Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2002, Blaðsíða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002
DV
Jonathan Motzfeldt
Greinilegur kosningaskjálfti er kom-
inn í grænlenska þingmenn sem
enn skamma formann heimastjórn-
arinnar vegna eldflaugavarna BNA.
Motzfeldt sakað-
ur um að gefa
Dönum frítt spil
Jonathan Motzfeldt, formaður
grænlensku heimastjórnarinnar,
hefur verið sakaður um að gefa
dönskum stjórnvöldum frítt spil
þegar hugsanleg þátttaka ratsjár-
stöðvarinnar í Thule í áformuðu
eldflaugavamakerfi Bandaríkjanna
er annars vegar.
Motzfeldt sat leiðtogafund NATO
í Prag sem hluti af dönsku sendi-
nefndinni og hann tók þar undir
hugmyndir um eldflaugavamirnar.
Hann sagðist óttast að Grænlend-
ingar myndu sjá á bak fjölda starfa
ef Thule-stöðin væri ekki með.
Motzfeldt sagði þó að það sem
mestu máli skipti væri að ekki yrði
dregið úr öryggi Grænlands.
„Hann talar þvert á það umboð
sem hann fékk frá utanríkis- og ör-
yggismálanefnd landsþingsins,"
sagði þingmaðurinn Kuupik Kleist í
samtali við grænlenska útvarpið.
Pútín Rússlandsforseti lét Bush ekki sannfæra sig:
Itrekaði efasemdir
um stækkun NATO
Vladimír Pútín Rússlandsforseti ít-
rekaði gær efasemdir ráðamanna í
Moskvu um ágæti stækkunar Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) til austurs.
Hann útilokaði þó ekki nánari tengsl
við NATO.
Rússlandsforseti sagði þetta eftir
viðræður við George W. Bush Banda-
ríkjaforseta í Pétursborg í gær. Þang-
að fór hann að loknum leiðtogafundi
NATO i Prag þar sem sjö ríkjum úr
Austur-Evrópu var boðið að ganga í
bandalagið.
Bush vildi með heimsókn sinni
reyna að sannfæra Pútín um að
stækkun NATO væri góð fyrir hags-
muni Rússa.
„Hvað stækkunina varðar teljum
við ekki að hún sé nauðsynleg en við
hlustum á afstöðu Bandaríkjaforseta,"
sagði Pútín við fréttamenn eftir fund-
inn með Bush sem var haldinn í
KatrínarhöUinni sem er frá 18. öld.
En hvað sem stækkun NATO líður
voru forsetarnir sammála um að
þrýsta á stjórnvöld í írak að láta af
hendi gjöreyðingarvopn sin, ella eiga
á hættu að gripið yrði tU harkalegra
aðgerða gegn þeim.
í sameiginlegri yfirlýsingu stjórna
landanna er írökum ekki beint hótað
hernaðaraðgerðum, eins og Bush sjálf-
ur hefur margoft gert fari Saddam
Hussein íraksforseti ekki að ályktun-
um Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
um afvopnun.
Vopnaeftirlitsmenn SÞ eru nú
komnir tU íraks eftir 4 ára fjarveru.
REUTERSMYND
Forsetar í fínni höii
George W. Bush Bandaríkjaforseti hitti rússneskan starfsbróöur sinn,
Vladimír Pútín, í hinni glæsilegu Katrínarhöll í Pétursborg í gær. Bush fór rak-
leiöis til fundar viö Pútín eftir leiötogafund NATO í Prag í Tékklandi til aö
reyna aö sannfæra hann um ágæti stækkunar NATO til austurs.
Elva Dögg Melsteð
Ungfrú island.is árið 2000
„Marga dreymir um að eignast
einhverju sinni ROTARY."
X
u
^.OT A/? y
Estabtished in Switzerland 1895
Fegurðardrottningar valda uppþotum:
Á annað hundrað
týndi lifi í Nígeríu
Átök geisuðu í borginni Kaduna í
Nígeriu í gær þar sem á annað
hundrað manns hefur týnt lífi í upp-
þotum undanfarna þrjá daga.
Múslímar eru ævareiðir yfir því að
halda á fegurðarsamkeppnina Ung-
frú heim í landinu í næsta mánuði.
Nígeríski Rauði krossinn sagði að
í gærmorgun hefðu 105 manns látist
í átökunum og sjónarvottar sögðu
að eftir það hefðu fjölmargir til við-
bótar verið drepnir.
Brennd farartæki lágu eins og
hráviði á götum Kaduna og hundr-
uð íbúa borgarinnar sáust yfirgefa
rjúkandi rústir heimila sinna með
það sem þeim tókst að bjarga.
