Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Page 26
2G H&lqarblctc) I>'Vr LAUGA.RDAGUR 14. DESEMBER 2002 Elín Hirst var ívikunni ráðin fréttastjóri fréttastofu Sjónvarpsins. Hún ræðir ívið- tali við Helgarblað DV um átján ára fjöl- miðlaferil, hlutlæga fréttamennsku, frægðina og Hallgerði langbrók. Út í tala um „Það erskrýtið að vera þekkt manneskja; að fara út íbúð og allir vita hver maður er. Það venst og verður hluti af lífinu. Ég veitekki hvort það er eitthvað sem ég sækist eftir. Auðvitað eru allir hé- gómlegir þótt enginn lifi á hégómanum ein- um saman.“ Af hverju leiddistu inn í fjölmiðla? „Ég byrjaði í viðskiptafræði og hagfræði en fann mig ekki í því námi. Ég var fyrst í viðskiptafræði við Háskóla íslands í eitt ár og fór síðan út til Óslóar þar sem ég lagði stund á þjóðhagfræði sem ég taldi að ætti betur við mig. Ég sá þó að ég var ekki alls kostar sátt við það nám og sótti um í bandarískum háskóla; það var eitthvað við fjölmiðlanámið sem heillaði mig, kannski skapandi hluti starfsins. Ég fékk inngöngu í University of Florida í Gainesville og sérhæfði mig í sjónvarpsfréttamennsku." Þannig að fréttamennskan var ekki æskudraumur. „Alls ekki. Ég ætlaði alltaf að verða lögfræðingur eins og pabbi minn. En einhvern veginn æxlaðist það þannig að ég ákvað aö fara í viðskiptafræði. Svo endaði ég hér.“ Þú gerðir heimildarmynd um Þjóðverja sem voru búséttir á ís- landi en voru, þegar Bretar hertóku ísland, fluttir á eyjuna Mön. „Afi minn og lífsreynsla hans var kveikjan að þessari mynd. Hann er nú látinn. Hann kom hingað ungur maður í atvinnuleit árið 1930, settist hér að, giftist og eignaðist börn. í striðinu voru allir Þjóðverjar á ís- landi handteknir í „öryggisskyni" þar sem talið var að þeir gætu stundað njósnir í þágu Þjóðverja. Þessi lífsreynsla setti mjög mark sitt á ömmu og afa. Það var oft minnst á þetta i fjölskyldunni en ég gerði mér sem barn aldrei grein fyrir þvi hvernig sagan var. Ég var því forvit- in að kynna mér það.“ Mér var sagt að þú ættir góðan þátt í þvi hvernig íslenskt stjórn- kerfi hefur opnast fyrir íjölmiðlum og almenningi. Helduröu að barátta þín fyrir því tengist á einhvern hátt reynslu afa þíns? „Nei, alls ekki. Ég er ekki í neinni krossferð. Það verður allt að skoðast í sögulegu samhengi og þótt 'þessir atburðir hafi verið sárir fyrir fjölskyldu mína þá skil ég að sumu leyti þessar aðgerðir. Bretar fóru ekki illa með þessa menn, þeir bjuggu við góðar að- stæður á gömlum sumarleyfisstað fyrir Breta á eyj- unni Mön. En þótt umhverfið hafi verið þokkalegt voru þetta auðvitað fangabúðir." RÚV á vel við mig „Þegar ég kom heim byrjaði ég að vinna á DV þar sem voru ritstjórarnir Jónas Kristjánsson og Ellert B. Schram. Það var mjög lærdómsríkur tími. Raunin varð sú að þótt ég hefði háskólapróf kunni ég ósköp lítið. Ég fékk ágætis skólun á DV og góðan grunn. Árið 1986 sótti ég um starf fréttamanns á Bylgjunni og fékk það. Mig langaði í ljósvakann enda hafði ég sérhæft mig í náminu til þeirra starfa. Af Bylgjunni lá leiðin upp á Stöð 2.“ Þú varst fréttastjóri þar. „Já, í tvö og hálft ár, fram til 1996.