Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2002, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2002
DV
Fréttir
Framsóknarmenn í Borgarbyggð:
Kosningaúrslitin
fara fyrir Hæstarétt
Framsóknarfélag Mýrasýslu hefur
ákveðið að áfrýja tif Hæstaréttar
dómi Héraðsdóms Vesturlands frá
24. september sl. um úrskurð félags-
málaráðuneytisins varðandi ógild-
ingu sveitarstjórnarkosningar í
Borgarbyggð í maímánuði. Fram-
sóknarfélag Mýrasýslu telur það
marga ágalla hafa veriö á fram-
kvæmd kosninganna sem m.a. koma
fram í niðurstöðum úrskurðar ráðu-
neytisins að nauðsynlegt sé að fá úr-
skurð Hæstaréttar í málinu. Þessir
ágallar snerti grundvallaratriði
mannréttinda sem erfitt sé að líta
fram hjá.
í samþykkt Framsóknarfélagsins
segir m.a.: „Þrátt fyrir að félagsmála-
ráðuneytið hafi í úrskurði sínum
ekki tekið afstöðu til aðalkröfu fé-
lagsins um að dæma gilt atkvæði
greitt B-listanum telja framsóknar-
menn ekki annan kost í stöðunni nú
en áfrýja dómnum og krefjast þar
með ógildingar kosninganna. Upp-
haíleg kæra félagsins hefur nú farið
í gegnum þrjú stig. Kærunefnd sem
skipuð var af sýslumanninum í
Borgarnesi hafnaði kröfu félagsins
um endurtalningu atkvæða og ógild-
ingu niöurstaðna kosninganna með
úrskurði sínum þann 11. júní 2002.
Vilja líknardeild
á FSA
Heimahlynning á Akureyri er 10
ára um þessar mundir en með
heimahlynningu er átt við sérhæfða
hjúkrunar- og læknisþjónustu fyrir
mikið veika einstaklinga í heima-
húsum. Á sl. 10 árum hefur starf-
semin aukist jafnt og þétt en draum-
ur aðstandenda er að stofnuð verði
líknardeild við Fjórðungssjúkrahús-
ið á Akureyri. Fyrir er ein slík deild
á landinu, þ.e.a.s. á Landspítalan-
um.
Sunnudaginn 6. október verður
hátíðardagskrá í tilefni afmælisins
og fer hún fram í gryfju Verk-
menntaskólans á Akureyri. Dag-
skráin hefst kl. 15 og stendur til kl.
17.30. Ávörp flytja Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra, Valgerður
Sigurðardóttir yfirlæknir á Líknar-
deild Landspítalans, Friðrik E.
Yngvason, sérfræðingur á lyfjadeild
FSA, og Elísabet Hjörleifsdóttir sér-
fræðingur í krabbameinshjúkrun.
Boðið verður upp á léttar veitingar
og verða flutt tónlistaratriði. Kynnir
er Jóhann Hauksson, dagskrárstjóri
Rásar 2, og eru allir velunnarar
Heimahlynningar velkomnir. -BÞ
Akranes:
Kostnaður úr
böndum hjá Verka-
lýðsfélaginu
Kostnaður við endurbætur á
nýju skrifstofuhúsnæði Verka-
lýðsfélags Akraness að Sunnu-
braut 13 er kominn langt fram úr
þeirri kostnaðaráætlun sem gerð
var við upphaf framkvæmda.
Upphafleg kostnaðaráætlun hljóð-
aði upp á liðlega 3 milljónir króna
en er nú komin í tæplega 7 millj-
ónir króna. Endurbótum er þó
ekki lokið og því ljóst að kostnað-
ur mun enn aukast. Hervar Gunn-
arsson, formaður Verkalýðsfé-
lagsins, gengst þó ekki við því að
kostnaður sé kominn úr böndun-
um þar sem ráðist hafi einnig ver-
ið í framkvæmdir sem ekki var
gert ráð fyrir en teljist nauðsyn-
legar. Þær felast m.a. í glugga-
skiptum sem reynst hafa kostnað-
arsamar. Stormasamt hefur verið
um Verkalýðsfélag Akraness und-
anfarin ár, ekki síst kringum for-
manninn, og hann m.a. borinn
vantrausti sem hann hefur þó
staðið af sér. -GG
Félagsmálaráðuneytið úrskurðaði
síðan kosningarnar ógildar þann 30.
júlí sl. og nú síðast feildi Héraðsdóm-
ur Vesturlands úr gildi úrskurð
ráðuneytisins með dómi sínum þann
24. september sl. Dómurinn tekur
ekki á kæruefni framsóknarfélagsins
um kosningarnar í Borgarbyggð
heldur fjallar um stjórnsýslu félags-
málaráðuneytisins. Efnisleg niður-
staða í úrskurði félagsmálaráðuneyt-
isins hefur því ekki verið hrakin.
Málið snýst því ekki lengur um
hvort Framsóknarflokkurinn fengi
fleiri eða færri atkvæði eða fjölda
bæjarfulltrúa, heldur um þau sjálf-
sögðu mannréttindi að fólk fái að
njóta atkvæðisréttar síns.“ -GG
DV-MYND E.ÓL
Húsavernd í Hafnarfiröi
Þrír styrkir voru veittir úr Húsverndarsjóöi Hafnarfjarðar nýlega. Þá hlutu eig-
endur Hverfisgötu 4 (Þorlákshúss) og Skúlaskeiös 4 og 42. Á myndinni eru
húseigendurnir, Jóhanna Kristmundsdóttir, Þóra Sigurgeirsdóttir, Jón Snorri
Bergþórsson, Atli Erlingsson og Anna Kristín Jóhannsdóttir.
F U II M a f n ý j u m u i irum l leint frá Indlan
Infcerskír
, \
i ifi Stofúskápur \
með góðum \
hillum og
'li tveimur skúffúm
' m 1 jf, hæð: 190 cm
r-^ breidd:110cm ,
verö kr. /
79.900
Homskápur meðhurðum hæð: 180 cm breidd:100cm / verð kr. /
67.900
í
49.900
B æ j a r I i n d 6
Opið
virka daga kl.10-18
Laugardaga kl. 11-16
Sunnudaga kl. 13-16
201 Kópavogi
S. 554 6300