Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2002, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2002, Side 12
12 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002 Helgarblað_________________________________________________________________________________________________13V Olíumengunarslysið við Spánarstrendur: Deilt um það hver beri ábyrgðina Spænskir björgunarliöar vinna aö hreinsun strandarinnar í Galisíu. Stjórnvöld á Spáni, Portúgal, Frakklandi og Bretlandi auk forystu Evrópusambandsins deila nú um það hver beri ábyrgð á mengunar- slysinu sem varð þegar olíuflutn- ingaskipið Prestige, með meira en 70 þúsund tonn af olíu innanborðs, laskaðist í brotsjó úti fyrir strönd- um Galisíu á Spáni í síðustu viku með þeim afleiðingum að skipið rifnaði í tvennt á þriðjudaginn og sökk síðan í hafið á um 3500 metra dýpi í um 210 kílómetra fjarlægð frá landi. Ekki er aðeins deilt um það hver beri ábyrgðina á slysinu held- ur einnig hver fari með lögsögu í málinu, hver sé ábyrgur fyrir björg- unaraðgerðum, af hverju skipið var dregið lengra frá landi út í meiri ólgusjó í stað þess að koma því í ör- uggt var og um framkvæmd laga Evrópusambandsins varðandi sigl- ingareglur oliuskipa og eftirlit með þeim. Það liggur nú fyrir að ákvörðun um að draga skipiö lengra frá landi var tekin eftir að yfirvöld í Frakk- landi, Spáni og Portúgal höfðu öll neitað björgunaraðilum um leyfi til að draga það til hafnar í viðkom- andi löndum til viðgerða, í ljósi þess hve málið væri alvarlegt og af ótta við frekari leka úr geymum skips- ins. Þess vegna var það dregið lengra frá landi þar sem það lá ber- skjaldað fyrir veðri og ágangi sjávar, sem að lokum varð til þess að skipið liðaðist í sundur með þeim afleiðing- um að það sökk eftir að hafa rekið inn á portúgalskt hafsvæði. Hver ber ábyrgðina? Spænsk stjórnvöld töldu sig ekki bera ábyrgð á björgunaraðgerðum þar sem olíuskipið hafði rekið inn á portúgalskt hafsvæði á þriðjudag- inn, rétt áður en það sökk, en á móti sögðu portúgölsk stjórnvöld að þau spænsku bæru ábyrgðina þar sem slysið hefði orðið á þeirra hafsvæði. Jose Durao Barroso, forsætisráð- herra Portúgals, sagðist alveg full- viss um það að ábyrgðin væri Spán- verja og bætti því jafnframt við að portúgalski sjóherinn heföi fuilviss- að sig um að skipið hefði aldrei rek- ið inn á portúgalskt hafsvæði. Henrique Freitas, varnarmálaráð- herra Portúgals, flækti hins vegar málið iililega þegar hann sagði að skipið hefði verið á svæði þar sem Portúgalar önnuðust eftirlit og björg- un úr lofti, en þvertók fyrir það að björgunaraögerðir á sjó væru á þeirra ábyrgð, heldur Spánverja. Dráttur gagnrýndur Ákvörðunin um að draga skipið frá landi hefur verið harðlega gagn- rýnd og að sögn talsmanns hol- lenska Smit-björgunarfyrirtækisins, sem sá um aðgerðina, var hún tekin eftir að Spánverjar höfðu alfarið neitað beiðni um að skipið yrði dregið í spænska höfn. „Að draga skipið frá landi í fimm daga jók auðvitað líkurnar á aukn- um skaða og augljóst að betra hefði verið að draga það í var