Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Qupperneq 48
48
Helcjarhlctð DV
LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002
Panasonic sony Panasonic sony
Sérfræðingar í viðgerðum og viðhaldi á Sony og Panasonic tækjum
Einholti 2 » sími 552 3150 ( 25 skrefum fyrir ofan DV húsið)
FLEIRI TOMMUR FVRIR KRONUNA
UNITED
UTU3028
28" Nicam Stereó
sjónvarp með textavarpi
og 2 Scart tengjum.
Sjönvarpsmiðstöðin
RAFTÆKJAUERSLUN • SÍfiUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 TTTTHVWT*
■
okkar og ktkið á tilboðin
mm
Full búð af
ttýjutn vörutn
Tökutn upp utn
helgina fullan gánt
afnýjunt vöruntl
A horni Laugavggar og Klapparstígs
E 1 Ð F A X 1
Hestaheilsa
eftir Helga Sigurösson,
dýralækni er frábær
handbók til gjafa fyrir
alla þá sem áhuga
hafa af hestum og
heilsufari þeirra.
Verö 6.900.-
THI IUIOMAH HATUM
EUROPE
MIM MITIVAl IH IVMOIH
1. verðlaun Iflokknum
Maður og náttúra
1 , , , . . MeritAward
lsaldarnesturinn
Margverölaunaö myndband eftir Pál Steingnmsson.
Góö gjöf til vina og ættingja heima og erlendis.
lVleö íslensku og ensku tali.
Verö 3.990.-
■
Skákþátturinn
Umsjón
Sævar Bjamason
Sergei Karjakin, 12 ára stórmeistari:
Heimsmeistari framtíðarinnar?
Ruslan Ponomariov er núverandi
heimsmeistari FIDE. Hans bíður
einvígi á vordögum við „skrímslið
frá Bakú“, Garrí Kasparov, og er
það liður í sameiningu heimsmeist-
aratitilsins í skák sem hefur verið
á flakki undanfarin ár. Á sama
tíma er áætlað að Vladimir
Kramnik og Ungverjinn Peter Leko
tefli sitt einvígi og sigurvegararnir
í þeim einvigjum tefli að lokum um
heimsmeistaratitilinn á næsta ári
og sigurvegarinn þar verði óum-
deildur heimsmeistari í skák. En
það er yngsti stórmeistari heims,
hinn 12 ára Sergei Karjakin, sem er
aðalumfjöllunarefni þáttarins í dag.
Karjakin er frá Úkraínu eins og
Vassili Ivanchuk og Pono sjálfur.
Það er með ólíkindum hversu
unglr bestu skákmenn í heiminum
eru. Allar aðstæður við skákþjálfun
hafa gerbreyst við komu tölvufor-
rita og skákgagnabanka. Það er
mun fljótlegra að skoða skákir
bestu skákmanna og svo hefur þró-
unin verið sú í skákheiminum að
umhugsunartíminn hefur styst og
það er mikilvægt fyrir ungu menn-
ina, á meðan gömlu skarfarnir hafa
upplifað miklar breytingar í þess-
um efnum.
Skákhefð í Úkraínu hefur auðvit-
að verið rík frá Sovéttímanum og
Efim Geller, sem var lengi meðal
þeirra fremstu og Boþhy Fischer
átti sérstaklega erfitt með að tefla
gegn, var frá Úkraínu. Sergei litli
hefur teflt frá því hann var 5-6 ára
og skákkennsla og þjálfun er rómuð
í Úkraínu. Sá stutti hefur að mestu
teflt þar í landi, hefur þó orðið
heimsmeistari harna en náð sínum
stórmeistaraáföngum heima fyrir
og í nágrannaríkjunum, fyrrum
Sovétlýðveldum. Hann hefur með
stórum stökkum klifrað upp FIDE
Elo-stiga listann og er nú kominn
með 2.527 sem er meira en margur
íslenskur stórmeistarinn. Fyrir 2
árum höfðu ekki margir nema í
heimabæ hans heyrt á hann
minnst.
