Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Qupperneq 24
24
H&Iqo rb lo <3 13V
LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002
Veron er vaknaður
Argentinski landsliðsmaðurinn Juan Sebastian
Veron er loksins farinn að sýna sitt rétta andlit með
Manchester United eftir frekar dapurt timabil í fyrra.
Veron játar það sjálfur í opinskáu viðtali við breska
blaðið Daily Mirror að hann hafi verið slakur i fyrra
en segir að nú sé hann loksins farinn að geta sýnt
stuðningsmönnum liðsins hvað í honum býr.
f fótspor föðurins
Hann vakti fyrst athygli er hann lék með Boca
Juniors í argentínsku deildinni en þangað kom hann
frá Estudiantes en faðir hans, Juan Veron eldri, lék
einnig með því félagi. Juan Veron eldri var stjarna
hjá Estudiantes og lék með liðinu gegn Manchester
United á Old Trafford árið 1968 í heimsmeistara-
keppni félagsliða.
Estudiantes vann þann leik, 2-1, og Veron eldri
skoraði annað marka argentínska liðsins og það voru
fyrsti kynni Veron-fjölskyldunnar af Old Trafford.
Áhugi á Ítalíu
Þegar Veron yngri hafði aðeins leikið 17 leiki með
Boca Juniors og skorað 3 mörk fór hann að vekja at-
hygli í Evrópu. Úr varð að ítalska félagið Sampdoria
keypti hann frá Boca árið 1996 og var Veron hjá félag-
inu í 2 ár. Hann lék 63 leiki með Sampdoria og skor-
aði 8 mörk áður en hann var keyptur til Parma árið
1998.
Veron gekk vel meö Parma og unnu þeir ítalska
bikarinn og Evrópukeppni félagsliða er hann lék með
þeim. Eftir frábæra frammistöðu með Parma pungaði
Lazio út „litlum" 20 milljónum punda fyrir Veron en
þjálfari Lazio þá var núverandi þjálfari enska lands-
liðsins, Sven-Göran Eriksson.
Gengi Veron og Lazio var með eindæmum gott þvi
að þeim tókst að vinna ítalska meistaratitilinn,
ítalska bikarinn og evrópska „ofurbikarinn" þar sem
sigurvegarar Evrópukeppni félagsliða og meistara-
deildarinnar mætast. Þar fékk Veron fyrstu kynni sín
af Manchester United því að Lazio lagði einmitt Man.
Utd í leiknum um „ofurbikarinn".
Dýrasti leilunaður Englands
Þann 12. júlí 2001 varð Veron dýrasti leikmaður
enskrar knattspyrnu er Man. Utd greiddi Lazio 28,1
milljón punda fyrir hann. Ein ástæðan fyrir því að
hann ákvað að yfirgefa Ítalíu var sú staðreynd að
hann var ásakaöur um að hafa verið með falsað vega-
bréf og átti yfir höfði sér leikbann á Ítalíu. Hann var
síðar sýknaður af öllum ákærum.
En eins og áður segir þá átti Veron slaka leiktíð
með United í fyrra og þeir voru ófáir sem voru búnir
að afskrifa hann fyrir þessa leiktíð. En hann hefur
brugðist við öllum gagnrýnisröddum með því að spila
einkar vel í ár og segir hann í viðtalinu við Daily
Mirror að hann hafi verið slakur í fyrra en nú sé
hann búinn að venjast enska boltanum og betri tímar
séu í vændum.
„Mig vantaði stöðugleilta“
„Ef ég á að vera heiðarlegur þá var ég ekki upp á
mitt besta i fyrra. Það vantaði allan stöðugleika í
minn leik. En ég ætla að sjá til þess að annað verði
upp á teningnum á þessari leiktíð," segir Veron.
„Það var mikil breyting að koma til Englands, en
ég vil síður skýla mér bak við þá afsökun. Ég vildi
aldrei nota þá afsökun að það tæki tíma að venjast
nýju landi."
