Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2003, Page 17
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2003
He iga rb laö H>’Vr
I ~7
Nú syndi ég
í djúpinu
Björk Jakobsdóttir frumsýndi síðasta vor
einleikinn Sellófon. Björk hefur nú flutt Sell-
ófon yfir íNasa við Austurvöll auk þess sem
hún hefur selt það til útlanda. Björk ræðir í
viðtali við Helgarblað DV um velqenqnina,
lífsbaráttuna oq viðskilnaðinn við Hafnar-
fjarðarleikhúsið.
. Sjá næstu opnu
Þú ert komin í leikferð til Reykjavíkur, ef svo má
segja.
„Já, ég er að setja Sellófon upp í Nasa við Austur-
völl,“ segir Björk. „Á strríðsárunum var þar frægt
revíuleikhús. Þetta hús er ótrúlegur gullmoli sem hef-
ur fengið að halda upprunalegri mynd.
Margir hafa spurt mig hvort Nasa sé ekki skemmti-
staður. Ég hélt sjálf að þetta væri risastórt þegar
Bjarni Haukur Þórsson, vinur minn, benti mér á
staðinn og sagði mér að eigendurna langaði að endur-
vekja leiklistarstarfsemi í húsinu. Síðan þegar ég kom
inn í húsið var það eins og að ganga inn í félagsheimili.
Nasa hentar mjög vel fyrir leikhús og ég kemst með Sell-
ófon í stærri sal en næ samt að halda nálægðinni sem
skapaðist í Hafnarfjaröarleikhúsinu."