nær landi og skýla því fyrir frekari ágangi sjávar. Likurnar á auknum skaða hefðu alla vega ekki aukist og auð- veldara hefði verið að koma í veg fyrir frekari leka og mengun,“ sagði Hans van Rooy, talsmaður Smit. Að vel athuguðu máli Björgunaraðilar segja það alfarið hafa verið ákvörðun spænskra stjórnvalda að draga skipið frá landi og varði Mariano Roy aðstoð- arforsætisráðherra þá ákvörðun spænsku rikisstjómarinnar í bak og fyrir. „Ákvörðunin var tekin að vel athuguðu máli og af ábyrgð. Það er skoðun mín að með henni hafi ver- ið komið í veg fyrir mun stærra mengunarslys,“ sagöi Roy. Ekki eru þó allir á sama máli og var ákvörðun ríkisstjórnarinnar til dæmis harðlega gangrýnd í Barce- lona-blaðinu E1 Periodico. „Tilgang- urinn var aðeins að bjarga eigin skinni og hugarfarið líkt og hjá þeim sem sópa rykinu undir teppið. Nær hefði verið að deila áhættunni með Portúgölum því mengun er al- þjóðlegt vandamál en ekki einkamál einstakrar þjóðar,“ sagði í leiðara blaðsins. Langtímaáætlun ESB Samkvæmt langtímareglugerð Evrópusambandsins, er gert ráð fyr- ir því að olíuflutningaskip með ein- falt byrði eins og Prestige hverfi af sjónarsviðinu i áfóngum og eftir ár- ið 2005 fái tankskip eldri en 25 ára ekki að sigla með olíufarma eða önnur spilliefni á evrópskum sigl- ingaleiðum. Þessi reglugerð var sett eftir svip- að olíumengunarslys sem varð við strendur Frakklands árið 1999, þeg- ar um það bil þrettán þúsund tonn af olíu láku úr olíuskipinu Eriku, sem einnig hlekktist á í ofsaveðri með þeim afleiðingum að það rifn- aði í tvennt. Olían mengaði um 400 kílómetra af strandlengju Bretagne- skaga og drap að minnsta kosti sex þúsund sjófugla. Alþjóða siglingamálastofnunin hefur sett svipaðar reglur, sem segja að einbyrðings tankskip byggð fyrir 1974 skuli tekin úr umferð fyrir árið 2007 og þau sem byggð hafi veriö eftir það fyrir árið 2015, en staðreyndin er sú að 52% tankskipa, tíu þúsund tonn eða stærri, eru með einfalt byrði eins og Prestige. Ryðkláfana burt Þrátt fyrir áðurnefndar reglugerð- ir hafa heyrst raddir sem vilja ganga enn þá lengra og hraðar til verks og þar á meðal er Chirac Frakklandsfor- seti. Hann gagnrýnir harðlega vanmátt Evrópusambandslandanna til að framfylgja eigin reglum um skipaeftirlit, sem koma eigi í veg fyrir það að stórhættulegir ryðkláfar sigli um heimshöfin og kallar eftir skjótum aðgerðum til að koma í veg fyrir frekari hörmungar. Spænska blaðið E1 Pais tekur undir orð Chiracs og harmar van- mátt Evrópusambandsins, sem leitt hafl til þess að skipa- og olíufélög beiti ýmsum klækjum til að komast fram hjá öryggisreglugerðum sam- bandsins. Glufur séu í reglugerðinni um eftirlit skipa, sem geri eftir- litsmönnum erfitt um vik og eig- endum jafnvel færi á að komast hjá skoðun. Eftirlit í molum Hvað varðar Prestige, sem er í eigu griska skipafélagsins Mare Shipping en skráð á Panama, var því í fyrstu haldið fram að skipið hefði ekki verið skoðað síðan árið 1999, en eigendur komið sér undan skoðun þegar til stóð að skoða það á Gíbraltar í fyrra. Bandaríska