Augun beinast að Sergei
Eftir að Sergei litli náði stór-
meistaratitlinum hafa augu manna
á Vesturlöndum opnast fyrir þessu
undrabarni og nú rignir yfir hann
tilboðum um að tefla á Vesturlönd-
um. Það verður fróðlegt að fylgjast
með honum á næsta ári. Nýlega
tefldi Sergei á atskákmóti á
Benidorm á Spáni. Hann var í for-
ystu mestallt mótið og hefði með
sigri í síðustu umferð, gegn Spán-
verjanum Pablo San Segundo, orðið
í efsta sæti ásamt Judit Polgar og
landa sínum Ruslan Ponomariov.
Sergei litli tapaði illa og Judit og
Pono tefldu um efsta sætið og Judit
vann glæsilega. En Sergei sýndi og
sannaði að hann er enginn aukvisi,
þarna voru einnig Anatolij Karpov
og Alexei Shirov meðal þátttakenda
og hann lagði Shirov í mótinu og
geröi jafntefli við öll hin stóru
nöfnin.
Sergei er enn í barnaskóla eða
grunnskóla eins og það heitir hér á
landi. En mestum tíma ver hann
við skákborðið, annaðhvort að tefla
eða skoða og rannsaka skákir.
Sergei sparar ekki stóru orðin og
segist reikna með að verða orðinn
heimsmeistari 16 ára. Hann vantar
greinilega ekki sjálfstraustið, sem
er nauðsynlegt að hafa í skák, svo
það er engin ástæða til að mótmæla
peyjanum, framtíðin sker úr um
hvort hann hefur rétt fyrir sér. En
það er ekki ólíklegt!
Sigraði Shirov
Á Benidorm var besta skák
Sergeis á móti hinum geysisterka
Alexei Shirov sem er þekktur fyrir
brellur sínar. En Sergei, sem hefur
verið á hraðferð á toppinn og er
enn (!?), tók hraustlega á móti.
Hvítt: Sergei Karjakln (2.527).
Svart: Alexei Shirov (2.699).
Sikileyjarvörn.
Benidorm 29.11. 2002.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 e5. Þetta afbrigði hefur verið
kennt við rússneska stórmeistar-
ann Sveshnikov. Hann vill sjálfur
leika 4. -Rf6 5. Rc3 e5 því að hvítur
getur leikið 6. c4 en það gerist ekki
í þessari skák. 5. Rb5 d6 6. Rlc3
a6 7. Ra3 b5 8. Rd5 Rce7. Þetta er
með nýrri hugmyndum í þessu af-
brigði, venjulega er leikið 8. -Rf6 9.
Bg5. Hér er líka leikið Rge7 svo það
fer eftir smekk skákmeistaranna
hvaða leikjum og afbrigðum er
beitt. 9. c4 Rxd5 10. exd5! Eigin-
lega nauðsynlegur leikur til að
koma riddaranum á a3 í gagnið.
Eftir 10. cxd5 Rf6 11. Bd3 Be7 12. 0-
0 0-0 og svartur hefur ágæta stöðu.
10. -bxc4 og ekki gekk 10. -b4 vegna
Da4+ og peðið fellur. 11. Rxc4 Rf6
12. Be3 Hb8 13. Be2 Be7 14. a4 0-
0 15. 0-0 Bb7 Þá hafa báðir aðilar
komið mönnum sínum fyrir og
miðtaflið hefst. Hér hefur verið
leikið 15. -Bf5 með hótuninni 16. -
Be4 en hvítur leikur 16. a5 og nær
að valda d5 peðið og trufla fyrirætl-
anir svarts.16. Rb6 Rd7 17. a5 f5
18. f3 Rxb6 19. Bxb6 Dd7 20. b4
Bd8 Ekkert er nýtt undir sólinni!
Þetta er allt saman þekkt og fyrst
núna kemur Sergei litli með nýj-
ung! Hér hefur verið leikið 21. Bxd8
Hfxd8 22. Bc4 og hvítur stendur
ágætlega. 21. Be3 Bf6 22. Hbl
Hbc8 Hér er eðlilegast að leika 23.
