Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2001, Side 51
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001
59
DV
Helgarblað
Fjaðrafok
úr kvenlögreglunni hefðu einfald-
lega komið og rætt málið við hana.
Engin slagsmál hefðu átt sér staö.
Sama sagði Auður Eir í samtali við
Morgunblaðið 21. október en
Marjun hefði verið „mjög vanstillt,
grét mikið og átti i miklu stríði".
Skömmu síðar gafst Marjun upp
og féllst á að senda bam sitt til Fær-
eyja. Hún sagði að móðir sín hefði
lofað að taka barnið að sér en er það
kom til Færeyja var því fljótlega
komið fyrir á barnaheimili. Marjun
hélt því fram í viðtalinu í Þjóðviij-
anum að hún hefði ekki fengið að
kveðja barn sitt heldur hefði sér
verið gefin tafla sem olli því að hún
svaf allan þann dag er barnið var
flutt á brott. Þessu hafnaði Anna
Oona algerlega og kvað hana víst
hafa kvatt barn sitt.
Strauk af Bjargi
Eftir að Marjun frétti að bamið
væri komið á barnaheimili strauk
hún af Bjargi og heim til móðursyst-
ur sinnar sem búsett var á íslandi. í
viðtalinu i Þjóðviljanum sagði: „Þar
fann kvenlögreglan hana og í refs-
ingarskyni var hún lokuð inni í her-
bergi sínu í náttfötum einum klæða,
mátti ekki tala við neina af hinum
stúlkunum og enginn talaði við
hana nema þegar henni var færður
matur eða hún þurfti að fara á sal-
erni.“ Hún sagði að sér hefði að lok-
um tekist að strjúka úr þessari prís-
und en fljótlega náðst aftur og þá
verið flutt á upptökuheimili ríkisins
í Kópavogi. „Þama átti Marjun að
vera í algerri einangrun um viku-
tíma til refsingar, í herbergi með
einu járnrúmi og læstum dyrum og
glugga. En forstöðukonan þarna sá
aumur á henni og var ekki eins
ströng og fyrir var lagt.“
Hún var síðan flutt aftur að
Bjargi og var þar þangað til í októ-
ber 1967 að hún strauk og sagði
sögu sína í Þjóðviljanum og Tíman-
um. Fyrirsögn Þjóðviljans segir alla
söguna um tón fréttaflutningsins:
„Ríkisstyrkt uppeldisheimili í hönd-
um ofsatrúarflokks" - Viststúlkum
refsað með barsmíðum og einangr-
un - „neyddar til trúarathafna" -
ófagrar lýsingar færeyskrar stúlku
á skólaheimilinu Bjargi á Seltjarn-
arnesi."
Lögreglan rannsakar málið
í Morgunblaðinu var fjallað um
málið með öðrum hætti. Þar var öll
áhersla lögð á að leyfa starfsfólki á
Bjargi og Auði Eir Vilhjálmsdóttur
að svara hinum alvarlegu ásökun-
um sem bomar höfðu verið fram.
Hinn 21. október var til dæmis ítar-
legt viðtal við Önnu Oonu Hansen í
blaðinu og var það tekið á skrifstofu
hennar á Bjargi en „allan tímann
mátti heyra háværar athugasemdir
frá stúlkunum sem voru í setustof-
unni þar skammt frá“. Er skemmst
frá því að segja að Anna Oona neit-
aði öllum ásökunum um að Marjun
Gray hefði verið beitt harðræði, þar
á meðal að hún hefði ekki fengið að
kveðja bamið sitt.
Eftir að Marjun strauk af Bjargi
fór stjórn heimilisins fram á rann-
sókn lögreglu á hvarfi hennar og
eftir að málið komst í hámæli var
óhjákvæmilegt að öll starfsemin á
Bjargi yrði rannsökuð. Heimilið var
því leyst upp og þeim fáu stúlkum
sem þar voru þá eftir var komið fyr-
ir annars staðar.
Um einstakar ásakanir Marjunar
Gray og annarra stúlkna á hendur
starfsfólki á Bjargi verður fátt sagt
svo óyggjandi megi teljast. Öllum
þeim ásökunum var afdráttarlaust
hafnað af öllum þeim sem viðriðnir
voru reksturinn á Bjargi, þótt
starfsfólk viðurkenndi að stundum
hefði ýmislegt gengið á, enda sumar
stúlkurnar erfiðar viðfangs. Hefði
sú einkum verið raunin fyrst eftir
að þær komu aö Bjargi en flestar
hefðu róast meðan á dvölinni þar
stóð. Auður Eir mun hafa viljað að
Hjálpræðisherinn færi í meiðyrða-
mál eftir að blaðaskrif hófust um
Bjarg en yfirmaður Hersins á Norð-
urlöndum hafnaði því og kvað slík-
an málarekstur ekki við hæfi.
