Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Page 30
30
H&lQorbictö I>V LAUGARDAGUH 19. OKTÓBER 2002
Enska knattspyrnan af stað að nýju:
Gerrard ekki með Liverpool
- meiddist í leik með enska landsliðinu
Steven Gerrard borinn út af í leik Englendinga og Makedóníu-manna í vikuiiiii. Hann verður
ekki með Liverpool þegar liðið inætir Leeds í dag.
Liverpool verður án Steven Gerrard þegar liðið
heimsækir Leeds United á Elland Road í dag og er
þetta mikil blóðtaka fyrir Liverpool-liðið, enda Gerr-
ard lykilmaður bæði í liði Liverpool og enska lands-
liðinu. Þá er vafamál hvort Emile Heskey verði með
liðinu vegna meiðsla og þá er varamarkvörðurinn
Kris Kirkland frá af sömu ástæðum.
Það er þungt hljóðið í Houllier, framkvæmdastjóra
Liverpool, og segir hann að Liverpool þurfi að greiða
hátt gjald fyrir þátttöku leikmanna sinna með lands-
liðum, enda algengt að þeir komi meiddir aftur til
Liverpool eftir leikina. Leedsarar eiga i vandræðum
en þeir Dominic Matteo og Lucas Radebe eru frá
vegna meiðsla og Robbie Fowler er enn úr leik.
Leikmanna Everton bíður erfitt verkefni en þeir
taka á móti meisturum Arsenal sem eru í gríðarlega
góðu formi um þessar mundir og er án efa eitt besta
lið í Evrópu eins og staðan er nú. Þeir mæta með sitt
sterkasta mögulega lið og er Dennis Bergkamp tilbú-
inn í slaginn að nýju eftir meiðsli. Ekki er þó talið
liklegt að Arsene Wenger tefli fram Robert Pirez sem
er þó óðum að ná sér eftir langvarandi meiðsli. Dav-
id Weir kemur að nýju inn i lið Everton eftir meiðsli
og veitir liðinu eflaust ekki af sínum sterkustu mönn-
um í þessa viðureign.
Eiður Smári Guðjohnsen er að sjálfsögðu mættur
til leiks í Englandi að nýju eftir góðan leik hans gegn
Litháum á miðvikudag, en Chelsea leikur gegn
Man.City á Maine Road í Manchester. Chelsea hefur
tapað þremur leikjum í röð og vill Claudio Ranieri ef-
laust enda það tímabil með sigri nú. Líklegt er talið
að Boudewij Zenden verði ekki með en hann meiddist
í leik með Hollendingum gegn Austurríki í vikunni.
Richard Dunne kemur að nýju inn í lið Man.City, en
Danny Tiatto er enn að taka út þriggja leikja bann.
Fulham tekur á móti Man. Utd og koma þeir Steve
Finnan og Alain Goma að nýju inn í lið Fulham, en
Manchester-menn geta ekki teflt fram Ruud Van Nis-
stilrooy, en hann er enn frá vegna tognunar á fæti.
Líklegt er talið að Diego Forlan taki stöðu hans, en
hann ku hafa skorað með varaliði Man. Utd í vik-
unni.
Lárus Orri Sigurðsson verður í leikmannahópi
WBA sem mætir Birmingham í grannaslag, þrátt fyr-
ir agabrot með íslenska landsliðinu um síðustu helgi.
Gary Megson segist ekki sjá ástæðu til að refsa leik-
manninum frekar en gert hefur verið. -PS
Engir sæludagar hjá Seaman
David Seaman á ekki sjö dagana sæla nú um þess-
ar mundir en hann hefur á undanförnum mánuðum
verið gagnrýndur fyrir frammistöðu sína með enska
landsliðinu og ekki bætti úr skák mark sem hann
fékk á sig í leik gegn Makedóníu-mönnum á miðviku-
dag, en það var skorað beint úr hornspyrnu. Fyrir
þetta hefur hann verið harkalega gagnrýndur í
Englandi, en síðan þá hafa jafnt liðsmenn sem og
þjálfari enska liðsins lagt nótt við dag til að reyna að
verja markvörðinn og lýst því yfir að ekki megi
kenna Seaman um. Gagnrýnendur segja að það sé
kominn tími til að skipta um landsliðsmarkvörð og
hafa þeir David James og Paul Robinson helst verið
nefndir til sögunnar. Enskir fjölmiðlar eru harðorðir
David Seaman er nú hvattur til að hætta að leika með enska landsliðinu
áður en sú áltvörðun verður tekin fyrir hann.
