Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2002, Side 29
LAUCARDAGUR 5. OKTÓBER 2002
HgIqorhlað DV
Stórleikur helgarinnar í ensku knattspyrnunni, viðureign Liverpool og Chelsea. Phil Thompson:
Erfiðasti leikur Liverpool
það sem af er tímabilinu
Stórleikur helgarinnar er tvímælalaust viðureign
Liverpool og Chelsea á Anfield Road, en Liverpool hefur
enn ekki tapað leik í úrvalsdeildinni á tímabilinu. Liver-
pool hefur oftast gengið ágætlega með Chelsea á heima-
velli sínum, en Chelsea-liðið sem steinlá fyrir Viking frá
Noregi í Evrópukeppninni er óútreiknanlegt. Phil
Thompson, aðstoðarmaður Houlliers, framkvæmdastjóra
Liverpool, segir að viðureignin við Chelsea verði sú erf-
iðasta hingað til á tímabilinu. „Fólk hefur sagt að þeir
hafi átt í vandræðum á þessu tímabili, en það má þó ekki
gleyma því að þeir hafa aðeins tapað einum leik enn sem
komið er í deildinni. Við verðum því að sýna okkar bestu
hliðar í leiknum. Stuðningsmenn Chelsea líkja viður-
eigninni við Viking á fimmtudag við hryllingsmynd.
Ranieri var ekki kátur eftir viðureignina og sagði að leik-
menn sínir hefðu gefið þessi fjögur mörk á silfurfati. Það
er því allt annað en auðvelt fyrir Liverpool að mæta Che.l-
sea eftir útreið sem þessa.
Henry meiddur?
Meistarar Arsenal mætir Sunderland á heimavelli sín-
um en Sunderland hefur gengið afar illa það sem af er
tímabili og stöðugt hitnar undir framkvæmdastjóra liðs-
ins, Peter Reid. Það eru þó batamerki á liðinu, sem náði
að sigra í síðasta leik sínum í deildinni og þá vann Sund-
erland sannfærandi í deildarbikarnum í vikunni. Nýju
mennirnir hjá Sunderland, þeir Marcus Stewart og Tore
Andre Flo, voru báðir á skotskónum í vikunni og ef þeir
halda því áfram gætu þeir orðið skeinuhættir vörn
Arsenal. Það verður þó að teljast líklegt að hið firna-
sterka lið Arsenal fari með sigur af hólmi. Það er þó
helsta von Peters Reid að Arsene Wenger noti tækifærið
nú og hvíli eitthvað af sínum lykilmönnum, auk þess sem
Thierre Henry er lítillega meiddur og því ekki ljóst hvort
hann spilar auk þess sem Dennis Bergkamp verður ekki
með. Það eru hins vegar góðar fréttir fyrir Arsenal, en
þeim mun verri fyrir hin liðin að Pirez er óðum að ná
sér og með þennan hóp ómeiddan eru fá lið, ef þá nokk-
urt sem stenst Arsenal snúning á þessu tímabili. Freddy
Ljungberg á hins vegar enn í vandræðum og þjáist nú
líklega af mígreni.
Lið Tottenhain að braggast
Tottenham hefur byrjað tímabilið vel undir stjórn Glen
Hoddle og þrátt fyrir mikil meiðsli hefur liðið náð að
halda nokkuð dampi, en leikmenn hafa þó einn af öðrum
verið að ná sér af meiðslunum og því ekki ólíklegt að liö-
ið nái fyrri styrk sínum. Tottenham mætir Blackburn um
helgina, en þeir Chris Perry og Jamie Redknapp koma
inn í liðið að nýju. Mótherjar Tottenham gerðu góða ferð
til Búlgaríu í vikunni þar sem þeir gerðu 3-3 jafntefli við
CSKA Sofia, 3-3, og komust þannig áfram í aðra umferð
Evrópukeppninnar með mörkum skoruðum á útivelli.
Vikan var ekki góð fyrir Bobby Robson og félaga hans
hjá Newcastle, þar sem enn einn ósigurinn leit dagsins
ljós í meistaradeildinni, nú gegn Juventus. 1 Úrvalsdeild-
inni hefur liðið aðeins fengið 10 stig í sjö leikjum og eru
þetta mikil umskipti frá því á síðasta leiktímabili þar
sem liðið var í toppbaráttunni. Það virðast þó vera bata-
merki á liðinu en það hefur í tveimur síðustu leikjum
unnið lið Sunderland og Birmingham, sem fyrir leiktíma-
bilið virtist eiga að vera örugg stig, en miðað við gengi
liðsins í haust var ekki sjálfsagt mál. Þeir taka nú á móti
Lárusi Orra Sigurðssyni og félögum hans í WBA sem tap-
aði í vikunni gegn Wigan í deildarbikarnum. Það eru
slæmar fréttir fyrir WBA að markvörðurinn Russell
Hoult leikur ekki með vegna leikbanns en í hans stað
kemur Joe Murphy sem leikur sinn fyrsta leik með lið-
inu.
