Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Qupperneq 83
LAUGARDAGUR DESEMBER 2002
Helgarblacf DV
83
Þórir Sigurðsson
1931-2002
Fyrir stuttu lést Þórir Sigurös-
son veðurfræðingur, góður vinur
og bridgefélagi til margra ára.
Leiðir okkar lágu fyrst saman
nokkru eftir að hann kom heim
úr námi frá Noregi. Það kom
fljótt í Ijós að hann hafði lært
fleira í Noregi en veðurfræði því
hann lét strax að sér kveða í
bridgelífi landsmanna.
Ekki leið á löngu áður en
hann vann fyrsta íslandsmeist-
aratitilinn og á næstu árum
fylgdu fleiri slíkir í kjölfarið.
Afls vann Þórir íslandsmeistara-
titilinn i sveitakeppni sex sinn-
um og í tvímenningi einu sinni.
Einnig vann hann bikarmeist-
aratitilinn einu sinni. Þá eru
ótaldir fjölmargir Reykjavíkur-
meistaratitlar ásamt félagstitlum
hjá Bridgefélagi Reykjavíkur, en
Þórir var meðlimur þess um
langt árabil. Af þessari upptaln-
ingu má ljóst vera að Þórir var
einn af fremstu bridgemeisturum
þjóðarinnar, enda var hann fljót-
lega valinn til þess að spila í
landsliði íslands á Evrópumótum
og Norðurlandamótum. Bar þar
hæst þátttaka hans í landsliði ís-
lands á Evrópumótinu í Dublin
1967, þegar ísland náði sjöunda
sæti af tuttugu þjóðum eftir
glæsilegan endasprett þar sem
mörg af bestu landsliðum Evrópu
urðu að lúta í lægra haldi.
Við Þórir spiluðum oft sam-
an í sveit og tvimenningi. Við
vorum saman í sveit þegar hann
vann fyrsta íslandsmeistaratitil-
inn og margoft vorum við saman
á verðlaunapalli Reykjavíkur-
mótsins. Einnig spiluðum við
saman í landsliðum íslands.
Þórir var einn tæknilegasti
spilari sem ég hefi kynnst. Enda-
spil og kastþröng voru hans ær
og kýr og ekki síst þess vegna
vegnaði honum sérstaklega vel í
tvímenningskeppni. Hann hafði
yndi af spilinu og eftir vel heppn-
aða kastþröng ljómaði hann all-
ur. Kímnigáfa hans var einnig
mjög sérstök og þótt hann væri
ekki galsafenginn að eðlisfari þá
var skemmtilegt að spila við
hann. Aldrei brá hann skapi þótt
á móti blési eins og gengur held-
ur brosti góðlátlega í kampinn.
Árið 1965 vann Þórir Reykja-
víkurmeistaratitilinn í tvímenn-
ingskeppni ásamt Eggert Benón-
ýssyni heitnum, en Eggert var
ásamt mér og Halli heitnum Sím-
onarsyni helsti meðspilari Þóris.
Ég birti þá spil með Þóri í
bridgeþætti Vísis og læt það
fylgja með, enda ágætt dæmi um
hæfileika hans í endaspili.
Sagnir gengu þannig með
þess að spila.
Og hér kemur upprunalegi
textinn: „Austur spilaði út lauf-
kóng og skipti síðan yfir í tíguln-
íu. Þórir drap á kónginn heima,
tók tvisvar tromp og spilaði laufi
úr blindum. Austur fékk slaginn
og spilaði tígultvisti. Þórir drap
á ásinn í blindum, trompaði síð-
asta laufið og spilaði spaða. Nú
var sama hvað austur gerir, a-v
fá aldrei nema tvo slagi í viðbót,
einn á spaða og einn á tígul. Með
svona spilamensku verða menn
Reykjavíkurmeistarar og eiga
það skilið.“
Stefán Guðjohnsen
4 876
* G9752
S/A-V 4. K83
*92
♦ D3
*106
♦ D10765 V A
♦ D1074 s
é K104
* AKD3
♦ AG4
* 653
* AG9S2
A*84
* 92
* AKG8
Þóri og Eggert í n-s:
Suður Vestur
1 grand pass
3 pass
Norður
2 **
pass
Austur
2 *
pass
í þá daga spiluðu menn ekki
yfírfærslur á móti grandi og þess
vegna segir Þórir tvö hjörtu til
Stcfán Guðjohnscn
Munið
að slökkva
á kertunum
Yfirgefum aldrei
híbýli okkar
án þess
að slökkva
á öllum kertum.
^ \ vv
in
EINN EINN TVEíR
NEYÐARLlNAN
ORYGGISNET
SECNET
Rauði kross íslands
Rikistögreglustjórinn
LÖGGÍLDINGARSTOPA
/7ZT slökkvilið
HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
'