Úlfaldi úr mýflugu
Vafalitið hafa Marjun og hinar
stúlkumar oft gert úlfalda úr
mýflugu í vandræðum sinum og
Þegar Bjargsmálið stóð sem hæst
skrifuðu blöðin mikið um málið og
sýndist sitt hverjum. Fór ekki hjá
því að flokkapólitík blandaðist þar
inn í eins og í öll önnur mál á ís-
landi um þær mundir og dró um-
fjöllun blaðanna dám af því. Gísli
Gunnarsson, sem aðstoðaði Marjun
Gray við að komast af heimilinu,
var virkur félagi í Alþýðubandalag-
inu og sem slíkur var hann gerður
tortryggilegur af fulltrúum stjómar-
flokkanna sem töldu hann einungis
vilja nota málið til að koma höggi á
ríkisstjórnarflokkana.
Ljóst er af blöðunum að þau tóku
afstöðu til deilnanna um Bjarg eftir
flokkspólitískum línum; Þjóðviljinn
og Tíminn gagnrýndu starfsemina
harkalega en Alþýðublaðið og Morg-
unblaðið snerust til varnar. í Morg-
unblaðinu var til dæmis birt gagn-
rýnislítið viðtal við forstöðukonuna
á Bjargi þar sem því er lýst hvað eft-
ir annað hversu stúlkurnar, sem
fylgdust með viðtalinu, hefðu hegð-
að sér dólgslega. Síðan birti Morg-
unblaðiö helst fréttir sem komu for-
ráðamönnum heimilisins á Bjargi
vel en sniðgekk aðrar að mestu.
Seinna bindið komið
Þetta er forsíöa seinna bindis ís-
lands í atdanna rás eftir llluga Jök-
ulsson en þaö er JPV-útgáfan sem
gefur út.
í ljósi þessa kom nokkuð á óvart
þegar ritstjóri Morgunblaðsins,
Matthías Johannessen, skrifaði leik-
rit sem augljóslega var byggt á
Bjargsmálinu og var frumflutt í
Þjóðleikhúsinu árið 1969. Leikritið
birti harða gagnrýni á alla tilhögun
á heimilinu. Aðalpersóna verksins
er stúlka sem flutt er á stúlknahæli
og sætir þar hinni verstu meðferð,
kúgun, áreitni og barsmíðum.
Leikrit Matthíasar hét Fjaðrafok
og reyndist réttnefni því það olli
miklu fjaðrafoki. Áður en það var
frumsýnt höfðu ættingjar Auðar
Eirar Vilhjálmsdóttur hótað lög-
banni ef því yrði ekki breytt. Matth-
ías gekk að því og dró úr „svæsn-
ustu“ lýsingum sínum á ástandinu
á stúlknahælinu í leikritinu, en
jafnvel sú „rnilda" útgáfa sem síðan
var frumsýnd varð tilefni mikilla
deilna.
túlkað sérhverja andspyrnu starfs-
fólks á Bjargi sem argasta ofbeldi og
kúgun, ekki síst eftir að þær upp-
götvuðu að fólk var tilbúið að
hlusta. Hitt virðist þó jafn ljóst að
rekstur heimilisins var, þrátt fyrir
nafnið, ekki á nógu traustu bjargi
byggður. Starfsfólk var ekki vand-
anum vaxið til langframa, staða
heimilisins var alltof óljós og sú
áhersla á trúarlegt 'uppeldi sem þar
fór fram olli tortryggni.
Sagt er að blöð á íslandi hafi
sjaldan selst betur en meðan Bjargs-
málið stóð sem hæst. Fannst mörg-
um eftir á að Hjálpræðisherinn
hefði legið undir ómaklegu ámæli,
jafnvel ýmsum þeirra sem viður-
kenndu að sitthvað hefði mátt betur
fara á Bjargi. Blandaðist þar margt
inn í, ekki síst stjómmál, og voru
ríkisstjómarflokkarnir sakaðir mn
Það sem olli mestu fjaðrafoki - og
lögbannshótun - voru atriði þar
sem stúlkan verður fyrir kynferðis-
legri áreitni starfsmanna á því hæli
sem hún er flutt á en starfsmennirn-
ir eru allir konur. Kynferöisleg
áreitni var ekki mikið í sviðsljósinu
á þeim árum, allra síst af lesbískum
toga, og voru ásakanir um slíkt litn-
ar mjög alvarlegum augum en
Matthías hafði fyrir sér skýrslur
lögreglunnar um yfirheyrslur yfir
stúlkunum á Bjargi. Þar héldu
nokkrar stúlknanna því fram að
sumar starfskvennanna hefðu átt til
að sýna sér óeðlilega mikil blíðuhót,
einkum er þær voru kysstar góða
nótt á kvöldin.
