Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2002, Side 20
8
HelQdrblaö 13 V LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2002
Kynlíf
í ljósi stjörnu-
Við huqsum stundum um hvort hún eða hann sé
qóður elskhuqi. Stjörnuspekin veitir kannski ekki
öll svörin við spurninqum af þessum toqa en qefur
okkur vissuleqa vísbendinqar. Vissuð þið t.d. að
skrælþurr endurskoðandi í tvíburamerkinu breqt-
ist íblóðheitt villidqr ísvefnherberqinu?
spekinnar
Vatnsberinn
(20. jan.-18. feb.)
Það eru tvær tegundir af
vatnsberum þegar um kynlíf er
að ræða. Fyrri týpan þarf ein-
göngu á kynlífí að halda til að
tappa af streitu og sér kynlíf
sem algerlega líkamlegt atferli.
Hin gerðin lítur á kynlíf sem
trúarathöfn og er líkleg til aö
taka þátt i kynlífi sem líkist
mest einhvers konar athöfn,
t.d. tantra.
Ef vatnsberi er ástfanginn er
hann opinn og til i allt en ekk-
ert sérlega athugull og virðist
ekki veita þörfum hins aðilans
mikla eftirtekt. Vatnsberinn er
ekki eigingjam en í eðli sínu
treystir hann á sjálfan sig og
gefur sér það að aðrir geri það
líka. Einhleypt fólk í merki
vatnsberans getur verið
lauslátt og til í ýmiss konar af-
brigðilegt kynlíf en meira af
forvitni en af öðrum (ó)náttúr-
legum hvötum.
Karlmenn í merkinu verða
stundum mjög syflaðir eftir
kynlíf og konur í merkinu vilja
miklu frekar fara á fætur eftir
ærslafulla ástarleiki og halda
áfram með lífið en að kúra og
kela.
Þekktir vatnsberar:
Elín Pálmadóttir, Ronald
Reagan og Lord Byron.
Var Ronald Reagan
kannski bara
syfjaður?
Fiskarnir
(19. feb.-20. mars)
Af öllum merkjum eru
fiskarnir með virkasta
ímyndunaraflið og ef þeir
eru í ástríku sambandi njóta
þeir takmarkalausra ásta.
Merkið ber nafn með rentu
því einstaklingum sem fædd-
ir eru í þessu merki finnst
fátt skemmtilegra en kynlíf
nærri vatni, hvort sem það
eru gosbrunnar, fossar, ár
eða bara inni á klósetti.
Konur í merkinu kunna
vel við fjölbreytilegt kynlíf
og hvetja félaga sina áfram
og mana jafnvel steingeitur
upp i hverslags undarleg-
heit. Þeim finnst gaman að
segja bólfélaganum til og
geta gert hvaða mann sem
er að fyrirtaks elskhuga.
Karlar í merki fiska taka vel
eftir því hvað æsir konu og
eru sérlega hrifnir af kyn-
þokkafullum undirfótum og
leiktækjum af hvers kyns
tagi. Þrátt fyrir þetta finnst
fiskum ótækt að stunda kyn-
líf án ástar.
Þekktir fiskar:
Fabio, Árni Johnsen og
Hannes Hólmsteinn Gissur-
arson.
Ætll Hannes Hólmsteinn
Gissurarson sé
hrifinn af vatni?
Hrúturinn
(21. mars-19. apríl.)
Hrútar eru öðrum fremur
þekktir fyrir ævintýragimi og
glæfraskap og því ætti það
ekki að koma neinum á óvart
að þeir eru mjög framhleypnir
er að málefnum svefnherberg-
isins kemur. Þeir þurfa mikið
kynlíf og því meira framandi
og „háskalegra" því betra.
Hrúturinn hefur mikla þörf
fyrir að gera það á hinum ólík-
legustu stöðum og finnst fátt
skemmtilegra en að taka þátt í
ástarleikjum á stöðum þar sem
ágætar líkur eru á að vera
staðinn að verki. Áhættan sem
slík virkar æsandi á hrúta.
Það er hins vegar þversögn í
eðli þeirra því að þeir geta al-
veg lifað án kynlífs í margar
vikur ef ekki mánuði.
Hrútar eru þekktir
húmoristar og konur fæddar í
merkinu heilla gjaman bólfé-
lagann með hnyttnum tilsvör-
um fyrir og eftir samfarir.
Vegna ævintýragiminnar era
karlkyns hrútar oft mjög opnir
og eiga erfitt með að halda
trúnaði við eina konu. Af ofan-
töldu má ráða að hrútar ættu
að heimsækja kynsjúkdóma-
lækni reglulega.
