Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Síða 52
52
Helgarhlaö DV
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002
Bílabúd Benna með
Cannondale-umboðið
Bflabúö Benna hefur fengið umboð
fyrir bandarísku torfæruhjólin frá
Cannondale en gengið var frá samn-
ingum þess efnis um síðustu mánaða-
mót. Cannondale-verksmiðjurnar
hafa hingað til verið þekktar fyrir há-
gæða keppnisreiðhjól en hafa síðast-
liðin ár einbeitt sér af miklum þunga
að þróun mótorhjóla til keppni í tor-
færuakstri. í fyrstu sendingunnni
koma X440 keppnishjól-
in og einnig Blaze
440 fjórhjólið.
eigendur tengt mótorhjól sín við
tölvu og stillt eiginleika vélar hjól-
anna með tilliti til þeirra aðstæðna
sem ætlunin er að keyra við, en
slíkt hefur hingað til ekki þekkst í
torfæruhjólum. Enn fremur koma
þau með keppnisfjöðrun frá
Öhlins sem er einn allra
Tímamótahjól
Fyrsta sending
af torfæruhjól-
unum er komin
og verða þau
frumsýnd mánu-
daginn 16. desem-
ber. Að sögn Bene-
dikts Eyjólfssonar, eiganda Bílabúð-
ar Benna, er um tímamótahjól að
ræða. Helsta nýjungin er rafeinda-
stýrð innsprautun eldsneytis og raf-
eindastýrt kveikjukerfl. Þannig geta
fremsti fjöðrunarframleiðandi
heims. Grind hjólsins er úr áli,
vökvakúpling er staðalbúnaður, ol-
íuverk gírkassa er aðskilið frá vél
og meðal framúrstefnubreytinga er
að snúa strokklokinu öfugt við það
sem hingað til þekkist en með því
móti er hægt að stytta pústgreinina
og hagræða uppsetningu hjólsins til
muna.
Nýtt keppnislið
Eitt keppnislið í íslandsmótinu í
torfæruakstri hefur nú þegar ákveð-
ið að keppa á Cannondale-tor-
færuhjólum og mun Bílabúð
Benna verða þeirra helsti
styrktaraðili. Helstu tæknisérfræð-
ingar og hönnuðir hjá Cannondale-
verksmiðjunum í Bandaríkjun-
um hafa lýst yflr miklum
áhuga á aö fylgjast með keppn-
isliðinu reyna torfæruhjólin á
þar sem aðstæður hér
með erfiðasta móti, sér-
staklega hvað varðar miklar hita-
og rakabreytingar. Samhliða tor-
færuhjólunum mun Bílabúð Benna
selja þekkt vörumerki tengd tor-
færuhjólum. Má þar meðal annars
nefna O’neal-fatnað, Oakley-gler-
augu, Alpinestars-hlífðarfatnað og
Michelin-torfæruhjóladekk.
Nýtt mótorhjól frá
Honda með gamla laginu
Margir eiga eflaust góðar minn-
ingar af CB 1000 hjólinu sem Honda
seldi fyrir margt löngu en hafa ef-
laust óskað sér meira afls og minni
þyngdar í því hjóli. Þeir geta nú tek-
ið aftur gleði sína því að Honda hef-
ur tilkynnt um framleiðslu á CB
1300 fyrir Evrópumarkað. Hjólið var
frumsýnt á mótorhjólasýningunni í
Bologna og kemur væntanlega á
markað strax á næsta ári. Útlitið
byggist á gamla CB 1000 hjólinui en
nánast allt er breytt miðað við
gamla hjólið. Hjólið er 224 kfló, 10
kflóum léttara en gamla hjólið. Vél-
in er með beinni innspýtingu og er
1284 rúmsentímetrar. Hestöflin eru
rúmlega 100 út í afturhjól og togið
er tilkomumikið. Frambremsur eru
með fjögurra stimpla dælum og
margt í hjólinu er úr áli, eins og aft-
urgaffafl og felgur. -NG
Á myndinni eru: Snorri Konráðsson, franikvæiudastjóri Fræðsluinið-
stöðvar, Jón B. Guðmundsson, starfsmaður FMB, Bjarki Harðarson, for-
maður stjórnar FMB, Iljörtur Nielsen, framkvst. fsól, Pétur Einarsson
sölumaður og Ásgeir Þorsteinsson, starfsmaður FMB.
