Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2003, Qupperneq 12
12
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003
DV
Helgarblað
Undirbúningur fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2004 hafinn:
jJBi;
Geta demókratar
velt Bush úr sessi?
Eflir atburðina í New York og
Washington þann 11. september 2001
flykktu Bandaríkjamenn sér um for-
setann sinn, George W. Bush. Hann
þótti standa sig vel í starfi þegar
bandarískt þjóðfélag var sem veikast
og var sá leiðtogi sem almenningur
gat litið upp til. Hann mældist með
hvorki meira né minna en 90% fylgi
á þessum tíma. En nú virðist svo sem
stuðningur við hann hafi minnkað
allverulega og mældust vinsældir
hans í vikunni 58% og hafa ekki
mælst minni á undanfórnum 16 mán-
uðum.
Síðan mótframbjóðandi Georges
W. Bush í forsetakosningunum árið
2000, A1 Gore, lýsti því yfir að hann
hygðist ekki endurtaka þann leik
hafa demókratar víðs vegar að til-
kynnt framboð sitt til tilnefningar
flokksins í forsetaembættiö. Það er
hins vegar alveg greinilegt, þó svo að
fylgi Bush fari dvínandi, að sá sem
flokkurinn tilnefnir á ekki auðvelt
verk fyrir höndum í baráttunni við
Bush. Demókratar hafa aðeins komið
að tveim frambjóðendum í forseta-
embættið á síðustu 30 árum en þeir
hafa þó báðir (Jimmy Carter, 1977 og
Bill Clinton, 1993) komið sitjandi for-
setum úr embætti.
Sterkasti kandídatinn sem hefur
tilkynnt framboð sitt hjá Demókrata-
flokknum til þessa verður að teljast
Joe Lieberman, varaforsetaefni A1
Gore fyrir tveimur árum, en baráttan
fram undan er hörð og margir hinna
frambjóðendanna koma sterkir til
leiks.
Howard Dean
Fyrstur í stafrófsröð af þeim sem
hafa tilkynnt
framboð sitt er
ríkisstjóri
Vermont, maður
að nafni Howard
Dean. Hann er
sonur vellauðugs
kaupsýslumanns
og repúblikana af
Wall Street en
hann er sjálfur læknir að mennt.
Dean er líklega einn af lítt þekkt-
ustu frambjóðendunum enda
Vermont fremur lítið fylki og bak-
grunnur hans í pólitík á landsvísu er
lítill sem enginn. Þó eru fordæmi fyr-
ir því að slíkir menn fari langt, eins
og Jimmy Carter gerði á 8. áratugn-
um. Hans stærsta hindrun er þó án
efa skortur á fjármunum. Og hefur
hann viðurkennt það sjálfur. „Lykill-
inn að því að fólk þekki mann eru
peningar," eins og hann hefur sjálfur
sagt. Dean er þó þekktur fyrir
ákveðna afstöðu sína og hann er ekki
hræddur við að segja sína skoðun,
hann vill til að mynda afnema að
mestu þær skattalækkanir sem Bush
forseti kynnti í síðustu viku.
Hann fékk þó góðan stuðning þegar
Steve Grossman, fyrrum formaður
landsnefndar Demókrataflokksins,
lýsti yfir stuðningi við hann þrátt fyr-
ir langan vinskap sinn við annan
frambjóðanda, John Kerry. „Ég hef
boðið mörgum stjómmálamönnum á
mitt heimili í gegnum tíðina," sagði
hann í viðtali. „Til að mynda Bill
Clinton, A1 Gore og Bill Bradley en
Howard Dean er sá eini sem ég bauð
að gista.“
John Edwards
Þessi fyrmrn skaðabótalögfræöing-
ur er yngsti fram-
bjóðandinn sem
hefur komið fram
til þessa. Hann er
49 ára gamall en á
þó bara 4 ár að
baki sér á póli-
tíska vettvangin-
um, en hann hef-
ur gegnt starfi öld-
ungardeildarþingmanns þann tíma.
REUTERS
Joe Lieberman
Lieberman tilkynnti framboö sitt meö formlegum hætti í vikunni. Hann þykir sterkur frambjóöandi oggæti oröiö fyrsti
forseti Bandaríkjanna sem er gyöingur.
John Edwards vann sér inn auðæfi
sín með því að gera það sem banda-
rískir lögfræðingar eru þekktastir
fyrir - að lokka til sín skjólstæðinga
sem hafa hlotið meiðsli (oft þekktir
sem þeir lögfræðingar sem elta
sírenuvælið í sjúkrabílum). Og hann
þykir góður á þeim vettvangi. Ed-
wards hefur þótt það góður ræðu-
maður að ráðgjafar annars frambjóð-
anda hafa látið viðkomandi skoða
ræður sem Edwards hefur flutt á
þingi, enda afar lipur og sannfærandi
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
blaöamaður
Fréttaljós
í ræðupúltinu.
Vandamálið er hins vegar það að
hann skortir reynslu. Þekking hans á
heimsmálum þykir takmörkuð og
þegar hryðjuverkahættan steðjar að
hinum almenna Bandaríkjamanni
munu þeir sjálfsagt frekar leita að
manni sem getur tryggt öryggi þeirra
gagnvart hættu erlendis frá.
