Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2002, Side 48
* =2
Helqarblað JI>’Vr LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2002
Islendingaþættir
Umsjón
Kjartan Gunnar
Kjartansson
Kjartan Jónsson
sjómaður og verkamaður í Reykjavík verður 50 ára í dag
Kjartan Jónsson sjómaður, Grettisgötu 57b,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Kjartan fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar
upp. Hann lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum
á Hvanneyri vorið 1973 og stundaði nám í netagerð
hjá Ingólfi Theodórssyni í Vestmannaeyjum.
Kjartan stundaði sjómennsku og
verkamannastörf í Eyjum, flutti í
Villingaholtshrepp 1985 og síðan á Stokkseyri 1989
og stundaði þar sjómennsku. Hann var búsettur á
Nauteyri í ísafjarðardjúpi í eitt ár og síðan í
Bolungarvík skamma hríð en flutti síðan aftur til
Vestmannaeyja 1996. Þar stundaði hann enn
sjómennsku og verkamannavinu. Kjartan flutti til
Reykjavíkur 2000 og hefur verið þar búsettur
síðan.
Kjartan er mikill áhugamaður um ættfræði og
hefur tekið saman allnokkur niðjatöl.
Fjölskylda
Kjartan kvæntist 13.12. 1975 Rebekku Benedikts-
dóttur, f. 21.1. 1957, húsmóður. Hún er dóttir Bene-
dikts Frímannssonar, húsasmíðameistara i Stykk-
ishólmi, fyrrum bónda í Stórholti í Saurbæ í Dala-
sýslu, nú í Vestmannaeyjum, og k.h., Esterar Guð-
jónsdóttur húsfreyju. Kjartan og Rebekka skildu.
Börn Kjartans og Rebekku eru Jón Ólafur Kjart-
ansson, f. 29.9. 1976, bílstjóri hjá Landflutningum
en kona hans er Maria Sævarsdóttir húsmóðir og
eiga þau tvö börn; Ester Kjartansdóttir, f. 13.5.
1981, nemi og framreiðslustúlka í Reykjavík en
sambýlismaður hennar er Viðar Huginsson
húsamálari; Margrét Rósa Kjartansdóttir, f. 11.8.
1983, verkakona í Vestmannaeyjum; Þórólfur Bene-
dikt Kjartansson, f. 20.10. 1987, nemi; Eyþór Kjart-
ansson, f. 31.3. 1992, nemi.
Systkini Kjartans eru Einar Gylfi Jónsson, f. 1.9.
Reykjavíkurborg
auglýsir eftir almennum styrkumsóknum
og ábendingum vegna
fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2003
Nú stendur yfir gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2003.
Auglýst er eftir umsóknum og tillögum borgarbúa svo og hagsmunasamtaka (t.d.
íbúasamtaka) um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem liggja frammi I Upp-
lýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur og á heimasfðu Reykjavlkurborgar,
www.reykjavik.is. Hægt er að fá umsóknareyðublöð send ef óskað er. Umsóknir
skulu sendar til eftirtalinna aðila eftir því sem efni þeirra gefur tilefni til.
FÉLAGSMÁLARÁÐ auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna á sviði félagsmála
[ Reykjavík. Umsóknir til félagsmálaráðs skulu berast til Auðar Vilhelmsdóttur hjá
Félagsþjónustunni, Síðumúla39,108 Reykjavík.
FRÆÐSLURÁÐ auglýsir eftir umsóknum um styrki til skóla- og fræðslumála, einkum
vegna nemenda á grunnskólaaldri. Umsóknir til fræðsluráðs skulu berast til
Sigurbjörns Knudsen, Fræðslumiðstöðinni, Fríkirkjuvegi 1,101 Reykjavík. Auglýst
verður sérstaklega eftir umsóknum í Þróunarsjóð grunnskóla Reykjavíkur i janúar
árið 2003.
ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDARÁÐ auglýsir eftir umsóknum um styrki til íþrótta-,
æskulýðs- og tómstundastarfa í Reykjavík og eftir styrkjum vegna sumarnámskeiða
fyrir böm. Umsóknir til íþrótta- og tómstundaráðs skulu berast til Helgu Bjömsdóttur,
Iþrótta-og tómstundaráði, Fríkirkjuvegi 11,101 Reykjavík.
