupa út vegna
hótana. Þetta er orðið svo mikið
vandamál að við höfum rætt um að
loka fyrir simtöl til sjúklinga hérna.
Við erum t.a.m. hætt að taka skila-
boð til sjúklinga um að hringja í fólk
nema þá bara heim til sín. Við höf-
um gjarnan vitað hvað klukkan slær
þegar sumir era beðnir um að
hringja í vin sinn hér eða þar. Það er
bannað að vera með farsíma héma,“
segir Einar.
inni á Vogi
Einar segir að otbeldi virðist hafa
aukist inni á Vogi.
„Við höfum verið að rejma að
stemma stigu við ofbeldi hér inni -
reyna að taka fastar á því. Ofbeldi
hér skapast að miklu leyti vegna
neyslu harðari flkniefna, eins og am-
fetamíns og kókains. Fólk kemur inn
á stofnunina stútfullt af þessum efn-
um. Það verður dýrótt og tryllt. Sjálf-
sagt á fólk einhverja sök á enn gróf-
ara ofbeldi úti,“ segir Einar Axels-
son.
Stöðug ógn við börn
Ljóst er að fjölmargar fjölskyldur
á landinu standa eða hafa staðið í
sömu sporum og hjónin í Skagaflrði
gagnvart vinnubrögðum handrakk-
ara og þeirra sem senda þá af stað.
Hér er um að ræða ógnvænlegt
ástand þar sem öll fjölskyldan er
stöðugt á vaktinni gagnvart eigin
heilsu, húsnæði og bilum.
Fullyrt er að fjölmargir foreldrar
hafi hreinlega borgað börn sín út úr
fikniefnaskuldum og þeim hótimum
sem fikniefnasalar hafa í frammi,
ekki aðeins við bömin, heldur for-
eldrana líka. Ef þið borgið ekki
mun... og svo framvegis. Fólk sér
með öðram orðum sitt óvænna - sér
fyrir sér að barnið þeirra verði bar-
ið til óbóta, það sjálft eða skemmdir
unnar á eignum.
Einar Axelsson, læknir hjá SÁÁ,
segir að sumir meðferðarsjúklingar
hafi komið beint af spítala eftir að
hafa lent í limlestingum af hálfu
handrukkara. DV-mynd Hilmar Þór
Þú berð ábyrgð á efnunum!
Lögreglumaður sem DV ræddi við
tekur eitt dæmi í þessu sambandi:
„Það er alveg sama hvort lögregl-
an tæki krakkann þinn með 10-20
grömm af hassi eða hann væri búinn
að eyða því sjálfur einhvem veginn.
Hann verður alltaf að standa í skil-
um við seljandann. Sá sem er með
efnin ber alltaf ábyrgð á þeim.
Þannig era reglumar bara í þessum
heimi. Það þýðir ekkert að segja:
„Fíknó tók mig.“
Menn svífast einskis við að inn-
heimta. Einn góðan veðurdag átt þú
von á að þessir menn banki bara upp
á hjá þér ef krakkinn þinn stendur
ekki i skilum,“ sagði lögreglumaður-
inn, sem hefur langa reynslu af af-
skiptum af unglingum. „Þá hefur það
gerst að foreldrar þori ekki annað en
að borga börnin út úr vitleysunni."
Fæstir leggja út í það að kæra hót-
animar en þó virðist það vera að
aukast.
Beinbrot og kæra
Eins og fram kom í DV í gær seg-
ir lögreglufulltrúi í Reykjavík, sem
hefur með mál sem snúa að hand-
rukkunum að gera, að kærur vegna
frelsissviptinga, líflátshótana og
öðru tengdu handrukkunum hafi
aukist. Talsmenn ýmissa lögreglu-
embætta úti á landi, s.s. Sauðár-
króki, Selfossi og víðar, hafa einnig
fengið svona mál til meðferðar.
En í hverju felast hótanimar og
hvað gera svo þessir handrakkarar
þegar látið er til skarar skríða?
Á þessu ári var ungur maður á
höfuðborgarsvæðinu beinbrotinn eft-
ir að handrukkarar höfðu gengið í
skrokk á honum vegna fikniefna-
mála. Það mál var kært og er nú til
meðferðar hjá lögreglunni.
Annað mál átti sér stað í haust
þegar sérsveit lögreglunnar var send
til Þorlákshafnar. Þá hafði maður
fengið hótanir um að gengið yrði í
skrokk á honum við innheimtu. Við-
komandi varð viti sínu fjær af
hræðslu og óskaði eftir aðstoð lög-
reglunnar, sem tókst i það skiptið að
koma í veg fyrir að handrukkararn-
ir kæmust í tæri við skuldunautinn.
Einn lokaður inni í skotti bíls
Þriðja málið átti sér stað annars
staðar á Suðurlandi þegar handrukk-
arar rufu heimilisfrið með húsbroti
og ruddust inn í hús. Þar gripu
menn í tómt þar sem um blásaklaust
fólk var að ræða sem hvergi hafði
komið nærri fíkniefnaskuldum.
Fjórða málið átti sér stað snemma
á árinu þegar ungur maður hafði
verið í slagtogi með brotafólki. Hann
hafði neitað að taka þátt í sölu-
mennsku þegar nokkrir menn tóku
hann og settu í farangursgeymslu
bíls og óku með hann á brott. Piltur-
inn náði að láta vita í GSM-síma
þannig að lögreglan skarst í leikinn.
Var þá fórnarlambið komið inn í hús
þar sem því var ógnað.
Síðast nefnda málið var kært til
lögreglu. Einn forsprakkanna í því
máli var í vikunni hnepptur í gæslu-
varðhald vegna annarra afbrota
Flestir fíklar lenda
í handrukkun
Handrukkarar virðast ná hvert
sem þeim sýnist. SMS-skilaboðin era
algengur hótunarmáti. Yfirmaður
lögreglu tengdur fikniefnamálum
sagði við DV að hann teldi ekki ólík-
legt að langflestir fíklar hafi lent í
handrukkunum eða i útistöðum við
slíkt fólk einhvem tíma á sínum
ferli.
Þar sem fíkniefnaneysla er annars
vegar verða neytendumir sjálfir,
börnin og aðrir verst úti.
En samkvæmt framantöldu, sögu
fólksins frá Sauðárkróki, SÁÁ og ný-
legum tíðindum um það hve fikni-
efnaheimurinn á hinu litla íslandi er
orðinn ótrúlega stór, skipulagður og
útbreiddur er ljóst að mikill fjöldi
fólks hefur lent í þeim hörmungum
aö þurfa ekki einungis að eiga börn
sem hafa gengið í snöru seljenda
fikniefna - heldur hefur það líka
þurft að óttast stöðugt um Uf sitt og
eigur vegna skulda sem skapast af
neyslu þess sjálfs, bama þeirra eða
annarri aðild að fikniefnum.
Sem dæmi um það hve markaður-
inn er orðinn stór hefur lögreglan
hér heima upplýst risastór metfikni-
efnamál á hérlendan mælikvarða að
undanfómu. Samt er fullyrt að lög-
reglan leggi aðeins hald á 5 og í
hæsta lagi 10 prósent efna sem berist
eða eigi að berast til landsins. Hugsi
menn þá hve mikið af efnum sé
raunverulega í umferð, hve neytend-
umir eru margir og síðan aðstand-
endur þeirra er Ijóst að fjöldi þeirra
sem lendir í handrukkurum er mik-
ill.
Látum orð handrukkarans sem fór
norður á Sauðárkrók í síðustu viku
verða lokaorðin hér:
Hann sagðist einfaldlega vera í at-
vinnurekstri. -Ótt
45