Hann er þó afar mikils metinn í
þinginu og A1 Gore mun hafa hug-
leitt það alvarlega að bjóða honum að
vera varaforsetaefnið hans árið 2000.
Hann skortir vissulega reynslu, en
ferskleiki hans og útlit gæti fleytt
honum langt.
Richard Gephardt
Gephardt virðist á blaði vera afar
sterkur kandídat. Hann er einn fram-
bjóðendanna sem hafa áður reynt við
forsetatilnefning-
una en árið 1988
tapaði hann fyrir
Michael Dukakis
sem laut í lægra
haldi fyrir George
Bush eldri í sjálf-
um kosningunum.
Hann hefur náð
að afla mikils fjár
og hann hefur getuna til að bæta
verulega í sarpinn.
Það var hans draumur að setjast í
forsetastól bandaríska fulltrúaþings-
ins. En það varð aldrei að veruleika
þar sem demókratar töpuðu meiri-
hlutanum á þinginu árið 1994. Þáver-
andi forseti, Thomas S. Foley, náði
ekki að endurvinna sitt sæti á þing-
inu og því kom það i hlut hans næst-
ráðandi, Gephardt, að sjá um að
flytja valdið yfir til Repúblikana-
flokksins, og til nýs forseta, Newt
Gringrich. Gephardt hefur sagt að
hann minnist þessa dags sem eins
versta dags sem hann hefur upplifað.
Sem minnihlutaleiðtogi á þingi
tókst honum aldrei að stýra flokkn-
um til sigurs í þingkosningunum í
þeim fernum kosningum sem hafa
farið fram, nú síðast í nóvember.
Það verður því að teljast líklegt að
frambóð hans nú sé hans síðasta til-
raun til þess pólitíska frama sem
hann hefur svo lengi sóst eftir.
John Kerry
John Kerry hefur verið lýst sem
„versta martröð George W. Bush“.
Hann þjónaði í bandaríska hernum í
10 mánuöi í Víetnam en varð svo
mikill andstæö-
ingur stríðsrekst-
urs. Það eru sjálf-
sagt ekki margir
þingmenn sem
eru með mynd af
sér og John
Lennon að mót-
mæla stríði ann-
ars vegar og af
sjálfum sér sem stríösklæddum garpi
í Víetnam.
Hann hefur víðtæka þekkingu á ut-
anríksmálum Bandaríkjanna enda
hefur hann á sínum 18 árum sem öld-
ungadeildarþingmaður þjónað í ýms-
um nefndum þeim tengdum. Hann
hefur næga fjármuni til að eyða í
kosningabaráttuna og það sem meira
er, hann er giftur arftaka Heinz-mat-
vælaveldisins. Þótt hann segist vilja
afla síns fjár sjálfur hefur hann ekki
útilokað að leita í þá sjóði við sérstök
tilefni.
Það sem gæti hins vegar háð hon-
um er sú frjálslynda afstaða hans
sem má finna í mörgum atkvæða-
greiðslum á þinginu, en á móti kem-
ur að það væri erfitt að saka hann
um skort á þjóðrækni vegna veru
sinnar i Víetnam og þeirra viður-
kenninga sem hann hlaut í framhaidi
af henni.
Forystumenn Demókrataflokksins
fagna sjálfsagt því að fá þarna mann
sem gæti tekist á við Bush á sviði ut-
anríkismála af fullum krafti, nú þeg-
ar ótti við hryöjuverk heima fyrir og
stríðsrekstur á erlendri grund er eins
áberandi og raun ber vitni.
Joe Lieberman
Öldungadeildarþingmaðurinn Jos-
eph I. Lieberman er hið klassíska
ljúfmenni sem öllum viröist líka vel
við. Hann var varaforsetaefni A1
Gore í síðustu forsetakosningum,
eitthvað sem kem-
ur sér vissulega
afar vel nú. Hann
var aðeins 537 at-
kvæðum frá því
að verða fyrsti
varaforseti Banda-
ríkjanna sem er
einnig gyðingur,
en hann vill nú
verða fyrsti Bandaríkjaforseti sem er
af þeirri trú.
Síðasta árið hefur Lieberman und-
irbúið kosningabaráttu sem hefði
hæglega aldrei geta orðið að veru-
leika. Það var ekki fyrr en hann fékk
skilaboðin um að A1 Gore myndi
ekki bjóða sig fram að hann tilkynnti
um sitt framboð. Hann hafði áður
sagt að hann myndi ekki keppast við
A1 Gore um útnefningu flokksins.
Hann þykir hvað hægrisinnaðast-
ur af frambjóðendunum, sérstaklega
hvað varðar varnarmál og þjóðarör-
yggi, en það gæti komið honum illa í
kosningum sem draga til sín mikið af
atkvæðum frá vinstri væng flokks-
ins.
Aðrir sem koma til greina
Enn gætu fleiri boðað þátttöku
sína í kapphlaupinu og má meðal
þeirra nefna Joseph Biden sem gegn-
ir nú formennsku í nefnd erlendra
tengsla í öldungadeildarþinginu.
