Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2002, Qupperneq 16
16
Helgarblað
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2002
DV
Dashiell Hammett minnir helst á kvikmyndaleikara á þessari mynd sem
tekin var af honum árið 1934. Þá hafði hann skrifað fimm sakamálasögur
og átti ekki eftir að skrifa fleirl.
Harðsoðinn
sakamálahöfundur
Dashiell Hammett er talinn hafa
haft jafnmikil áhrif á þróun saka-
málasögunnar og Edgar Allan Poe
og Arthur Conan Doyle. Hann var
ekki afkastamikill rithöfundur
enda átti hann við alvarlegt áfeng-
isvandamál að stríða.
Dashiell Hammett fæddist árið 1894. Hann
hætti í skóla þrettán ára gamall, fór að drekka á
unglingsárum og stundaði fjárhættuspil. Siðir
sem hann hélt mestalla ævi. Eftir að hafa fengist
við ýmis störf i nokkur ár gerðist hann leynilög-
reglumaður. Sú reynsla kom honum að ómetan-
legu gagni síðar þegar hann samdi sakamálasög-
ur sínar. Hann gekk í herinn í fyrri heimsstyrj-
Ljóð vikunnar
Gleym mér ei
- eftir Steingrím Thorsteinsson
Þú lltll fugl, á laufgrl grein,
hvað IJóðar þú svo sætt?
í þínum klið býr ástin etn,
sem el af hryggð var grœtt.
.Þú ynglssvelnn, ég sveif af strönd,
þar sat þín elskuð mey
með helðblátt smáblóm sér í hönd
og sagðl: Gleym mér eir
.■Ó, hjartans vlnur, vlsslr þú,
hvað vel ég man tll þínl
Ég jít á blóm og llfl í trú,
að líkt þú saknir mín.
Svo ber ég þlg á brjósti leynt,
þar byrglr ástln sig.
Og sem mltt blóm er hlmlnhreint,
elns hrelnt ég elska þig.'
öld en fékk berkla og lá
lengi á sjúkrahúsi. Veik-
indin urðu til að binda
enda á leynilögreglu-
starf hans og hann byrj-
aði að skrifa sögur fyrir
tímarit. Hann drýgði
tekjurnar með þvi að
vinna við auglýsinga-
gerð og vann um tíma
sem bókmenntagagn-
rýnandi og þótti afar
harður og miskunnar-
laus í dómum.
Meistari reyfarans
Árið 1929 kom út
fyrsta sakamálasaga
hans, Red Harvest, þar
sem um þrjátíu persón-
ur lágu í valnum áður
en yfir lauk. Frægasta
bók hans er The Maltese
Falcon. Hún var kvik-
mynduð með Humphrey
Bogart i hlutverki spæj-
arans Sam Spade og er
talin klassísk kvik-
mynd. Alls skrifaði
Hammett fimm skáld-
sögur og rúmlega átta-
tíu smásögur á tiltölu-
lega stuttu tímabili. Síð-
asta skáldsaga hans,
The Thin Man, kom út
árið 1934. Hann lifði
tuttugu og sjö ár eftir
það og þóttist ætíð vera
að byrja á nýrri skáld-
sögu en varð ekkert úr
verki vegna drykkju og
heilsuleysis. Honum
tókst þó að gera kvik-
myndahandrit eftir The
Thin Man, sem urðu að
gífurlega vinsælum
kvikmyndum með
Myrnu Loy og William
Powell í aðalhlutverk-
um.
Hammett var meistari
hinnar harðsoðnu saka-
málasögu þar sem til-
svör eru kaldranaleg og
persónur svífast einskis til að ná fram markmið-
um sínum. Hann las íslendingasögur og sagði að
tónninn í verkum sínum væri þaðan kominn en
stíUinn væri frá Henry James. Hammett hafði
mikil áhrif á aðra rithöfunda, þar á meðal
Raymond Chandler sem sagði um hann:
„Hammett skilaði morðinu aftur til þess fólks
sem fremur það af einhverri ástæöu, en ekki bara
til að útvega lík. Og gerir það með þeim tólum
sem eru við höndina, en ekki með handgerðum
einvígistólum, indjánaeitri eða suðrænum
skrautfiskum."
