Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2002, Blaðsíða 30
30
H&lqctrblctð DV LAUGARDAGU R 5. OKTÓBER 2002
Ég er drottning í mér
I qærkvöld var frumsýnt leikritið Jón og
Hólmfríður á nýja sviðinu íBorqarleikhús-
inu. Sóley Elíasdóttir leikur Hólmfríði oq
saqði DV frá leikritinu, ferlinum oq
óskinni um að leika Höllu, ástkonu Fjalla-
Eqvinds.
Leikritinu Jón og Hólmfríður er lýst sem frek-
ar erótísku leikriti í þremur þáttum. Það er eftir
franska B-skáldið Gabor Rassov en hann tilheyrir
litlum flokki skálda í París sem setur upp sýningu
árlega í borginni. íslensk þýðing er eftir Guðrúnu
Vilmundardóttur og leikstjóri verksins er Hall-
dóra Geirharðsdóttir en þetta er frumraun henn-
ar sem leikstjóri.
í stuttu máli fjallar leikritið um Jón, sem er að
ljúka tannlæknanámi, og Hólmfríði konu hans.
Hún bíður eftir því að maður hennar eigi fyrir
fyrstu útborgun í fallegan sófa svo þau geti geng-
ið i það heilaga. En á meðan heldur hún við föð-
ur Jóns sem reyndar er ekki faðir Jóns eins og
kemur fram síðar í leikritinu. Faðir Jóns heitir
Andrés og er frændi Hólmfríðar. Hann hefur hald-
ið við móður Jóns í tuttugu og þrjú ár. Þetta og
ýmislegt annað verður áhorfandum ljóst á fyrstu
mínútum verksins en síðan tekur við atburðarás
sem mjög erfitt er að rekja í stuttu máli.
Hólmfríður er í mér
Sjálf segir Sóley að erfitt sé að lýsa verkinu ná-
kvæmlega. „Það er mjög óhefðbundið og höfundur
þess brýtur allar reglur. Það er ekkert upphaf, ris
eða endir og stundum minnir það mig á pönk,“
segir Sóley og ég kinka kolli til samþykkis. „Text-
inn er ekki ósvipaður og í Leiðarljósi," heldur
hún áfram. „Þetta er blanda af sápu, Monthy
Python og grísku harmleikjunum."
„Halldóra sá strax að ég ætti að leika Hólm-
fríði,“ segir Sóley þegar ég spyr hana hvernig
þetta hlutverk hafi komið til. „Hún vill að öllum
líöi vel og það er hennar æðsta takmark að Jón sé
hamingjusamur. Þau lifa að þvi er virðist i hinu
fullkomna hjónabandi en siðan kemur ýmislegt
upp á eins og gengur og gerist i öllum hjónabönd-
um.“
„Af hverju heldurðu að Halldóra hafi strax séð
að hlutverkið hentaði þér?“ spyr ég.
„Ég veit það ekki, ætli ég þekki hana bara ekki
svo vel,“ svarar Sóley og glottir. „Leikritið var
„Leikarar eru auðvitað rullusjúkir en
ég vil samt passa mig á því að leika
ekki of mikið. Ég er mjög sátt við
þann stað sem ég er á núna.“
DV-mynd ÞÖK
auðvitað hugsað fyrir þennan leikhóp og ég hef
líklega passað betur í hlutverkið en Harpa (Arn-
ardóttir). En ég átti tiltölulega auðvelt með að ná
tökum á þessari persónu og ég er ekki frá því að
það sé töluverð Hólmfríður í mér. Ég er gift og á
þrjú börn sjálf og vil auðvitað vera góð móðir og
eiginkona. Ég er óábyrg og ábyrg til skiptis og ég
vil að öllum líði vel. Þannig að ég þekki þetta
hlutverk ágætlega."
„Hefur hún kennt þér eitthvað?" spyr ég.