Hann hefur áður sóst eftir tilnefn-
ingu flokksins og gæti aftur látið
reyna á það.
Aðrir sem hafa verið nefndir til
sögunnar eru Wesley Clark, hers-
höfðingi í bandaríska hernum og
fyrrum yfirmaður hjá NATO. Þá
velta menn einnig fyrir sér hvort
Hillary Clinton ætli að bjóða sig fram
en hún hefur sagt að það muni hún
ekki gera fyrir kosningarnar árið
2004. Séra A1 Sharpton hefur einnig
velt því fyrir sér að bjóða sig fram en
hann þykir heldur ólíklegur til
árangurs.
Byggt á efni frá BBC, The New
York Times og The Washington
Post.
Breytti dauðadómi
Um síðustu helgi
lét George Ryan, rík-
isstjóri Illinois,
verða sitt síðasta
verk í starfi að
breyta dauðadómi
allra fanga í ríkinu
sem bíða aftöku i lifs-
tíðarfangelsi, sem hefur aukið
þrýstinginn inn afnám dauðarefs-
ingar í Bandaríkjunum. Demókrat-
inn Russ Feingold kallaði í kjölfarið
eftir endurskoðun og frestun allra
dauðarefsinga í landinu en úr því
varð ekki, en tveir menn voru líf-
látnir í Texas í vikunni.
Sprengjuoddur fannst
Vopnaeftirlitsmenn í írak fundu í
fyrradag 11 tóma eldflaugaodda sem
hannaðir eru til þess að bera efna-
vopn og þann tólfta af annari
óþekktri gerð. Hossam Mohammed
Amin, hershöfðingi og talsmaður
iraska hersins, gerði lítið úr fundin-
um og sagði hann aðeins vera storm
í vatnsglasi. Viðbrögð Bandaríkj-
anna voru í fyrstu mild, sem kom
nokkuð á óvart, en síðar sögðu þeir
fundinn vera „áhyggjuvaldandi og
alvarlegan".
Kínverjar miðla málum
Bæði rússneskir
og bandarískir er-
indrekar hittu að
máli kínverska emb-
ættismenn í vikunni
vegna kjarnorkudeil-
unnar í N-Kóreu.
James Kelly, varautanríkisráðherra
Bandaríkjanna, fundaði með Kín-
verjum á miðvikudag og sagði eftir
fundinn að ferlið að lausn málsins
myndi ganga hægt og erfiðlega fyrir
sig. Fyrr í vikunni höfðu Banda-
ríkjamenn gefið í skyn að þeir væru
tilbúnir að veita N-Kóreumönnum
efnahagslega aðstoð létu þeir af
kjamorkuáætlunum sínum.
Rússnesk sendinefnd undir for-
ystu Alezanders Losukovs, aðstoð-
arutanríkisráðherra Rússlands,
kom svo til Peking í gær þar sem
hann hugðist kynna nýja sáttatil-
lögu Rússa varðandi lausn deilunn-
ar.
Sharon endurheimtir fylgi
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun
sem ísraelska dagblaðið Ha’aretz birti
í gær, virðist Ariel Sharon, forsætis-
ráðherra ísraels, vera að eindur-
heimta fylgi sitt sem sigið hafði veru-
lega samkvæmt könnun sem gerð var
í kjölfar ásakana um að hann og syn-
ir hans væru flæktir í fjármála-
hneyskli. Likud-bandalagið fengi sam-
kvæmt könnuninni 30 þingsæti af 120
og bæta þar með við sig þremur frá
síðustu könnun. Verkamannaflokkur-
inn, sem harðast hefur gengið fram í
gagnrýninni á Sharon, fengi 20 þing-
sæti og hefði þar með tapað fjórum
síðan í fyrri könnun.
Norðmenn vilja í ESB
Samkvæmt könnunum NRK og Af-
tenposten í Noregi vilja 2 af hverjum
3 Norðmönnum ganga í ESB. Aldrei
fyrr hefur vilji Norðmanna fyrir inn-
göngu verið meiri en ESB-aðild var
hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu árið
1994. Þrátt fyrir þetta mun ríkisstjórn-
in ekki hvika frá málefnasamningi
sinum sem kveður á um að umræður
um aðild séu ekki á dagskrá ríkis-
stjórnarinnar.
Þekktir Bretar handteknir
Sjónvarpsmaður-
inn Matthew Kelly og
rokkarinn Pete
Townshend voru í
vikunni handteknir
vegna ásakana um
kynferðislega mis-
notkun á ungum
drengjum í tilfelli Kellys annars vegar
og að hafa greitt fyrir aðgang að
bamáklámi á Netinu hins vegar. Þeir
neituðu báðir staðfastlega sök og var
þeim sleppt án ákæru. Þeir munu þó
þurfa að mæta aftur í yfirheyrslu á
komandi vikum.
Townshend viðurkennir að hafa
nálgast bamaklám á Netinu en það
aðeins í rannsóknarskyni fyrir bók
sem hann er að skrifa.