ísól gefur Fræðslumiðstöð
Bílgreina verkfæri
ísól færði nýlega Fræslumiðstöð
Bílgreina að gjöf verkfæri frá
Festool, fyrir réttinga- og sprautu-
verkstæði. Um er að ræða 5 metra
arm ásamt ryksugu og slípiverkfær-
um til þurrslípunar undir sprautun.
Þurrslípun er mikið að ryðja sér til
rúms á réttingaverkstæðum vegna
aukinna afkasta og
ryksugubúnaður gerir allt vinnu-
umhverfl heilsusamlegra og þrifa-
legra. Að sögn Bjarka Harðarsonar,
formanns stjórnar FMB, er þessi
gjöf kærkomin viðbót í hina glæsi-
legu nýju aðstöðu að Gylfaflöt 19 í
Grafarvogi en þar fer fram þjónusta
við endurmenntun í bflgreinum.
Renauít
söluhæstur
í Evrópu
Renault hefur skákað
Volkswagen sem söluhæsta bíla-
framleiðanda Evrópu í fyrsta sinn
í tæpan áratug, með 10,6% mark-
aðshlutdeild það sem af er árinu.
Það vekur athygli að þessi árang-
ur bætist við fjölda verðlauna og
viðurkenninga sem Renault hefur
sópað til sín á þessu ári. Mégane
II, nýjasta afurð Renault, var ný-
lega kjörinn bíll ársins 2003 og
hlaut skömmu síðar 5 stjörnur í
öryggisprófunum Euro NCAP,
fyrstur í sínum stærðarflokki. Þá
hefur hið virta tímarit, Autocar,
valið Renault framleiðanda ársins
auk þess að verðlauna Mégane II
fyrir hönnun ársins og þýska
vikublaðið Bild am Sonntag veitti
í byrjun nóvember Renault
Espace í þriðja sinn hið gullna
stýri í flokki fjölnota bifreiða. í
flokki atvinnubíla var hinn nýi
Trafic kjörinn sendibíll ársins
2002 og nýverið var Renault Kan-
goo valinn sendibíll ársins 2003 í
Hollandi.
Upphitaðar
rúðuþurrkur
Hver kannast ekki við klaka-
hlaðnar rúðuþurrkur á vetrum? Nú
gæti þetta vandamál verið úr sög-
unni því á markað eru komin upp-
hituð þurrkublöð sem tengja má við
rafkefi bílsins. Hægt er að notast
viö bæði 12 og 24 volt og þarf aðeins
að kveikja á rofa svo að ísinn
bráðni af. Það má með sanni segja
að þetta sé eitthvað sem gæti komið
sér vel hérlendis og þá sérstaklega
fyrir þá sem eru mikið á ferð í
slæmum veðrum eins og á fjalla-
jeppum. Þurrkumar eru fáanlegar í
stærðunum 16, 18, 20 og 24 tommu
og eru auðveldar í ísetningu. Um-
boðsaðili er Rafsel í Búðardal og
sendir fyrirtækið hvert á land sem
er.
IPP
r
h íh inA ól cldandi
Svo sem fram hefur komið er
nú unnið að sögu bílsins á ís-
landi, en senn er öld liðin frá því
að fyrsti bíflinn kom hingað til
lands. DV-bílar mun á næstunni
leggja hönd að þessu verki með
þvi að leita eftir upplýsingum.
Þeir sem vilja leggja hönd á plóg-
inn eru beðnir að hafa samband
við söguritara, Sigurð Hreiðar, í
síma 893 3272 eða senda honum
tölvupóst á netfangið
auto@simnet.is.