“ Konur voru ekki áberandi í fjölmiðlum á þeim tíma og síst í stjórnunarstöðum. „Nei. Mér finnst margt hafa breyst á þeim átján árum sem ég hef starfað við fjölmiðla og hlutfall kvenna lagast til muna. Það er mjög til bóta þar sem við erum helmingur þjóðarinnar og fjölmiðlar eiga að vera spegill samtímans." Mig minnir að þú hafir sagt þegar þú hættir á Stöð 2 að þú hefðir ekki passað inn í karlaklúbbinn. „Þau orð eru mér ekki ofarlega í minni og ég man ekki af hverju það komment var sprottið.“ Þannig að það hefur ekki rist djúpt. „Nei, ætli það.“ Þá byrjaðirðu aftur á DV. „Þegar ég hætti á Stöð 2 fór ég.að hugsa minn gang. Þá ákvað ég að gera heimildarmyndina um fangana á Mön. Þegar því verkefni var lokið bauðst mér frétta- stjórastarf á DV. Ég vann á DV í tæpt ár en langaði alltaf í sjónvarpið. Ég ákvað að láta slag standa og sótti um á fréttastofu Sjónvarps. Ég fékk starfið og var komin aftur í sjónvarp og nú sem almennur fréttamaður. Það er eitthvað við þessa stofnun sem á vel við mig. Samstarfsfólkið er frábært og ég hlakka til að mæta í vinnuna á hverjum degi. Og það er eitt- hvað sem má ekki taka sem sjálfsagðan hlut.“ Enginn lifír á hégómanum einum Hvað er svona heillandi við sjónvarpið? „Ég fann þegar ég vann á DV í seinna skiptið að ég hafði ekki þróað með mér þann hæfileika að tjá mig með skrifuðum texta og ljósmyndum. Fréttamenn vinna öðruvísi en blaðamenn; fréttamennska er meiri myndsmíði. Mér fannst ég því ekki vera á réttri hillu. Ég taldi að ég fengi meiri útrás fyrir sköpunarþörf mína í sjónvarpi, auk þess sem ég hafði lagt mikið á mig til að þjálfa raddbeitingu og fannst ég ekki hafa tækifæri til að nýta þá þjálfun ef ég héldi ekki áfram í útvarpi eða sjónvarpi. Það reyndist rétt; sjónvarpið á betur við mig.“ Blaðamenn segja oft að þeir sem hafa unnið í sjón- varpi hafi smitast af einhverri frægðarbakteríu. „Það er hluti af dæminu, sérstaklega til að byrja með. Það er skrýtið að vera þekkt manneskja; að fara út í búð og allir vita hver maður er. Það venst og verður hluti af lífinu. Ég veit ekki hvort það er eitt- hvað sem ég sækist eftir. Auðvitað eru allir hégóm- legir þótt enginn lifi á hégómanum einum saman.“ Það má halda því fram að á síðustu árum hafi sum- ir fjölmiðlar lagt upp úr því að búa til stjörnur og frægt fólk. Hefurðu orðið vör við einhverja breytingu gagnvart þér? Er meiri ásókn í þig? „Nei. Ég fæ alveg að vera í friði og verð ekki fyrir neinu áreiti. Ég er fegin því. Ég lét taka nafnið mitt úr símaskrá en ég varð vör við það í gamla daga að fólk vildi hringja og segja mér meiningu sína og skipti þá litlu hvaða tími sólarhringsins var. Það er alveg hætt. Flestum frístundum ver ég í tengslum við heimilið og hef ekki mikinn áhuga á samkvæmislíf- inu.“ Talandi um frístundir. Hvert er helsta tóm- stundagamanið? „Ekki fréttamennska. Ég á mjög gott með að loka mig alveg af þegar ég tek mér frí. Ég þarf ekki stöðugt að fylgjast með íjölmiðlum. Þótt ég taki stöðuna eins og venjulegt fólk þá er ég langt frá því að vera frétta-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.