Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2003, Side 16
16
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003
DV
Helgarblað
Samband rithöfundarins Lyttons Stracheys og Doru
Carrlngton var bæöi fallegt og átakanlegt. Þau bjuggu
saman I sextán ár. Hann var samkynhneigöur en hún
elskaöi hann af ótrúlegri staöfestu og liföi fyrir hann.
Þegar hann lést missti hún lífslöngun.
Lytton Strachey fæddist árið 1880 og ólst upp
við gott atlæti móður sinnar. Hann kynntist harð-
neskju heimsins þegar hann var sendur að heim-
an og í skóla þar sem hann varð fyrir einelti.
Hann þótti álkulegur, með langa útlimi sem virt-
ust sífellt flækjast fyrir honum. Alla ævi urðu
einhverjir tii að líkja honum við fuglahræðu.
Hann var viðkvæmur og mislyndur einstak-
lingur sem uppgötvaði snemma að heimurinn er
harður og miskunnarlaus. Hann komst einnig að
þeirri niðurstöðu að fólk væri upp til hópa ekki
sérlega áhugavert. Hann brást við með þvi að láta
eins og hvorki heimurinn né íbúar hans kæmu
sér við. Hann kom sér i hlutverk kaldhæðins
áhorfanda og gaf ekki höggstað á sér með því að
opinbera innstu tilfmningar sínar. Með árunum
gekk hann inn í þetta hlutverk af sífellt meira ör-
yggi og sá eiginleiki hans að geta hafið sig yfir
aðstæður gerði það að verkum að fólk laðaðist að
mönnum og málefn-
um. Hún bjó yfir bamslegu sakleysi, viðkvæmni
og einlægni. Eftir stutt kynni þeirra Lyttons varð
hún yfir sig ástfangin af honum. Innst inni gerði
hún sér vonir um að Lytton myndi giftast henni
en hún setti engin skOyrði. Lytton þótti vænt um
Carrington en hann var ekki ástfanginn af henni.
Hann dáði lífskraftinn sem hún bjó yfir en
gramdist stundum menntunarskortur hennar og
sá kjánaskapur sem hún gerði sig einstaka sinn-
um seka um. Hann var upp með sér vegna ástar
hennar og aðdáunar en vissi ekki ætíð hvemig
hann átti að bregðast við.
„Samband háð takmörkunum“
Dora Carrington giftist vegna þess aö hún hélt
að annars myndi Lytton yfirgefa sig. Þau höfðu
stofnað saman heimili þar sem hún gegndi eins
konar ráðskonuhlutverki. í sextán ár, allt þar til
Lytton lést, fólst hlutverk hennar fyrst og fremst
í því að sjá um hann og einstaka frístundir not-
aði hún til að mála.
Ungur maður, Ralph Partridge, kom árið 1918 í
heimsókn til Lyttons og Carrington. Lytton varð
Lytton Strachey
Rithöfundur og gagnrýnandi. Hann átti sérkenniiegt vináttusamband viö
myndiistarkonuna Doru Carrington sem fórnaöi öllu hans vegna og fyrirfór
sér eftir lát hans.
Fórnfús ást
honum vegna þess
að hann virtist búa
yfir innri styrk og
fullkominni ró.
Lytton skrifaði
fjölda greina og
nokkrar bækur, þar
á meðal ævisögur
þekktra einstak-
linga á Viktoríutím-
anum og ævisögur
Viktoríu drottning-
ar og Elísabetar 1.
Bækur Lyttons
þykja afburðavel
stílaðar, fágaðar og
samdar af miklum
hagleik. Skáldskap-
argáfan leiddi höf-
undinn reyndar á
einstaka stað út í
gönur þannig að
sagnfræðin varð á
stundum vafasöm
en verkin eru þó
einkar skemmtileg
aflestrar og teljast
rismiklar bók-
menntir.
Elskað af örlæti
Lytton var sam-
kynhneigður og
varð yfirleitt ást-
fanginn af karl-
mönnum sem gátu
ekki eða vildu ekki
endurgjalda ást
hans. Það var kona
sem unni Lytton
heitast allra. Hún
hét Dora Carrington
og var hæfileikarík
myndlistarkona sem
var þrettán árum
yngri en Lytton.
