Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2003, Qupperneq 9
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003
I>V
9
Fréttir
Milljónatjón vegna skemmdarverka í grunnskólum á hverju ári:
Eftirlitsmyndavélar skila
gríðarlegum árangri
Þær þykja skila árangri í baráttunni gegn skemmdarverkum.
Rúðubrot í grunnskólum Reykjavík-
ur, sem leiða til milljónatjóns á hverju
ári, hafa nokkuð verið í umræðunni og
hvaða leiða sé hægt að leita til þess að
stemma stigu við þessum ófógnuði.
Rúðubrot um áramótin eru talin hafa
kostað um 6 milljónir króna en á síð-
asta ári eru skemmdarverk metin á um
50 miiljónir króna. Svo virðist sem eft-
irlitsmyndavélar, sem eru settar upp
að tilhlutan Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur, séu að sanna sitt ágæti
því að eðlilega vilja skemmdarverka-
menn ekki vera staðnir að verki.
Anna Sigríður Pétursdóttir, skóla-
stjóri Breiðholtsskóla, sem hefur liðlega
600 nemendur, segir að það sé lán skól-
ans að hafa fengið eftirlitsmyndavélar
síðasta haust. Um áramótin 2001/2002
voru brotnar 25 rúður í skólanum, vítt
og breitt um skólann, en um síðustu
áramót voru þær aðeins 4 eða 5.
„Eftirlitsmyndavélamar hafa því
skilað gríðarlegum árangri því það hef-
ur auk þess lengi loðað við þennan
skóla að það sé mikið krotað hér, en
það hefur líka dregið mikið úr því. Ég
held að skólastjórar annarra skóla sem
hafa fengið eftirlitsmyndavélar, eins og
í Foldaskóla og Árbæjarskóla, hafi
sömu sömu sögu að segja. Við höfúm
auk þess komið upp þjófavöm hér inn-
andyra sem fer í gang á kvöldin og þá
kemst enginn inn eða út nema nota
sinn persónukvóta. Þetta kerfi leiddi til
þess að það dró úr rápi innandyra.
Strax eftir að myndavélamar fóm í
gang var nokkm stolið, en upptaka af
þeim atburðum leiddi til þess að við-
komandi náðist sem er fyrrverandi
nemandi," segir Anna Sigríður Péturs-
dóttir, skólastjóri Breiðholtsskóla.
Ástandið gott
„Hér er ekkert um skemmdarverk
eða veggjakrot, og það er flókið ferli
sem veldur því að hér er ekkert um
skemmdarverk. Þetta er gott hverfl,
ekki bara nemendumir. Ég hef ekki
heyrt að það standi til að setja hér upp
eftirlitsmyndavélar, en það kann vel að
vera. Það er nánast ótrúlegt hvað nem-
endur Hvassaleitisskóla ganga vel um
en fyrir um tveimur áratugum var
ástandið slæmt,“ segir Pétur Orri Þórð-
arson, skólastjóri Hvassaleitisskóla.
„Ástandið er almennt gott hér, lítið
um skemmdarverk, en fyrir þremur
árum lentum við í tveimur slæmum
málum þar sem brotnar vora margar
rúður. Veggjakrot er að hverfa, þetta
sem sést nú er lítið, gert með tússpenna
en ekki með úðabrúsum. Ég leyfir mér
að vona að nemendur beri þetta mikla
virðingu fyrir skólanum sínum. Ég er
þó ekki viss um að veggjakrot sé minna
í þessu hverfi en öðrum hverfum borg-
arinnar. Hér er aðeins bamaskóli en í
Hagaskóla hér við hliðina, sem er með
nemendur í efstu bekkjum grunnskóla,
var sprengd ein rúða um áramótin,"
segir Ragna Ólafsdóttir, skólastjóri
Melaskóla. Ragna segist ekki viss um
að þögnin sé besta vömin gegn
skemmdarverkum, vandinn sé líka
þess eðlis að almenn andúð í þjóðfélag-
inu kunni að valda því að skemmdar-
vargar hugsi sig vandlega um áður en
reitt sé til höggs.
Fælingarmáttur
Kristinn Breiðfjörð, skólastjóri
Foldaskóla í Grafarvogi, segir að
minna hafi verið um skemmdarverk í
og við skólann á síðasta ári. Áramótin
séu oft erfið en að þessu sinni hafi eng-
ar skemmdir verið unnar um áramótin
sem sé auðvitað gleðilegt. Við skólann
er vaktkerfi, þ.e. eftirlitsmyndavélar,
og telur Kristinn það hafa mikinn fæl-
ingarmátt auk þess að auðvelda það að
upplýsa mál þegar um skemmdir er að
ræða.
„Dagleg umgengni nemenda í skól-
anum er nú bara eins og gengur og ger-
ist, þó ekkert stórvægilegt, en maður
vill alltaf ná betri árangri. Við gerum
svolítið í því að hvetja nemendur til
þess að ganga vel um og hefúr fræðslu-
ráð verðlaunað þá skóla sem bestum
árangri ná. Þetta er peningagjöf og pen-
ingamir notaðir til að búa betur að
nemendum. Þessi fylgir viðurkenning-
arspjald sem hengt er upp á vegg og á
að vera nemendum hvatning. Folda-
skóli fékk þessi verðlaun fyrir þremur
árum. Vandamálið er að einn og einn
nemandi á í einhveijum verulegum
vanda sem brýst fram í skemmdarfýsn.
Auðvitað brotnar ein og ein rúða í
reiðikasti, en það eru ekki allir skap-
lausir, en venjulega sjá viðkomandi eft-
ir slíku athæfi. Meginreglan er sú að
nemendur greiða fyrir það tjón sem
DV-MYND HARI
Forvarnir mikilvægar
Anna Sigríöur Pétursdóttir, skóla-
stjóri Breiðholtsskóla, segir allar for-
varnir af hinu góða.
þeir valda af ásetningi, en ekki ef um
óhapp er að ræða,“ segir Kristinn.
Góð umgengni verðlaunuö
Stefán Jón Hafstein, formaður
Fræðsluráðs Reykjavikurborgar, segir
að áform séu uppi um að halda áfram
uppsetningu eftirlitsmyndavéla enda
hafi það gefið góða raun.
„Ég hef talið rétt að byggja inn hvata
í skólasamfélagið og þar sem skemmd-
arfýsn veldur ekki miklu tjóni og nem-
endur standa vörð um skóla sinn sé
þeim umbunað á einhvem hátt. Það
gæti t.d. verið verðlaunafé sem þau
gætu ráðstafað fyrir sig. I stað þess að
borga glerísetningarmönnum fari
ákveðin fjárhæð til þess að hjálpa böm-
unum til að gera það sem hugurinn
stendur tO í félagsstarfi eða það sem
þau hafa gaman af. Þetta verður að
horfa tU siðferðis og borgaralegrar vit-
undar og líka að þau skUji þau daglegu
verðmæti sem fari forgörðum," segir
Stefán Jón Hafstein. -GG
VIÐ ELSKUM TÓNLIST... ÞÚ ELSKAR VERRIÐ!
ALLT AÐ 90% AFSLÁTTUR
FULLT AF NÝJUM TITLUM Á FRÁBÆRU VERÐI.
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF KLASSÍSKRITÓNLIST í VERSLUNINNIÁ LAUGAVEGI.
Japis verð, betra verð
JAPISS
Laugavegi 13. Sími: 511 1185 I Brautarholti 2. Sími: 5207605