Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR l<3. OKTÓBER 2002 Helcjorbloö ÐV 25 DV-myndir ÞÖK Hér skellir Stefán hunangi út á pönnuna áður en hann byrjar að hrista hana létt á hellunni svo að kaktusstrimlarnir lijúp- ist en hann segir kaktusstrimla vera að ryðja sér til rúms í ís- lenskri matargerð. Steinbítur- inn krauinar á pönnunni við hliðina. Steinbíturinn er alíslenskur þótt matreiðsla hans á Si Senor hafi yfir sér framandi blæ. Hér er hann lagður nett ofan í rauða blóðappelsínu og chili- sósuna. Einbeitingin skín úr andliti Stefáns þegar hann kemur gljáðu kaktusstrimlunum og grænmetinu fyrir ofan á neðra fiskstykkinu. Síðan kcniur hinn bitinn þar ofan á. Á íslendingaslóðum í Bordeaux-héraði stendur Guðlaugu Baldursdóttur hjá Vínvali nær Vínin að þessu sinni bera íslensku handbragði við víngerð fagurt vitni að þvi leyti að þau eru gerð af Jóni Armannssyni víngerðarmanni með dyggri aðstoð eig- inkonu hans, Guðlaugar Baldursdóttur, sem hér kynn- ir þessu ágætu vín. Cháteau de Rions-víngerðin er í hjarta hins virta vínhéraös Bordeaux í suðvesturhluta Frakklands. Vínin frá Cháteau de Rions eru fjölbreytt og ólík að gerð. Þau bera vott um vönduð vinnubrögð Jóns sem hefur gæðin ætíð að leiðarljósi, virðir gaml- ar og góðar hefðir en notar einnig nútímatækni. Til rauðvínsgerðarinnar eru ræktaðar Merlot, Cabernet Sauvignon og Cabernet Franc þrúgur. Sauvignon Blanc og Sémillon eru hins vegar notaöar til hvitvínsgerðarinnar. Vínin hafa gæðastimpilinn App- ellation díOrigine Controlée, skammstafað AOC. Til að hljóta þá náð verða vínin að gangast undir strangt eft- irlit og prófanir fagmanna. Til að gefa rauðvinunum aukna dýpt og fágun liggja þau á eikartunnum í allt að 18 mánuði áður en þau eru sett á flöskur. Spéciale Réserve hvítvínið frá Cháteau de Rions er gerjað og tekur út þroska sinn á nýjum eikartunnum. Aðeins ör- litið brot af hvítvínum Bordeaux-héraðsins eru gerð á þennan hátt. Vín Cháteau de Rions hafa hlotið lof og hrós fagmanna og unniö til margra verðlauna og er ánægjulegt að kynna þau á þessum vettvangi. Hvítvínið, Cháteau de Rions - AOC Bordeaux, er lagað úr Sémillon- og Sauvignon Blanc-þrúgum. Hvítu Sauvignon-þrúgurnar gefa víninu ilm og snerpu en Sé- millon fyllingu og mýkt. Til að laða fram sem mestan aldinkeim og einkenni berjanna er beitt sérstakri tækni við víngerðina, langvinnri gerjun við lágt hita- stig. Tært vínið er ilmríkt, þrungið ferskri angan ávaxta og blóma. Líflegt bragðið er snarpt, þurrt og með fyllingu. Þetta er vín fyrir þá sem vilja létt og lífleg hvítvín. Það fellur vel að öllu sjávarfangi og er tilvalið að reyna það með steinbítnum hér að ofan. Einnig léttum pastaréttum. Góð kaup eru í flösku af þessu hvítvini en hún kostar aðeins 980 krónur í ÁTVR. Rauðvínið, Cháteau de Rions - AOC Premiéres Cötes de Bordeaux er, er gert úr Merlot-, Cabernet Sauvignon- og Cabernent Franc-þrúgum. Merlot-þrúgan er í forgrunni og setur einkennandi svip á vínið sem slegið er faUegum rúbínrauöum litblæ. Af því er seiðandi og þokkafull angan og fínlegur eikarkeimur enda vínið haft á eikartunnum samkvæmt gömlum og góðum Bordeaux-gild- um. Bragðið er blæbrigðarikt, eilítið krydd- kennt og hefur góða fyllingu. Vinið er vel þroskað og tilvalið að njóta þess nú en það gengur t.d. vel með lambakjöti og Ijósu kjöti. Flaskan kostar 1.240 krónur í ÁTVR. Auk ofantaldra vína má fá sérvalin vín frá Cháteau de Rions í ÁTVR, Spéciale Réserve- hvítvín á 1.280 krónur og Spéciale Réserve- rauðvín á 1.480 krónur. Verða þau kynnt til sögunnar síðar. Umsjón Haukur Lárus Hauksson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.