Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2003, Qupperneq 26
26
Helcjctrblaö JO'V LAUOA.RDAGUR IS. JANÚAR 2003
Grín
„Cg ólst upp ívestur-
luto Chicaqo og þegar
ég var /6 ára uppgötv-
aði ég hæfileika minn
til að koma öðrum til
að hlæja,“ útskgrir
Tou/nsend.
mál
.....
Denzel
Washington
ásamt
Robert
Townsend.
Draumurinn var alltaf að verða atvinnumaður í
körfubolta en þjálfararnir voru lítið fyrir það að láta
mig spila. Ég sat þess vegna alltaf á varamannabekkn-
um en þar hafði ég ekkert betra að gera en að segja
hinum liðsfélögunum brandara. Fljótlega ákvað ég því
að reyna frekar fyrir mér í leiklistinni og gekk til liðs
við leikhóp í hverfinu. Þegar ég siðan fór í háskóla í
New Jersey eyddi ég mestum tima í að ferðast með
lestinni til New York þar sem ég sótti grínklúbba auk
þess að læra leiklist hjá The Negro Ensemble Company
undir handleiðslu Stellu Adler. Ég fór fljótlega að
vinna sem uppistandari á klúbbunum í New York og
áður en ég útskrifaðist loks úr háskólanum var ég líka
farinn að vinna sem aðstoðarmaður viö uppsetningu
söngleikja á Broadway."
Kvikmynd gerð ineð kreditkorti
Robert lék í upphafi ferils síns í kvikmyndum eins
og Cooley High, A Soldier’s Story og The Mighty
Quinn ásamt Denzel Washington. Þar segist hann hafa
fengið brennandi áhuga á kvikmyndagerð og leik-
stjórn.
„Á mínum fyrstu árum í leiklistinni lærði ég mikið.
Enn fremur jók þetta áhuga minn á því að vera hinum
megin við myndavélina og þess vegna fór ég að semja
mikið af handritum, bæði að kvikmyndum og sjón-
varpsþáttum. Eftir að hafa unnið að minni verkefnum
í dálítinn tíma tók ég þá ákvörðun að framleiða sjálf-
ur grínmynd sem ég hafði skrifað handritið að.“
Robert lét þó ekki nægja að skrifa handritið og fram-
leiða myndina heldur lék hann einnig aðalhlutverkið
ásamt því að leikstýra öllu saman.
„Til að þetta gæti gengið upp varð ég að skuldsetja
mig í botn en á endanum náði ég að safna nægilega
miklum fjármunum með því að fullnýta heimildirnar
á öllum kreditkortunum mínum," segir Robert og
hlær.
Áhættan borgaði sig þó og rúmlega það því kvik-
myndin sem hér um ræðir, Hollywood Shuffle, þykir
enn í dag einhver best heppnaða grínmynd siðari ára
ef marka má kvikmyndaspekinga vestanhafs.
Þörf fyrir sviðið
„Meðan á öllu þessu stóð gaf ég mér þó alltaf tíma til
að þess að gera það sem mér finnst skemmtilegast, að
vera uppi á sviöi að skemmta. En síðustu 10-15 árin
hef ég bara einfaldlega ekki haft tíma til þess vegna
mikilla anna,“ segir Robert sem hlakkar greinilega til
að komast upp á sviðið á ný.
„Ég hef samt sem áður komið að fjölda uppistanda á
þessum tíma. Ég hef aðstoðað fjölda manns við gerð
handrita að svona uppistandssýningum auk þess sem
ég hef gefið ýmsar ráðleggingar," segir Townsend hóg-
værðin uppmáluð.
Sannleikurinn er nefnilega sá að hann leikstýrði og
skrifaði handritið að þekktustu uppistandsgrínmynd
allra tíma, Raw, með Eddie Murphy. Þegar hann er
inntur eftir þessu svarar hann um hæl: „Jú, jú, ég leik-
Hér er Robert Townsend ásamt Keenen Ivon' Wayans.
ara í New York, Reykjavík eða Tokyo. Hlutirnir sem
ég geri grín að eru i það minnsta þess eðlis að þeir eru
sameiginlegir öllum. Kynlíf, barneignir, leiðinlegir ná-
grannar, yfirmenn og makar er t.d. eitthvað sem allir
þekkja óháð búsetu eða kyni. Þannig að allir eiga að
geta haft gaman af þessu. En ísland varö samt fyrir
valinu vegna þess að ég var búinn að heyra að það
væri miklu erfiðara að koma íslendingum til að hlæja
en öðru fólki. Ég vil nefnilega hafa smá áskorun þegar
ég fer upp á svið eftir svona langt hlé,“ segir Robert og
hlær.
