Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Side 4
4
LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001
ÐV
Fréttir
_/
Vélstjórar mótmæla afnámi stuttbylgjusendinga RUV:
Sjómenn eiga rétt á
þessari þjónustu
- segir Helgi Laxdal - máliö fyrir útvarpsráð
„Útsending
stuttbylgjunnar
skiptir alla sjó-
menn gríöarlegu
máli. Þetta er ör-
yggistæki á hafi
úti auk þess sem
sjómenn, rétt eins
og aðrir, vilja
verá í tengslum
við það sem er að
gerast í þjóðfélag-
inu,“ segir Helgi Laxdal, formaöur
Vélstjórafélags íslands, um þá
ákvörðun Ríkisútvarpsins að
hætta stuttbylgjusendingum og
minnka styrk á langbylgjusending-
um.
Megn óánægja er innan sjó-
mannastéttarinnar vegna málsins
og hefur Helgi, fyrir hönd Vél-
stjóraþings, sent áskorun til út-
varpsráðs vegna málsins. Helgi
kveðst vongóður um að ráðið taki
málið fyrir á næsta fundi ráðsins.
Hann segir útvarpið gegna mikil-
vægu hlutverki á hafi úti og því
geri vélstjórar kröfu um að stutt-
bylgjusendingum verði komið á að
nýju.
„Sjómenn bíöa alltaf eftir frétt-
unum og almennt er mikið hlustað
á útvarp á hafi úti. Okkur finnst
þessi krafa ekki ósanngjörn í ljósi
þess að sjómenn borga sína skatta
eins og aðrir - og eiga þvi fullan
rétt á þjónustu,“ segir Helgi.
Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóri sagði nýverið í viðtali við
DV að stuttbylgjusendingum hefði
verið hætt í sparnaðarskyni en
þær
kostuðu á aðra milljón króna á ári.
Hann sagði enn fremur að hann
vonaðist til að skipafélögin, sem
gerðu út farskip, myndu koma sér
upp móttökubúnaði fyrir netsend-
ingar.
Stuttbylgjumálið verður að lík-
indum tekið fyrir hjá útvarpsráði i
næstu viku. Þór-
unn Gestsdóttir,
sem á sæti í út-
varpsráði fyrir
Sjálfstæðisflokk-
inn, kvaðst í sam-
tali við DV vera
hlynnt endur-
skoðun málsins
og hún liti svo á
að um tíma-
bundna aðgerð
hefði verið að ræða. Hún sagði lít-
il viðbrögð hafa verið við niðurfell-
ingu stuttbylgjunnar í sumar. For-
stjóri Eimskips skrifaöi hins vegar
útvarpsstjóra bréf í liðnum mán-
uði þar sem hann mótmælti af-
námi stuttbylgjusendinga fyrir
hönd sjómanna.
„Ég hef fullan skilning á þessari
kröfu sjómanna og mun styöja að
málið verði vakið upp að nýju. Mér
finnst líklegt að ráðið kaUi eftir
gögnum er varða kostnað við þess-
ar sendingar. Það er hins vegar
ekki nóg að hafa skilning á mál-
inu, verðmiðinn verður að vera
hagstæður," sagði Þórunn og úti-
lokaði ekki að stuttbylgjusending-
ar útvarps muni aftur hljóma á
hafi úti. -aþ
Helgi
Laxdal.
Forstjóri Ríkisspítala segir enn rúmt ár þangað til sameiningarferli spítalanna lýkur:
Höfum skyldur við sjúklingana
- gengis- og verðlagsútgjöld upp á 300 milljónir. Sameiningin mjög tæknilega flókið ferli
Magnús Péturs-
son, forstjóri
Landspítala - há-
skólasjúkrahúss,
segir vegna gagn-
rýni Ríkisendur-
skoðunar á fjár-
mál spítalans að
mál sjúkrahús-
anna séu flóknari
en svo að aðeins
sé hægt að hugsa
um fjárheimildir. Eins og DV
greindi frá í gær er Landspítalinn
í hópi fjölmargra rikisstofnana
sem ítrekað fara fram úr fjárheim-
iídum og átelur Rikisendurskoöun
þingmenn fyrir að sinna ekki eftir-
litshlutverki sínu. Rétt er þó að
undirstrika að Ríkisendurskoðun
fjallar ekki um sameiningarmál
spitalans í skýrslu sinni og dregur
Landspítalann ekki fram umfram
aðrar sofnanir.
