Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Síða 16
16
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002
Helgarblað
DV
Malcolm Lowry. „Hvaö yröi um mig án eymdar minnar?" spuröi þessi hæfi-
leikaríki rithöfundur.
Snilligáfa og
sjálfseyðingar-
hvöt
Skáldsaga Molcolms Lowrys, Under the Volcano, er af
mörgum talin ein af bestu skáldsögum 20. aldar. Lowry
gat aldrei fylgt þeirri sögu eftir enda var hann áfengis-
sjúklingur með alvarlega geöbresti.
Malcolm Lowry fæddist áriö 1909 i Cheshire
i Englandi. Hann átti alla tíð í stormasömu
sambandi við foreldra sína en faðir hans hélt
honum uppi mestan hluta ævinnar.
Lowry fór á fyrsta fyllirí sitt fjögurra ára
þegar hann komst óvart í heimabrugg en hann
byrjaði að drekka fyrir alvöru fimmtán ára
gamall. Á unglingsárum fór hann að yrkja ljóð
og skrifa sögur sem birtust í skólablöðum.
Sautján ára fór hann á sjóinn í sex mánuði sem
káetudrengur á vöruskipi sem hélt til Austur-
landa. í ferðinni hélt hann dagbók sem varð
uppistaðan i skáldsögu hans Ultramarine.
Skömmu eftir útkomu skáldsögunnar kynnt-
ist Lowry stórglæsilegri bandarískri konu sem
hann hafði hitt á Spáni, Jan Gabriel. „Ég er svo
ástfanginn að ég gæti dáið,“ sagði Lowry við
vin sinn. Hann skrifaði Jan fjölmörg snilldar-
lega stíluð ástarbréf,
sagði henni að hann
myndi verða heims-
frægur rithöfundur og
marka djúp spor í bók-
menntasöguna. Hann
bað hennar nokkrum
sinnum áður en hún
játaðist honum. Jan
komst fljótlega að því
að Lowry var drykkju-
maður sem missti
stjórn á sér þegar hann
drakk og einn daginn
eyðilagði hann allt inn-
bú þeirra í drykkjulát-
um.
Þreifst á eymd
Lowry virtist þrífast
á eymd og spurði konu
sína ótal sinnum:
„Hvað yrði um mig án
eymdar minnar?"
Hann var ákaflega hjá-
trúarfullur og var
sannfærður um að
hann yrði ekki langlíf-
ur. Hjónin fluttu til
Mexíkó og þar skrifaði
Lowry smásögu sem
varð uppistaðan í
meistaraverki hans,
Under the Volcano. Þar
er lýst síðasta deginum
í lífi drykkfellds kon-
súls sem Lowry gaf
nafnið William
Erikson og er myrtur í
lok bókarinnar. Ekki
löngu síðar las Lowry i
dagblaði frétt af ferða-
manni sem hafði verið
skotinn til bana. Ferða-
maðurinn hét William
Erikson. í hjátrú sinni
trúði Lowry því að með því að gefa konsúlnum
nafnið William Erikson hefði hann valdið
dauða hins raunverulega Williams Eriksons.
Lowry hafði enga stjórn á drykkjunni og eitt
sinn drakk hann fulla flösku af ólífuolíu sem
hann hélt að væri rakspíri með miklu alkó-
hólmagni. Eiginkona hans yfirgaf hann vegna
óreglu hans en sneri til hans aftur. Drykkjan
skánaði ekki þrátt fyrir loforð hans og hann
seldi meira að segja vekjaraklukku þeirra til að
eiga fyrir áfengi. Einn daginn sagði Jan honum
að hann yrði að velja milli hennar og flöskunn-
ar. Hann átti ekki í vandræðum með að gera
upp hug sinn og hún yflrgaf hann þótt hún
elskaði hann enn. Hún skrifaði honum ástríðu-
full bréf sem hann svaraði ekki en hann birti
hluta af þeim orðrétt i Under the Volcano.
Meistaraverkið
Jan skrifaði eiginmanni sínum: „Þú ert mik-
ill rithöfundur, býrð yfir miklum gáfum og ert
hæfileikaríkasti maður sem ég hef kynnst. Þú
gætir orðið einn af mestu rithöfundum aldar-
innar. En þú þarfnast hjálpar, ekki plásturs."
Hún vildi að hann færi í langa sálfræðimeð-
ferð en á þvi hafði hann ekki áhuga og hann
svaraði ekki bréfi hennar. Hann hélt áfram að
drekka. Þrisvar var honum kastað í fangelsi
fyrir drykkjulæti á almannafæri. Eftir það
flutti hann til Los Angeles og fór í áfengismeð-
ferð sem skilaði engum árangri. 1 Los Angeles
kynntist Lowry Margerie Bonner, fyrrverandi
leikkonu, handritahöfundi og höfundi
leynilögreglusagna. Hún átti eitt hjónaband að
baki með alkóhólista sem hafði framið sjálfs-
morð. Þegar þau Lowry hittust í fyrsta sinn
var það ást við fyrstu sýn hjá þeim báðum.
