Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Síða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Síða 55
LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 Helcjarhlctð 3Z>"V 55 Kio Briggs gerðist nú heilmikil íjölmiðlastjarna á íslandi í nokkr- ar vikur. Ótal viðtöl voru tekin við hann og vöktu þau mikla athygli. Maðurinn var enda fjallmyndarleg- ur og tilfinningaríkur með ágætum og ekki laust við að ýmsir hrærð- ust til meðaumkunar þegar hann lýsti því íjálglega hve kramið hjarta hans væri yfir því að hafa setið svo lengi saklaus í fangelsi. Enda þótt hann væri uppfullur af umburðarlyndi og fyrirgefningu fór ekki hjá því að hann væri nokkuð bitur í garð íslenskra yfir- valda, enda hefði fangavist hans á íslandi valdið því að barnsmóðir hans í Hollandi hefði sagt skilið við sig. Heitasta ósk hans væri að fá að sjá aftur litla son sinn í Hollandi. Og fíkniefni hefði hann að sjálf- sögðu aldrei látið inn fyrir sínar varir. Um tíma hafði Kio Briggs aðset- ur á Akureyri og lýsti því yfir að hann hefði eftir sem áður hug á togaraplássi, en þegar til kom guggnaði hann á því og hefur lík- lega búist við að verða sjóveikur og þess háttar. Leið ekki á löngu þangað til hann var kominn til Reykjavíkur og farinn að láta veru- lega að sér kveða í skemmtanalífi borgarinnar. Hinn 30. júní var kveðinn upp nýr dómur yfir Kio Briggs í hér- aðsdómi Reykjavíkur. Dómurinn var nú fjölskipaður og sátu í hon- um Ingibjörg Benediktsdóttir, Júlí- us B. Georgsson og Sigurður Hall- ur Stefánsson. Farið var ítarlega yfir málið og meðal annars mátaði Kio Briggs frammi fyrir dómnum stuttbuxur þær sem teikningarnar af Leifsstöð höfðu fundist í. Hélt hann því fram aö þær væru of stór- ar á sig sem sannaði að hann ætti ekkert í þessum buxum. Þar eð Kio Briggs var maður afar hávaxinn var vont að vita hvaða tröll kynni þá að hafa átt þessar stuttbuxur. En eftir að hafa virt Kio fyrir sér íklæddan stuttbuxunum var niður- staða dómaranna sú ein að því yrði ekki slegið föstu að fullyrðing hans væri röng. Ljóst er af niðurstöðu héraðs- dóms að dómurum þótti framburð- ur Kios Briggs að ýmsu leyti vafa- samur en á hinn bóginn væri ým- islegt sem styddi þá staðhæfingu að hann hefði ekkert vitað um e- töflurnar í farangrinum. Fram- burður hins íslenska „vinar“ væri enn vafasamari, ekki síst í ljósi þess að hann hefði ætlað sér að hafa hag af því að koma upp um Kio Briggs. Féleysi Bretans og létt- an klæðnað mætti skýra sem al- mennt fyrirhyggjuleysi. Þá hefði hann skilið tösku sína eftir nánast á glámbekk áður en hann hélt til íslands sem benti til að hann hefði ekki vitað að í henni væru e-töflur fyrir margar milljónir. Síðan segir: „Þá þykir ósennilegt að ákærði hafi tekið þá áhættu að fara með fíkniefnin í of[a]ngreindri tösku með sólarlandaflugi til ís- lands, en hann er hávaxinn blökkumaður og hlaut að stinga verulega í stúf við aðra farþega." Með tilliti til allra vafaatriða yrði, sögðu dómararnir, að leggja framburð Kios Briggs til grund- vallar í málinu og svo mikill vafi væri á því að hann hefði vitað af e- töflunum í íþróttatöskunni að sýkna yrði hann af kröfum ákæru- valdsins. Kio Briggs brást ekki aðdáend- um sínum með óhaminni gleði sinni í réttarsalnum þegar sýknu- dómurinn hafði verið kveðinn upp. Hæstiréttur tók málið til með- ferðar með hraði enda fýsti Kio Briggs nú mjög að komast af landi brott til að hitta aftur litla son sinn, þótt hann lýsti því aö vísu líka yfir að sér likaði aldeilis prýðilega