„Nei, nei, ég er bara að grínast, ég veit í raun ekk-
ert um íslendinga. Þetta kom þannig til að vinur minn,
Tim Goldberg, var staddur þarna um daginn með Ron
Jeremy til að kynna nýju myndina hans. Honum leist
bara svona vel á ykkur að hann hvatti
mig til að koma þangað með prógrammið
mitt. Við Tim höfum veriö vinir lengi og
ég treysti hans dómgreind ágætlega auk
þess sem ég hef alltaf gaman af því að
prófa eitthvað nýtt og spennandi þannig
ég ákvað bara að slá til.“
Keenen Ivorv Wayans, Robert
Townsend og Bill Duke.
stýrði Raw en við Eddie skrifuðum handritiö sarnan"
og hefur ekki fleiri orð um það.
En hvað varð til þess að Robert gaf sér aftur tima til
þess að fara aö skemmta á sviði og af hverju varð ís-
land fyrir valinu sem frumsýningarstaöar fyrir þessa
nýju sýningu sem svo mikil eftirvænting ríkir fyrir í
Bandaríkjunum?
„Þetta gerðist þannig aö ég var að hjálpa Chris
Tucker að skrifa handrit að stand up sýningu sem
hann var með á síðasta ári. Eftir að við höfðum setið
sveittir við skriftir fyrsta daginn ákváðum við að fara
á grínklúbb um kvöldið til að slaka aðeins á. Þar fékk
ég hreinlega hugljómun við að sjá viðbrögð fólksins í
salnum og Chris hvatti mig til að gefa mér tima til að
búa til nýtt prógramm og leggja upp í túr um Banda-
ríkin. Hann hélt síðan áfram að þrýsta á mig og ég fór
að finna hversu mikla þörf ég hafði fyrir sviðið þannig
að ég sló til.“
Grín er alþjóðlegt tungumál
„Ég hef alltaf litið svo á að grín sé alþjóðlegt tungu-
mál og það skipti litlu hvort maður er að segja brand-
Með mörg járn í eldinuni
„Ég á nú samt von á því að fá sendan
pakka frá íslandi fljótlega með tónlist,
heimildarmynd um landið og einhverjar
upptökur af grínistum sem mér skilst að
eigi að troða upp með mér. Þannig að
þegar ég kem til ykkar í næsta mánuði
verð ég eitthvað búinn að kynna mér um
hvað þetta snýst hjá ykkur," segir Ro-
bert en hann mun troða upp í Háskóla-
bíói í næsta mánuði ásamt Þorsteini
Guðmundssyni og öðrum vel völdum
gestum, innlendum sem erlendum. Eins
og áður sagði leggur Robert Townsend
upp í ferð um Bandaríkin að lokinni
heimsókn sinni hingað til lands en að
því loknu tekur kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerðin
aftur við.
„Eftir Bandaríkjaferðina fer ég að vinna að nýrri
kvikmynd með fyrirmyndarfóðurnum sjálfum, Bill
Cosby, og svo erum viö Chris Tucker með fleiri járn í
eldinum. Það er alltaf nóg að gera hjá mér,“ segir Ro-
bert og bætir við að hann hafi í síðustu viku verið að
skila inn prufuþætti sem hann vonar að komist til sýn-
ingar á HBO-sjónvarpsstöðinni.
Hann hefur áður samið og leikstýrt þáttum og sjón-
varpsmyndum sem hafa verið sýndar á mörgum af
helstu sjónvarpsstöðvum Bandaríkjanna og notið mik-
illa vinsælda. Kvikmyndagerðin hefur samt sem áður
ekki setið á hakanum og á síðustu árum hefur hann
m.a. leikstýrt og starfað með fólki á borð við James
Earl Jones, Natalie Cole, Halle Barry, Whoopie Gold-
berg, Wyclef Jean, Sinbad og Beyonce Knowles.
Það verða því talsverðar væntingar þegar Townsend
stígur á svið Háskólabíós í næsta mánuði og sjálfur
segir hann tilhlökkunina mikla:
„Ég lofa að taka fjörið með mér þegar ég kem. í það
minnsta er ég búinn að bíða lengi eftir því að fara upp
á svið á ný þannig ég hlakka mikið til.“ -áb