Nistílrooy með
Á mánudaginn eigast við lið Manchester United og Ev-
erton. Það eru gleðifréttir fyrir Alex Ferguson og aðdá-
endur Man.Utd að Ruud Van Nistilrooy kemur inn í liðið
að nýju en hann var ekki með í meistaradeildinni gegn
Olympiakos vegna meiðsla. Manchester-liðið virðist
stöðugt vera að styrkjast og meiddir menn eins og Paui
Scholes að komast i.form að nýju. -PS
Leikir helgarinnar
Laugardagur
Middlesbro-Bolton
Newcastle WBA
Southampton-Man. City
West Ham-Birmingham
Sunnudagur
Fulham-Charlton
Arsenal-Sunderland
Aston Villa-Leeds Utd
Blackburn-Tottenham
Liverpool-Chelsea
Islandsmótið
í nóvember
íslandsmót í innanhússknattspymu verður að
þessu sinni haldið i nóvember, en ekki í janúar eins
og venja hefur verið um langa hríð, og er þá um að
ræða keppni bæði í meistaraflokki karla og kvenna.
Breytingar þessar eru gerðar með hliðsjón af hugsan-
legum breytingum á deildarbikarkeppninni en líkur
eru á að keppnin verði með breyttu sniði með til-
komu nýrra knattspymuhalla hér á landi. Keppni í
yngri flokkum veröur sem fyrr í janúar.
Lúkas hættur
hjá Víkingi
Lúkas Kostic, þjálfari Víkings, er hættur störf-
um sem þjálfari meistaraflokks félagsins í knatt-
spymu. Lúkas var meö áframhaldandi samning við
félagið, en í honum var uppsagnarákvæði í nóvem-
ber.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum hefur Lúk-
as verið orðaður við þjálfarastörf hjá FH og ÍBV
auk þess sem nefnd hafa verið þjálfarastörf í yngri
flokkum. -PS
Atli ræddi við Eyjólf um
að koma aftur í hópinn
Skoskir fjölmiðlar sýna landsleik íslendinga og
Skota í undankeppni Evrópumóts landsliða í knatt-
spyrnu mikinn áhuga en hann verður háður á Laugar-
dalsvelli 12. október. Um 60 skoskir íþróttafréttamenn
hafa tilkynnt komu sína á leikinn og er þvi ljóst að yf-
ir 100 fjölmiðlamenn verða að störfum í tengslum við
leikinn á vellinum. Ekki færri en 1200 Skotar munu
fylgja liðinu í leikinn og ekki er útilokað að þeim verði
úthlutað 200 aðgöngumiðum til viðbótar að sögn Geirs
Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra KSÍ.
Vitað er að á þriðja þúsund Skotar kemur til lands-
ins með þeim, sem ekki tekst að verða sér úti um
miða, mun koma sér fyrir á veitingahúsum borgarinn-
ar og fylgjast með leiknum beint í sjónvarpi. Skotar
munu því setja svip á höfuðborgina um aðra helgi.
Á fundi sem KSÍ og Hekla efndu til í gær var kynnt-
ur nýr samstarfssamningur beggja aðila og mun hann
gilda til 2005. Samstarfið hefur staðið yfir í sjö ár og er
þetta fjórði samningur aðila sem sýnir vel hve sam-
starfið hefur verið árangursríkt. Samningurinn nú er
metinn á um 30 milljónir. Við sama tækifæri í gær var
kynntur nýr landsbúningur sem landsliðið mun klæð-
ast í fyrsta skipti í leiknum gegn Skotum.
„Leikurinn viö Skota getur orðið örlagaríkur og því
skiptir miklu að landsliðið standi sig og nái hagstæð-
um úrslitum upp á framhaldið í riðlinum.
Starfið byggist upp á því að ná árangri og að því
stefnum við alltaf," sagði Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, á fundi með blaðamönnum í gær.
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari sagði að liðið setti
sér það takmark að ná eins mörgum stigum í riðlinum
og hægt væri. „Ég tel okkur vera með beittustu leik-
mennina til að skapa okkar sterkasta landsliö," sagði
Atli og vonaði að leikmenn erlendis slyppu frá meiðsl-
um með sínum liðum um helgina.
Þess má geta að Atli ræddi við Eyjólf Sverrisson í
vikunni um þann möguleika að koma aftur inn í lands-
liðshópinn. Eyjólfur á við meiðsli að stríða en þessi
möguleiki verður reyndur aftur á síðari stigum i riðla-
keppninni. -JKS