„Já, já. Öll hlutverk kenna manni eitthvaö. Hún
tekur þann pólinn í hæðina að vera ánægð með
það sem hún hefur. Hólmfríður er mjög yndisleg
manneskja, mjög forvitin og saklaus - eiginlega of
saklaus. Hún gerir hins vegar engar kröfur til sín
eða annarra. Hún sættir sig við mistökin í lífinu
þvi vissulega hefur hún gert mistök - hún hélt við
tengdapabba sinn.“
Ég er ótal persónuleikar
Sóley er þrjátiu og fimm ára gömul og alin upp
í Hafnarfirði og hún gekk alltaf með þann draum
í maganum að verða leikkona. „Fyrst vildi ég
verða ballerína en það er svona dæmigerður
draumur hjá litlum stelpum. Þær vilja annað-
hvort verða flugfreyjur eða ballerínur," segir Sól-
ey hlæjandi. „Ég hélt að það væri svo erfitt að
læra leiklist þannig að það kom líka vel til greina
að verða lyfjafræðingur - ég hef ekki hugmynd
um út af hverju en sennilega hef ég alltaf viljað
fást við skapandi störf. Ég vissi hins vegar alltaf
að ég ætlaði að læra leiklist einhvern tímann og
þegar ég var átján ára fór ég til Englands í leik-
listarskóla. Ég hafði þessa þörf til að standa á
sviði fyrir framan fólk og túlka,“ segir Sóley og
upplýsir siðan að hún sé krabbi en með rísandi
ljóni. „Ég er svo margir persónuleikar og á oft
erfitt með að taka ákvarðanir en siðan hef ég
þetta einkenni ljónsins, þ.e. að þrá athygli."
Ekki hefur mikið farið fyrir Sóleyju i leiklist-
inni og það er ekki fyrr en á síðustu árum sem
virkilega hefur farið að bera á henni. Hún lék í
„Pikusögum“ í fyrra og í „And Björk of course...“
fyrr á þessu ári og fékk prýðilega dóma. Það þýð-
ir samt ekki að lítið hafi verið að gera hjá henni.
Þegar hún kom heim frá Englandi fluttist hún til
Akureyrar og tók þátt í uppfærslum þar. Fyrir
norðan kynntist hún manninum sinum og eignað-
ist með honum barn. „Ég þekkti engan í leikhús-
heiminum þegar ég kom heim en síðan fékk ég
tækifæri og hef haft nóg að gera síðustu átta árin
þó að Hólmfríður sé mitt fyrsta hlutverk sem
söguþráðurinn beinlínis snýst um.“
Vafalítið er ein ástæða þess að hún blómstrar
um þessar mundir sú að leikhópurinn sem hún
tilheyrir hefur verið óbreyttur í tvö ár. í honum
eru, auk Sóleyjar, Benedikt Erlingsson, Gunnar
Hansson, Halldór Gylfason, Halldóra Geirharðs-
dóttir, Harpa Arnardóttir og Þór Tulinius. „Þessi
hópur er frábær," segir hún. „Við þekkjumst orð-
ið mjög vel og manni líður eins og maður sé ekki
alltaf að byrja upp á nýtt. Þó að maður þekki auð-
vitað alla innanhúss þá er samt öðruvísi að starfa
með sama fólkinu í langan tíma.“ Óhætt er að
taka undir orö Sóleyjar þvi leikgleðin á sviðinu
leynir sér ekki og ef áhorfendur skemmta sér vel
þá er öruggt að leikararnir skemmta sér jafn vel.
Og kannski betur.
Vil gera kvikmynd um Fjalla-Eyvind
„Mig langar til að leika Kleópötru drottningu,"
svarar Sóley þegar ég spyr hana hvert drauma-
hlutverkið sé. „Leikarar eru auðvitað rullusjúkir
en ég vil samt passa mig á því að leika ekki of
mikið. Ég er mjög sátt við þann stað sem ég er á
núna.“
„Áttu þér draum?“ spyr ég.
„Ég stefni fyrst og fremst að þvi að verða betri
leikkona. Að vísu á ég mér einn draum sem er
reyndar leyndarmál. Mig langar til að gera kvik-
mynd um Höllu og Fjalla-Eyvind. Mér finnst svo
heillandi að lesa um hvernig þetta fólk lifði og
hvernig það réttlætti hlutina. Sagan um ást þeirra
er svo falleg og ég finn fyrir svo mikilli náttúru í
henni. Þetta er líka mjög dramatískt hlutverk sem
er mjög ólíkt því sem ég er að gera núna.“
-JKÁ