Bd3 og síðan 24. De2 og þrýsta á a6
peðið. 23. b5?! axb5 24. Hxb5
Staðan er viðkvæm, helsta tromp
hvits er frípeðið á a-línunni. En nú
leikur Shirov ekki besta leiknum.
Betra var 24. -Df7! Og staðan er
óljós. 24. -e4? 25. fxe4 Hfe8? Hér
var 25. -fxe4 nauðsynlegur leikur
því eftir næsta leik er hótunin Bb5
mjög óþægileg! 26. Hb4! Bc3 27.
Bb5 Dd8 28. Bxe8 Bxb4
Hér innbyrðir barnið eiginlega
vinninginn þvi að svarta staðan er
ekki beysin eftir næsta leik hans.
29. Bc6! T.d. 29. -Bxc6 30. dxc6 Dxa5
31. Hxf5 og hið hættulega c6-peð
gerir út um skákina! 29. Bc6! Ba6
30. Hxf5 Bxa5 31. h3 Hb8 32. Kh2
Að drengurinn tefli nokkurs konar
Karpov stil er augljóst! Með peði
meira og afla stöðuna er um að
gera að flýta sér rólega. 32. -g6 33.
Bg5 Dc7 34. Hf3 Hb4? Hér var 35.
Dal mun sterkari leikur en hann á
ýmislegt eftir ólært, ekki nema 12
Sergej Karjakin
Hann er ekki hár í loftinu framtíð-
arheimsmeistarinn.
ára! 35. Bh6 Hb8 36. Dal Be2 37.
Hf2 Bd3 38. Df6 Mát er óverjandi,
það þýðir ekkert að horfa lengi á
þessa stöðu! 1-0
Sigurskák
í byrjun ársins var Sergei ekki
orðinn stórmeistari og með 2460
stig. Nú er hann orðinn stórmeist-
ari, sá yngsti í sögunni með 2527
Elo-stig. Það er hækkun um rúm 60
stig á stuttum tíma!
Hvítt: Genrikh Chepukaitis (2.400).
Svart: Sergei Karjakin (2.460).
Tromposky-byrjun.
Bikarkeppni FIDE Dubai (5), 2002.
1. d4 d5 2. Bg5 h6 3. Bh4 c6 4.
c4 dxc4 5. a4 Db6 6. Dd2 e5! Þetta
er einhver skrýtin útgáfa af byrjun
greifans. Svartur nær nú frum-
kvæðinu. 7. dxe5 Bb4 8. Rc3 Be6
9. f4 g5! Það er ágætt að „fórna“
peði hér til að tvístra peðastöðu
hvíts. Peðið á e5 fellur nokkuð ör-
ugglega. Og Rússinn hefur senni-
lega fengið aukinn hjartslátt! 10.
Bf2 Da5 11. Rf3 gxf4 12. Rd4 Rd7
13. g3 fxg3 14. Bxg3 Rc5 15. Bg2
0-0-0 16. 0-0
Hér nær svartur að skipta upp í
mjög hagstætt endatafl þar sem frí-
peðið á c-línunni leikur aðalhlut-
verkið! 16. -Rb3 17. Rxb3 cxb3 18.
Dcl Bxc3 19. Dxc3 Dxc3 20. bxc3
Re7 21. a5 Hd2 22. a6 b6 23. Kf2
Hhd8 24. Be4 Rd5 Svarta staðan er
orðin yfirþyrmandi og hvítur fær
ekki við neitt ráðið. 25. c4 Rc3 26.
Bxc6 b2 27. Hael
Hvítur vonast eftir að komast út
i endatafl með skiptamun undir en
þó meö biskupaparið. En sá stutti
styttir þær vonir mjög með næsta
leik sínum. Smiðshöggið! 27. -Rdl+
28. Hxdl Hxdl 29. Be4 Hxfl+ 30.
Kxfl blD+ 31. Bxbl Hdl+ 32. Kf2
Hxbl 0-1