Kvennafar og drykkjusýki
Hammett kvæntist hjúkrunarkonu árið 1920 og
þau eignuðust tvær dætur en fljótlega yfirgaf
hann fjölskyldu sína. Til eru átakanleg bréf frá
eiginkonu Hammetts til útgáfustjóra hans þar
sem hún segist ekki eiga fyrir nauðsynjum handa
Krlstín Ómarsdóttir segir frá uppáhaldsbókunum sínum
„Raymond Chandler er uppáhaldshöfundurinn
minn, Big Sleep, FareweO my Lovely og fleiri og
nú er ég að lesa bréfin hans. Aörar bækur sem ég
á auðvelt með að muna eftir
en las fyrir löngu eru til
dæmis Með köldu blóði eftir
Truman Capote og Birtingur
eftir Voltaire í þýðingu Lax-
ness, sú síðastnefhda út af
því hún lét mann hlæja og
stOlinn er ávaxtaríkur. Ljóða-
bókin Endurtekin orð eftir
Guðberg Bergsson var lítil
græn bók sem ég var aOtaf
einu sinni að lesa upp úr fyr-
ir vinkonur mínar og líka
ljóðabók eftir Þór Eldon, á
sama tímabOi. En ég ætla
ekki að verða ævisöguleg og
hleyp hratt yfir sögu. í vor
fékk ég. æði fyrir Selmu Lag-
erlöf, byrjaði að lesa bók sem
heitir Föðurást, Kejsam af
Portugalien, heitir hún á út-
lensku. Svo í fyrra féO ég
mjög mikið fyrir The Wind
Up Bird Chroniele eftir H.
Murakami, ég hef lesið fleiri
eftir hann en þessi er uppáhaldsbókin.
Svo eru margar íslenskar bækur sem ég held
dætrum sinum og biður um að haft sé samband
við Hammett svo hann geti sent peninga.
Hammett var ekki mikifl fjölskyldumaður og
reyndar virðist sem honum hafi staðið nokkuð á
sama um fólk. Hann naut kvenhyfli en gat ekki
verið einni konu trúr og alla tíð leigði hann sér
hórur. Hann varð ofbeldisfullur meö víni og átti
þá tO að leggja hendur á konur.
Hammett hafði miklar tekjur af verkum sínum
og hefði átt að vera auðugur maður. En um leið
og peningarnir tóku að streyma inn var eins og
hann fyndi ekki lengur hjá sér þörf fyrir að
skrifa. Iðulega lokaði hann sig af inni á hótelher-
bergi með viskíflösku og drakk frá sér ráð og
rænu. Hann var kærulaus í skattamálum og fékk
á sig óhemju mikla bakskatta sem hann átti í erf-
iðleikum með að borga. Hann vissi aldrei hversu
mOda peninga hann átti og kærði sig ekkert um
að vita það. Hann hlóð gjöfum á fólk en borgaði
ekki reikninga sína.
Sambandið við Hellman
Á fjórða áratugnum vann Hammett í
HoOywood þar sem hann var á góöum launum
við að skrifa kvikmyndahandrit og einnig gerði
hann texta við teiknimyndaseríu um spæjarann
X-9 sem naut töluverðra vinsælda. Það var í
Hollywood sem Hammett kynntist LiOian
HeOman sem þráði að verða mikið leikritaskáld.
Hammett aðstoðaði hana og hvatti en meðan hún
sendi frá sér hvert leikritið á fætur öðru átti
hann í mestu erfiðleikum með að skrifa. Hann
var orðinn drykkjusjúklingur og vissi vart í
þennan heim né annan meöan á túrunum stóð.
Samband Hammetts og Hellmans stóö í þrjátíu ár
en var ekki raunverulegt ástarsamband nema
fyrstu tíu árin. Kvöld eitt var Hammett drukkinn
og HeOman neitaði að sofa hjá honum. Hann svaf
aldrei hjá henni eftir það og mörgum árum eftir
dauða hans var hún enn að velta því fyrir sér af
hverju hann hefði brugðist svona við. Hún skrif-
aði á efri árum afar rómantíska og ósanna bók
um samband þeirra. Þegar Hellman var staðin að
margföldum lygum í sjálfsævisögu sinni gaf eit-
urtungan Gore Vidal í skyn að ástarsamband
hennar við Hammett hefði verið ein af lygum
hennar og spurði: „Sá einhver þau nokkurn tím-
ann saman?“
Róttæklingur í fangelsi
Hammett hafði mjög róttækar stjómmálaskoð-
anir og var kaflaður fyrir óamerísku nefndina á
McCarthy-tímanum. Þar neitaði hann að segja tO
kommúnista og var fyrir vikið dæmdur í fimm
mánaða fangelsi. Seinna sagði hann: „Ég skrifaði
ekki í fangelsinu af því mér leiddist aldrei nógu
mikið. Að fara í fangelsi var eins og að koma
heim.“ Eftir fangelsisdvölina sneri hann sér að
kennslu. Bækur hans voru nú úthrópaðar sem
kommúnistaáróður og Eisenhower forseti varð
fyrir gagnrýni þegar hann sagði rangt að banna
bækur Hammetts á bókasöfnum.