við bæði land og þjóð og væri orðinn íslandsvinur hinn mesti. Hinn 16. júlí féll dómur Hæsta- réttar og klofnaði dómurinn í mál- inu. Tveir dómarar, Arnljótur Björnsson og Hrafn Bragason, töldu framburð Kios Briggs aö mörgu leyti „fjarstæðukenndan" og þrátt fyrir öll vafaatriði yrði að líta svo á að ákæruvaldinu hefði tekist að sanna að hann hefði vitað af e-töflunum við komuna til lands- ins og væri því sekur um smygl. En þrír dómarar voru á öðru máli. Þeir Pétur Kr. Hafstein, Haraldur Henrysson og Hjörtur Torfason töldu að þrátt fyrir rangar staðhæf- ingar Kios Briggs um ýmis málsat- vik og þrátt fyrir að ferðamenn yrðu almennt að bera ábyrgð á far- angri sínum þá væru aðstæður svo sérstæðar í þessu máli - ekki síst hlutur íslendingsins - að ekki væri hægt að útiloka að hann eða ein- hver annar hefði laumað e-töflun- um í farangur Kios Briggs án þess að hann hefði hugmynd um. Var svo Kio Briggs laus allra mála og hamingja hans ósvikin. Helgi Jóhannesson lögmaður, sem varið hafði hann af miklum skör- ungsskap, boðaði um leið að skjól- stæðingur sinn myndi fara í mál og krefjast bóta fyrir ólögmæta handtöku og ástæðulaust gæslu- varðhald í 263 daga. Sagði Helgi að þeir Kio myndu fara fram á 27 milljónir króna sem væri síst of mikið fyrir þær hremmingar sem skjólstæðingur hans hefði blásak- laus mátt þola af hendi íslenskra yfirvalda. Hélt Kio Briggs svo af landi brott að hitta sinn hjartkæra son. Því miður voru næstu fréttir sem íslendingar fengu af þessum knáa íslandsvini hreint ekki nógu góðar. Hinn 7. nóvember var hann handtekinn í Danmörku ásamt ís- lenskri vinstúlku sem hann hafði þá komið sér upp. Og sök hans? Jú, hann fannst með 705 e-töflur í fórum sínum og upplýst var að þau skötuhjú væru rétt nýbúin að selja önnur 300 stykki. Danir féllu ekki fyrir töfrum Kios Briggs. Þeir dæmdu hann með hraði í eins árs fangelsi og síð- an skyldi hann ekki eiga aftur- kvæmt til Danmerkur í fimm ár eftir það. Vegna innbyrðis samn- inga Norðurlandanna gilti sú frá- vísun líka um ísland og því var ljóst að Kio Briggs kæmist ekki aft- ur til íslands að hitta fjölmarga vini sína fyrr en að löngum tíma liðnum. Hin íslenska vinkona Kios hlaut einnig eins árs fangelsisdóm. Á íslandi lýsti Helgi Jóhannes- son því djarflega yfir að þessi óheppilega vending í málinu hefði engin áhrif á bótakröfu Kios Briggs á hendur íslenska ríkinu. Helgi átti reyndar ekki mikið á hættu meö að halda málarekstrin- um gangandi þar sem íslensk lög kveða á um að bótamál vegna ólög- mætrar handtöku og fangelsisvist- ar skuli njóta gjafsóknar og allur málskostnaður því greiddur upp í topp af ríkinu. Og umfram allt væri Kio Briggs jafn saklaus á ís- landi þótt hann hefði í vandræðum sínum leiðst á villigötur í Dan- mörku. Einhvern veginn kom samt eng- um á óvart úr því sem komið var * þegar íslenskir dómstólar höfnuðu algerlega kröfum hins góða Kios Briggs um milljónirnar 27. Nú er gaman ad versla þvfnógertil! Skemmtilegir vinahringir fyrir kerti Frábœrt úrval af ödruvísi gjafavöru Opið tilbod 2jasœtasófi 59.900 Verð áður kr. 94.900 3]asœtasófi 69.900 Frábœrt úrval af sófum, sófabordum, bordstofubordum, skápum, gjafavörum og fl. Einnig mikid úrvat af kristalsglösum og postulíni á frábœru verdi Verð áður kr.104.900 ^fyr,r*íS Utiarnar ný sending - frábœrt úrval .göttve*® virka daga kl.10-18 Laugardaginn kl. 11-17 Sunnudaginn kl. 13-17 B æ j a r I i n d 6 201 Kópavogi S. 554 6300
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.