Þekktir hrútar eru:
Vigdís Finnbogadóttir, Leon-
ardo da Vinci og Valgerður
Sverrisdóttir.
Vlgdís Flnnbogadóttir:
Ef tll vill melri grínisti
en taliö er.
Nautið
(20. apríl-20. maí)
Nautið er jarðmerki og
frægt fyrir stjórnlausa
nautnahyggju sem þýðir
ekki endilega að naut séu
óvenju kynræn. Þó það njóti
kynlífs með réttum aðila
fram í fingurgóma er það
ekki gefið fyrir nein furðu-
legheit. Það kann miklu
frekar að meta gott spjall,
ljúffengan mat og notalega
samverustund sem endar
jafnvel einungis með kossi
frekar en í hamslausu kyn-
svalli.
Sum naut eru hógvær og
flest eru feimin, allavega á
yngri árum. Kona í nauts-
merkinu byrjar seint að
stunda kynlíf en á móti kem-
ur að þegar hún loksins
byrjar verður hún yfirburða-
ástkona. Karlar í nautsmerk-
inu eru örlítið stífir en í fé-
lagsskap umhyggjusamra
kvenna blómstra þeir. Naut-
ið er matargat og því gull-
tryggt fyrir þann sem ætlar
að æsa naut að nota mat í
forleiknum og þá er ekki átt
við nautakjöt heldur t.d.
jógúrt og mjólkurís.
Meðal þekktra nauta eru:
Ólafur Ragnar Grímsson,
Halldór Laxness og Saddam
Hussein.
Kannski Saddam
kunni betur viö einlægan
koss en villta ástarleiki?
Tvíburarnir
(21. maí-21. júní)
Tvíburinn er annálaður fyrir
gáfnafar og almenna skynsemi
en það kemur ekki í veg fyrir
heilbrigðan áhuga á kynlífi.
Dæmigerður tvíburi gæti verið
konan sem vinnur á bókasafh-
inu. Hún klæðir sig í gráa
dragt, með stór og gáfuleg gler-
augu og sítt hárið bundið í
hnút í hnakkanum. Innst inni
þráir hún samt að einhver
bókelskur viðskiptavinur tæli
hana í rúmið. Dæmigerður
karl í tvíburamerkinu gæti
verið hinn einbeitti endurskoð-
andi sem breytist í blóðheitan
Rómeó þegar hann er kominn
undir sæng.
Forvitnin sem einkennir tví-
bura er þess valdandi að þeir
eru tilbúnir að prófa allt, að
minnsta kosti einu sinni, jafn-
vel stellingar og aðferðir sem
fæstum dettur í hug. Fólki í
tvíburamerkinu fmnst gaman
að tala við fólk og hikar ekki
við að klæmast í rúminu, því
subbulegra því betra, og finnst
skemmtilegt að hafa marga
þátttakendur í ástarleiknum.
Tvíburar eru öðrum fremur
líklegri til að vera tvíkyn-
hneigðir.
Þekktir tvíburar eru: Hrafti
Gunnlaugsson, Margrét Frí-
mannsdóttir og Kristján Jó-
hannsson
Hrafn Gunnlaugsson:
Blóöheitur
Rómeó.
Krabbinn
(22. júní- 22. júlí)
Þar sem krabbinn er
vatnsmerki telja sumir að
hann taki vatnskennda
væmni fram yfir kynlíf. Svo
er ekki. Krabbirm er meö
mikla náttúru sem því mið-
ur víkur oft fyrir feimni og
taugaveiklun sem stundum
hrjáir krabba. Konur í
krabbamerkinu geta verið
sér svo meðvitandi um eigið
útlit að þær fækki ekki fót-
um nema að þær séu í full-
komnu líkamlegu ásigkomu-
lagi.
Krabbar gleyma sér iðu-
lega í alls kyns fantasíum og
hafa gaman af ástarsögum
og ljósbláum kvikmyndum
(svo lengi sem þær hafa
rómantískan endi). Subbu-
legt klám er ekki fyrir
krabba og það verður ást-
maður eða kona krabba að
gera sér grein fyrir. Ef
krabbi er í góðu ástarsam-
bandi er hann ávallt tilbú-
inn að þóknast hinum aðil-
anum á hvaða hátt sem er.
Þekktir krabbar:
Bryndís Schram, Raymond
Chandler og Ármann og
Sverrir Jakobssynir.
Bryndís Schram
er af mörgum talin í full-
komnu líkamlegu
ásigkomulagi.