Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2000, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2000
Útlönd
I
Mótmæli í París
Ökumenn kranabíla hindruöu í gær
umferö um París til aö leggja
áherslu á kröfur sínar.
Bensínlaus helgi
fram undan
í Frakklandi
Félagar í stéttarfélögum vörubíl-
stjóra, sem hvöttu til að mótmælum
gegn háu verði á eldsneyti yrði
hætt, neituðu í gær að verða við
beiðni forystumanna sinna. Margir
félagsmenn kröfðust meira að segja
afsagnar forystunnar.
Lionel Jospin, forsætisráðherra
Frakklands, hélt seint í gær neyðar-
fund með nokkrum ráðherra sinna.
Fjórar af hverjum flmm bensín-
stöðvum höfðu lokað eða skömmt-
uðu bensín. Víða varð að aflýsa
flugi. Vörubílstjórar krefjast 20 pró-
senta lækkunar á eldsneytisverði.
Yfirvöld hafa ekki viljað verða við
þeim kröfum. Talið er að frekari eft-
irgjöf Jospins geti leitt til þess að
einn stjómarflokkanna, Græningj-
ar, yfirgefi stjómina. Það gæti orðið
örlagaríkt fyrir forsætisráðherrann.
Vörubílstjórar í Englandi efndu
til mótmæla í gær og í Danmörku
halda vörubílstjórar stórfund á
morgun til að ræða kröfur sínar um
lækkun á eldsneyti.
Lögreglan lagði
hald á kókaínkaf-
bát í Kólumbíu
Lögreglan í Kólumbíu hefur lagt
hald á rússneskan kafbát sem nota
átti til að smygla flkniefnum úr
landinu. Þegar lögreglan gerði
skyndileit í birgðageymslu utan við
höfuðborgina fann hún 30 metra
langan kafbát sem var hannaður af
Rússum en ekki fullsmíðaður. Lög-
reglan telur að rússneska mafían
eða rússneskir verkfræðingar teng-
ist smíðinni því hún fann verklýs-
ingar á rússnesku við hlið bátsins.
Kafbáturinn hefði getað flutt aö
minnsta kosti 150 tonn af kókaíni.
Clinton og Jiang Zemin
Bandaríkjaforseti og Kínaforseti á ár-
þúsundamótaráöstefnu Sameinuöu
þjóöanna í New York í gær.
Clinton ræddi
mannréttindamál
við Kínaforseta
Bill Clinton BandaríkjEiforseti og
Jiang Zemin, forseti Kina, ræddu í
gær mannréttindamál á árþúsunda-
mótaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
í New York. Clinton tjáði frétta-
mönnum að hann teldi málið ekki
eiga aö koma í veg fyrir eölileg við-
skipti Bandaríkjanna og Kína. Við-
skiptin gætu orðið jákvæð fyrir þró-
un lýðræöis og mannréttindamála í
Kína.
Clinton hvatti einnig til friðarvið-
ræðna milli Kína og Taívans.
Milosevic útbýr
neðanjarðarbyrgi
Slobodan Milosevic Júgóslaviu-
forseti er sagður ætla að vera við
öllu búinn tapi hann i forsetakosn-
ingunum 24. september næstkom-
andi. Fréttir hafa borist af því að
hann sé að láta smíða neðanjarðar-
byrgi handa sér undir húsi í austur-
hluta Serbíu sem Tito, fyrrverandi
Júgóslavíuleiðtogi, bjó eitt sinn í.
Fréttimar af umbótunum á húsi
Titos á fíallinu Crni Vrh nálægt
bænum Bor berast samtímis því
sem Belgradbúar velta því fyrir sér
hver næstu viðbrögð Milosevics
verði.
Myndun nýrrar hersveitar, sem á
að snúa aftur til Kosovo, þykir gefa
til kynna að Milosevic sé reiðubú-
inn til frekari árása en framkvæmd-
imar á Cmi Vrh þykja hins vegar
benda til að forsetinn geri ráð fyrir
að hann þurfi að vera í felum sem
eftirlýstur striðsglæpamaður. Hann
er einnig talinn ætla að vera viðbú-
inn árásum landa sinna.
Slobodan Milosevic
Júgóslavíuforseti er viöbúinn ósigri í
forsetakosningunum og útbýr sér nú
byrgi undir húsi Titos.
Fréttirnar af framkvæmdunum
undir húsi Titos bárust út eftir að
sonur Milosevics, Marko, kom úr
heimsókn þaðan. Hann greindi
starfsfólki sínu í Madonna diskótek-
inu í Pozarevac, heimabæ fjölskyld-
unnar, frá að faðir sinn óttaðist hið
versta.
Menn Milosevics hafa undanfam-
ar vikur beitt opinbera starfsmenn
gífurlegum þrýstingi til að mæla
með framboði Milosevic. Voru þeir
beittir hótunum í vinnunni, að þvi
er fregnir herma. Hótanirnar
nægðu þó ekki til að safna þeim 1,5
milljónum undirskrifta sem nauð-
synlegar voru.
Stjórnarandstaðan segir að mörg
nafnanna hafl einfaldlega verið tek-
in úr símaskrám.
Einnig hafl listum með þúsund-
um nafna frá Kosovo úr fyrri kosn-
ingum verið skilað inn. Listamir
eru frá svæðum þar sem enginn
Serbi er nú búsettur.
jr J
j/ff 1
II t|ii
Eggjasali á Vestur-Timor
Litli eggjasalinn á myndinni viröir hér fyrir sér flak bifreiöar starfsmanna Sameinuöu þjóöanna. Samtökin greindu frá
því í gær aö 20 manns heföu falliö í nýjum átökum á Vestur-Tímor, tveimur dögum eftir moröin á þremur hjálparstarfs-
mönnum. Fulltrúar indónesiska hersins vísuðu fréttinni á bug.
Friöarviðræður á ný
ísraelskir og
palestínskir samn-
ingamenn munu
hittast innan tíðar
til að reyna að
koma á friðarsamn-
ingi áður en frestur
rennur út 13. sept-
ember. Háttsettur
embættismaður Yassers Arafats
Palestínuleiðtoga greindi frá þessu í
gær.
Aukin olíuframleiðsla
OPEC, samtök olíuframleiðslu-
ríkja, gáfu í skyn í gær að þau hygð-
ust auka enn frekar framleiðslu
sína.
Lá við flugvélaárekstri
Flugstjóra Boeing 757 farþegaþotu
með 173 menn um borð tókst að
koma í veg fyrir árekstur við her-
flugvél yflr alþjóðaflugvellinum í
Los Angeles á fimmtudaginn.
Mannréttindi í lagi
Vitringarnir þrír, sem Evrópu-
sambandið sendi til Austurríkis til
að kanna mannréttindamál þar,
mæla með því að refsiaðgerðum
gegn landinu verði aflétt. Austur-
ríki kallaði yflr sig reiði sambands-
ins þegar Frelsisflokkur Jörgs
Haiders komst til valda. Vitringarn-
ir segja minnihlutahópa, flóttamenn
og innflytjendur í Austurríki njóta
sömu réttinda, ef ekki meiri, en
annars staðar ríkja í Evrópusam-
bandinu.
Bróðir Straws áreitti
William Straw,
bróðir Jacks
Straws, innanríkis-
ráðherra Bretlands,
var 1 gær fundinn
sekur um að hafa
áreitt 16 ára stúlku
kynferðislega.
Straw neitar að
hafa áreitt stúlkuna, sem er fjöl-
skylduvinur, á heimili hennar í apr-
il síðastliðnum.
Átti barn með Onassis
Óperusöngkonan Maria Callas
eignaðist dreng með skipakóngin-
um Aristoteles Onassis árið 1960.
Barnið lést nokkrum klukkustund-
um eftir fæðinguna, að því er kem-
ur fram í nýrri ævisögu um Callas.
Hún hafði haldiö því fram að Onass-
is hefði neytt hana til að eyða fóstri
árið 1966.
Neita að flugskeyti
hafi grandað Kúrsk
Aðstoðarforsætisráðherra Rúss-
lands, Ilja Klebanov, vísaði í gær á
bug frétt þýska blaðsins Berliner
Zeitung um að flugskeyti frá Pétri
mikla, flaggskipi Norðurhafaflota
Rússa, hefði sökkt kafbátnum
Kúrsk. Vitnaði blaðið í skýrslu
rússnesku leyniþjónustunnar FSB.
Áður hafa komið fram fréttir um
að rússnesku flugskeyti kynni að
hafa verið skotið að Kúrsk. Vla-
dimir Jegorov aðmíráll, yfirmaður
Eystrasaltsflotans, sem hvorki tók
þátt i æfingum sjóhersins í Barents-
hafi né björgun Kúrsk, sagði i sjón-
varpsviðtali síðastliðinn sunnudag
að þetta væri möguleiki sem verið
væri að rannsaka.
Berliner Zeitung var hins vegar
fyrst til að greina frá því að rúss-
neska leyniþjónustan sjálf hefði
staöfest að flugskeyti hefði verið
skotið að kafbátnum. Vladimir
Aðstoðarforsætisráöherra Rússa
llja Klebanov vísar frétt Berliner
Zeitung á bug.
Pútín Rússlandsforseti er sagður
hafa fengið skýrslu leyniþjónust-
unnar í hendur 31. ágúst síðastlið-
inn.
Samkvæmt frásögn Berliner Zeit-
ung voru tveir yflrmenn Norður-
hafaflotans um borð í Pétri mikla
12. ágúst síðastliðinn, daginn sem
slysið varð.
Rússum og Bandaríkjamönnum
ber nú saman um að Kúrsk hafi
sokkið eftir að tvær sprengingar
hafi orðið. Rússar hafa gefið í skyn
að Kúrsk kunni að hafa rekist á er-
lent skip eða jafnvel tundurdufl úr
seinni heimsstyrjöldinni. Fulltrúar
Vesturlanda hafa vísað því á bug að
skip þeirra hafi lent i árekstri við
Kúrsk.
BlaðafuUtrúar rússnesku leyni-
þjónustunnar vildu í gær ekki tjá
sig um frétt þýska blaðsins Berliner
Zeitung.
Heimilislaus í forsetaíbúð
Heimilislaus
maður braust ný-
lega inn í bústað
Thabo Mbekis, for-
seta S-Afríku, í
Höfðaborg þegar
forsetinn var er-
lendis. Gesturinn
drakk koníak for-
setans, baðaði sig og svaf í nýju
rúmi á hverri nóttu. Hann dvaldi í
forsetabústaðnum í nokkra sólar-
hringa. Það var kokkur forsetans
sem fann óboðna gestinn. Búist er
við að gesturinn fái ekki jafn þægi-
legan bústað á næstunni.
Bandarísk blöð á Kúbu
Yfirvöld á Kúbu hafa heimilað
bandarísku blöðunum Chicago Tri-
bune og Dallas Moming News að
opna fréttastofur í Havana. Utanrík-
isráðherra Kúbu, Perez Roque,
greindi frá þessu í gær.
Mynd óviðkomandi frétt
Vegna mistaka birtist mynd með
stuttfrétt um Hells Angels í Finn-
landi í DV, laugardaginn 26. ágúst
síðastliðinn, sem var óviðkomandi
efni fréttarinnar. Beðist er velvirð-
ingar á þvi.