Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Blaðsíða 20
H e / C) a rb l cj c) DV LAUGARDAGUR I-+. DESEMBER 2002 « POnSCHE NLJ GETA ALLIR EIGNAST PORSCHE FJARSTÝRÐUR PORSCHE 911 TURBO Magnað leikfang sem nær allt að 25 km hámarkshraða. Verð kr. 9.895 \9\ Vagnhöfða 23 • Sfmi 590 2000 • www.benni.is V A F.h. Fasteignastofu Reykjavíkurborgar er óskað eftir umsóknum verk- taka um að fá að taka þátt i lokuðu útboði vegna uppsteypu og utan- hússfrágangs tengibyggingar við Laugalækjarskóla í Reykjavík. Helstu magntölur eru: Malarfylling 1.000 m3 Mótafletir 4.500 m2 Steypa 750 m3 Bendistál 75 tonn Stálvirki 1.900 kg Þakdúkur, einangrun og farg 800 m2 Einangrun og sinkklæðning á útveggi 350 m2 Múrhúðun og málun útveggja 550 m2 Forvalsgögn fást hjá Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar frá og með 17. desember 2002. Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skila á sama stað eigi síðar en kl. 16.00 6. janúar 2003. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkitlcjuvegi 3-101 Reyk|avik-Sfml S70 5800 Fax S62 2616 - Netfang: isrerhus.rvk.is FORVAL F.h. Gatnamálastofu Reykjavíkur er óskað eftir umsóknum verk- taka um að fá að taka þátt í lokuðu útboði vegna endurnýjunar gatna í miðborginni á næsta ári. Um verður að ræða tvö álíka stór útboð, annars vegar hluta Skólavörðustígs ásamt Vegamótastíg og hins vegar hluta Bankastrætis og Bergstaðastrætis. Helstu magntölur eru áætlaðar: Gröftur Fyllingar Endurnýjun holræsa Snjóbræðsla Malbik Stein- og hellulögn 5.200 m3 4.300 m3 400 m 4.300 m2 1.700 m2 2.600 m2 Áætlað er að framkvæmdir hefjist um mánaðamótin febrúar/mars 2003 og Ijúki um mánaðamótin júlí/ágúst 2003. Mjög rík áhersla verður lögð á að verkáætlanir standist. Verktökum sem hafa áhuga á að taka þátt í forvali og gefa síðan tilboð [ framkvæmdir er boðið að senda inn skriflega ósk þar um. Gögn varðandi forvalið verða afhent á skrifstofu Innkaupastofnunar frá og með 17. desember 2002. Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skila á sama stað eigi síðar en kl. 16.00 7. janúar 2003. INNKAUPASTOFNUN REYKJA VÍKURBORGAR Fríkirifjuvegl 3-101 Reykjavík-Slml 570 5800 Fax 562 2616 - Netfang: lsrertiuk.rvk.is DV-mynd Hari Sagan varð að faeðast Ingvar Sigurðsson segist lengi hafa haft áhuga á goðafræði og gengið með Ævintýri í jökulheimi í kollinum í rúm þrjú ár og eftir þann meðgöngutíma varð hún að fæðast Ævintýri í jökulheimum: Vil segja lifandi söguna mynd S 1 - segir Ingvar Sigurðsson „Sagan byggir á frásögnum úr Bárðar sögu Snæfellsáss," segir Ingvar Sigurðsson sem nýlega sendi frá sér bókina Ævintýri i jökulheimum. í bókinni segir frá Sunnu og Mána sem fara í skiða- ferð á Snæfellsjökul og þar hefst mikið ævintýri. Bárður Snæfells- ás, sem er rammgöldróttur land- námsmaður og hvarf í jökulinn fyrir eitt þúsund árum, fangar börnin inn í heim goða og jötna. Til að komast aftur til mann- heima verða þau að leysa erfitt verkefni. „Ég flétta einu og öðru úr þjóðsögum, goðafræði og þjóð- trú inn í söguna auk þess sem ég segi frá uppruna rúna í lok henn- ar.“ Ferðalag í tímaleysi Ingvar Sigurðsson lærði ketil- og plötusmíði og starfaði sem iðn- aðarmaður i mörg ár. „Ég hef lengi haft áhuga á goðafræði og gengið með söguna í kollinum í rúm þrjú ár og eftir þann með- göngutíma varð hún að fæðast. Að lokum ákvað ég að leggja allt í sölurnar, seldi húsið, borgaöi upp allar skuldir og fór að læra að skrifa kvikmyndahandrit því ég sá söguna alltaf fyrir mér sem kvikmynd. Mér var bent á að það væri ráðlegra að gefa hana fyrst út sem bók og í framhaldi af því flutti ég í Stykkishólm til að skrifa hana. Sögusviðið er inni í Snæfellsjökli og þeir níu heimar sem fjallað er um í goðafræðinni. Við búum í miðheimi en í sög- Rfkulega myndskreytt Lokatakmarkið er að gera hreyfimynd í einhverju formi eftir sögunni. Mér er alveg sama hvort það verður kvikmynd, teiknimynd eða skugga- mynd sem er gefð með tveimur ullarsokkum. unni kynnast hetjurnar tveimur heimum fyrir neðan mannheima. Bárður Snæfellsás sendir Sunnu og Mána í ferðalag til að sækja Helgu dóttur sína sem samkvæmt Bárðarsögu rák burt frá íslandi á ísjaka og ég geri ráð fyrir að hafi endað á Grænlandi." í sögunni sem gerist I hálf- gerðu tímaleysi er flakkað á milli heimsálfa eftir orkulínum sem skerast í jöklinum og Sunna og Máni þurfa sjálf að finna leiðina til Grænlands samkvæmt vís- bendingum sem þau finna á leið- inni. Lifandi mynd Bókin er ríkulega myndskreytt af Ingvari sjálfum. „Ég er að mestu sjálfmenntaður í myndlist en hef sótt námskeið hjá Hring Jóhannessyni og í Myndlistar- skólanum á Akureyri. Lokatak- markið er að gera hreyfimynd í einhverju formi eftir sögunni. Mér er alveg sama hvort það verður kvikmynd, teiknimynd eða skuggamynd með tveimur ull- arsokkum - ég vil segja þessa sögu í lifandi mynd. Ég er búin að sækja um til Kvikmyndasjóðs en veit ekki eins og er hvað verð- ur úr því.“ Ingvar segir að þetta sé fyrsta bókin af þremur um Sunnu og Mána. „í næstu bók, sem er hálf- skrifuð og verður sjálfstætt fram- hald, lenda þau í ævintýrum í goðheimum og afstýra ragnarök- um en ég vil ekki segja frá þriðju bókinni eins og er.“ Aftast í bókinni er sagt frá upp- runa rúna, hvemig er hægt að búa þær til og hvernig má lesa úr þeim. Þeir sem vilja geta því notað Ævin- týri í jökulheimum sem handbók i rúnalestri. -Kip
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.