Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Side 49
57
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
DV
Tilvera
Schumacher eru einu núverandi
ökumennirnir í Formúlu 1 sem unn-
ið hafa i Monakó-kappakstrinum en
kóngur Mónakós er Arton Senna
sem sigraði fimm ár i röð á þessari
kröfuhörðu og erfíðu braut.
Tímataka og ræsing mikílvæg
Tímatakan er alltaf þýðingarmik-
il en fyrir Monakó-kappaksturinn á
morgim er góð rásstaða lykillinn að
góðri útkomu í keppninni vegna
þess hversu erfiður framúrakstur er
á þröngum strætunum. „Sennilega
er timatakan og ræsingin mikilvæg-
ustu stundir keppnishelgarinnar í
Monakó," segir Michael
Schumacher sem nú hefur 18 stiga
forskot á Mika Hákkinen í stiga-
keppninni." Ef þú ert ekki í fremstu
röð fyrir fyrstu beygjuna getur þú
eytt keppninni í að reyna að komast
fram úr næsta bíl á meðan maður-
inn sem þú vilt keppa við hverfur út
í buskann," sagði Schumacher sem
lenti í þessari stöðu árið 1998 þegar
hann klúðraði tímatöku og ræsingu
og kláraði án stiga.
Nokkrir enn án stiga
Þegar keppnin á morgun hefst
eiga nokkur lið enn eftir að næla
sér í fyrsta stigið fyrir þetta keppn-
istímabil. Þar ber helst að nefna
Jagúar, sem er með aflmestu vélam-
ar, en vandræðin með kúplingima
hafa skemmt fyrir og kostað dýr-
mætan tíma. Prost virðist vera að
gefast upp á þessu erfiða verkefni
sem Formúla 1 er og Minardi verð-
ur að teljast mun liklegri en Prost
til að vinna sér inn sitt fyrsta stig á
árinu. f keppninni um það hver sé
bestur á eftir Ferrari og McLaren
verða Ralf Schumacher hjá Willi-
ams og Fisichella hjá Benetton að
teljast langlíklegastir. Jordan hefur
ekki enn náð að setja sitt mark á
tímabilið og er árangurinn talsverð
vonbrigði og því verður Frentzen
ekki sterkur á svelli Monte-Carlo-
brautar. Baráttan verður sem fyrr á
milli tveggja bestu mannanna í For-
múlu 1 undanfarin ár, Mika
Hákkinens og Michaels Schuma-
hcers. Nú er hins vegar pressan
geysileg á Hákkinen sem verður að
vinna tO að missa ekki Ferrari-öku-
manninn enn lengra á undan sér í
stigabaráttunni. Hákkinen hefur tit-
il að verja og ætlar sér að verða
fyrsti ökumaðurinn til að vinna
þrjá titla i röð. Coulthard gæti aftur
á móti komið á óvart því hann er af-
slappaðari en félagi hans og hefur
fengið aukinn kraft eftir flugslysið
hræðilega sem hann segist hafa náð
sér fullkomlega af.
-ÓSG
Areiðanleiki í keppni
(Tíu efstu)
Hringir kláraðir %
1 Michael Schumacher 383 100.00
2 Giancarlo Fisichella 379 98.95
3 Gaston Mazzacane 356 92.95
4 Ricardo Zonta 339 88.51
5 Ralf Schumacher 327 85.37
6 Rubens Barrichello 313 81.72
7 Alexander Wurz 309 80.67
8 Jenson Button 304 79.37
9 Mika Hakkinen 302 78.85
10 Johnny Herbert 297 77.54
(Fjöldi hringja á tímabilinu: 383)
prósenta kláraðra hringja miðað við
fjöida hringja á tímabilinu
HM-Keppnin
Ökumaður
Lið
1 M Schumacher 46 Ferrari 62
2 Hakkinen 28 McLaren 52
3 Coulthard 24 Williams 15
4 Barrichello 16 Benetton 10
5 R Schumacher 12 Jordan 96
6 Fisichella 10 BAR 6
7 Villeneuve 5 Sauber 1
8 Frentzen 5 Arrows 1
9 Trulli 4 Jaguar 0
10 Button 3 Prost 0
11 Zonta 1 Minardi 0
12 De la Rosa 1 1
13 Salo 1
•Ferð fyrir tvo á Formúlu 1
keppnina í Malasíu í boði
kostunaraðila Formúlu 1 á Vísi.is
•Tag Heuer-úr að verðmæti
kr. 122.900, í boði Leonard
Fallegt umhverfi í kringum Mónakókeppnina
Michael Schumacher á fullri ferð við höfnina í Mónakó á æfingum á
fimmtudaginn en hann var
með besta tímann eftir fyrri hluta þeirra.
Íslandssími
-á hraða Ijóssins
visir.is