Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Síða 54
58 HeIgarblocf DV LAUGARDAGUR 19. október 2002 Bílar Reynsluakstur Sigurður Hreiðar Hreiðarsson Kynningarakstur G\obetrotler XC XJo\'JU _rj_r. r) Volvo FH12 6x4 dráttarbíll ineð hátt hús, Globetrotter XL. Gljáandi (Polished) álfelgur setja sinn svip á bílinn. Áhersla á þægindi ökumanns Um það bil ár er síðan ný kynslóð FH og FM vöru- blla frá Volvo var frumkynnt. Fyrsti FH bíllinn af þessari kynslóð kom hingað til lands snemmsumars og nú eru fleiri að skila sér. DV-bílar brugðu sér í bílaleik á FH12 6x4 dráttarbíl á dögunum. Sá sem hér skrifar hefur stopula og ekki mikla reynslu af akstri bíla á stærð við þennan. Fyrstu við- brögð eru þau hve gríðarlegum framförum vörubílar hafa tekið frá því upp úr miðri öldinni sem leið og eru í raun sá samanburður sem skrifari hefur. Þá voru þetta háværir gaurar og lítið hugsað um þægindi öku- manns; þeir voru þungir í stýrinu og það átti til að slá illilega; hemlar voru þungir og svifaseinir. Bílar af kynslóð þessa nýja Volvo FH eru hljóðlátir eins og bestu límúsínur. í þeim er áhersla á þægindi öku- manns, stýrið er létt og nákvæmt, hemlar léttir og af- kastamiklir. Það væri hreinasti draumur ef fólksbílar hefði tekið viðlíka framför- um og væru samt innan fjárhagslegrar seilingar fyrir almenna bílakaupend- ur. Afbragös hljóðein- angrun Yfirbyggingin á þeim bíl sem hér var prófaður kall- ast Globetrotter XL. Húsið er hábyggt og gólfið slétt, hæstu menn standa hér uppréttir. Aftan við fram- sæti eru svokölluð skrif- stofuinnrétting, tvö þægileg sæti sitt við hvorn hliðar- vegg og snúa hlið í aksturs- stefnu og skrifborð á milii með hentugri lýsingu yfir. Þar upp af er svo koja fyrir einn. Kaupandi hefur val um hvernig þessum búnaði er háttað, getur t.d. fórnað skrifstofunni fyrir tvær koj- ur, en hérlendis er sjaldan svo langur samfefldur akst- ur að ein koja sé ekki nóg. Stólar ökumanns og framsætisfarþega eru stillan- legir á alla vegu og auðvelt að finna góða akstursstell- ingu. Jafnframt eru þeir loftræstir til þæginda eink- um fyrir ökumanninn. Stýrinu er hagrætt stiglaust þannig að það henti ökumanni hverju sinni. Bílbelti eru nú felld inn í sætið sjálft og fylgja þvi óháð still- ingu. Tölvustýrð miðstöð og loftkæling eru í þessu húsi og 6 hátalara hljómflutningstæki eru sögð með ágæt- um. Afbragðs hljóðeinangrun kemur hljómburði einnig til góða; það er sama hvar í húsinu farþegi sit- ur, ekki þarf að hækka röddina til að halda uppi sam- ræðum. GSM sími er innbyggður og hljóðneminn er á stöng í sætisbaki þar sem auðvelt er að ná til hennar er á þarf að halda. Stjómtæki símans, svo og út- varps/hljómflutningstækja, er í stýrishjóli. Öryggi og þægindi Sú nýjung sem mér finnst hvað mest til um er skiptingin: þetta er svokölluð I-Shift, sjálfvirk gír- skipting sambærileg við það sem við kynntumst fyrst sem Selespeed á Alfa Romeo. Kjósi ökumaður heldur getur hann tekið ráðin af kassanum og skipt sjálfur, upp eða niður, einn gír i senn, með snert- ingu á takka. Sjálfvirk skipting er í raun hefðbund- inn gírkassi með kúplingu; það er bara vélbúnaður sem sér um verkið. Hefðbundin sjálfskipting er einnig í boði í þessum bílum en spurning hvað hún hefur fram yfir sjálfvirku skiptinguna. Kannski er ekki alveg rétt þegar Volvo FH á í hlut að segja að þetta sé Nhefðbundinn gírkassii n þessi