Hún var feimin og
hlédræg að eðlisfari
en um leið afar sjálf-
stæð kona og hafði
ákveðnar skoðanir á
yfir sig ástfanginn af Ralph en Ralph varð ást-
fanginn af Carrington. Carrington hreifst af
Ralph en elskaði Lytton. Ralph bað Carrington
hvað eftir annað en hún hafnaði honum en loks
tók hún bónorði hans af ótta við að Ralph myndi
annars fara og Lytton myndi um leið ekki sjá
ástæðu til að búa með henni lengur. Skömmu fyr-
ir giftinguna skrifaði Carrington bréf til Lyttons
sem þá var á Ítalíu. Þar sagði hún: „Allan tímann
hef ég vitað að líf mitt með þér yrði háð takmörk-
unum. Ég gat aldrei vonast til að það yrði til
frambúðar. Þegar allt kemur til alls, Lytton, ertu
eina manneskjan sem ég hef nokkru sinni orðið
gagntekin af. Það verður engin önnur.“ Lytton
svaraði og sagði: „Vera má að ég hafi fært þér
meiri óhamingju en nokkuö annað. Ég vona að
svo sé ekki og að ást mín á þér, þótt hún sé ekki
á þann veg sem þú óskar, megi færa þér sömu
blessun og hún hefur fært mér.“
Hjónabandið varð ekki hamingjuríkt og bæði
Carrington og Ralph áttu í ástarsamböndum utan
hjónabands. Eitt slíkt ævintýri varð til þess að
Carrington varð bamshafafandi en hún lét eyða
fóstrinu. Hún sagði að hún gæti ekki hugsað sér
að eignast bam nema það væri barn Lyttons.
„Ég hef aldrei séð manneskju fá þá þjónustu
sem hún veitti Lytton. Hún meðtók orð hans og
látbragð af þvilíkri lotningu að furðu sætir þegar
haft er í huga að í hlut átti kona sem að öllu jöfnu
barðist af miskunnarleysi fyrir sjálfstæði sínu,“
sagði einn elskhuga Carrington en elskhugar
hennar og eiginmaður kvörtuðu undan því að
hún væri sífellt að verja persónu sína, tilvist sína
og sjálfstæði fyrir ágangi þeirra. En þegar Lytton
átti í hlut gaf hún af stöðugu örlæti og henni
fannst sjálfri að hún gæfi aldrei nóg.
„Hann gaf mér allt“
Þegar Lytton veiktist af krabbameini fundu
vinir Carrington bréf í fóram hennar. Þar kom
fram að hún hugðist fyrirfara sér eftir lát
Lyttons. Lytton lá banaleguna og þegar Carr-
ington var ljóst að hann myndi ekki lifa kyssti
hún hann á ennið og gekk síðan út. Eiginmaður
hennar fann hana stuttu síðar í bílskúr þar sem
hún hafði sett bíl í gang og hugðist fyrirfara sér.
Ef eiginmaður hennar hefði komið nokkrum mín-
útum seinna hefði hann komið að henni látinni.
Carrington var stödd hjá Lytton þegar hann
lést. Síðustu orð hans voru: „Ef þetta er dauðinn
þá hef ég ekki mikið álit á honum." Eiginmaður
Carrington og vinir höfðu á henni strangar gæt-
ur eftir dauða Lyttons því þau óttuöust að hún
myndi fyrirfara sér. Hún grét og skrifaði í dagbók
sína endalausar kveðjur til Lyttons: „Hann var,
og þess vegna er hann mér allt, eina manneskjan
sem ég þurfti aldrei að ljúga að. Hann ætlaðist
aldrei til þess að ég væri annað en það sem ég er.
Enginn mun nokkru sinni vita af hinni full-
komnu hamingju sem einkenndi samveru okk-
ar.“
Sjö vikum eftir lát Lyttons sagði Carrington
grátandi við Virginiu Woolf: „Það er ekkert sem
ég get gert. Allt sem ég gerði var gert fyrir
Lytton. En mér mistókst í öllu öðru. Fólk segir að
hann hafi verið eigingjarn í samskiptum okkar.
En hann gaf mér allt.“ Daginn eftir klæddist
Carrington silkisloppi sem Lytton hafði átt, og
tók sér byssu í hönd. Hún ætlaöi að skjóta sig í
hjartað en skotið geigaði og lenti í maganum.
Hún lést seinna um daginn eftir miklar þjáning-
ar. Hún bað eiginmann sinn að brenna líkama
sinn og setja öskuna í mold nálægt staðnum þar
sem Lytton Strachey var grafinn.
Ljóð vikunnar
/ val
- eftir Jóhann Gunnar Sigurösson
Rlddarinn hallast við brotinn brand,
bœrist hans kalda vör:
Nú er dauðinn að nólgast mig,
nú er mér horfið fjör.
Riddarinn hallast við brotlnn brand,
blœðir hans djúpa und:
Lífið var áður svo IJómandi bjart,
nú lokast hið hinsta sund.
Riddarinn hallast við brotlnn brand,
bleik er hans unga kinn:
Ekkl er ég vitund hrœddur við hel,
en hefndu mín, vinur minni
Riddarinn hallast við brotinn brand,
bíður hans mannlaust fley:
Ég œtla að vinna mér fé og frœgð
og festa mér unga mey.