JAFNRÉTTISNEFND auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem hafa það
að markmiði að jafna stöðu kynjanna, til verkefna á sviði jafnréttisfræðslu í skólum
og á öðrum uppeldisstofnunum og til annarra sérstakra þróunar- eða samstarfs-
verkefna. Umsóknir til jafnréttisnefndar skulu berast til Hildar Jónsdóttur, Ráðhúsi
Reykjavíkur, 101 Reykjavík.
LEIKSKÓLARÁÐ auglýsir eftir umsóknum um styrki til þróunar- og rannsóknar-
verkefna f leikskólum Reykjavfkur og eftir styrkjum til menningarstarfsemi fyrir
leikskólabörn. Umsóknir til leikskólaráðs skulu berast til Jakobínu Sveinsdóttur,
Leikskólum Reykjavíkur, Hafnarhúsinu.Tryggvagötu 17,101 Reykjavfk.
MENNINGARMÁLANEFND auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarstarfs
í borginni. Umsóknir til menningarmálanefndar skulu berast til Unnar Birgisdóttur,
Ráðhúsi Reykjavfkur, 101 Reykjavík. Styrkumsóknir til annarra verkefna og til
byggingar og kaupa á fasteignum skulu sendar borgarráði. Umsóknir skulu berast
til Kristbjargar Stephensen, Ráðhúsi Reykjavíkur, 101 Reykjavik.
Umsóknir skal senda til þess aðila sem sótt er til. Umsóknarfrestur er til og með 21.
nóvember 2002. Umsóknir sem berast eftir þann tíma munu að jafnaði ekki hljóta
afgreiðslu. Þeir aðilar sem fengu styrk á síðasta ári þurfa að skila inn greinargerð
um ráðstöfun þess fjár.
Félagasamtök sem sækja um niðurfellingu eða lækkun fasteignaskatts skv. 5. gr.
laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga, skulu skila umsóknum sfnum til
borgarráðs á fyrmefndum eyðublöðum fyrir 21. nóvember 2002.
Nánari upplýsingar eru veittar í sfma 563 2000 eða af framangreindum starfsmönnum
viðkomandi stofnana.
Borgarstjórinn f Reykjavík
4. október 2002
REYKJAVÍKURBORG
1950, sálfræðingur í Reykjavík, kvæntur Ingi-
björgu Pétursdóttur, iðjuþjálfa á Reykjalundi, og
eiga þau tvö börn auk þess sem hann á fjögur börn
frá því áður; Helga Jónsdóttir, f. 11.8. 1955, hús-
móðir í Vestmannaeyjum, gift Arnóri Hermanns-
syni bakarameistara og eiga þau fimm börn; Ást-
þór Jónsson, f. 26.8. 1957, stýrimaður og
verslunarstjóri í Vestmannaeyjum, kvæntur
Ágústu Hafsteinsdóttur húsmóður og eiga þau
þrjár dætur auk þess sem hann á dóttur frá því áð-
ur; Heimir Jónsson, f. 13.12. 1963, stýrimaður og
tölvufræðingur í Reykjavík, kvæntur Þórdísi
Grettisdóttur húsmóður og eiga þau saman tvö
börn auk þess sem hann á tvö hörn frá því áður;
Jóhanna Ýr Jónsdóttir, f. 25.11. 1974, starfsmaður
hjá Nýherja, búsett á Seltjarnarnesi en maður
hennar er Halldór Hrafn Gíslason, starfsmaður hjá
Nýherja, og á hún eina dóttur.
Foreldrar Kjartans: Jón Ólafur Kjartansson, f.
10.7. 1930, fyrrv. formaður Verkalýðsfélags Vest-
mannaeyja, og k.h., Sigriður Angantýsdóttir, f. 1.4.
1932, d. 18.12. 1983, húsmóðir.
Ætt
Jón er sonur Kjartans, yfirfiskmatsmanns í
Vestmannaeyjum Ólafssonar, steinhöggvara í
Reykjavík Sigurðssonar Sigurðssonar. Móðir Ein-
ars steinhöggvara var Ingunn Sigvaldadóttir, b. i
Herru í Holtum Nikulássonar. Móðir Ingunnar var
Ingunn Einarsdóttir. Móðir Kjartans var Salvör
Brynjólfsdóttir, sáttasemjara og útvegsb. í Vest-
mannaeyjum Halldórssonar. Móðir Brynjólfs var
Salvör Brynjólfsdóttir. Móðir Salvarar yngri var
Þórunn Guðmundsdóttir.