skipaskoðunin upplýsti þá að skipið hefði verið skoðað í Kína í mai á siðasta ári og síðan aftur í Dubai í maí sl. Síðan hafi pappirar þess nýlega verið skoðaðir í Rúss- landi. Þetta þykir sumum sanna að eftirlitið á heimsvísu sé í molum og lítið eða ekkert samstarf á mdli eftirlitsaðila. Pappírar séu jafnvel flalsaðir og öllum mögulegum brögð- um beitt til að fá haffærisskírteini, jafnvel mútum. Það er víst að Prestige-slysið á eftir að hafa víðtæk áhrif og vonandi flýta fyrir því að komið verði á stofn sérstakri siglingamálastofnun ESB, sem fari með öryggismál á evrópskum hafsvæðum. Evrópuþingið hefur lýst vilja sín- um um að taka málið fóstum tökum og sett sér það takmark að ryðkláf- arnir hverfi af sjónarsviðinu innan tveggja ára. Öðruvísi verði ekki kom- ist hjá slysum sem þessu við Spánar- strendur. Nokkur mestu olíumengunar- slys sögunnar: Janúar 2000 Um 1300 þúsund tonn af olíu láku úr rifmni neðansjávarolíuleiðslu í Guanabara-flóa í nágrenni Rio de Janeiro í Brasilíu. Desember 1999 Um 13 þúsund tonn af olíu láku í hafið úti fyrir ströndum Frakklands þegar olíuskipinu Eriku hlekktist þar á í ofsaveðri með þeim afleið- ingum að það rifnaði í tvennt. Febrúar 1996 Um 72 þúsund tonn af olíu láku í hafið þegar leki kom að olíuskipinu Sea Empress úti fyrir ströndum Wa- les nálægt hafnarbænum Milford Haven í Pembrokesh-héraði. Janúar 1993 Um 85 þúsund tonn af olíu láku í hafið þegar olíuskipið Braer strand- aði suður af Hjaltlandseyjum. Desember 1992 Um 80 þúsund tonn af olíu láku í hafið þegar sprenging varð í olíu- skipinu Aegean Sea úti fyrir hafnar- borginni La Coruna á Spáni. Maí 1991 Um 260 þúsund tonn af olíu láku i hafið úr olíuskipinu ABT þegar sprenging varð í því úti fyrir ströndum Afríkuríkisins Angóla. Apríl 1991 Um 50 þúsund tonn af olíu láku i Miðjarðarhafið úti fyrir hafnarborg- inni Genúa á Ítalíu þegar olíuskip- ið Haven sökk þar eftir að eldur hafði komið upp í skipinu. Janúar 1991 írakar hleyptu ómældu magni af olíu, sem talið var nema tugum milljónum tonna, út í Persaflóa í Persaflóastríðinu. Mars 1989 Um 39 þúsund tonn af olíu láku úr olíuskipinu Exxon Valdez þegar það strandaði í Prins William-sundi í Alaska. Versta olíumengunarslys í sögu Bandaríkjanna. Ágúst 1983 Um 155 þúsund tonn af olíu láku út í Indlandshaf er spænska risaol- íuskipið Castillo de Bellver sökk úti fyrir vesturströnd Suður-Afríku eft- ir að eldur hafði komið upp í skip- inu. Talið er að um 100 þúsund tonn séu enn í tönkum þess á hafsbotni. Ágúst 1979 Um 160 þúsund tonn af olíu láku úr olíuskipinu Atlantic Express þeg- ar það strandaði úti fyrir stöndum Tobago í Karíbahafi. Mars 1978 Um 230 þúsund tonn af olíu láku úr oliuskipinu Amoco Cadiz í Atlandshaf þegar það strandaði úti fyrir Bretagneskaga í Frakklandi nálægt hafnarborginni Brest. Mars 1967 Um 120 þúsund tonn af olíu láku úr olíuskipinu Torrey Canyon út i Atlantshaf þegar það strandaði við Shilly-eyjar úti fyrir Cornwall í Bretlandi. Sögulegur fundur NATO Tímamót urðu í sögu Atlantshafs- bandalagsins (NATO) í vikunni þegar