Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2002, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2002, Síða 9
9 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002____________________ I>V Fréttir Aukin bjartsýni: Sífellt fleiri fýrir- tæki reikna með batnandi afkomu Um 28% fyrirtækja reikna með batnandi afkomu á næstu mánuð- um en um 14% með versnandi af- komu, samkvæmt niðurstöðum könnunar Samtaka atvinnulífsins sem birt er á vefsíðu samtakanna. SA segir þetta vera almennt betri væntingar en fyrir ári þegar 20% reiknuðu með batnandi afkomu en 28% reiknuðu með að hún færi versnandi. Likt og fyrir ári geri þó flest fyrirtæki ráð fyrir að afkom- an haldist svipuð á komandi mán- uðum, eða 55% fyrirtækja (49% fyrir ári). Samtökum atvinnulífsins finnst niðurstaðan koma að vissu leyti á óvart, enda bókhaldsleg afkoma fyrirtækja víðast hvar mjög góð um þessar mundir, sem skýrist að miklu leyti af fjármagnsliðum í kjölfar gengishækkunar krónunn- ar. Þá kemur aukin bjartsýni nokkuð á óvart í ljósi hás launa- stigs í landinu. „Launakostnaður fer enn hækk- andi umfram verðlag og hækkar jafnframt sem hlutfall af tekjum fyrirtækja. Ljóst er því að betri af- komuvæntingar eiga sér sérstakar skýringar, m.a. lækkun á tekju- og eignarskatti fyrirtækja, sem kem- ur til áhrifa á næsta ári,“ segir SA. Þar telja menn jafnframt að ætla megi að aukinn efnahagslegur stöðugleiki, lægri verðbólga og lægri vextir ýti undir bjartsýni, auk þess sem margir reikni eflaust með framlegðaráhrifum af hag- ræðingaraðgerðum sem ráðist hef- ur verið í á tímum minnkandi um- svifa. Ekki er teljanlegur munur á afkomuvæntingum fyrirtækja eftir stærð þeirra eða starfssvæði, en talsverður munur er hins vegar milli starfsgreina. -NH Innfjarðarrækjuveiði: Veiðar leyfðar í Arnarfirði Innljarðarveiðar geta hafist að nýju í Amarfirði en sjávarútvegs- ráðuneytið hefur gefið út 550 tonna veiöileyfi í firðinum. Þetta var nið- urstaðan eftir að Hafrannsókna- stofnunin lét rannsaka mnfjarðar- rækjumiðin að nýju. Á ísafjarðar- djúpi er leyft að veiða 1.000 tonn. Niðurstaða rannsóknarinnar leiddi í ljós að mjög lítið er af fisk- seiðum á rækjuslóðinni og því eng- in ástæða tO að framlengja bann við rækjuveiðum. Þetta era góð tíðindi fyrir fremur bágborið atvinnulifið á BOdudal. Verið er að semja um rækjuverðið við Rækjuver á BOdu- dal og standa vonir tO þess að veið- amar hefjist á næstu dögum. Hafrannsóknastofnun mun á næstunni rannsaka innfjarðar- rækjuslóð á Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfanda og Öxarfirði en niður- stöður þeirra rannsókna liggja varla fyrir á þessu ári. Eftir haust- leiðangur á rannsóknarskipinu Dröfn var ekki leyft að veiða inn- fjarðarrækju á þessum slóðum þar sem rækjan var bæði of smá og mik- 0 seiöagengd á hefðbundnum veiðislóðum. -GG DV-MYND SIGURÐUR HJÁLMARSSON. Hlýtt veöur úr suöri Dimm og drungaleg ský renna hér inn yfír landiö og færa með sér hlýjuna úr suöri. Myndin var tekin í gær frá Vík í Mýrdal. Líður að lokum veðragóðs nóvembermánaðar: Landið nánast alautt Það var 4 stiga hiti á hálendi ís- lands í gær og landið nánast alautt þegar DV sló á þráðinn tO veðurat- hugunarhjónanna á HveravöOum sem þar eiga lögheimOi og una vel vistinni fjarri streitu þéttbýlisins. „Þetta er óvenju hlýtt veður miðað við árstíma," sagði Kristín Bjöms- dóttir en hún og maður hennar, Haf- steinn Eiríksson hafa verið þrjú ár á fjöOum en þau bjuggu áður á ísa- firði. Kristín sagði að fiögurra stiga frost væri eðlOegra hitastig undir lok nóvember. „Hér er nokkuð flekkótt yfir að líta en sáralítOl snjór,“ sagði Krist- ín. Hún sagði að viss vetrareinangr- un væri þó skoOin á á hálendinu, akvegir frá Gullfossi í suðri og um Auðkúluheiði að norðan væru nið- urgrafnir og á þeim sæti krapi og ís. Þvi væri ekki lengur fært nema fyr- ir öflugustu ökutæki inn á Hvera- veOi. Trausti Jónsson veðurfræðingur sagði rétt að nóvember í ár væri veðragóður það sem af er. Hann sagði að nóvember 1933 hefði verið mjög hlýr, einnig 1945 þegar hlýjasti nóvembermánuðurinn mældist 6,1 stig. Síðan voru þessir mánuðir 1987 og 1997 hlýir. Trausti sagði að suð- vestanlands væri örlítiO snjór. Esj- an fékk nokkum hvítan lit á mið- vikudagsnóttina þegar snjóaði þar. -JBP Prófkjör sjálfstæöismanna í Reykjavík 22. og 23. nóvember 2002. Stuöningsmenn Sólveigar eru með opna kosningaskrifstofu aö Suðurlandsbraut S Allir eru hjartanlega velkomnir. Skrifstofan verður opin virka daga frá kl. 10:00 til 21:00 og um helgina frá kl. 13:00 til 18:00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.