„Ég vissi samstundis að ég hafði mætt örlög-
um rnínurn," sagði Margerie systur sinni.
Eiginkona Lowrys skildi við hann og hann
kvæntist Margerie. Þau fluttust til Kaliforníu
þar sem þau byggðu sér kofaskrifli. Lowry hóf
vinnu að þriðju útgáfu sinni á Under the
Volcano sem þrettán útgáfuforlög höfnuðu.
Hann gafst ekki upp heldur hóf að vinna að
fjórðu útgáfunni.
Árið 1945 fluttu hjónin til Mexíkó en þar
fékk Lowry bréf frá breskum útgefanda, Jon-
athan Cape, sem bauðst til að gefa út Under
the Volcano ef hann breytti henni. Lowry
svaraði honum í þrjátiu blaðsíðna bréfi þar
sem hann sýndi fram á að allt sem stæði í bók-
inni skipti máli fyrir framvindu sögunnar og
engu væri hægt að breyta. Cape samþykkti að
gefa bókina út óbreytta og sama dag fékk
Lowry þær fréttir að útgefandi í Bandaríkjun-
um hefði samþykkt að gefa bókina út. Hann
hafði verið níu ár að skrifa hana. í Bandaríkj-
unum var Under the Volcano hyllt sem meist-
araverk en viðtökur á Bretlandi voru ekki
eins lofsamlegar.
Geðbrestir og dauði
Gömul, ógreidd sekt varð til þess að
mexíkóska lögreglan fylgdi hjónunum að
landamærunum og rak þau úr landi. Þau
héldu til Evrópu. Drykkjusiðir Lowrys voru
enn þeir sömu. Vinir Margerie sögðu henni að
einn daginn myndi Lowry drepa hana í
drykkjuæði. Nótt eina reyndi hann að kyrkja
hana á hótelherbergi þeirra í París en hróp
hennar kölluðu starfslið á vettvang sem bjarg-
aði henni. Eftir það var Lowry vistaður á geð-
deild um tima.
Hann var öðru hvoru í áfengismeðferðum og
læknar höfðu greint hann manísk-depressífan.
Hann sagði þeim að hann gæti ekki starfað og
lifað án áfengis. Eftir átján ára hjónaband sagði
eiginkona hans honum að ef hann hætti ekki að
drekka myndi hún yfirgefa hann. Júníkvöld
árið 1957 lentu þau í áflogum. Hún henti hálf-
tómri ginflösku hans í vegginn og hann réðst á
hana með brotna flöskuna. Hún lagði á flótta og
hann elti hana. Hún komst inn í hús nágranna
og dvaldi þar um nóttina. Um morguninn sneri
hún heim og kom að honum látnum á gólfinu.
Pillubox með svefntöflum Margerie var horfið
en fannst síðan í skúffu hennar galtómt.
Malcolm Lowry var 47 ára gamall þegar
hann lést.
Bókalisti Máls og mennin;
Allar bækur
1. Jón Baldvin - Tilhugalíf.
Kolbrún Berqþórsdóttir
2. Njála - barnabók. Brynhildur Þór-
arinsdóttir
3. Morðið í Alþingishúsinu. Stella Blómkvist
4. Leiðin til Rómar. Pétur Gunnarsson
5. Skrýtnastur er maður sjálfur.
Auður Jónsdóttir
6. öðruvísi dagar. Guðrún Helgadóttir
7. Lúsastríðið. Brynhildur Þórarinsdóttir
8. Jólin koma. Jóhannes úr Kötlum
9. Halldór Laxness - Lif i skáldskap.
Ólafur Raqnarsson
10. Stolið frá höfundi stafrófsins. Davíð Oddsson
Skáldverk
1. Morðið í Alþingishúsinu.
Stella Blómkvist
2. Leiðin til Rómar. Pétur Gunnarsson
3. Stolið frá höfundi stafrófsins. Davíð Oddsson
4. Röddin. Arnaldur Indriðason
5. Lovestar. Andri Snær Maqnason
6. Endastöðin. Jay Parini
7. Grafarþöqn. Arnaldur Indriðason
8. Mýrin. Arnaldur Indriðason
9. Hiarta, tungl og bláir fuglar.
Viqdís Grímsdóttir
10. Er aexlið illkynja. Jóhannes Ragnarsson
Metsölulisti bókabúöa Máls og menningar 3.12. - 9.12.
