Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2001, Síða 52
60
Tilvera
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001
Akureyri -
skrifstofuhúsnasði óskast
Ríkissjóður óskar eftir að taka á
leigu u.þ.b. 150-160 ferm
skrifstofuhúsnæði á Akureyri.
Gott aðgengi áskilið.
Tilboð, er greini frá ástandi,
staðsetningu, bílastæði, leiguverði
og áætluðum afhendingartíma,
sendist eignadeild
fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli,
150 Reykjavík, fyrir 19. desember.
Fjármálaráðuneytið
4. desember 2001
Efhún
er ekki
inni
skaiég
hundur
heita!
Flytjendur á disknum eru meöal annarra:
Védís Hervör, Rakel Sif.
Þorvaldur Dauíð og Heiða, söngkona URL
ÖLL VINS/ELUSTU LÖGIN ÚR SÖNGLEIK
ÁRSINS L0KSINS K0MIN ÚT Á GEISLADISK
í TAKMÖRKUDU UPPLAGI
ár fyrir unga sem aldna
einnig vel í skóinn :)
Jólagjöfin í
...passar
Teflt í Moskvu
í heimsmeistarakeppni FIDE í
Moskvu er barist til síðasta blóð-
dropa og í dag hefjast fjögurra
manna úrslit. Indverjinn Anand
varð fyrstur til að tryggja sig áfram
- vann Shirov 11/2—1/2. Hinum ein-
vígjunum lauk öllum með jafntefli
og fóru í bráðabana. Bæði eru menn
þreyttir og svo taka þeir ekki of
mikla áhættu. Það er meira treyst á
að andstæðingurinn leiki af sér í
bráðabananum eða, eins og Tarta-
kower sálugi orðaði það: „Sá vinnur
skák sem leikur næstsíðasta af-
leiknum"! Hvernig þeim atgangi
lyktaði náum við ekki að birta fyrr
en eftir helgi!
Boris Gelfand - Peter Svidler,
1/2—1/2.
Ruslan Ponomariov - Evgení
Bareev, 1/2—1/2.
Joel Lautier - Vassilí Ivantsjúk,
1/2—1/2.
Sýningareinvígi
heimsmeistaranna!
Það er austur í Moskvu sem hlut-
irnir gerast i skákinni og gerast
ekki. Þeir Kasparov og Kramnik
gerðu 4 tíðindalaus jafntefli, þar af 3
stórmeistarajafntefli, í undir 20
leikjum í einvígi sínu. Einvíginu er
skipt í 3 hluta: kappskákir sem nú
er lokið, atskákir, 6 talsins, sem
hófust í gær, og hraðskákir sem
hefjast á sunnudag. Ekki er þetta
mjög skemmtileg uppákoma. Þeir
fengu greidda um 1000 dollara á leik
í kappskákunum og fór meginhluti
verðlaunafjárins í þær. Nú geta þeir
fariö að leika sér - annar vinnur
atið og hinn hraðskákirnar. 750.000
dollurum hefur einhvern timann
verið betur varið!
Það er alltaf hægt að treysta því
að ýmislegt skemmtilegt gerist þeg-
ar þessir herramenn eiga í hlut!
Hvítt: Vishy Anand (2770)
Svart: Alexei Shirov (2706)
Petroff-vörn.
Moskvu (5.1), 6.12. 2001
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4.
Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Rc6 7. 0-
0 Be7 8. c4 Rb4 9. Be2 0-0 10. Rc3
Be6 11. Re5 c5
Nýjasta nýtt í Petroff, eða rúss-
nesku vöminni eins og hún heitir á
mörgum tungumálum. Þetta er eins
og spánski leikurinn sem heitir Ruy
Lopez eftir upphafsmanni sínum í
spænsku og enskumælandi löndum.
Lettinn Shirov, sem nú er orðinn
spænskur ríkisborgari, teflir Petroff
að jafnaði, líkt og Jón Viktor Gunn-
arsson hér heima. Ungu mönnunum
hefur tekist að blása lífi í þessa byrj-
un sem eitt sinn þótti hið mesta
jafnteflisvopn. Anand nær nú frum-
kvæðinu og sleppir því ekki. 12.
Rxe4 dxe4 13. d5 Bc8 14. a3 Ra6
15. Dc2 f6 16. Rg4 Dd6 Svartur
virðist hafa komið ár sinni þokka-
lega fyrir borð og útlit er fyrir
snarpan bardaga. Það er aðeins
riddarinn svarti sem er aðeins úti á
þekju. 17. f3 f5 18. Rf2 Bf6 19. fxe4
Be5 20. h3 Bd4
Svartur hefur nú uppi ýmsa til-
burði og Anand sýnir hér að hann
þekkir andstæðing sinn vel. Enda
tefldu þeir einvígi i Teheran í íran
rétt fyrir jólin í fyrra um heims-
meistaratitil FIDE. Hann gefur nú
peðið aftur fyrir lítið frumkvæði;
veit sem er að Shirov verður aö
hafa frumkvæði til að geta teflt. F-
línunni er líka kirfUega lokað í bili.
21. e5 Dxe5 22. Khl Bd7 23. Rd3
Ba4! 24. Dxa4 Dxe2 25. Hf3 Hae8
26. Bf4 h6 AUt hangir þetta ágæt-
lega saman hjá Anand og Shirov á i
vandræöum með að slá ryki í augu
hans. Takið eftir hvíta riddaranum
sem nú kemur aldeilis til skjalanna.
