Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2001, Blaðsíða 23
23
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001
X>V__________________________________________________________________________________________________Helgarblað
Þegar komið er inn í íbúð Egg-
erts Magnússonar málara í
Selásnum er auðséð að hér
búa ekki fleiri en hann. Stofan er
greinilega vinnustofa Eggerts og
þar eru myndir um alla veggi og í
gluggakistunum lika. Fátt er annað
í stofunni, tvö borð og nokkrir stól-
ar.
Eggerti liggur nokkuð lágt rómur
og segir heldur fátt þannig að viss-
ara var fyrir blaðamann að hafa sig
allan við og fylgja honum fast eftir
þar sem hann gekk um stofuna um
leið og hann svaraði spurningum.
Myndirnar á veggjunum eru lit-
ríkar. þær eru af ýmsum atburðum
sem honum eru hugstæðir og dýra-
ríkið virðist Eggerti sérstaklega
hugstætt.
Sitt af hverju á sýningunni
Eggert Magnússon er er 86 ára
gamall. Hann er sjálfmenntaður
listamaður og er einn af þekktari
næfistum okkar. Hann hefur stytt
sér stundir við að mála síðan hann
hætti siglingum um 1960 en hann
hafði þá verið sjómaður á ýmsum
skipum frá unglingsaldri og á langri
starfsævi siglt um öll heimsins höf,
ailt frá Grænlandi til Gambíu.
Ertu með eitthvert sérstakt við-
fangsefni á sýningunni?
„Þetta er bara svona sitt af
hverju, eins og sýningamar mínar
hafa verið.“
A nóg af myndum
Eggert segist aðallega mála yfir sumartímann þegar bjart er
og aldrei skorta viðfangsefni.
Myndimar
hafa skánað
með árunum
- segir Eggert Magnússon listmálari
sem opnar sýningu í Gerðubergi í dag
Eggert er Reykvíkingur í húð og
hár. Foreldrar hans voru Magnús
Jónsson frá bænum Breiðholti og
Hrefna Eggertsdóttir Norðdal frá
Hólmi við Hólmsá. „Hólmur var
hérna rétt fyrir ofan,“ segir Eggert
og bendir út um stofugluggann.
Magnús, faðir Eggerts, rak sauðabú
viö Engjabæ við Holtaveg, þar sem
nú er grasagarðurinn í Laugardal
og þar átti Eggert lengst af heima,
eða í 35 ár. „Við vorum tólf systkin-
in og erum ellefu á lífl enn, ég er
næstelstur en það er nú litið af okk-
ur að segja.“
Eggert fór ungur á sjó. „Ég fór á
Skúla fógeta og var á honum áður
en hann strandaði en ég var farinn
á Hannes ráðherra þegar það gerð-
ist. Ég hefði farist ef ég hefði enn
verið á Skúla fógeta," segir Eggert
og bendir á málverk sitt af strandi
Skúla fógeta. „Svo var ég við fisk-
veiðar í Gambíu nokkra mánuði.
Það stóð til að veiða túnfisk en við
veiddum aðallega hákarl. Hann var
bara soðinn upp úr sjó í hænsnafóð-
ur.“ Þegar litið er á myndimar á
veggjunum má sjá að Afríkudvölin
hefur lifað með Eggerti því á
nokkrum myndanna bregður fyrir
ljónum og lífi á heitari stöðum en
íslandi.
Hefur skánað með árunum
Eggert var kominn yfir fertugt
þegar hann byrjaði að mála. „Ég hef
margt gert. Ég hef verið bílstjóri
líka, bæði á Þrótti og Þresti. Það
hefur alltaf verið ígripavinna hjá
mér að mála.“
Hvemig datt þér i hug að fara að
mála?
„Systur mínar hafa verið góðar
að teikna," segir Eggert og sýnir
blaðamanni um leið mynd sem ein
systra hans hefur málað á rekavið-
arbút. „Þetta er svolítið í ættinni.
Amma mín var systir Einars bónda
í Miðdal."
Hafa myndirnar breyst meó árun-
um?
„Það hefur svolítið skánað hjá
mér. Maður æfist þegar maður er
mikið við þetta. Annars mála ég nú
ekki mikið lengur en ég var ákveð-
inn í að halda þessa sýningu."
Eggert hefur haldið margar sýn-
ingar og segist hafa fengið góðar
viðtökur sem málari. „Mig minnir
að ég hafi selt allar myndirnar þeg-
ar ég sýndi síðast í Gerðubergi.“
Settirðu ekki bestu myndirnar þín-
ar á sýninguna?
„Ég veit það ekki. Það var nú at-
riði að hafa þær í góðum römmurn."
Eggert segir að myndefnið komi
oftast til hans. Hann málar myndir
af stöðum sem hann hefur komið á
og atburðum sem hann hefur upplif-
að. „Ég mála meira náttúruna en
hús. Ég hef aldrei verið sérstakelga
mikið fyrir að mála hús.“
Hefur aldrei skort myndir
Eggert segist lítið mála á veturna.
„Maður getur ekki átt við þetta í
skammdeginu fyrir myrkri," segir
hann en athygli vekur að á veggjun-
um er margar myndir frá árunum
1999 og 2000 þrátt fyrir að 29 mynd-
ir séu komnar upp í Gerðuberg. „Ég
á nóg af myndum. Mig hefur aldrei
skort myndir. Ég mála kannski
tvær þrjár myndir í einu ef vel ligg-
ur á mér.“
Eggert hefur aldrei kvænst og er
barnlaus. „Ég hef bara haldið sjó
með myndunum," segir hann. „Ég
hef verið rólegur og sætt mig við ró-
legheitin."
Þú heldur aó það sé þess vegna
sem þú hefur aldrei gifst.
„Það fylgir stórum heimilum
mikill skarkali," segir Eggert og
hlær. „Við vorum nú tólf systkin-
in.“
Eggert var spurður um áhugamál
sín önnur en að mála. „Ég fór nú
mikið í laugarnar gömlu. Við áttum
heima svo nálægt þeim. Núna fer ég
bara í baðkarið.“
Sýning Eggerts í Gerðubergi opn-
ar í dag kl. 15. Á sýningunni eru 29
myndir sem allar eru til sölu. Allir
eru velkomnir á opnunina. -ss
DV-MYND E.ÓL
Málar atburði sem eru honum minnisstæðir
Eggert Magnússon hefur málað myndir í frístundum sinum i 30 ár.
Laugardagar
eru nammidagar