Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2001, Page 24
24
LAUGARDAGUR 1. DBSEMBER 2001
Helgarblað_______________________________________________________________________________________________ PV
Hallgrímur Helga-
son: Höfundur ís-
lands. Magnað
skáldverk, í senn
grípandi raunsæ-
issaga af mannleg-
um örlögum og
fræðileg úttekt á
öldinni sem leið.
Mál og menning.
HOFUNDUR
ÍSLANDS
r
m
ISLAND
í alddnna lás
Ulugi Jökulsson:
ísland í aldanna
rás 1951-1975.
Skipulegt og
skemmtilegt yfirlits-
rit um atburði og tíð-
aranda þessara ára,
byggt eins og annáll
en með ítarlegum köflum um sér-
stök efni. JPV útgáfa.
Þorvaldur Þor-
steinsson: Við fót-
skör meistarans.
Saga um sérkennileg-
an leigusala og ennþá
einkennilegri leigj-
anda og hvemig
óhugnaður getur magnast upp í
hugskoti lesanda án marktækrar
ástæðu. Bjartur.
Steinunn Sigurðar-
dóttir: Jöklaleikhús-
ið. Við flytjum búferl-
um til Papeyrar í
þessari sögu og fylgj-
umst með þvi þegar
leikhús er byggt og
Kir suberj agarðurinn
settur upp. Meinleg og fyndin út-
tekt á íslensku mannlífi. Mál og
menning.
Sigfús Bjartmarsson:
Sólskinsrútan er sein
í kvöld. Bók af því tagi
sem er að fá nobelinn
um þessar mundir.
Óhugnanlegar og
glettnar lýsingar á líf-
inu í Rómönsku-Ameriku. Bjartur.
Kynlrf
Jólin eru tími gleöi, snertingar, tónlistar og hreinleika:
Enginn snjór
í Betlehem
- jólasveinar eru aldrei í kirkjum
Jólin eru tími gleði og hamingju.
Hafirðu verið hamingjusamur það
sem af er árinu þá skaltu verða enn
hamingjusamari og hafirðu verið
óhamingjusamur er eins gott að
taka sig saman í andlitinu og breyta
því. Þeir sem ekki eru hamingju-
samir um jólin passa ekki inn í árs-
tíðina. Þess vegna halda þeir sig
innandyra, fjarri mannþröng moll-
anna og Laugavegarins.
Fyrir ári var ég staddur í Kaup-
mannahöfn í aðdraganda jólanna og
frá hefðbundinni göngu um Strikið
er mér minnisstæðastur gamall
maður sem var klæddur í kjól, í net-
sokkabuxum og kvenlegum skóm.
Andlit hans hafði kannski einhvern
tímann verið fagurlega málað og
snyrt en karlmannleg tár höfðu rutt
öllum fegrunarvörum niður kinn-
amar eftir gilskorningum aldursins
og ofan í hálsakot. Hann minnti mig
um margt á litlu stúlkuna með eld-
spýtumar sem mætti örlögum sín-
um á jólanótt í frægri sögu HáSé
Andersen.
Kannski er maðurinn dáinn
núna.
Kannski dó hann á jólanótt 2000 í
einhverri hliðargötu Striksins.
Kannski er þetta full bölsýnt
svona á aðventunni.
Ekkert kynferðislegt
Jólin eru tími snertingar við ann-
að fólk. íslendingum reynist oft
erfitt að snerta hver annan nema
undir hektískum áhrifum áfengis
en á stórhátíðum tilheyrir að taka í
hendur þeirra sem maður mætir og
gerast jafnvel svo kræfur að smella
kossi á kinn eða, ef jólastuðið er yf-
irþyrmandi, minnast við sína nán-
ustu.
Allt miðar jólastússið að því að
gera okkur aðlaðandi. Þess vegna
eru jólin mikilvægur hluti af upp-
byggingu sjálfsmyndarinnar. Við
erum flest ofboðslega fín um jólin.
