Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 Helgarblað Cherie Blair, forsætisráðherrafrú í Bretlandi, í fjölmiðlafári: Nútímakona með marga bolta á lofti „Ég er engin ofurkona." Þær voru áreiðanlega margar kon- urnar sem gátu tekið undir með Cherie Blair, forsætisráðherrafrú i Bretlandi, í vikunni þegar hún kom fram fyrir skjöldu til að greina frá sinni hlið meints hneykslismáls sem þá hafði tröllriðið breskum fjölmiðl- um í heila viku, eða meira, þar sem reynt var að gera fasteignakaup henn- ar í Bristol tortrýggileg. Og bað um leið um skilning þjóðarinnar. Nei, Cherie er engin ofurkona, bara venjuleg nútímakona sem færist stundum of mikið í fang. Hún er með allt of marga bolta á lofti, eins og hún sagði sjálf. Og þess vegna kannski óhjákvæmilegt að hún missi einhvem þeirra fyrr eða síðar. Cherie, sem er orðin 48 ára, er ekki bara virtur lögfræðingur, og einstaka sinnum dómari, með öllu sem því fylgir, heldur þarf hún líka að sinna bömunum sínum fjórum og eigin- manninum Tony, auk þess sem hún þarf að koma fram opinberlega sem forsætisráðherrafrú, heima jafnt sem heiman. „Sólarhringurinn er bara ekki nógu langur." íbúð fyrir soninn og önnur til írafárið í breskum fjölmiðlum að undanfórnu snerist um kaup Cherie Blair á tveimur íbúðum í Bristol þar sem Euan, elsti sonur forsætisráð- herrahjónanna, stundar háskólanám. Stúdentinn á að búa í annarri en hin var keypt sem fjárfesting, þótt mörg- um þyki það ráðslag bera vott um lít- ið fjármálavit. Fyrir herlegheitin greiddi Cherie Blair rúmlega sextíu miiljónir króna. Og ekkert athugavert né ólöglegt við það. Öðru máli gegnir hins vegar um manninn sem lagði Cherie lið við fast- eignakaupin og tókst meira að segja að fá afslátt, ástralska kaupsýslu- manninn Peter Foster. Hann þykir í meira lagi vafasamur pappír. Það hef- ur nefnilega komið í Ijós að Foster þessi er margdæmdur svikahrappur sem hefur setið inni í að minnsta kosti þremur löndum fyrir svik og prettik með megrunarlyf. Foster er unnusti Carole Caplin, góðrar vinkonu Cherie og eins konar ráðgjafa hennar í líkamsrækt, matar- æði, klæðnaði og öðru sem við kemur lífsstíl hennar. Carole er fyrrum nekt- arfyrirsæta og á kafi í alls kyns nýald- arspeki. Móðir Carole hefur einnig verið dregin á flot í bresku fjölmiðlunum í tengslum við þetta mál. Móðirin, sem heitir Sylvia, er miðill og hefur vakið áhuga Cherie á spíritisma og græður- um af ýmsu tagi. Einhver gárunginn sagði áhuga Cherie á félagsskap við framliðna rökrétt framhald þess að hún hefur umgengist þingmenn jafh- lengi og raun ber vitni. „AUir glíma við streituna á mis- munandi hátt. Ég geri ráð fyrir að þessi undarlega nýaldarstefna sé að- ferð Cherie til þess,“ sagði vinur Cherie í viðtali við blaðið Observer. Bara misskilningur Það var hið hægrisinnaöa æsifréttablað Mail sem fyrst vakti at- hygli á því að forsætisráðherrafrúin hefði notið aðstoðar dæmds svika- hrapps við fasteignakaupin. Þær fúll- yrðingar voru bomar til baka og sagt að engin tengsl væru milli Cherie og Fosters. Það var ekki fyrr en Daily Mail birti tölvubréf milli Cherie og Fosters að forsætisráðherrafrúin við- urkenndi að sér heföi orðið á í mess- unni. Hún tók á sig alla ábyrgö á því að talsmenn forsætisráðherrans höfðu ekki sagt satt og rétt frá málinu í fyrstu og að það hefði allt verið vegna