og segja að nú eigi hausar að fjúka. Þá hefur Peter
Shilton, fyrrum markvörður enska landsliðsins, látið
hafa eftir sér að Seaman eigi að hætta sjálfur með
liðinu, áður en honum verður „sparkað út úr því“,
eins og Shilton orðar það.
Það má segja að sorgarsaga Seaman hafi hafist af
alvöru i leik Englands og Brasilíu á HM i sumar, en
sigurmark Ronaldinho í leiknum var algerlega eign
Seamans. Ronaldinho tók aukaspyrnu fjarri markinu,
sem hann hitti illa, en þó með þeim árangri að knött-
urinn sveif yfir Seaman í markinu. Hann hafði fram
að því varið vel í keppninni en mistök hans urðu þess
valdandi að Englendingar voru sendir heim. Næsta
stóra höggið sem hann varð fyrir var svo í landsleik
gegn Makedóníu-mönnum á miðvikudag.
Sven Göran Eriksson hefur sagt að hann myndi
velja Seaman í landsliðið í raun á meðan hann gefur
kost á sér. Eftir atvikið hefur hann haldið áfram að
styðja við Seaman. „Ég er ekki þeirrar skoðunar að
henda eigi Seaman út úr liðinu og hann mun ekki
missa sætið í liðinu vegna marksins sem hann fékk á
sig á miðvikudag," segir Eriksson, sem þó ætlar að
fylgjast vel með leik kappans næstu mánuði. „Það eru
fjórir mánuðir í næsta leik og ég mun að sjálfsögðu
skoða leikmenn í millitíðinni, markmenn líka. Auð-
vitað eru þeir Paul Robinson og David James farnir
að pressa á Seaman, en þetta kemur í ljós,“ sagði
Eriksson.
Enskir fjölmiðlar benda á að Seaman, sem er 39
ára, sé orðinn of gamall til að standa í marki enska
landsliðsins og krefjast þess að hann verði látinn
víkja. Þá rekja þeir helstu mistök hans í gegnum tíð-
ina og auk þeirra sem nefnd eru hér að framan rifja
þau upp mark sem hann fékk á sig gegn Real Zara-
goza í úrslitaleik Evrópukeppninnar árið 1995, en þá
skoraði Nayim sigurmarkið einni mínútu fyrir leiks-
lok með skoti frá miðlínu. Þá minnast þau einnig at-
viks í haust þegar Gareth Farelly skoraði fyrir Bolton
með skoti frá hliðarlínu.
David Seaman hóf ferilinn hjá unglingaliði Leeds
United, en hann er fæddur í Rotherham. Hann lék þó
aldrei með Leeds, en liðið hafnaði honum og vildi
ekki gera samning við unglinginn. Þaðan fór hann til
Peterboro og lék hann 106 leiki með liðinu áður en
hann var seldur til Birmingham þar sem hann var
um hríð, en þar lék hann 84 leiki. Frá Birmingham
hélt hann til London þar sem hann lék með QPR, en
eftir að hafa leikið 175 leiki með QPR keypti George
Graham, þáverandi stjóri Arsenal, hann til liðsins
fyrir 1,3 milljónir punda sem var metfé fyrir mark-
vörð á þeim tíma. Lengst af hefur hann átt góðan fer-
il hjá Arsenal og hefur leikið hátt á sjötta hundrað
leikja með liöinu, en undanfarið hefur brugðið fyrir
mistökum í leik kappans sem menn setja spurningar-
merki við. -PS