Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1999, Síða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1999, Síða 39
1UÞ~%? LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999 47 Bárður Örn Bárðarson, plötusafnari og tónlistaráhugamaður. Það hefur ver- ið sagt að hann viti meira um feril Bubba Morthens en Bubbi sjálfur. Sérfræðingur í Bubba Morthens: r Ifótspor kóngsins - veit meira um Bubba en Bubbi sjálfur „Ég á allar plötur sem hafa kom- iö út með Bubba, bæði sólóplötur og plötur þar sem hann kemur fram með öðrum. Ég á talsvert af upptök- um úr útvarpinu gegnum árin, myndbandsupptökur úr sjónvarps- þáttum þar sem hann hefur komið fram. Að auki á ég ágætt úrklippu- safn sem annar aðdáandi arfleiddi mig að, en ég hef reyndar hirt lítið um að undanfomu. Bubbi er meðal fremstu tónlistar- manna okkar, að mínu viti einn af fimm bestu á öldinni.“ Þannig lýsir Bárður Öm Bárðar- son Scheving þeim hluta af safni sinu sem lýtur að Bubha Morthens. Bárður segist hafa hrifist af Bubba fyrst í kringum 1983 þegar platan Fingraför kom út en hún var fyrsta Bubbaplatan sem hann eignaðist. „Ég held að þessi söfnunarárátta sé í genunum. Ömmubróðir minn á Akureyri, Jóhann Scheving, fyrrum kennari, var frægur bókasafnari." Með listann í höfðinu Þekking Bárðar á ferli Bubba þykir með eindæmum og er hægt að segja sögur af því. Þegar Silja Aðal- steinsdóttir ritaði bók um Buhba árið 1990 setti hún sig í samband við Bárð og bað hann að taka saman plötuskrá. Þá var plötusafn Bárðar norður á Akureyri en hann í vinnu í Reykjavik. Bárður settist niður og skrifaði niður eftir minni lög sem komið höfðu út eftir Bubba eftir plötum og lög á hverri plötuhlið tal- in í réttri röð. Þegar hann hringdi norður til að staðfesta listann reyndist hann vUlulaus. Þessi þekking hans leiddi einnig til þess að þegar Skífan ákvað að gefa út safhdisk með lögrnn Bubba frá 1980-1990, sem heitir Sögur og er á toppi metsölulista um þessar mundir, þá var Bárður fenginn til aðstoðar við að hlusta á upptökur úr safni Skífunnar og ráöleggja um val á lögmn. Hann gekk einnig frá plötuskránni sem fylgir diskinum. „Þetta var geysilega skemmtilegt verkefni. Við sátum löngum stund- um, við Diddi, starfsmaður Skífunn- ar, og hlustuðum og hlustuðum. Þegar listinn var kominn niður í 50 lög var mjög erfitt að stytta hcurn frekar en það hafðist að lokum.“ Bubbi Morthens hefur verið einn afkastamesti tónlistarmaður vmdan- farinna ára á íslandi. Það sést best á því að á 20 árum hefur hann gefið út 27 sólóplötur. Sé aUt talið saman hafa komið út 483 lög eða hljóðritan- ir með Bubba á 20 árum á 127 plöt- um. Þá eru talin lög á safndiskum og lög á plötum annarra listamanna og litlar plötur eru einnig taldar með. En hver skyldi að mati Bárðar vera besta platan sem Bubbi hefur gert? „Það fer nú mikið eftir því í hvemig skapi ég er. Sennilega er samt Sögur af landi hans heil- steyptasta og besta plata en Dögun er ákaflega vel gerð líka.“ En á Bárður sér eitthvert uppá- haldslag með Bubba? „Það má segja að það sé það lag sem ég heyrði síðast með honum hveiju sinni. Ég er fíkinn í nýtt efhi frá honum og fer alltaf á tónleika hans þegar ég get í þeirri von að heyra nýtt efni.“ Skráði allar íslenskar plötur Áhugi Bárðar á tónlist einskorð- ast ekki við Bubba Morthens því hann á risavaxið plötusafn sem tel- ur tæplega 5000 plötur og safnar plötum með einstökum listamönn- um og á t.d. rúmlega 100 plötur með David Bowie. Hann hefur ekki látið þar við sitja heldur hefur dundað við það um hríð að taka saman skrá yfir aUar islenskar plötur sem hafa verið gefnar út frá 1907 til 1999. Skráin er mikil að vöxtum og Bárð- ur heldur að hún sé heildstæð. „Ég held að þama séu skráðar all- ar íslenskar plötur en ég er álltaf að endurbæta hana. Þetta hefur verið feiknalega skemmtilegt grúsk og gaman að kynnast ýmsum lista- mönnum sem þvi tengjast. Senni- lega á enginn safnari heildstætt safn af íslenskum titlum frá upphafi þó Sigurjón bóndi á Hrafnabjörgum vestur í Djúpi fari einna næst því. Ég fer stundum í kaupbindindi en ég er alls ekki hættur að kaupa plöt- ur.“ -PÁA Valentino, áklæði úr bómull. 3+2. 138.949 stgr. Miianó, áklæði úr tefloni. 3+2 138.226 stgr. Oporto-áklæði úrleðri. 3+1 + 1 188.611 stgr. 3+2+1, 208.322 stgr. Síðumúla 13, sími 588 5108 HUSGÖGN INNRETTINGAR / •• Allur hagnaður rennur til líknarmála.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.