Mörgum fannst að koma Veron hefði komið á óstöð-
ugleika í miðjuspili Man. Utd og að það hefði verið
ein aðalástæðan fyrir því að þeim mistókst að vinna
titil í fyrra. Það kemur kannski mörgum á óvart að
Veron tekur undir þá útskýringu.
„Þegar ég hef gengið í raðir nýs félags þá hafa
venjulega verið 5-6 breytingar hjá félaginu á sama
tíma, stundum var jafnvel skipt um þjálfara," segir
Veron.
„Þegar slíkt gerist þá er auðveldara fyrir leikmenn
að koma með sinn eigin stíl í liðið frekar en að þurfa
að aðlagast hinum, en hjá United höfðu sömu leik-
mennirnir veriö saman í mörg ár. Þeir höfðu ákveð-
inn leikstíl sem hafði fært þeim marga titla. Að því
leyti var þetta erfiðari breyting fyrir mig og meiri
áskorun en ég var ekki á því að bugast heldur ætlaði
ég að njóta áskorunarinnar.1'
„Gagnrýni byggir mig upp“
Það segir ýmislegt um hversu sterkur karakter
Veron er að hann skuli hafa enn frekari löngun til
þess að sanna sig eftir hið dapra tímabil í fyrra.
Það hefur oft verið sagt að þaö taki útlendinga eitt
ár að venjast enska boltanum og þarf ekki að horfa
lengra en til Robert Pires í því sambandi en hann
blómstraði á sínu öðru ári með Arsenal og var valinn
besti leikmaður deildarinnar.
„Ég get alltaf tekið gagnrýni en ég læt hana ekki
hafa áhrif á mig. Ég reyni alltaf að standa mig sem
best og sé til þess að gagnrýnin byggi mig upp í stað
þess að brjóta mig niður,“ segir Veron.
„Ég veit ekki af hverju mínir bestu leikir með
United hafa komið í meistaradeildinni. Það er ekki að
ég hafi verið að leggja mig meira fram í Evrópuleikj-
unum en í deildinni. Það sem ég þarf að gera núna er
að ná sama stöðugleika í deildinni og í meistaradeild-
inni.”
Vendipunktur vetrarins
Veron er sammála stjóra sínum, Sir Alex Ferguson,
að 3-1 tapið gegn Man. City hafi verið vendipunktur-
inn hjá United í vetur, en United hefur ekki tapað
leik síðan og er á mikilli siglingu. Veron segir aö hug-
arfar leikmanna liðsins hafi ekki verið í lagi fyrir
leikinn gegn City og að það hafi verið þess eðlis að
sigurinn ætti að koma af sjálfu sér bara af því þeir
mættu út á völlinn.
„Þegar svona mikilvægur leikur tapast, og ég tala
ekki um eins dapurt tap og í þessum leik, þá verða
menn að taka hlutina mjög alvarlega," segir Veron.
„Við eyddum miklum tima í að tala um það og lið
með eins mikla hæfileika og við hefur ekki efni á að
tapa slíkum leikjum. Tapið særði stolt okkar. Liðið er
enn það sama en það sem hefur breyst er hugarfar
leikmannanna og menn eru ákveðnari en nokkru
sinni fyrr í að ná árangri. Við vitum það nú að það
þarf meira til en að klæðast treyju Man. Utd til þess
að vinna leiki. Það er sú hugarfarsbreyting sem átt
hefur sér stað.“
Che Guevara í uppáhaldi
Veron er fjölskyldumaður með tvö börn og einnig á
hann tvo hunda. Hann þykir um margt sérstakur
karakter og fer oftar en ekki sinar eigin leiðir. Til að
mynda þegar hann kom til Sampdoria á sínum tíma
þá átti hann svartan Ferrari. Félagar hans í liðinu
hlógu að honum og sögðu að rauður Ferrari væri það
eina sem virkaði. Veron mætii daginn eftir á nýjum,
gráum Ferrari. Hans helstu átrúnaðargoð eru Che
Guevara, Napóleon, Maradona og páfinn, en hann er
einmitt með húðflúr á hægri handlegg af Che
Guevara. -HBG