Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2002, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2002
DV
Fréttir
Verslunarskólanemar með tilraunir á Geirsnefi:
Hundarnir ærðust
af hátíðnihljódum
málið í höndum lögreglunnar
Hundaparadís
Stærstur hluti hundaeigenda vill gera útivistarsvæöiö á Geirsnefi aö eins
konar hundaparadís, meö því aö loka á alla umferö og helst aö lýsa svæöiö
upp. Það hefur þó ekki gengiö eftir enn.
„ DV-MYND E.ÓL.
Á góöa „sveitunga"
Bubba Morthens þótti vænt um aö
vera útnefndur bæjarlistamaöur Sel-
tjarnarness viö hátíölega athöfn þar
sem hann fékk hlýjan koss frá konu
sinni, Brynju Gunnarsdóttur.
Bubbi bæjarlistamaður:
Hver dagur
er ævintýri
„Ég er óskaplega glaður og
þakklátur fyrir þetta. Mér finnst
þetta djörf og skemmtileg ákvörð-
un hjá nefndinni, ég er þakklátur í
mínu hjarta," sagði Bubbi
Morthens við DV eftir að stjórn
Menningamefndar Seltjarnamess
útnefndi hann bæjarlistamann Sel-
tjarnarness í gær með virðulegu
viðurkenningarskjali.
Bubbi segir að hver dagur sé
ævintýri. „Mér líður stórvel. Auð-
vitað eru titlar hjóm en þetta kitl-
ar hégómagimdina. Aðalatriðið er
þó að menn skuli meta það sem
maður er að gera. Ég er listamað-
ur og breyskur eins og aðrir
sagði Bubbi. -Ótt
Nokkrir nemendur í Verslunarskóla
íslands efndu til tilrauna með hátíðni-
tæki og blá, blikkandi ljós á hundaúti-
vistarsvæðinu á Geirsnefl fyrir
skömmu. Hundar sem voru .lausir á
svæðinu ærðust þegar hátiðni- og ljósa-
tilraunin fór i gang og þutu út í busk-
ann. Þeir munu þó allir hafa komið í
leitimar aftur.
Jón Magnússon hundaeftirlitsmaður
staðfesti við DV að hann hefði verið
kallaður á vettvang af hundaeigendum
þegar atburðurinn varð. Lögreglan var
þá þegar mætt á staðinn. Hún stöðvaði
tilraunina og gerði ljós og hátíðnibún-
að upptækan. Málið er því í höndum
lögreglunnar.
Hundaeigendur beijast nú mjög fyr-
ir því að Geirsnefi verði lokað fyrir
allri bflaumferð. Segja þeir að stórkost-
leg hætta stafi af þeirri hraðaumferð
sem þar sé. Einn hundur hafi drepist af
völdum hennar á árinu, keyrt hafi ver-
iö á tvo og lítið bam sloppið naumlega.
Þeir vflja að svæðið þjóni þeim sem
nenna að ganga úti með hundana sína
og þrífa eftir þá, en ekki hinum sem
hleypa hundum sínum út, aka hring-
inn í kringum það og láta þá hlaupa
með bflunum. Þá era uppi óskir um að
svæðið verði upplýst. Eins og komið
hefúr fram í DV að undanfomu er mik-
il óánægja meðal hundaeigenda með að
menn komi út á Geirsnef til þess eins
að prófa bfla sína og láta jafnvel eins og
þeir séu að keppa í torfæraakstri.
Umhverfis- og heilbrigðisnefnd
Reykjavíkur hefur falið Umhverfis- og
heilbrigðisstofú að gera úttekt á
hundasvæðinu á Geirsnefi og kanna
það með tilliti til umgengni, umhirðu
og aðbúnaðar. Hefur deildarstjóra
garðyrkjudeildar Umhverfis- og heil-
brigðisstofu verið falið að gera nefhd-
inni grein fyrir niðurstöðum úttektar-
innar. -JSS
Mikil vonbrigði á heimili í Grafarvogi í gær þegar talsvert hafði verið á sig lagt:
Vann verðlausa Toyotabifreið í útvarpskeppni
- var búin aö vera í sæluvímu, ætlaði ekki trúa þessu, segir Guðlaug Ólafsdóttir
Mikil vonbrigði urðu hjá ungu fólki
í Grafarvogi í gær þegar það taldi sig
hafa unnið nýja Toyota Corolla-bifreið
í keppni sem fram fer hjá útvarpsstöð-
inni Steríó. „Ég ætlaði ekki að trúa
þessu enda var ég búin að vera í sælu-
vímu um morguninn," sagði Guölaug
Ósk Ólafsdóttir í Grafarvogi en maður
hennar hafði unnið bifreið í gærmorg-
un en galli var á gjöf Njarðar miðað
við hvað unga fólkið hafði talið sér
trú um.
„Svo reyndist þetta vera einhver
albrúnn Toyotabíll, árgerð 1986.
Hann var algjörlega verðlaus. Ég
hringdi meira að segja í Vöku. Þar
var mér sagt að þeir skyldu taka bíl-
inn en þá yrði ég að borga 2.500
krónur fyrir,“ sagði Guðlaug.
„Þetta er alveg rétt, við erum með
þessa keppni,“ sagði Sigurður
Hlöðversson, talsmaður útvarps-
stöðvarinnar. „Þetta eru töff
druslur. Við höfum aldrei sagt að
við værum að gefa nýja bíla úr kass-
anum. Þessir bílar eru ökuhæfir -
við látum „sjæna þá upp“ og jafnvel
mála líka. Þetta er meira til að ná
athygli og við létum alla þátttakend-
ur skrifa undir plagg þar sem með-
al annars kom fram að aflir gátu
hætt við. En ef menn hafa haldið að
þeir væru að fá nýja Corollu úr
kassanum, þá það,“ sagði Sigurður.