leið- togar aðildarþjóð- anna buðu sjö ríkjum i Austur-Evrópu inn- göngu, þar á meðal Ey strasaltsríkj unum sinn tilheyrðu Sovét- ríkjunum sálugu. Þá samþykktu leið- togarnu- á fundi sínum í Prag í Tékk- landi tillögu ráðamanna í Washington um stofnun tuttugu þúsund manna viðbragðssveitar sem á að fá það hlut- verk að bregðast við nýjum ógnum sem steðja að heiminum og er ógn af völdum hryðjuverkamanna þar efst á blaði. Sjálfsmorðsárásar hefnt ísraelskar hersveitir réðust snemma á fóstudagsmorgun inn í Bet- lehem og umkringdu Fæðingarkirkj- una til að koma i veg fyrir að palest- ínskir harðlínumenn gætu leitað þar skjóls, eins og þeir gerðu fyrr á árinu. Innrásin var í hefndarskyni fyrir sjálfsmorðsárás Palestínumanns á strætisvagn i Jerúsalem á fimmtu- dagsmorgun. í þvi tilræði létust að minnsta kosti ellefu ísraelskir borgar- ar, þar af mörg börn sem voru á leið í skóla. Palestínsku skæruliðasamtökin Hamas gengust við tilræðinu. Stuöningur við afvopnun Leiðtogar ríkja Atlantshafsbanda- lagsins (NATO) lýstu yfir stuðn- ingi sínum í vik- unni við aðgerðir Sameinuðu þjóð- anna sem miða að því að losa Sadd- am Hussein íraks- forseta við gjör- eyðingarvopn sín. Vegna andstöðu nokkurra ríkja við einhliða hemaðar- aðgerðir Bandaríkjamanna gegn írak var stuðningurinn ekki jafnafdráttar- laus og George W. Bush Bandaríkja- forseti hefði óskað. Vopnaeftirlits- menn SÞ fóru til Bagdad í vikunni, eftir fjögurra ára fjarveru, til að und- irbúa starf sitt. Hlutverk þeirra er að sjá tO þess að írakar fari að ályktun- um SÞ um að eyðileggja gjöreyðingar- vopn sín. írösk stjómvöld hafa heitið fullri samvinnu við vopnaeftirlits- mennina en ekki eru allir sem taka orð þeirra trúanleg. Alvarleg olíumengun Umhverfissinnar óttast mjög alvar- lega oliumengun á norðvesturströnd Spánar eftir að olíuskipið Prestige brotnaði í tvennt í vikunni og sökk undan ströndum landsins. Rúmlega sjötíu þúsund tonn af olíu voru í skip- inu. Töluverðu magni olíu hefur þeg- ar skolað á land og þekur hún fjörur á löngum kafla. Gjöful fiskimið heima- manna eru í hættu og sjófuglar hafa margir orðið olíunni að bráð. Undir vikulok hamlaði veður hreinsunarað- gerðum. Nýr formaður í ísrael Verkamanna- flokkurinn í ísrael kaus sér nýjan formann í vik- unni. Sá heitir Amram Mitzna og er borgarstjóri í Haifa. Verkefni hans verður að leiða flokkinn í þingkosningunum sem haldnar verða þann 28. janúar næstkomandi. Mitzna er 57 ára gamall, fyrrum foringi í ísra- elska hernum og er fylgismaður skil- yrðislausra friðarviðræðna við Palest- ínumenn. Þá hefur hann lýst yflr þeim vilja sínum að kalla heim mest- allt herlið ísraela frá hernumdu svæð- unum á Vesturbakkanum og Gaza. Lykketoft vill leiöa krata Mogens Lykketoft, fyrrum utanrík- isráðherra Danmerkur, hefur lýst áhuga sínum á að taka við leiðtoga- starfi jafnaðarmannaflokksins af Poul Nyrup Rasmussen, fyrrum forsætis- ráðherra. Nyrup hefur tilkynnt afsögn sina og nýr formaður verður valinn á sérstökum fundi í næsta mánuði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.