Drykkja hans var orðin stjórnlaus og læknir
hans sagði honum að hann myndi deyja innan
eins tfl tveggja mánaða ef hann hætti henni ekki.
Hammett lofaði lækninum að snerta ekki áfengi
- og stóð við það loforð. í viðtali sem tekið var við
hann árið 1956 var hann spurður hvers vegna
hann væri með þrjár ritvélar á heimOi sinu þeg-
ar hann skrifaði ekki lengur. „Ég hef þær þarna
tfl að minna mig á að ég var einu sinni rithöfund-
ur,“ sagði hann. Síðustu þrjú árin sem hann lifði
bjó hann á heimfli LOlian Hellman. Hann lést
upp á eins og Fylgjur eftir Harald Jónsson og Frá
ljósi tO ljóss eftir Vigdísi Grímsdóttur. Ég las um
daginn Albúm eftir Guðrúnu Evu M., mjög fin
i>ók. Það sama má segja um Strengi eftir Rögnu
Sigurðardóttur og Heims-
ins heimskasti pabbi eftir
Mikael Torfason fannst mér
mjög skemmtOeg. Svo elska
ég ævisögur, tfl dæmis eina
eftir Ingibjörgu Sólrúnu um
konuna sem fékk berkla.
Það sem upp úr stendur
af öflu saman er svo þegar
ég var fimm ára og mamma
las fyrir mig bókina Ævin-
týri úr Múmínálfadal. Ég
veit ekki hvort það var bók-
in eða það að vera ein með
mömmu sinni þvi yngri
systkinin min voru sofnuð,
en það leggst á eitt. Nú orö-
ið elska ég að lesa upphátt
fyrir vinkonur mínar eða
láta þær lesa fyrir mig og
það er sama hvaða bók það
er. Þegar upphátt er lesið
verða aflar bækur uppá-
haldsbækur, eins og Félagi
kona eftir Kristmann Guð-
mundsson, Leiðarvísir puttaferðalangsins um
Vetrarbrautina eftir Douglas Adam og fleiri."
Töfrar við upplestur
Gloppóttir hugsuðir
Intellectuals eftir Paul Johnson
Margir af
helstu hugsuð-
um og rithöfund-
um sögunnar
eru tO umfjöll-
imar í þessari
fróðlegu, bráð-
skemmtflegu og
ögrandi bók.
Johnson rekur
lifshlaup og
gjörðir þeirra
sem voru í stöðugri mótsögn við þá
hugmyndafræði sem þeir boðuðu. Hin
harkalega niðurstaða er því sú að
þessir menn hafi verið hræsnarar sem
hafi lifað í fullkomnu virðingarleysi
við sannleikann. Rousseau, Marx,
Brecht og Sartre eru meðal þeirra sem
settir eru í skammarkrókinn. Mak-
lega, fínnst manni eftir lesturinn.
Kvótiö
Að geta hugsað öðruvísi í
dag en í gœr skilur milli þess
vitra og þess einþykka.
John Steinbeck
Allar bækur
1. Láttu Ijós þitt skína.
Victoria Moran
2. Feqraðu líf þitt. Victoria Moran
3. Ríki pabbi, fátæki pabbi. Robert
T. Kiyosaki
4. Myrin. Arnaldur Indriðason
5. Grafarþöqn. Arnaldur Indriðason
6. Orðaheimur. Jón Hilmar Jónsson
7. Með lífið í lúkunum. Guðjón Ingi
Eiriksson oq Jón Hjaltason
8. Líkami fyrir lífið. Bill Philip
9. Glæpur og refsing. Fjodor
Dostojevski
10. Dönsk-isl/ísl-dönsk orðabók.
Orðabókaútqáfan
Skáldverk
Arnaldur Indriðason
2. Grafarþöqn. Arnaldur Indriðason
3. Glæpur og refsing. Fjodor
Dostojevski
4. Furstinn. Niccoló Machiavelli
5. Ást á rauðu Ijósi. Jóhanna Krist-
jónsdóttir
6. Korkusaqa. Vilborq Davíðsdóttir
7. Óbærilegur léttleiki tilverunnar.
Milan Kundera
8. Tídæqra. Giovanni Boccaccio
9. Alkemistinn, Paulo Coelho
10. Ilmurinn. Patrick Suskind
Metsölulisti Eymundsson 25.9.-1.10.
Kiljur
1. LAST MAN STANDING. David
Baldacci
2. PURITY IN DEATH. J, D, Robb
3. FULL HOUSE. Janet Evanovich
4. REAP THE WIND. Iris Johansen
5. BLACK HOUSE. Stephen King og
Peter Straub
Listinn er frá New York Times