Hann sagði að keppt yrði um einn
bíl í viku.
Maður Guðlaugar fór út klukkan
sjö í gærmorgun að húsnæði Steríós
til að taka þátt í keppni. Um tveim-
ur klukkustundum síðar var hann
valinn ásamt fjórum keppendum til
að reyna að vinna bílinn. Hann var
sendur meö spjald og átti að fá 40
manns til að kyssa inn í reiti. Hann
var svo fyrstur og vann bílinn -
brúnan Toyota Corolla, árgerð 1986,
ökuhæfan. Hann gaf vini sínum
vinninginn. -Ótt
Orðá
nekmtr
ÍSLiNSK
NUGTAKÁ-
OR0ABÓK
HMÍwNhl'tf
Heildarskrá yfir Ieitarorð
tryggir beinan aðgang að
öllum orðasamböndum
og hugtökum.
I Orðaheimi birtist
orðabókarlýsing á íslensku
sem ekki á sér hliðstæðu
í orðabókum um önnur
tungumál.
JpU
JPV ÚTGÁFA
Bræðraborgarstígur 7
Sími 575 5600
www.jpv.is
Orðaheimur er tímamótaverk sem ég hef lengi beðið
eftir, einstœtt verk og ómetanlegt framlag til íslenskrar
tungu. Þessi heimur orðanna er ómissandi hverjum
íslendingi sem vill hafa ó valdi sínu sígild hugtök
íslenskunnar, koma vel fyrir sig orði, vanda mól sitt
og auðga.
Vigdís Finnbogadóttir
DV-MYND ÞÖK
Halldór tilkynnir ákvörðun sína
Formaöur Framsóknarftokksins tilkynnti í gær aö hann byöi sig fram í Fteykja-
víkurkjördæmi noröur.
Varaþingmaður Framsóknar á Austurlandi:
Halldór verður að taka
ákvarðanir sjálfur
„Halldór er okkar foringi og verð-
ur að taka sínar ákvarðanir sjálfur.
Ég styð hann i því,“ sagði Jónas
Hallgrímsson, varaþingmaður
Framsóknarflokksins í Austur-
landskjördæmi, um ákvörðun Hall-
dórs Ásgrímssonar, formanns
Framsóknarflokksins, um að bjóða
sig fram í Reykjavíkurkjördæmi
norður.
Jónas kveðst varla geta sagt að
ákvörðun Halldórs komi á óvart eft-
ir kjördæmabreytinguna. „Þetta er i
raun rökrétt afleiðing af því sem á
undan er gengið. Auðvitað sjáum
við eftir góðum manni. En hann er
formaður flokksins og það er geysi-
leg vinna að fara um Austurlands-
kjördæmið og þjóna þvi með fram
öllu öðru. Halldór bauð sig upp-
runalega fram fyirir Austur-Skaft-
fellinga. Nú er það kjördæmi komið
inn í Suðurlandskjördæmi. Þetta
mættu menn líka hafa í huga,“
sagði Jónas Hallgrímsson. -Ótt
Óbyggðanefndarúrskurður
Fjármálaráðherra hefur ákveðið
að skjóta til dómstóla úrskurði sem
óbyggðanefnd kvað upp í vor í máli
sem tók til Biskupstungnaafréttar
og efstu landa í Biskupstungna-
hreppi. Hér er um að ræða einn af
sjö úrskurðum sem nefndin úr-
skurðaði um varðandi lendur í
norðanverðri Árnessýslu. Hún
starfar á grundvelli laga um þjóð-
lendur og ákvörðun marka um
eignarlönd.
Danir og íslendingar semja
Háskólinn í Reykjavík og Við-
skiptaháskólinn í Kaupmannahöfn
hafa gert með sér samstarfssamn-
ing um doktorsnám. Hann felur i
sér að Háskólinn hér getur boðið
doktorsnám með samstarfi við
danska háskólann varðandi leið-
beinendur og möguleika nemenda
til að sækja námskeið. Háskólinn í
Reykjavík stefnir með þessu að því
að auka námsframboð og renna
styrkari stoðum undir rannsóknar-
starf.
Handritin sýnd
Stærsta handritasýning sem sett
hefur verið upp hér á landi verður
opnuð fyrir almenning í Þjóðmenn-
ingarhúsinu á morgun. Lögreglan í
Reykjavík hefur annast flutning á
handritunum góðu sem meðal ann-
ars komu með dönskum herskipum
á áttunda áratugnum.
Stór skákhelgi
Fyrri hluti íslandsmóts skákfé-
laga fer fram um helgina í sýning-
arsal bílaumboðsins B&L á Grjót-
hálsi. 262 skákmenn úr 40 sveitum
mæta til leiks og hefur þátttaka
aldrei verið meiri á hinu árlega
móti Skáksambands íslands.
Fjórar umferðir verða tefldar í
fjórum flokkum. Lokaumferð verð-
ur tefld á sunnudag.
Ferðum Herjólfs fjölgað
Vegagerð ríkisins og Samskip
hafa gert með sér samning til árs-
loka 2005 um rekstur farþega- og
bílaferjunnar Herjólfs. Ferðunum
verður fjölgað um 73 á ári.
Tugir árekstra í borginni
Umferðardeild lögreglunnar
hafði í ýmsu að snúast í gær og á
fimmtudag enda voru skráðir
árekstrar í höfuðborginni orðnir á
fjórða tug frá því á fimmtudag. Sið-
degis i gær voru árekstrar sem lög-
regla hafði afskipti af þrettán. Ekki
lágu fyrir upplýsingar um teljandi
slys á fólki en tjón varð á hátt í
tveimur tugum bíla. -Ótt