Átökin blossuðu upp eftir að dag-
blað birti grein þar sem látið var að
því liggja að Múhameð spámaður
hefði líklegast gengið að eiga eina af
Brunniö lík á götu í Kaduna
fegurðardrottningunum. Keppnin í
Nígeríu er mjög umdeild og hafa
margar þjóðir hætt við þátttöku
vegna dauðadóms yfir konu fyrir að
eignast bam í lausaleik.
Kafbátur sendur
niður að olíuskipi
Spænsk yfirvöld sögðust í gær
hafa sent kafbát niður að flaki olíu-
skipsins Prestige til að kanna hvort
enn læki olía úr því. Þúsundir
tonna hafa þegar lekið úr skipinu
og mengað strendur á Spáni norð-
vestanverðum. Fuglar hafa lent i ol-
íunni og þúsundir fiskimanna kom-
ast ekki á veiðar vegna mengunar-
innar.
Umhverfisvemdarsamtökin
Greenpeace áætla að um tuttugu
þúsund tonn hafi lekið úr skipinu
sem var með 77 þúsund tonn í lest-
um sínum þegar því hlekktist á fyr-
ir rúmri viku.
Skipið liggur á 3,6 kílómetra dýpi
og að sögn sérfræðinga mun olían í
því harðna vegna mikils kulda.
Rúmlega fimm hundruð manns
hafa verið ráönir til að hreinsa olí-
una nærri 400 kílómetra langri
strandlengjunni, auk þess sem bátar
og skip og þyrlur taka þátt í hreins-
unarstarfinu.
wmzmm
Vestnorðrið stækkar
Hogni Hoydal,
varalögmaöur Fær-
eyja, telur mikil-
vægt að ríkin í
kringum Norður-
Atlantshafið auki
samstarf sitt og þá
á hann við að lönd
eins og Skotland og
Irland verði tekin með í vestnor-
ræna samstarfið innan Norður-
landaráðs. Vilji er fyrir slíku, að því
er fram kom á ráðstefnu sem haldin
var í skoska þinginu á dögunum.
Kannabis vont fyrir geðið
Læknar hafa varað við því að
kannabisreykingar geti aukið hætt-
una á geðklofa og þunglyndi.
Órói á vinnumarkaði
Mikill órói er nú á vinnumarkaði
í Frakklandi þar sem fjöldi hópa er
ýmist í verkfalli eða hefur boðað að-
gerðir á næstu dögum til að lýsa yf-
ir óánægju sinni með kjör sin.
Kútsjma boðið til Rómar
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, lét sig engu varða til-
raunir Bandaríkjanna til að ein-
angra Leoníd Kútsjma Úkraínufor-
seta vegna meints vopnasmygls til
íraks og bauð honum til Rómar til
viðræðna um NATO-aðild.
Töiva brenndi kynfæri
Vísindamaður nokkur brenndist
alvarlega á nynfærunum eftir að
hafa haft kjöltutölvuna sína í kjöltu
sér í um klukkutíma. Hann var þó í
bæði buxum og nærbuxum, að sögn
læknablaðsins Lancet.
ekki morðingi
Giulio Andreotti,
fyrrum forsætisráð-
herra Ítalíu, sagði í
gær að hann væri
hóflegur syndari og
fengi tæpast heið-
urssess á himnum
en það vissi guð að
hann væri enginn
morðingi eða mafiósi. Andreotti var
nýlega dæmdur í 24 ára fangelsi fyr-
ir að hafa fyrirskipað morð á óþægi-
legum blaðamanni.
Syndari en
Hyljið sætan naflann
Yfirvöld í skóla einum á Jótlandi
vestanverðu hafa ákveðið að fyrir-
skipa öllum námsmeyjum sem
koma í skólann með beran magann
að fara heim og skipta um fot.
Winnie í mál við þingið
Winnie Mandela,
fyrrum eiginkona
Nelsons Mandela i
Suður-Afríku, hefur
stefnt suður-afríska
þinginu fyrir að
ákveða að sekta
hana fyrir að hafa
brotið reglur um
tekjur aðrar en þingfararkaup.
Winnie var kjörin á þing 1994 en
hún hefur sjaldan mætt á þingfundi.
Balí-maður játar
Tölvusérfræðingurinn Imam
Samudra hefur játað við yfirheyrsl-
ur hjá indónesísku lögreglunni að
hafa skipulagt sprengjutilræðið á
Balí í síðasta mánuði.
Hjálparliði drepinn
Breskur starfsmaður hjálpar-
stofnunar SÞ var skotinn til bana í
flóttamannabúðum í Jenín á Vestur-
bakkanum í gær þegar ísraelar og
Palestínumenn skiptust á skotum.