Riddarlnn haliast við brotlnn brand,
brosir svo hœgt og rótt:
Kóngsdóttir fyrir handan haf,
hjartað mitt, góða nótt!
Mótlæti og breysk-
ar hetjur
Uppáhaldsbœkur Eiríks Bergmanns Einarssonar
„Einhverra hluta vegna virðist ég hrífast mest
af frásögnum af einrænum og breyskum mönnum
sem hafa mætt mótlæti í lífinu.
Þótt skáldsögur séu sosum
ágætar til síns brúks orka ævi-
sögur sterkar á mig. Ég vil lesa
um raunverulegt fólk sem hefur
reynt eitthvað í lífinu. Tvær
bækur heltóku mig á mótunar-
áram. Dagbók Önnu Frank
hafði djúpstæð og afgerandi
áhrif á mig sem bam þannig að
mörgum ámm seinna, þegar ég
heimsótti risloftið þar sem hún
faldi sig fyrir nasistum í
Amsterdam, fór ég að grenja -
fullorðinn maðurinn. Bókin Ég
lifi er af sama meiði, saga af
gyðingastráknum Martin Grey
sem var staðráðinn í láta nas-
istana ekki ná sér og lifa helfór-
ina af til þess eins aö geta sagt frá. Aðstæður voru
fullkomlega og algerlega vonlausar en af einstakri
lífslöngun lék hann á kvalara sína af slíkri útsjón-
arsemi að ótrúlegt má þykja. Samt var hann bara
venjulegur maður.
Bókin Hlauptu drengur
hlauptu segir sögu Nicky Cruz,
sonar djöfladýrkanda á Puerto
Rico sem verður að blóðþyrst-
um foringja Mau Mau
glæpaklikunnar í New York en
sér síðan ljósið og snýr við
blaðinu. Af bókum sem ég hef
lesið nýleg kemst saga Stefans
Zweig, Veröld sem var, næst
þessu þema - saga af manni
sem lifir af veröld sem varð vit-
laus þegar allt fór í bál og brand
í Evrópu. Allar eiga söguhetj-
umar það þó sammerkt að þær
komu brotnar út úr átökunum,
þær sem lifðu af. Eitthvað brast
innra með þeim. Þegar best læt-
ur ná skáldsögur að fanga álíka raunveruleika -
til að mynda Salka Valka hans Kiljans."
Bestu verk Twains
Mark Twain: Selected Works
Myndskreytt útgáfa, um 700 blað-
síður, af mörgum þekktustu verkum
Marks Twains, þar á meðal Stikils-
berja-Finni, Ævintýrum Toms
Sawyer, Prinsin-
uin og betlaranum .
og A Connecticut L
Yankee in King |
Arthur’s Court. |
Sérstaklega skal I
mælt meö hinni
einstaklega íjör- |
miklu og fyndnu
sögu um Stikilsberja-Finn sem er
skyldulesning fyrir alla bókmennta-
áhugamenn. Þetta safn fæst í Máli
og menningu og kostar tæpar 3000
krónur. Bókmenntir í heimsklassa.
Kvótið
Orð eru ekki annað en
vatnsbólur - en verk eru
gulldropar.
Kínverskur málsháttur
2. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason
3. Egils saga m/skýringum
4. Leggðu rækt við sjálfan þig.
Anna Valdimarsdóttir
5. Napóleonsskjölin.
Arnaldur Indriðason
6. ísland í aldanna rás - 3. bindi.
Illugi Jökulsson
7. ísland á 20. öld.
Helqi Skúli Kjartansson
8. Sjálfstætt fólk. Halldór Laxness
9. Hver tók ostinn minn?
Spencer Johnson og Kenneth H.
Blanchard
10. Hringadróttinssaga.
J.R.R. Tolkien
Skáldverk
1. Grafarþögn.
Arnaldur Indriðason
2. Dauðarósir. Arnaldur
Indriðason
3. Egils saga m/skýringum
4. Napóleonsskjölin.
Arnaldur Indriðason
5. Hringadróttinssaga.
J.R.R. Tolkien
6. Mávahlátur.
Kristin Marja Baldursdóttir
7. Hilmir snýr heim. J.R.R, Tolkien
8. Bridget Jones - Á barmi
taugaáfalls. Helen Fieldinq
9. tslandsklukkan. Halldór Laxness
10. Kaldaljós. Viqdís Grímsdóttir
Handbækur, fræðibækur og
ævisögur
1. Leggðu rækt við sjálfan þig.
Anna Valdimarsdóttir
2. ísland í aldanna rás - 3. bindi.
Illuqi Jökulsson
3. fsland á 20. öld.
Helqi Skúli Kjartansson
4. Hver tók ostinn minn?
Spencer Johnson og Kenneth H.
Blanchard
5. Dönsk-íslensk/íslensk-dönsk
orðabók
Metsölulisti Eymundssonar 8.-14. janúar