eintóms misskilnings. „Fyrstu viðbrögð mín þegar ég fékk spumingarnar frá Mail on Sunday voru að standa vörð um einkalíf fjöl- Cherie Blair Breska forsætisráöherrafrúin hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu vegna fasteignakaupa sinna. skyldu minnar og þó einkum og sér í lagi um son minn sem er að hefja há- skólanám og er fluttur að heiman,“ sagði Cherie Blair á þriðjudagskvöld og átti í erfiðleikum með að halda aft- ur af tárunum í beinni útsendingu á breskum sjónvarpsstöðvum. „Þessi viðbrögð, sem ég tel að hver einasta móðir þekki og sú ósk mín að svara ekki hvaða spumingum sem fjölmiðl- ar kjósa að beina til mín, leiddu til þessa misskilnings." Stappað í hana stálinu Reyndar hafði það dregist um hálf- tíma að hún kæmi fram til að skýra mál sitt þar sem hún var dauðhrædd um að brotna saman i beinni útsend- ingu. Hennar nánustu þurftu því að stappa í hana stálinu áður en hún lagði í að mæta fréttamönnum, og þjóðinni, augliti til auglits. Guðlaugur Bergmundsson blaöamaður og eftirlýstum svikahrappi fyrir fast- eignakaupunum. Cherie sagðist hins vegar' ekki hafa kunnað skil á fortíð Fosters í neinum smáatriðum, að öðru leyti en því að hann hefði lent í einhverjum vandræðum. Hún sagði að þegar hún hefði fyrst heyrt hans getið hefði ekki hvarflað að sér að hann ætti eftir að koma henni í þessi vandræði. „En það er ekki mitt að velja vinum mínum vini,“ sagði Cherie. Brottvísun úr landi Þar með er ekki öll sagan sögð, langt því frá. Foster á nefnilega yfir höfði sér að vera vísað úr landi í Bret- landi. Og Cherie hefur verið sökuð um að hafa haft afskipti af því ferli öllu saman, meðal annars að hún hafi verið lögmönnum Fosters til ráðgjaf- ar. Ailar slíkar ásakanir hafa verið bomar til baka en Cherie viðurkenndi að hafa talað í síma við lögmenn svikahrappsins. í þvi skyni, sagði hún, að geta fullvissað vinkonu sína Carole um að mál unnusta hennar fengi eðlilega meðferð í kerfinu. Carole Caplin rauf þögn sína í mál- inu á fimmtudagsmorgun þegar hún lýsti því að Cherie hefði neitað að lesa skjöl um brottvisunarmál Fosters. Carole fékk pappírana í hendurnar þegar hún dvaldi í íbúð í eigu Cherie. Skoska blaðið The Scotsman hélt því fram á fimmtudag að Cherie hefðu verið sýnd öll málskjölin. Blaðið sagði að með þessu hefði Cherie verið að launa Foster greiðann við íbúðakaup- in í Bristol. Cherie sagði á þriðjudag að þótt sig langaði til að skríða undir stein og hverfa ætlaði hún ekki að gera það. Ætli sé ekki jafnvíst að breskir fjöl- miðlar muni ekki sleppa af henni tak- inu fyrr en í fulla hnefana. Byggt á efni frá BBC, Libération, The Guardian, The Observer, Reuters, Jyllands-Posten og The Tlmes Annars er það alþekkt að Cherie hefur ávallt gert allt sem í hennar valdi hefur staðið til að gæta þess að það sem gerist innan veggja heimilis- ins fari ekki þaðan út. Skemmst er að minnast þess að hún beitti lögbanni til að koma í veg fyrir að fyrrum barnapía þeirra hjóna gæti kjaftað frá því sem hún hafði oröið vitni að í vist- inni. Og skipti þá engu þótt það væri ekkert merkUegra en að upplýsa að Tony Blair sé mikdl áhugamaður um sólbrúnku og að Peter Mandelson, fyrrum ráöherra í stjóm Blairs, sé veikur fyrir bleiku kampavíni. Mörgum hefur þótt undarlegt að Cherie Blair skyldi treysta dæmdum I fylgd með eiginmanninum Cherie