gírkassi er t.d. ekki með samhæfingu (syncron) og þarf þess ekki vegna sjálfvirkninnar. Fyrir bragðið er hann mun léttari og fyrirferðarminni sem kemur til góða á öðrum sviðum. Það sem mestu máli skiptir með I-shift fi eða aðrar sjálfvirkar skiptingar n er að bíflinn velur alltaf þann gír sem hentar best hverju sinni og sparar þannig bæði olíu og slit. Hún tryggir að bíllinn er jafnan inn- an þess snúningsvægis sem gefur hámarks afköst. Jafnframt losar hún bílstjórann undan stimpingum við gírstöng, oft þegar hann hefur nóg annaö að gera, svo sem í kröppum beygjum. Vafalaust eykur skipting af þessu tagi öryggi í akstri til verulegra muna. 500 ha vél með 2400 Nm snúningsvægi fer vel meö þessari skiptingu og gerir bílinn laufléttan í akstri. Að vísu var bíllinn hlasslaus í þessum reynsluakstri, en við kynninguna í Svíþjóð i fyrra var eins búinn bíll prófaður með 60 tonna heildarþunga en fór jafnvel með þvílíkt hlass furðu létt með það sem honum var sett fyrir. Góð fjöðrun Ekki má sleppa að minnast á 4 þrepa hamlara (ret- arder) sem dregur hratt og örugglega úr hraða eða heldur mátulega við, eftir því sem við á. Þá má einnig nefna að sé ekki tekið i pallið á handhemli virkar hann alveg eins og handbremsa. Hann liggur vel við hendi nánast við hliðina á stýrinu og getur komið sér einkar heppilega, einkum í akstri við þröngar aðstæður þegar heppilegt er að geta verið með fótinn á olíugjöfinni en jafnframt stýrt með hemlun. Fjöðrun sem loftfjöðrun aftan en parabólufjöðrun framan. Þannig búinn er bíllinn einkar þýður jafnvel hlasslaus og það á holóttum malarvegi, sem prófaður var tfl samanburðar við malbikið. Þar kom einnig fram hið eina athugaverða: lítils háttar óstöðugleiki þegar bíllinn leitaðist við að elta langsumrákir. Þess má þó jafnframt geta að þessi tiltekni bíll var á tiltölulega breiðum dekkjum sem yfirleitt framkalla rásun af þessu tagi, sé tilhneigingin á annað borð fyrir hendi. Þegar bílar af þessu tagi eru annars vegar eru ýmsir þættir sem þarf að vega og meta til að gera sér grein fyr- ir hvort verðið er hátt eða lágt. Hér eru ekki efni til þess konar mats, en rétt að geta þess í lokin að bíll eins og sá sem hér var prófaður kostar um 10,9 milljónir. -SHH o Grillið er jafnframt að hluta tröppur til að auð- velda að ná upp á framrúðu þegar þarf að þrífa hana eða skafa snjó og klaka. Efri hlutanum er lvft til að komast að helstu þjónustuatriðuiu svo sem eftirliti og áfyllingum helstu vökva. Það er Ólafur Árnason, sölustjóri atvinnutækja hjá Brimborg, sem stendur við hílinn. © Aðstaða við stýri eins og best verður á kosið. Handfrjáls GSM-sími er innbyggður, stýrt með tökkum á stýrishjóli. Hljóðneininn er greinileg- ur á sætisbaki bílstjórans. Útispeglar eru upp- hitaðir og rafstýrðir. © Háreistur og myndarlegur á vegi, með vindkljúf á topp og niður hliðar. Hann er einnig með klæðningu á grind sem er ekki aðeins fegurðar- auki heldur raunhæf undirakstursvörn. © „Deluxe" innrétting með skrifstofuinnréttingu og eina koju. Olíumiðstöð fyrir hús og vél, tölvu- stýrð miðstöð og loftkæling. Sæti ökumanns og framsætisfarþega eru leðurklædd með loftræst- ingu, fjölstillanleg með minni. ii Takið eftir sjón- varpsskjánum sem stendur upp úr mælaborðinu við stýrið: þarna sér ökumaður hvað er fyrir aftan bílinn þcgar hann þarf að bakka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.