Sandabílarnir
í febrúar 1941 strandaði
belgíska flutningskipið Persier
við Kötlutanga á Mýrdalssandi -
nánar tfltekið á Dynskógafjöru
austan Hjörleifshöfða, eins og
segir í bókinni Dynskógum sem
Sögufélag Vestur-Skaftfellinga
gaf út 2001.
í skipinu var hrájárn sem
Kristinn í Björgun og félagar
hans björguðu síðar er þeir voru
að leita að gullskipinu Het van
Wapen sem fórst löngu fyrr ein-
hvers staðar á áþekkum slóðum.
En ofan á jáminu voru í skipinu
eitthvað um 100 vörubílar, GMC
og Dodge, sem bjargað var í land,
fluttir upp að Hafursey þar sem
settar vora upp búðir og bílarnir
settir saman þar, undir stjóm
Nikulásar Steingrímssonar bif-
vélavirkjameistara (Bíla-Lása).
í sambandi við þetta strand
væri áhugavert ef einhver gæti
gefið öruggar upplýsingar um
nokkur atriði:
1. Hve margir (nákvæmlega)
vom þessir bílar? Hvernig skipt-
ist fjöldinn milli tegunda? Var
þetta aðeins ein gerð af Dodge
eða voru þær tvær?
2. Hvað varð um þessa bíla?
3. Era til myndir af þeim, á
strandstað eða í Hafursey, aðrar
en þær 2-3 sem þegar hafa birst?
4. Vitað er að nokkrir þeirra
komust í eigu Gunnars Bjama-
sonar verktaka sem notaði þá
m.a. við gerð Reykjavíkurflug-
vallar og seldi síðan. Eitthvað
mun hafa staðið á að fá þá
skráða hér á landi þar sem þeir
voru breiðari en þá var leyft. Að
lokum fengu þeir þó undanþágu
með einhverjum skilyrðmn. -
Veit einhver nánar um þetta
mál? -SHH
Þetta er einn af Sandadodsunum. Gerðin hét VK62B. Myndina á
Hans A. Þorsteinsson sem ók svona bíl fyrir Gunnar Bjarnason
verktaka og kevpti síðan þennan bíl af honum og gerði út sjálfur.
Hans lét setja á hann íslenskt hús og það mun hafa verið gert við
fleiri bíla af þessari gerð.
Á einhver mynd af svona bíl með upprunalega liúsinu? Vitað er að
. einn var gerður að rútubíl. Á einhver mvnd af honuin?
k A
liUIÍ =S ,-l||U|
Nýr Toyota Avensis
kemur í öllum útfærslum
í Ameríku og Asíu hefur Toyota
mikla markaðshlutdeild en ekki í
Evrópu ef ísland er undanskilið.
Þess vegna er með næstu kynslóð
Avensis reynt að höfða sem mest til
evrópskra kaupenda, líkt og Yaris
og Corolla hafa gert á síðustu árum.
Allir þessir bílar eiga það sameigin-
legt að hafa verið hannaðir í hönn-
unarhúsi Toyota í Nice.
í öllum útfærslum
Nýr Avensis kemur á markað í
mars 2003 og þá í öllum útfærslum:
stallbakur, hlaðbakur og langbakur.
Hann verður í mestri samkeppni
við bíla eins og Opel Vectra, Ford
Mondeo og VW Passat, enda hefur
hann stækkað eins og þeir. Hann er
hærri en flestir í 1480 mm og A-bit-
inn á framhorni farþegarýmis er
framar en hjá keppinautunum.
Grillið minnir sterklega á framenda
Corolla en frágangur númeraplöt-
unnar er öðruvísi. Innréttingin
verður einnig betri en áður, líkt og
í Corolla, og notuð era betri efni og
meiri hljóðeinangrun. Meðal nýj-
unga í bílnum verður sérstakur ör-
yggispúði fyrir hné ökumanns til að
koma í veg fyrir fótmeiðsli. BUlinn
kemur hingað tfl lands í aprfl. -NG