Blair þarf oft aö bregöa sér af bæ með eiginmanni sínum, forsæt- isráöherra Bretlands. Hér má sjá þau meö Silvio Berlusconi, forsætisráö- herra Ítalíu, í brúðkaupsveislu dóttur spænska forsætisráöherrans. Erlendar fréttir vlku Leiðtogafundir ESB Leiðtogar Evróþú- sambandsins, sem sátu fund í Kaup- mannahöfn í viku- lokin, létu ekki und- an áköfum þrýstingi Bandaríkjamanna og Tyrkja um að efna fljótlega tU aðildarviðræðna við Tyrki. Ýmsir leiðtoganna sögðu að gassagangurinn í Washington og Ankara hefði aðeins orðið tU að spUla fyrir. Ekki verður tékin ákvörðun um aðUdarviðræðurnar við Tyrki fyrr en eftir tvö ár og' þá mun frammistaða þeirra í mann- réttindamálum vega þungt. Þá sögðu leiðtogamir að ekkert þýddi fyrir tíu umsóknarríkin, sem vonast tU að ganga í ESB 2004, að heimta meiri styrki tU að gera þeim inn- gönguna auðveldari. Scud til Jemens Bandarískir ráðamenn töldu sig hafa komist í feitt þegar þeir létu stöðva flutningaskip á Arabíuflóa í vikunni og um borð fundust margar Scud-flaugar frá Norður-Kóreu. Síð- ar kom í ljós að flaugamar voru á leið tU Jemens þar sem stjómvöld ætla að nota þær tU að styrkja vam- ir landsins. Ekkert ólöglegt var við kaup Jemena á flaugunum og urðu Bandaríkjamenn að sleppa skipinu, enda Jemenar tryggir bandamenn í baráttunni gegn hryðjuverkum. Þá hafa bandarískir embættismenn beðið Spánverja afsökunar enda voru það spænskir hermenn sem sigu niður í skipið og stofnuðu sér í hættu. Þá hafa Norður-Kóreumenn farið fram á afsökunarbeiðni. Ósammála um taugagas íraskur herfor- ingi visaði á bug í vikunni frétt bandaríska dag- blaðsins Wash- ington Post um að íslömsk öfgasam- tök með tengsl við | hryðjuverkahópinn al-Qaeda hefðu fengið taugagas frá írökum. Blaðið vísaði til þess að bandarískir emb- ættismenn teldu sig hafa fengið trú- verðugar upplýsingar um að af- hending vopnanna hefði farið fram í síðasta mánuði eða í októberlok. Sagt er að öfgamennirnir hefðu smyglað efninu úr landi um Tyrk- land. íraski herforinginn sagði aftur á móti að þessi frétt væri fáránleg þar sem írakar hefðu eyðiiagt öll slík vopn snemma á tíunda áratug síðustu aldar. Sakaöir um yfirgang Vopnaeftirlits- menn Sameinuðu I þjóðanna tóku aftur upp þráðinn í vikunni og leit- uðu gjöreyðingar- vopna í írak sem ráðamönnum er meinað að eiga samkvæmt álykt-1 unum SÞ. Sjálfir segjast írakar ekki eiga nein slík vopn í fórum sínum. írösk stjómvöld afhentu SÞ um síð- ustu helgi nærri tólf þúsund sfður af gögnum um vopnaframleiðslu sína. Bandaríkjamenn ákváðu upp á sitt eindæmi að taka að sér að dreifa óstyttri skýrslu íraka til ann- arra fastafulltrúa í Öryggisráðinu, þótt skýrt væri tekið fram í ályktun- um SÞ að aðeins vopnaeftirlitsmenn fengju skýrsluna óstytta. Banda- ríkjamenn voru sakaðir um yfir- gang vegna þessa. Stórbrunar I Evrópu Stórbrunar urðu í tveimur borg- um Evrópu um síðustu helgi, í Þrándheimi í Noregi og Edinborg í Skotlandi. I Þrándheimi bmnnu fjögur gömul hús við göngugötu í miðborginni og að sögn borgaryfir- valda var þetta mesti bruni þar á bæ í 161 ár. í Edinborg varð einnig gífurlegt tjón þegar eldur læsti sig í nokkur gömul hús í svokölluðu Cowgatehverfi. Þar brunnu nokkur af elstu húsum borgarinnar svo að segja til grunna. Hverfið er á heims- minjaskrá UNESCO.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.