„Spítalinn hefur fleiri skyldur
en að virða fjárlögin. Við tökum á
móti sjúklingum og höfum t.d.
slysavakt allt áriö. Ég fagna því
hins vegar að menn hyggist ræða
hvað eigi að njóta forgangs í þess-
ari heilbrigðisþjónustu," segir
Magnús.
Spurður um skýringar þess að
spítalamir fari fram úr fjárheim-
ildum segir Magnús aö í ár megi
sem dæmi nefna að gengis- og
verðlagsþróun hafi aukið útgjöld
spítalans um 300 milljónir. Fleira
kemur þó til, sbr. ófyrirséðan
aukakostnað við sameiningu spít-
alanna tveggja. Formaður fjárlaga-
nefndar Alþingis sagði í DV í gær
að sú vinna hefði reynst fjár- og
tímafrekari en séð hefði verið fyr-
ir og undir það tekur Magnús.
„Það er alveg ljóst að menn sáu
hvorki fyrir sér hvaða peninga
þyrfti, né ýmsar hindranir sem
upp hafa komið. Þetta er ein flókn-
asta aðgerð sem hér hefur veriö
gerð og tekur til margra og við-
kvæmra hluta. Okkar hlutverk er
að standa aö þessu án þess að það
raski starfseminni og bitni á sjúk-
lingum. Starfsmenn hafa verið ein-
staklega skilningsríkir."
Sameiningin er langt í frá í höfn
en áætlanir miðast við að ferlinu
verði lokiö eftir rúmt ár eða ára-
mótin 2002-2003. Búið er að sam-
eina æðaskurðlækningar og þvag-
færaskurðlækningar og er afrakst-
urinn að skila sér í faglega betri
starfsemi en fyrr að sögn Magnús-
ar. Verið er að skipuleggja hvar
bráðamóttakan verður til húsa í
framtíðinni og búið að ná sátt með-
al lykilstarfsmanna um helstu
framtíðaráætlanir. „Við höfum
mjög þröngan húsakost en verðum
að vinna eftir því,“ segir Magnús.
-BÞ
Vatnsfellsvirkjun:
Eldur í túrbínu
Túrbína eitt i Vatnsfellsvirkjun
skemmdist í fyrradag þegar starfs-
menn gangsettu hana án þess að los-
að væri um bremsur. Eldur og mik-
ill reykur gaus upp þegar aflvélin,
sem er 45 megavatta, ofhitnaði og
voru reykkafarar úr slökkviliði
staðarins sendir inn til að stöðva
vélina.
Bjöm A. Harðarson, staðarverk-
fræðingur Landsvirkjunar, segir
óljóst hversu mikið tjónið er en ljóst
sé að túrbínan hafi skemmst við at-
vikið. Hreinsun og skoðun túrbín-
unnar var ekki lokið í gær.
Túrbínan var ræst í fyrsta sinn
um miðjan þennan mánuð. „Við
höfum verið mjög ánægðir með
gang vélarinnar hingáð til. Það sem
gerðist nú má rekja til óhapps í
tölvustýrðu stjórnkerfi virkjunar-
innar. Á þessu stigi vitum við ekki
hversu langan tíma viðgerð mun
taka,“ segir Björn.
Túrbínan er önnur tveggja sem
munu knýja Vatnsfellsvirkjun en
ráðgert er að sú seinni verði ræst í
desember. -aþ
RÚV verði sjálfs-
eignarstofnun
Á miðstjórnar-
fundi Framsóknar-
flokksins í gær
kom fram að
flokksnefnd um
málefni Ríkisút-
varpsins undir for-
ustu Einars Skúla-
sonar telur að
breyta eigi RÚV í
sjálfseignarstofn-
un. Nefndin vill að
áhrif stjórnmálaflokka í útvarpsráði
verði minnkuð um leið og stjórnin
verði gerð virkari í stjóm rekstrar og
dagskrár. í stjórninni verði þá fjöl-
breyttari hópur fólks og meiri þver-
skuröur af þjóðfélaginu. Nefndin sér
fyrir sér að horfið verði frá inn-
heimtu afnotagjalda og stofnuninni
þess í stað fundinn taustari grund-
völlur, t.d. með þjónustusamningi við
ríkisvaldið. Sem kunnugt er hefur
rikisstjómin ákveðið að setja málefni
RÚV í sérstakan starfshóp stjórnar-
flokkanna og sagði Halldór Ásgríms-
son á fundinum í gær að þetta nefnd-
arálit væri gott veganesti inn í það
starf. -BG
Veörið í kvöld
Slydda eöa snjókoma
Norðlæg átt 5-13 m/s og slydda eða
snjókoma síödegis, en sunnan 8-13, rigning
og 5 til 10 stiga hiti á Suðaustur- og
Austurlandi.
Sólargangur og sjávarföll
REYKJAVIK' AKÚREYRI
Sólarlag í kvöld 16.03 15.33
Sólarupprás á morgun 10.28 10.28
Síödegisflóö 13.50 18.23
Ardegisflóö á morgun 02.32 07.05
Skýríngar á ve&urfáknum
J^VINDÁTT 10V-HITI
"^VINDSTVRKUR {fnetrtun i saklmdu N.fROST HBDSKÍRT
O O o
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKYJAÐ AtSKÝJAÐ
v,. íí Ö
RIGNING SKÚRIR SIYDDA SNJÓKOMA
*W =
ÉUAGANGUR ÞRUMU- SKAF- ÞOKA
VEOUR RENNINGUR
/,h,i
jjíi
Allir á vetrardekk
Vonandi eru allir bíleigendur búnir að
gera farartæki sín klár fyrir
vetraraksturinn því búast má viö
éljagangi meö tilheyrandi hálku víöast
hvar á landinu.
Eljagangur
NV strekkingur og snjókoma eða éljagangur á Noröurlandi en skýjaö meö
köflum sunnan og vestan til. Frost 2 til 6 stig.
ManudagU
Vindur:
8-12
Hiti
lur: (
-2° «1-7“ V«°
Fremur hæg breytileg átt
og él. Frost 2 til 7 stig á
Vestfjöröum en annars hlti
kringum frostmark.
Þríöjiida^iir
Vindur: (
13-18 \ /
Hiti-3° til-8° Ve
NV 13-18 m/s og él,
elnkum noröan tll. Frost 3
tll 8 stlg.
Míóvíkut!
Vindur;
6—12 m/s^**
Hiti -5° til -9°
Breytlleg átt, víöa
léttskýjaö og talsvert
frost.
IggBTOli' ■ -■
AKUREYRI skýjaö 7
BERGSSTAÐIR úrkoma I gr. 4
BOLUNGARVÍK haglél 4
EGILSSTAÐIR léttskýjaö 9
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 5
KEFLAVÍK súld 4
RAUFARHÖFN skýjað 5
REYKJAVÍK rigning 4
STÓRHÖFÐI úrkoma í gr 4
BERGEN skýjaö -1
HELSINKI snjókoma -4
KAUPMANNAHÖFN hálfskýjaö 4
ÓSLÓ hálfskýjaö 3
STOKKHÓLMUR 0
ÞÓRSHÖFN rigning 10
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö -1
ALGARVE léttskýjaö 19
AMSTERDAM skúr 5
BARCELONA léttskýjaö 11
BERLÍN skýjaö 4
CHICAGO alskýjaö 8
DUBLIN súld 9
HALIFAX skýjaö 0
FRANKFURT skýjaö 4
HAMBORG léttskýjaö 4
JAN MAYEN rigning 1
LONDON skýjaö 5
LÚXEMBORG skýjaö 3
MALLORCA léttskýjað 16
MONTREAL heiöskírt 1
NARSSARSSUAQ snjókoma -2
NEWYORK skýjað 7
ORLANDO skýjað 16
PARÍS léttskýjað 7
VÍN skýjað 4
WASHINGTON heiðskírt -2
WINNIPEG þoka 1