Og fínheitin eru annars eðlis en við
flest önnur tækifæri. Við klæðumst
helst glæsilegum og upphöfnum
klæðnaöi sem er jafnan fjarri því að
vera kynferðislegur, enda lítið kyn-
ferðislegt við jólin sem slík, þótt
þau tengist fæðingu. Reyndar
óvenjulegri fæðingu því blessaður
drengurinn var eingetinn.
Eins og jólatré
Jólin eru timi snertingar við nátt-
úruna. íslendingar hafa lengst af
veru sinni á þessu landi búið undir
torfþökum í húsum sem voru grafín
ofan í jörðina. Þannig skipti í raun
litlu hvort menn voru lifandi eða
dánir; grasið var alltaf yfir höfðinu
á þeim en sjaldnast undir. íslend-
ingar voru í mikilli snertingu við
náttúruna en þó ekki sérlega vin-
veittir henni þar sem hún var hörð,
köld og sérvitur varðandi veðráttu
og birtu. Eftir að íslendingar kynnt-
ust steinsteypu og bárujámi hafa
samskipti þeirra við náttúruna far-
ið minnkandi í sama hlutfalli og
virðing þeirra fyrir henni hefur
vaxið. Nú þykir þaö fínt að fara á
fjöll um hávetur; nokkuð sem
Reynistaðabræður, Fjalla-Eyvindur
og Halla hefðu ekki tekið undir.
Um jólin kemur náttúran inn á
heimili fólks í gervi jólatrésins.
Áður fyrr gengu bændur á heiðar og
leituðu að eini sem síðan var bund-
inn á spýtur og úr varð nokkuð sem
minnti á jólatré, sérstaklega ef
menn höfðu aldrei séð jólatré áður.
í borgarsamfélaginu er snertingin
við jólatréð nærri því að vera nátt-
úrleg upplifun fyrir börn sem
hreyfa sig sjaldan eða aldrei af mal-
bikinu.
Nostalgiskt minningaflæöi
Jólin eru tími einkennilegrar tón-
listar. Raunar skiptist jólatónlist í
tvennt eins og margt sem einkennir
jólin. Annars vegar er það „gleði-
gleði“ hlutinn (á birtingarmynd
sína meðal annars í fjöllita músa-
stigum og jólalaginu Jólahjól) og
hins vegar „heilagiheilagi" hlutinn
(á birtingarmynd sína meðal annars
í fogrum og hógværum likneskjum
af jötunni og nágrenni og jólasálm-
inum Hátíð fer að höndum ein).
Fullyrða má að mikið af þeirri
tónlist sem við látum yfír okkur
ganga um jólin myndum við aldrei
líða á öðrum árstímum. Blandast
þar saman nostalgískt minninga-
flæði sem tengist lögunum og stutt-
a’-á : l:. ;iy. >• t
Er hægt að mennta sig í kynfræðum
- öðruvísi en að vera lostinn eldingu?
ur spilunartími. Það að jólalögin
eru aðeins spiluð I desember gerir
það að verkum að það tekur 200-300
ár að komast að því hvort jólalög
eru klassísk.
Margir hafa velt því fyrir sér
hvað gerir lag að jólalagi.
Jóna
ingibjörg Jónsdóttir
skrifar um kynlíf fyrir
DV og Spegilinn
Síðan ég lauk námi i kynfræðum
frá Pennsylvaniuháskóla árið 1988
hafa af og til dúkkað upp einstak-
lingar hérlendis sem titla sig óhikað
kynfræðinga, kynlífsfræðara eða
kynlífsráðgjafa án þess að hafa lok-
ið því sem talin er tilskilin mennt-
un, a.m.k. erlendis. Því datt mér í
hug að kynna menntunarmöguleika
í kynfræðinni á háskólastigi en sem
stendur veröur að leita út fyrir
landsteinana til að komast í slikt
nám.
Rýrir oröspor kynfræöinnar
Titlaskreytingar þeirra sem eru
sjálfmenntaðir „kynfræðingar" rýra
veg kynfræðinnar og alla faglega
þróun og gildir einu hvort maður
hefur skroppið á nokkurra vikna
námskeið erlendis í kynfræðum -
það gerir mann ekki að kynlífsfræð-
ara, kynlífsráðgjafa - eða þerapista
sem allt teljast kynfræðingar. Ekki
frekar en aö vera hjúkrunarfræð-
ingur og hafa skipulagt námskeið
hérlendis þar sem umræðuefnið er
tengt kynlífi á einhvern hátt. Ef ég
beiti sömu rökum við titlaskreyting-
ar og sumir hjúkrunarkollegar mín-
ir (því miður) sem af og til skreyta
sig með starfsheitum kynfræðinnar
gæti ég kallað mig geðhjúkrunar-
fræðing eða jafnvel geðlækni en ég
læt þaö vera - einfaldlega af því ég
hef ekki lokið tilskildu námi og
starfsheitin eru einnig lögvernduð.
Ég hef tekið þátt í ótal námskeiðum
sem koma inn á svið geðhjúkrunar,
svo sem þriggja mánaða kúrs i geð-
hjúkrun, námskeiðum í hugrænni
atferlismeöferð og persónuleika-
röskunum, en þátttaka í einu eða
fleirum þessara námskeiða gerir
mig samt ekki að geðhjúkrunar-
fræðingi. Og þótt ég hafi líka lokið
tveggja ára námi í sálfræðilegri
meðferð (psykoterapi) titla ég mig
heldur ekki klínískan sálfræðing.
Starfsheitið kynfræðingur er nefni-
lega ekki lögverndað starfsheiti,
enn sem komið er og því getur hver
sem er kallað sig kynfræðing hér-
lendis. Gjörið bara svo vel!
Kynfræöin er ung fræðigrein
Árið 1974 gaf Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin út veglega skýrslu
um menntun heilbrigðisstétta í kyn-
fræðum (Education and Treatment
in Human Sexuality; The Training
of Health Professionals). í skýrsl-
unni komu fram ýmsar gagnlegar
ábendingar sem ætlað var að efla
framgang kynfræðinnar (sexology) í
fræðslu, meðferð og rannsóknum.
Hvemig hefur svo til tekist og hver
eru næstu skref? Á síðasta ári sett-
ust menn aftur niður, m.a. til að
svara þessum spurningum, og gáfu
út nýja skýrslu. Þetta er viðamikil
skýrsla en mig langar að tæpa á því
sem kemur fram um menntun heil-
brigðisstétta í kynfræðum og áhuga-
samir geta kynnt sér skýrsluna í
heild sinni á vefslóðinni
www.paho.org/Eng-
lish/HCP/HCA/PromotionSexu-
alHealth.pdf
Kynfræöingur í fræðslu,
klíník eöa rannsóknum?
Það er hægt að mennta sig í kyn-
fræðum á þremur sviðum: í kyn-
fræðslu (sexuality education),
klínískri kynfræði (clinical
sexology), sem lýtur að ráðgjöf og
meðferð, og loks rannsóknum i kyn-
fræði (research sexology). Allir sem
mennta sig í kynfræðum geta nefnt
sig kynfræðinga (sexologists) en
sem kynfræðingur er maður ýmist
kynlífsfræðarir (sexuality ed-
ucator), klínískur kynfræðingur (cl-
inical sexologist) eða rannsóknar-
kynfræðingur (research sexologist).
Þeir sem sérhæfa sig í kyn-
fræðslu verða að tileinka sér ákveð-
inn þekkingargrunn, læra
námskrárgerð í kynfræðslu, þekkja
eigin viðhorf til kynferðismála m.a.
svo þeir geti lært að virða ólík við-
horf folks í þeim efnum og loks
verða kynlífsfræðarar að þekkja
helstu áhyggjuefni og vanda í kyn-
lífi svo þeir geti vísað á viðeigandi
meðferðaraðila. Starfsmöguleikar
eru æði fjölbreyttir og ým-
ist innan hins opinbera í
heilbrigðis- og skólakerfínu
eða meðal almennings,
ekki síst ungs fólks. Síðan
ég útskrifaðist sem kyn-
fræöingur, nánar tiltekið
sem kynlífsfræðari (sexu-
ality educator), hef ég m.a.
unnið að forvömum á sviði
alnæmis fyrir hið opin-
bera, tekið þátt í að skipu-
leggja fyrstu könnun á kyn-
hegðun meðal landsmanna,
samið námsefni fyrir ólíka
hópa og stundað kennslu
bæði innan skólakerfisins
og meðal almennings. Kyn-
fræðingar sem starfa við
klínísk störf sinna m.a.
kynlífsvanda (sexual dys-
function), vandamálum
tengdum óvissu með kyní-
myndina (gender identity
syndromes) og meðferð
vegna kynferðislegrar mis-
notkunar og ofbeldis (sexu-
al abuse and violence).
Klinískir kynfræðingar eða
kynlífsráðgjafar - eða
þerapistar ööru nafni -
verða að grunni til að læra það
sama og kynlífsfræðarar en þar að
auki fer mikill hluti námsins í að
tileinka sér þekkingu á sálarlífi
fólks, kynlífsvanda og meðferð.
Kynfræðingar sem vinna á rann-
sóknarsviðinu hafa sérhæft sig í að
byggja upp þekkingu á kynlífi. Til
að þeir geti það verða þeir að læra
rækilega alla þá aðferðafræði sem
kemur að sem mestu gagni viö aö
rannsaka hið flókna fyrirbæri á
borð við kynlíf. Það segir sig sjálft
að það er reginmunur á að kanna
sálarlíf, viðhorf, þekkingu og atferli
hvað viðkemur kynlifi en t.d. eigin-
leika kopars, málhelti eða innreið
danskra og þýskra jólahefða á ís-
landi.
Kynfræðiklíník
Á kynfræðiklíníkinni (sexologisk
klinik) á Ríkisspítalanum í Kaup-
mannahöfn starfar teymi fagfólks,
m.a. úr ólíkum heilbrigðisstéttum.
Á kynfræðikliníkinni fer fram með-
ferð kynlífsvandamála, fræðsla og
rannsóknir. Eitt af stærri verkefn-
um teymisins undanfarin ár hefur
verið að byggja upp meðferð kyn-
ferðisafbrotamanna í Danmörku en
það hefur sýnt sig að spara bæði
umtalsverða íjármuni í heilbrigðis-
kerfinu og fyrirbyggja ný kynferðis-
afbrot. Hérlendis er ekki starfrækt
nein samsvarandi klíník og ekki
eru horfur á því í nánustu framtíð.
Hér er hver að krukka í sínu horni
og lítið ber á samstarfi hinna ólíku
aðila sem sinna málefnum klíníska
þáttarins í kynfræðinni. Má þar
nefna þá sem sinna kynlífsvanda-
málum og hina sem koma að með-
ferðarúrræðum vegna kynferðis-
legrar misnotkunar.
íslenska menntunarleföin
Hægt er aö mennta sig í kynfræð-
um á háskólastigi bæði í Evrópu, á
Norðurlöndunum (aðallega í Sví-
þjóð og Danmörku) svo og í Banda-
ríkjunum. Skal ég fúslega benda
áhugasömum á hvar er hægt að fá
nánari upplýsingar um slíkt nám.
En ef maður vill spara sér háar
námsskuldir hjá LÍN er auðvitað
hægt að standa fyrir námskeiði um
kynlíf eða bíða eftir að fá eldingu í
hausinn og þá er maður orðinn kyn-
fræðingur. Alla vega virðist það
vera fræðilegur möguleiki á íslandi!