Móðir Jóns var Helga Jónsdóttir, málaflutnings-
manns og fræðimanns á Siglufirði Jóhannessonar,
hákarlaformanns og oddvita á Heiði í Fellshreppi
Finnbogasonar, b. í Steinhóli Jónssonar. Móðir Jó-
hannesar hákarlaformanns var Margrét Hafliða-
dóttir, b. í Hofdölum Jónssonar. Móðir Jóns fræði-
manns var Dórothea Sigurlaug Mikaelsdóttir,
smiðs á Hraunum Ólafssonar, skálds Þorkelssonar.
Móðir Mikaels var Dorte Louise Pétursdóttir
Birch, beykis að Hofi á Höfðaströnd, frá Sjálandi,
Mikaelssonar Birch. Móðir Dórotheu Sigurlaugar
var Ástríður Bjarnadóttir. Móðir Helgu var Guð-
laug Gísladóttir, b. á Austarahóli, Gislasonar, b. á
Vatni Finnssonar. Móðir Guðlaugar var Vilborg
Þorleifsdóttir.
Sigríður var dóttir Angantýs, verkamanns í
Vestmannaeyjum og í Reykjavík Einarssonar, b. á
Skeiði í Svarfaðardal Jónssonar, b. í Brekkukoti
Þorvaldssonar, h. í Sauðaneskoti Þorvaldssonar.
Móðir Jóns i Brekkukoti var Guðrún Bjarnadóttir,
vinnukona á Upsum, Upsa-Gunna. Móðir Einars
var Hallfríður Ólafsdóttir. Móðir Angantýs var
Margrét Björnsdóttir, b. á Hóli Björnssonar, b. á
Jarðbrú Pálssonar. Móðir Björns á Hóli var Mar-
grét Bjömsdóttir. Móðir Margrétar á Skeiði var
Kristín Jónsdóttir, hreppstjóra Þorkelssonar og
Margrétar Jónsdóttur.
Móðir Sigríðar Angantýsdóttur var Kornelía Jó-
hannsdóttir, sjómanns og verkamanns á Siglufirði
Kristinssonar, b. í Haganesi í Fljótum Davíðsson-
ar, b. á Blómsturvelli í Glæsibæjarhreppi Jóhanns-
sonar. Móðir Jóhanns á Siglufirði var Helga Bald-
vinsdóttir, Gunnlaugssonar, fræðimanns í Skugga-
björgum Jónssonar. Móðir Kornelíu var Sigríður
Guðmundsdóttir, b. í Lóni í Ólafsfirði Guðmunds-
sonar, b. í Naustum Ólafssonar. Móðir Guðmund-
ar i Lóni var Sigríður Símonardóttir, b. í Efstakoti
á Upsaströnd Jónssonar.
Kjartan verður að heiman á afmælisdaginn.
Afmæli
Laugard. 5. október
85 ára
Guðrún Magnúsdóttir,
Hjallabraut 33, Hafnarfiröi.
Gunnar Kristinsson,
Reynimel 80, Reykjavík.
Jóhann Snorrason,
Víöilundi 20, Akureyri.
80 ÁRA____________________
Guðrún Árnadóttir,
Aöalgötu 5, Keflavík.
Sverrir Vilbergsson,
Sæunnargötu 9, Borgarnesi.
75ÁRA
Magnús Finnbogason,
Gnoöarvogi 68, Reykjavík.
Ottó Svavar Viktorsson,
Torfufelli 31, Reykjavík.
70 ÁRA
Baldur Loftsson,
Selvogsbraut 33, Þorlákshöfn.
Hrafnkell Björgvinsson,
Austurvegi 9, Reyöarfirði.
Óttar K. Skjóldal,
Enni, Hofsósi.
60 ÁRA
Bjöm Halldórsson,
Vesturgötu 9, Ólafsfirði.
Grétar Arnar Ellertsson,
Miðgaröi 4, Keflavík.
Hanna Signý Georgsdóttir,
Hólsvegi 10, Reykjavfk.
Ólafur Hlynur Steingrímsson,
Rauðhömrum 8, Reykjavík.
Þórður Karlsson,
Dvergabakka 36, Reykjavík.
50ÁRA
Anna María Baldvinsdóttir,
Álftahólum 4, Reykjavík.
Guðmundur M. Hilmarsson,
Fagrahjaila 56, Kópavogi.
Guörún Ingimundardóttir,
Smárabraut 9, Höfn. Guðrún
dvelur meö sambýlismanni sín-
um, Þóri Snorrasyni, í Ung-
veijalandi á afmælisdaginn.
Helgi Þórir Hálfdánarson,
Teigaseli 5, Reykjavík.
Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Fjállalind 145, Kópavogi.
40 ÁRA
Anna Steinþórsdóttir,
Knarrarbergi 7, Þorlákshöfn.
Brynja Ingadóttir,
Suöurengi 10, Selfossi.
Dagmann Ingvason,
Steintúni 1, Dalvfk.
Fjóla Rut Einarsdóttir,
Kópavogsbraut 108, Kópavogi.
Geir Hörður Ágústsson,
Ægisbyggð 22, Ólafsfirði.
Guðrún Óskarsdóttir,
Bragagötu 27, Reykjavík.
Guörún V. Björgvinsdóttir,
Mururima 13, Reykjavfk.
Helga Magnúsdóttir,
Hjallabraut 58, Hafnarfiröi.
Jón Ragnarsson,
Lerkiási 6, Garöabæ.
Katrín Steingrímsdóttir,
Suðurbraut 5, Kópavogi.
Oddur Kristjánsson,
Huldulandi 42, Reykjavfk.
Olafur Stefánsson,
Hvassaleiti 153, Reykjavfk.
Ragnheiður Guðlaugsdóttir,
Gullengi 1, Reykjavfk.
Ragnheiður R. Friðgeirsdóttir,
Mímisvegi 15, Dalvfk.
Sigurður J. Guömundsson,
Smáratúni 23, Keflavfk.
Sunnud. 6. október
85ÁRA
Páll Gunnarsson,
Vallartröö 12, Kópavogi.
Hann tekur á móti gestum f
Lionssalnum, Auðbrekku 25,
Kópavogi, sunnudaginn 6.10.
milli kl. 14.00 og 17.00.
Finnur Einarsson,
Ánahlíö 2, Borgarnesi.
Gunnar Þórðarson,
Hólavegi 17, Sauðárkróki.
80 ÁRA
Unnur Ragna
Benediktsdóttir,
Sigtúni 45,
Reykjavík,
verður áttræð á
mánudag.
Eiginmaður hennar var Jón
Valgeir Guömundsson. Hún
verður, ásamt fjölskyldu sinni,
að heiman á afmælisdaginn.
Elín Friðriksdóttir,
Hrafnistu, Hafnarfirði.
Gréta Júlíusdóttir,
Helgamagrastr. 19, Akureyri.
Pétur Þorbjörnsson,
Hjallabraut 33, Hafnarfirði.
75 ÁRA
Ingigerður Benediktsdóttir,
Kveldúlfsgötu 24, Borgarnesi.
70ÁRA
Gerður Aöalbjörnsdóttir,
Merkjateigi 8, Mosfellsbæ.
Jóhanna Sigrún Thorarensen,
Lágholti 17, Mosfellsbæ.
Jón Óskar Ágústsson,
Kaplaskjólsvegi 1, Reykjavík.
Sigríður Ólína Marinósdóttir,
Álftarima 3, Selfossi.
60 ÁRA
Halldór Sigurþórsson,
Þórufelli 18, Reykjavfk.
Ingvar R. Valdimarsson,
Aðalstræti 50, Patreksfirði.
Sigurbjörg Kristinsdóttir,
Stekkjarhvammi 4, Hafnarfirði.
50ÁRA
Alexander Dragan Markovic,
Laufengi 34, Reykjavík.
Ann María Andreasen,
Næfurási 13, Reykjavfk.
Elín Siggeirsdóttir,
Huldubraut 16, Kópavogi.
Ema Hanna Guðjónsdóttir,
Álftamýri 36, Reykjavík.
40 ÁRA____________________
Áslaug Jakobsdóttir,
Löngufit 7, Garðabæ.
Gunnar Eyjólfsson,
Sóltúni 1, Keflavfk.
Gunnar Þórólfsson,
Hjallabraut 25, Hafnarfirði.
Haki Redjepi,
Lækjarkinn 2, Hafnarfirði.
Helgi Helgason,
Kiettahrauni 1, Hafnarfirði.
Magnús Pálsson,
Raftahlfð 75, Sauðárkróki.
Matthías Örlygsson,
Baughúsum 32, Reykjavík.
Rafn Gunnarsson,
Æsufelli 6, Reykjavík.
Sigurlína H. Styrmisdóttir,
Vallargerði 4d, Akureyri.
Svana Björk Karlsdóttir,
Þinghólsbraut 40, Kópavogi.
Wieslaw Debek,
Brimnesvegi 12, Flateyri.
Þórdís Erlingsdóttir,
Hilmisgötu 13, Vestmeyjum.