27. Bd6 Hf6 28. Rf4 De4 29. Re6
Riddarinn hugumprúði stöðvar
allt samstarf svörtu mannanna og
hrókurinn á e8 er valdlaus. Það er
ekki nema eitt úrræði eftir og það
lítur reyndar ekki iUa út! Skipta-
munsfórn er oft aðalsmerki. 29. -
Hexe6 30. dxe6 Dxe6 31. Bg3 Bxb2
32. Hel Df7 33. Bh4! He6? Eina
leiðin er að leika 33. ng5. Svartur
sleppur ekki við endataflið nema ef
hvítur vUl og meö þessum uppskipt-
um auöveldar Shirov andstæðingi
sínum taflið og Anand fer í mát-
sókn. 34. Hxe6 Dxe6 35. Dc2! Bd4
36. Dxf5 Dxc4 37. Kh2 De2 38. Bg3
Ddl. Það má alltaf reyna að máta!
39. Hfl Db3 40. De4 Db5 41. De6+
Kh7 42. Df5+ Kg8 43. Dc8+ Kh7
44. HfB 1-0
Hvítur hótar nú 45. Hh8+ Kg6 46.
Dg4+ með skelfilegum afleiðingum.
Ef 44. - c4 þá missir biskupinn á d4
fótfestuna. Ekkert hægt að gera -
vel telft hjá Anand sem verður aö
teljast sigurstranglegastur.
Tveir Úkrainumenn komust í 8
manna úrslitin, unglingurinn
óstýrUáti Ponomariov og hinn
reynslumikli ívantsjúk. ívantsjúk
hefur teflt eins og engiU - hans veik-
leiki eru bráðabanarnir og þá er allt
annað upp á teningnum. Stundum
teflir hann þá vel og skynsamlega,
stundum hörmulega. Ég held að
hann hafi ekkert i Anand að gera en
hér sjáum við skák i hæsta gæða-
flokki frá hans hendi.
Hvítt: Vassilí ívantsjúk (2731)
Svart: Jiangchuan Ye (2681)
Kóngs-indversk vörn.
Moskvu (4.1), 03.11. 2001
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4.
Rf3 0-0 5. e4 d6 6. Be2 e5 7. 0-0
Rc6 8. d5 Re7 9. b4 a5 10. Ba3 b6
11. bxa5 Hxa5 Það er eins og kin-
verski skákskólinn leggi mikla
áherslu á þessa flóknu og skemmti-
legu byrjun. En þeir í landi því sem
DV
Vishy Anand og Alexei Shirov
að tafli í Moskvu.
eitt sinn hét Sovétríkin hafa rann-
sakað og teflt hana í marga áratugi.
ívantsjúk frá Úkraínu hefur fengið
sinn skerf af kunnáttu um kóngs-
indverjann! 12. Bb4 Ha8 13. a4
He8 14. Dd3!? Skemmtilegur leikur
sem villir fyrir svörtum. Hann fer
eðlilega með riddarann til d7 og þá
hörfar hvíta drottningin þangað
sem hún ætlaði í raun og veru. Kín-
verjar hafa lært það sem er rétt að
það á ekki að leika mönnunum til
baka! 14. - Rd7 15. Dbl Bh6 16. a5
Rc5 17. axb6 Hxal 18. Dxal cxb6
Staka peðið stingur dálítið í augun
en það er ekki það sem ívantsjúk
ætlar að ráðast á! 19. Hbl Dc7 20.
Rb5 Dd8
Góður skilningur á stöðutafl-
mennsku (“strategíu") er nauðsyn-
legur. Hvítur stöðvar sóknartilburði
svarts á kóngsvæng með innrás á
fyrst a- og b-línunum og síðan á 7.
og 8. reitaröðunum. Snilldin stóra!
21. Bxc5! bxc5 22. Da7 Bg4 23. h3
Rc8 24. Db8 Bxf3 25. Bxf3 Bg5 26.
Hal h5.
Hvítur stendur betur og herðir nú
takið. Peðið á d6 er veikleiki, Ridd-
arinn á c8 stendur illa og hrókur
svarts er frekar leiðinlegur en ekki
hrókur alls fagnaðar eins og kollegi
hans í hvíta innrásarliðinu. En Kín-
verjinn heldur sér fast: hvemig er
hægt að brjóta vamirnar á bak aft-
ur? 27. Ha6 Be7 28. Hc6! Hf8 29.
Hc7! Bg5 30. Db7 Bd2 31. h4! Ba5
32. Hc6 Bel Hvíta drottningin er á
leiðinni til b8 og peðið á d6 fellur.
Nú eru góð ráð dýr! 33. g3 Da5
Lokatilraunin: Allt hvíta liðið er í
sókn og þá má senda öfluga sveit
inn fyrir víglínuna og treysta á guð
og lukkuna. En ívantsjúk hafði séð
fyrir því! 34. Kfl! Dd2 35. Be2 Allt
hangir nú saman hjá hvítum og
hvað á að gera við riddarann sem
tók þátt í skrúfstykkinu, svo ekki sé
minnst á guðsmanninn!? Framtíð
þeirra er engin, þeim er fórnað og
síðan gefist upp. Austurlensk undir-
gefni? Nei, ráðleysi, enda duggan
komin í strand. 35. - Re7 36. Dxe7
Bxf2 37. Kxf2. 1-0.