Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2002, Blaðsíða 38
38
HelQarblaö I>'V LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2002
sviti og tár
- box á íslandi eftir 50 ára bið
Það var mikið um að vera í Laugardalshöllinni fyrir réttri
viku þegar þar fór fram boxkeppni. Þetta var sögulegur við-
burður í þeim skilningi að í fyrsta sinn í um 50 ár er box
ekki lengur ólöglegt á íslandi. Með lagabreytingum á Alþingi var
leyft að æfa og keppa í svokölluðum ólympískum hnefaleikum.
Sumir gengu því til þessa leiks í hátíðarskapi þar sem þeir skynj-
uöu endalok ófrelsis og upphaf betri tíma. Öðrum hefur eflaust
fundist að hér væri stigið skref aftur á bak enda hefur hart verið
deilt um það hvort hnefaleikar væru hættulegir eða ekki. Margir
urðu til þess að rifja upp að ástæðan fyrir því að bannið var upp-
haflega sett á var dauðsfall ungs manns sem tengdist iðkun þessar-
ar iþróttar. Fylgjendur bentu hins vegar ítrekað á að hnefaleikar
með réttum hlífðarbúnaði væru ekkert hættulegri en ýmsar austur-
lenskar sjálfsvarnar- og bardagaíþróttir sem hér eru stundaðar fyr-
ir opnum tjöldum.
Hvað sem líður afstöðu manna til þeirra breytinga sem hafa orð-
ið á frelsi okkar til þess að berja mann og annan þá fór ljósmynd-
ari DV á vettvang og fylgdist með bardaganum bæði utan hrings og
innan og skrásetti það sem fram fór gegnum linsuna. -PÁÁ
1. Þeir eru ekki margir meðal okkar ennþá sein voru virkir í iðkun
hnefaleika meðan þeir voru enn leyfilegir fyrir um hálfri öld. Einn
þeirra seigu, gömlu jaxla sem enn gengur uppréttur er Guðmund-
ur Arason sein þarna sést ganga í salinn og einn hinna ungu kepp-
enda fylgir fast á hæla hans.
2. Hnefaleikakappar vefja hendur síuar með sérstöku hlífðarbandi
til þess að verja þær meiðslum. Það er sagt að hnefaleikakappar til
forna sem börðust berhentir hafi látið hendurnar liggja lengi í
sterku saltvatni til þess að herða þær og barið tíinunum saman í
tunnur fullar af sandi.
3. Fyrsti keppandinn í fyrsta bardaganum er farinn inu og félagar
hans sitja þöglir og fylgjast með á sjónvarpsskjánum. Það er Skúli
„Tyson" Vilbergsson sem situr og bíður örlaga sinna.
4. Bandarískur hnefaleikakappi sein er þátttakandi í þessuiu fyrsta
„frjálsa" bardaga stígur dans bak við tjöldiu og liitar upp hnefana.
Bak við tjöldin bíða íslenskir andstæðingar sem liafa ekki boxað í
hálfa öld.
LAUOAIIDAGUR 23. NÓVEMBER 2002
Helgarblacf DV
43
5. Það er ekkert óttablik að sjá í auga þessa unga
pilts sem er í þann veginn að ganga til bardaga og
er fyrstur íslendinga til að berjast með löglegum
hætti. Hann er 15 ára Keflvíkingur og heitir Ævar
örn Ómarsson. Hann er löglegur keppandi en
ólögráða unglingur.
Þráðurinn liggur beint frá honum aftur í gegnum
aldiruar til skylmingaþræla eða gladíatora eins og
þeir voru kallaðir hjá hinum fornu Rómverjum.
Munurinn er sá að hann inun ganga heill af velli ef
allt fer að óskum og er því að hætti fornra Ein-
hcrja ódeigur því hann veit að eftir þennan dag
kemur nýr dagur ineð nýjar orrustur.
6. Þar sem sannir karlmenn takast á eru sannar
konur aldrei langt undan. Ilvort það er alsiða við
keppnir sem þessar að hafa lítt klæddar konur að
störfum í hringnuni til að halda uppi spjöldum veit
ég ekki en það var gert í Laugardalshöllinni. Ekki
er að efa að karlhormónið testesterón í bland við
adrenalín er nauðsvnlegt eldsneyti í bardaga sem
þessum og fagurskaptir þjóhnappar stúlkunnar
halda flæðinu uppi. Þetta er óþekkt þegar keppt er
í íslenskri glímu.
7. Fiinintán ára gainall Njarðvíkingur, Axel Borg-
arsson, grettir sig þegar blóðið rennur úr börðu
nefi hans.
8. Þjálfarar unga piltsins liafa stöðvað bardagann
og revna að stöðva lieitt blóðið sem rennur úr nefi
Axels. Það er alþckkt húsráð að blóðblettir í fötum
nást úr með köldu vatni.
9. Önnur lota er að hcfjast en útsendingarstjórinn
í horninu horfir dreyminn á stúlkuna sem lieldur
uppi spjaldinu.
10. Goðsögnin hittir ungan sigurvegara eftir fyrsta
bardaga keppninnar. Bubbi Morthens æfði box á
yngri árum í Danmörku og var þekktur áflogahund-
ur sem aldrei koinst í hringinn með löglegum
hætti. Hann talar við fyrsta löglega sigurvegarann í
boxi á íslandi sem er Ævar Örn Ómarsson. Við
lilið Bubba situr Óniar Ragnarsson sem aldrei er
vitað til þess að hafi barið neinn.
11. Eftir bardagann. Örþreyttur en í sigurvímu situr Ævar Örn, bú-
inn að setja nafn sitt á spjöld íslenskrar boxsögu með eftirminni-
legum hætti. Það kostar blóð, svita og tár að komast þangað sem
hann er og halda velli þar.
DV-mvndir Þorvaldur Örn Kristmundsson