Dýrmætasta
eignin
Þórarinn Þórarinsson blaðamaður segir frá uppáhaldsbókunum sínum
„Þær eru auðvitað orðnar býsna margar
bækurnar sem manni þykir vænt um en sú
bók sem ég get síst hugsað mér að vera án er
gamli doðranturinn minn, The Best of
Raymond Chandler. Lengi vel leit ég á hana
sem mína dýrmætustu
eign. Þetta var biblían
mín á menntaskólaárun-
um og ég hef aldrei skil-
ið hana viö mig á þeim
17 árum sem ég hef átt
hana.
Bókin geymir sex
skáldsögur Chandlers
um einkaspæjarann
Philip Marlowe, þar á
meðal The Big Sleep og
Farewell My Lovely.
Held það vanti bara The
Litle Sister og þá væru
þær allar saman komnar
Marlowesögurnar sem
Chandler skrifaði í fullri
lengd.
Bókmenntasagan
geymir auðvitað meiri
spámenn en þessa gömlu
fyllibyttu en mér er al-
veg sama. Fyrir mér eru
þessar sögur bókmenntir
í hæsta klassa. Dashiell Hammett hefur verið
mikið hampað undanfarið. Hann ruddi þessari
gerð reyfara vissulega braut en var þó meðvit-
aður um að það þyrfti einhvern annan til að
gera þá að bókmenntum og auðvitað var það
Chandler sem gerði það.
Myndmálið er stök snilld
og persóna Marlowes er
einstök. Það er margbúið
að reyna að feta í fótspor
Chandlers með frekar
döprum árangri. Spenser
og Mike Hammer eru til
dæmis algjörir ræfiar í
samanburðinum við
þann gamla, sem hefur
það líka fram yfir Sam
Spade að hann er ekki
skíthæll.
Heildarútgáfan af ljóð-
um ísaks Harðarsonar
árið 2000 var mikill
happafengur og það er
líka gott að vita af henni
innan seilingar. Annars
er ég alveg búinn að gef-
ast upp á ljóðunum og
les enga lengur í þeirri
deild nema ísak og Lord
Byron.“
Umsjón:
Kolbrún
Bergþórsdóttir
Bókasíðan
Prýðileg
afþreying
PA'IRKIA
m\s
CIFflR * #
æssjp
Likamsleifar eftir Patriciu Cornwell
Þeir sem vilja
lesa fleiri saka-
málasögur en
bækur Arnaids
Indriðasonar ættu
að skella sér í
lestur á Patriciu
Cornwell. Hin
einkar geðþekka
og gáfaða sögu-
persóna, réttarlæknirinn Kay
Scarpetta, á hér, eins og svo oft áður,
í höggi við raðmorðingja. Ein af þess-
um ágætu sakamálasögum sem fylla
mann eftirvæntingu við lesturinn. Sá
sem byrjar á þessari bók hlýtur að
ljúka við hana. Prýðileg afþreying.
vtmœsm |
Bækur eru saklausir
hlutir en rithöfundar eru
œgilegar verur.
Þórbergur Þóröarson
Bókalisti Eymund:
Allar bækur
1. Jón Baldvin - Tilhugalíf.
Kolbrún Bergþórsdóttir
2. Sonja - Líf og leyndardómar.
Reynir Traustason
3. Röddin. Arnaldur Indriðason
4. Fjandsamleg yfirtaka.
Boqi Þór Siquroddsson
5. Landneminn mikli.
Viðar Hreinsson
6. Leggðu rækt við ástina.
Anna Valdimarsdóttir
7. ísland í aldanna rás III.
Illuqi Jökulsson
8. Stolið frá höfundi stafrófsins.
Davíð Oddsson
9. Eyðimerkurdögun. Waris Dirie
10. Mýrin. Arnaldur Indriðason
Skáldverk
1. Röddin.
Arnaldur Indriðason
2. Stolið frá höfundi stafrófsins.
Davíð Oddsson
3. Myrin. Arnaldur Indriðason
4. Don Kíkóti.
Miquel de Cervantes
5. Lovestar.
Andri Snær Maqnússon
6. Bridget Jones - á barmi
tauqaáfalls. Helen Fielding
7. Grafarþögn.
Arnaldur Indriðason
8. Nafnlausir vegir.
Einar Már Guðmundsson
9. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason
10. Hjarta, tungl og bláir fuglar.
Viqdís Grímsdóttir
Barnabækur
1. Gúmmí-Tarsan.
Ole Lund Kirkegaard
2. Gallsteinar afa Gissa.
Kristín Helqa Gunnarsdóttir
3. Artemis Fowl-samsærið.
Eoin Colfer
4. Snuðra og Tuðra í jólabakstri.
Iðunn Steinsdóttir
5. Öðruvísi dagar.
Guðrún Helqadóttir
Metsölulisti Eymundssonar 4.12.-10.12
Á’VTWU)-
Társan
Ú.