Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2002, Síða 27
LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2002
27
...eitthvað fvrir þig?
Þvottur með
kaktusahárum
Þvottapúöar úr kaktusahárum
seljast nú grimmt í Body shop.
Kaktusanálar þessar eru týnd-
ar í Mezquital valley i Mexíkó
og þótt ótrúlegt megi virðast
þá er það hin mesta nautn að nota þær til þvotta. Verslunin
selur einnig baðbursta með fyrrnefndum nálum. Hver sagði
svo að kaktusar væru stingandi?
Hveitipokar á
vöðvabólguna
I Body shop eru seldir lófa-
stórir hveitipokar með nátt-
úrulegu hveiti sem lina eiga
ýmsar líkamlegar þrautir.
Poka þessa mó setja i ör-
bylgjuofn og skella þeim svo heitum á álagsbletti á likaman-
um sem hafa orðið fyrir barðinu á vöðvabólgu. Pokana má
einnig setja i frysti og nota þá kalda til þess að lina sárs-
auka. Það er tilvalið að taka svona poka með sér i vinnuna
og skella í örbylgjuna yfir hádegismatnum.
Dagbók konu
Nýlega kom út bók sem kallast Dagbók konu. Eins og nafn-
ið gefur til kynna þá er þessi bók fyrst og fremst ætluð kon-
um en höfundur hennar er Sigríður Hanna Jóhannesdóttir.
Ekki er mikið skrifað i þessa bók enda hugmyndin sú að eig-
andi hennar fylli hana út. Bókin skiptist i fjóra kafla þar sem
konan skrifar niður helstu upplýsingar um heilsufar sitt og
annarra fjölskyldumeðlima, afmælisdaga, mikilvæga at-
burði, nám, ferðalög og svo framvegis. Þetta er dagbók sem
fylgir konunni í gegnum lifið og fellur ekki úr gildi eins og
venjulegar dagbækur gera þegar árið er á enda. Bókin er
byggð þannig upp að ekki er ætlast til þess að eigandinn
skrifi neinar ritgerðir i hana heldur einungis stakar setningar
og orð til minnis um mikilvæga hluti. Þetta er bók sem hver
kona ætti að eiga.
Barnamál á barnafötum
I síðasta helgarblaði var viðtal við
unga stúlku sem notar barnamál sem
skreytingu á barnaföt. Þvi miður misrit-
aðist slóðin á heimasíðu hennar en
hún er sem sagt:
http://homepage.mac.com/johannasvala.
Ráðist á rúskinnið
Rúskinn er eitt af því heitasta í tískuheiminum um
þessar mundir. Verslanir eru yfirfullar af rúskinn-
spilsum í indíánastO, beltum og töskvun meö kögri.
Þessar vörur þykja gasalega smart en óneitanlega er
rúskinnið vandmeðfarið.
Eins og flestir vita þá má ekki þvo rúskinn og því
þarf að beita öðrum brögðum til þess að ná óhreinind-
um af rúskinnsfatnaði.
Öruggasti mátinn til þess að ná blett úr rúskinni er
einfaldlega sá að setja flikina í hreinsun. Þetta á sér-
staklega við ef um meiri háttar bletti er að ræða og
vökvi hafi hellst á flíkina. Slíka bletti ætti maður
pottþétt að láta fagfólk um en annan minni háttar skít
getur maður reynt að eiga við sjálfur. Til eru bæði
vír- og gúmmíburstar sem ætlaðir eru tú slíkra
hreinsana að ógleymdum svokölluöum sandsteini sem
virkar mjög vel. Varast ber þó að bursta of harkalega
með þessum græjum. Sé um að ræða litla hluti eins
og skó eða töskur þá er hægt
að reyna að gufuhreinsa þá
heima yfir sjóðheitu
vatni. Hjá skósmiðum er
hægt að kaupa sérstaka
rúskinnsliti sem hægt er
að spreyja á gamalt
rúskinn eftir að maður
hefur burstað skitinn
úr skinninu með vír-
bursta. Slíkt getur gef-
ið gömlum rúskinns-
flíkum alveg nýtt *
líf. Einnig er mælt
með því að fólk sílikon-
verji rúskinnsvörur áður
en það fer að nota þær, þá þolir
rúskinnið meira.
Stelpur, pissum
standandi ...
Armúil 17, lOB ReyhjaviI
Sfml: 533 1234 fax.- SBB 0431
Helldarlausn
I rennismíði!
Vinnur þú undir þrýstingi?
Þýsku Kránzle háþrýstidælumar duga í öllu stóru og erfiðu verkin,
enda viðurkenndar af kröfuhörðum notendum um allan heim.
Kránzle háþrýstidælurnar eru meðfærilegar og til í mörgum
stærðum og gerðum. Kránzle háþrýstidælurnar eru með 15 metra
slöngu og vinna jafn vel hvort sem vatnið er kalt eða heitt.
Þú færð ekki betri
háþrýstidælur!
©FOSSBERG
stórmarkaður iðnaðarmannsins
Suðurlandsbraut 14 - Slmi 57 57 600 - www.fossberg.is
KONUR ERU OFT AÐ PIRRA SIG á því hversu ein-
falt það er fyrir karlmenn að kasta af sér vatni, ekki
síst á ferðalögum. Þessi pirringur er þó algjörlega
óþarfur þar sem um nokkurt skeið hefur verið hægt að
kaupa ýmiss konar búnað sem gerir konum tæknilega
fært að pissa standandi. Útivistarkonur kannast flest-
ar við slikan búnað en ókosturinn við hann er þó sá
að hann er frekar plássfrekur. Nú er hins vegar hægt
að kaupa í apótekum efnisminni búnað, sem er svo
fyrirferðarlítill að hann passar vel í djammtöskuna.
Um er að ræða franska uppfinningu sem kallast „Urin-
elle“ sem samanstendur af einfoldum pappahólk. Það
er t.d. alveg kjörið að hafa Urinelle með á djammið þar
sem klósett skemmtistaða eru misgeðsleg og ekki
alltaf þessleg að konur hafi áhuga á að setjast þar nið-
ur tU þess að pissa. Hólkurinn getur einnig nýst vel ef
taka þarf þvagsýni. í Lyfju kostar stykkið af þessu
þarfaþingi 134 krónur, sem er ekki neitt neitt, nema ef
bjór er drukkinn heUt kvöld, þá gæti kostnaðurinn
safnast saman með tfðum klósettferðum. -snæ
A T H Y G l I