Ekki verður af lögregluskýrslun-
um dregin nein afgerandi ályktun
um hvort þarna hafi verið eitthvaö
óeðlilegt á ferð en ásakanirnar
komu að minnsta kosti eingöngu
fram í garð norsku starfskvenn-
anna, ekki íslendinganna sem af-
skipti höfðu af stúlkunum. Stúlk-
urnar á Bjargi endurtóku líka marg-
ar sömu söguna um að komið hefði
verið að tveimur norsku kvennanna
nöktum uppi i rúmi um miðjan dag
en þær áttu þá ýmist að hafa haldiö
því fram að þær væru að læra ís-
lensku eða lesa Biblíuna. í leikriti
Matthíasar eru hins vegar allar
gæslukonurnar íslenskar og undir
sömu sök seldar.
Ekki var tekin nein afstaða til
þess af lögreglunni hvort ásakanir
um kynferðislega áreitni ættu við
rök að styðjast. Virðast fullyrðing-
ar stúlknanna um þetta raunar
fremur lausbeislaðar og ekki fram-
fylgt af mikilli sannfæringu eöa
djúpum sárindum. En þessu gerði
Matthías býsna mikið úr í leikriti
sínu þótt hann drægi nokkuð í land
eftir að hótunin um lögbann var
sett fram.
Það er svo aftur enn til marks
um hina niðumjörvuðu flokkapóli-
tík sem öll umræða á íslandi sat
föst i að þótt Matthías tæki í leik-
riti sínu í raun undir flestar þær
fullyrðingar sem til dæmis Þjóð-
viljinn hafði áður sett fram um
reksturinn á Bjargi dugði það hon-
um engan veginn til að leikritiö
hlyti náð fyrir augum vinstri-
manna. Leikritið hlaut reyndar
slæma dóma í sjálfu sér en Matthí-
as var líka gagnrýndur fyrir sjálft
umfjöllunarefnið.
Hann skrifaði síðar: „[Sjíðasta
árásin á mig ... var gerð í Austra
Þjóðviljans nokkrum mánuðum
eftir að hætt var að sýna verkið í
Þjóðleikhúsinu. í sama blaði var
mér likt við Frankó, einræðisherra
Spánar, í umræðum um verkið,
svo broslegt sem það var ... Engin
samúð komst að með persónum
verksins fyrir þessum hamagangi.
Efni verksins og örlög stúlkunnar
voru þó sótt í íslenzkt þjóðfélag.
Síöan hefur mér þótt skinhelgi ein-
kenna þá „félagshyggjumenn"
ýmsa, sem þykjast vilja breyta
þjóðfélaginu. En ritstjóri Morgun-
blaðsins átti a.m.k. ekki að eiga að-
ild að slíkri breytingu, hvað sem
skáldið sagði! Fýrir bragðið gat
ekki verið nein þjóðfélagsgagnrýni
i Fjaðrafoki!“
að hylma yfir með óhæfum stjórn-
endum Bjargs vegna þess að Gylfi Þ.
Gíslason menntamálaráðherra var
fóðurbróðir Auðar Eirar Vilhjálms-
dóttur og hafði átt mikinn þátt í því
að heimilið komst á laggirnar.
Gagnrýnendur heimilisins voru á
hinn bóginn sakaðir um að nota sér
málið í pólitískum tilgangi.
Upp úr miðjum nóvember hafði
rannsóknarlögreglan lokið yfir-
heyrslum í málinu og sendi það til
ríkissaksóknara til frekari meðferð-
ar ef ástæða þætti til. Saksóknari
virðist hafa tekið sér mjög góðan
tíma til að hugsa ráð sitt því það
var ekki fyrr en ári síðar sem yfir-
lýsing kom frá honum um að ekki
væri grundvöllur fyrir frekari að-
gerðum í málinu.
(milllfyrirsagnir eru blaðsins)
i
Q)a/j
irr/fs crm
Mikið úrval af glæsilegum
náttkjólum og
náttfötum, silkitoppar
Ii °g bolir.
Innigallar og sloppar.
Jólagjöf fyrir allar
dömur er hjá okkur.
rrffry/?/fr
DAMAN
k 1.
.w.
Sendum í póstkröfu.
Dodge Durango SLT+ árg. 1999 til sölu, ekinn aðeins 17
þús. km, hvítur, leðurinnréttingar, allt rafdrifið, álfelgur,
aksturstölva. Einn með öllu.
Upplýsingar í síma 695 1787.
Ertu með starfsemi
erlendis?
Viltu ORUGGT
netsamband allan
sólarhringinn?
Við höfum lausnina fyrir þig. Sítengt,
öruggt og óháð gagnasamband um
gervihnött, hvar sem er, hvenær sem er.
lOsat ehf.
Borgartúnf 31 ■ 105 Reykjavfk
Simí: 561 9600 ■ Fax: 561 9610
iosat@iosat.net ■ www.iosat.net
IOsat.net
DV
Okeypis smáaugiýsingar!
►I Gefins
-alltaf á miðvikudögum
►I Tapaö - fundiö
-alltaf á þriðjudögum
Smáauglýsingar
DV
550 5000
Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSIIVIS